Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Yildu kaupa sláturhúsið með afsali á stofnsjóði Fagradal - Margir bændur í V-Skaftafellssýslu hafa leitað til Kaupfélags A-Skaftafellssýslu um slátrun á fé í haust. Það er vegna mikillar óánægju meðal bænda í Mýrdalshreppi með það að Sláturfé- lag Suðurlands hætti slátrun í slát- urhúsi félagsins í Vík í Mýrdal. Bændum finnst gengið yfir sig þar sem þessi ákvörðun er tekin af stjóm og forstjóra án þess að ræða fyrst við félagsmenn á félags- svæði sláturhússins í Vík í Mýrdal. Bændur em orðnir langþreyttir á að eiga félagið og verða að styðja það þegar illa gengur en hafa svo engan tillögurétt þegar betur geng- Morgunblaðið/Jónas Erlendsson LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 JfN |í Grænt númer \.../ Símtal í grœnt núincr er ókcypis fyrir þann sem hringir* *Gildir fyrir simtöl innanlands. Ef hringt er úr farsíma, greiðir sá sem hringir farsímagjald. PÓSTUR OG SlMI Hópur bænda á svæðinu fór því fram á að fá húsið í Vík afhent eða keypt með afsali á stofnsjóði sínum í félaginu. Þessu erindi var hafnað af stjórn SS. Einnig em bændur hræddir við að leggja sauðfé inn hjá SS ef sláturhús SS á Selfossi fær ekki leyfí til að flytja út til landa Evrópusambandsins vegna þess að eftir að nýi búvömsamningurinn gekk í gildi fer u.þ.b. 19% af inn- leggi bænda til útflutnings og skipt- ir því verulegu máli að eitthvert verð fáist fýrir útflutningskjötið. Þess má geta að KASK hefur út- flutningsleyfi til Evrópu. Kjartan Hreinsson, sláturhús- stjóri hjá KASK, vildi ekki gefa upp nákvæma tölu hvað margir bændur úr V-Skaftafellssýslu leggðu inn hjá fyrirtækinu en talan 30 væri ekki fjarri lagi með nokkur þúsund fjár. Á myndinni er verið að reka lömb um borð í nýja fjárflutningabílinn frá KASK sem á dögunum kom í sína fyrstu ferð í Mýrdalinn. Þá tók hann á fjórða hundrað lömb á bæn- um Kerlingadal í Mýrdal. --------♦ ♦ ♦ Nýr skóla- stjóri Stóru- Vogaskóla Vogum - Nýr skólastjón hefur komið til starfa í Stóm-Vogaskóla í Vogum. Hann heitir Snæbjöm Reynisson og kemur frá Hofsósi þar sem hann hefur verið skólastjóri frá árinu 1990. Snæbjörn segir að sér lítist vel á Snæbjörn Reynisson athuga með hvernig skuli un. staðinn, kennar- alið og nemend- ur, en að skóla- húsnæði sé þröngt. Hann segir að það standi til bóta því næsta sumar sé áætlað að hefja skólabyggingu. Núna er starfandi undirbúnings- nefnd sem á að þörfína og ákveða yggja og hefja hönn- Nemendur við skólann í vetur eru 127, sem er talsverð fækkun frá í fyrra. Kennarar með skólastjóra em 12, tveir gangaverðir, en annar er einnig bílstjóri skólabíls, húsvörður í hlutastarfí en hann er einnig bæj- arverkstjóri og ræstitæknir. Starfs- menn em alls 16. Snæbjörn segir að skólinn verði að öllum líkindum aðili að skóla- málaskrifstofu Reykjanesbæjar og gerir hann sér miklar vonir um sam- starf við hana. Blað allra landsmanna! - kjami málsins! 205 möguleikar til að nálgast milljónir! Lottósölustaðimir eru tvöhundruð og fimm. = Lottósölustaður -draumurinn gæti orðið áð veruleika 1 aðu þér iniða lyrir kl. 20.-’° á Uiugardaginn. HVlTA HÚSIO / SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.