Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 42
12 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLA.ÐIÐ Matur og matgerd Perur Eru perur bara perur? spyr Kristín Gestsdóttir, sem segir að erfitt sé að fá upplýsingar um hinar ýmsu tegundir ávaxta, sem seldar eru í búðum. FYRR í sumar sá ég smáar skemmtilegar perur í stórmarkað- inum, sem ég versla í. Ég spurði starfsstúlku sem var að raða í ávaxtarekka hvaða perur þetta væru. Það stóð ekki á svarinu. „Þetta eru bara perur.“ Svo mörg voru þau orð. Mér tókst að hafa upp á manni, sem vildi greiða götu mína, en hann sagðist því miður ekki vita hvaða perur þetta væru, það væri búið að henda umbúðunum, en hann skyldi hringja í heildsöluna og þar fékk ég allar upplýsingar. Það er eins með perur og aðra ávexti, að þær eru mismunandi eftir tegundum, en það virðist ógjörlegt að fá nokkrar upplýsingar í búðum og sjaldan er varan merkt með nafni. Annað vekur líka furðu, íslending- ar borða ávexti, en vilja ógjarnan smakka þau afbrigði tegundarinn- ar, sem þeir ekki, þekkja og flokka t.d. epli eftir lit, rauð, gul og græn þótt ýmsar gerðir séu af rauðum, grænum og gulum eplum. Perur hafa vaxið í Litlu-Asíu frá ómunatíð. Forngrikkir og Rómveijar notuðu þær mikið, hrá- ar, soðnar og þurrkaðar og þjuggu líka áfengan drykk úr þeim. Nú orðið er lítið ræktað af hinum svo- kölluðu matarperum en því meira af hinum tegundunum, sem eru geysimargar. Nú eru að koma hér íbúðir mjög góðar pemr, sem heita Conference, en þær koma síðari hluta árs á markaðinn. Tegundin hlaut nafnið Conference (ráð- stefnuperur) árið 1885 eftir að hún fékk 1. verðlaun á stórri ráðstefnu sem breskir peruræktendur efndu til. Tegund þessi er mjög safarík og mjúk, meðalstór og löng með sveigmyndaðan topp. Liturinn er grængulur út í gulbrúnan og stundum með örlítum rauðum blæ. Mér finnst perur geysigóðar og borða allar tegundir þeirra, flestar eins og þær koma fyrir, en ef þær eru harðar og illa þroskaðar sýð ég þær í sítrónusafa, sykri og vatni og þá verða þær algjört lost- æti. Sykurbrúnaðar perur 6 perur 2'h dl sykur 3A dl vatn 1 'h tsk. kartöflumjöl kanill á hnífsoddi 2 msk. vatn 1 msk. smjör 1. Afhýðið perurnar og skerið úr þeim kjarnann. 2. Setjið sykur í pott, hafið hæg- an hita og látið sykurinn bráðna og brúnast örlítið. 3. Setjið vatn út í og látið jafn- ast vel. 4. Leggið perurnar í karamellu- bráðina, ausið yfir þær og sjóðið í um 10 mínútur, snúið við á miðjum tímanum. Takið perurnar úr pottin- um og setjið í smáskálar eða eina stóra. 5. Hristið saman kartölumjöl, kanil og vatn og hrærið út í sykur- bráðina ásamt smjöri. Ausið yfír perurnar í skálunum. Kælið. Meðlæti: ís eða þeyttur ijómi. Súkkulaðihúðaðir perupinnar 4 perur 200 g hjúpsúkkulaði 3 msk. fínt saxaðar möndlur eða annað sem setja má utan á súkkulaðið, (eins og gert er við ís) 16 spýtur eins og notaðar eru í íspinna (fást í föndurbúðum) 1. Setjið saxaðar möndlur á þurra pönnu og brúnið örlítið. 2. Skerið perurnar í fernt langs- um, stingið spýtu í breiðari enda peranna. 3. Hitið bakaraofninn í 70°C, setjið súkkulaðið á hann og látið bráðna, það tekur um 7 mínútur. 4. Þerrið perubitana vel með eld- húspappír og húðið með súkklaðinu. Notið hníf til að smyija því á. Dýfíð síðan ísöxuðu möndlurnar. Leggið á smurðan álpappír. STÓLPI fyrir Windows er samhæfður Word og Excel. Sveigjanleiki í fyrirrúmi. gl KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 IDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Nýr Dagur KONA nokkur á Akureyri sendi Velvakanda þessa vísu, en hún er ósátt við breytinguna á Degi. Þeir segja að Dagur í dá sé nú fallinn og drukkni víst bráðum í Tímans rás. Það aumt er að vita og afleit- ur gallinn hann átti ekki að fara á þann vitlausa bás. Því bróðirinn stóri með gráð- ugt sitt gin hann gleypir þann smáa þótt teljisigvin. Ókurteis framkoma FRIÐDÍS Friðjónsdóttir, Austurbrún 2, hringdi: „Eg bý í íbúð Oryrkja- bandalagsins í Austurbrún 2, en þar er geislahitun sem ég á engan hátt þoli. Ég hringdi á skrifstofu Ör- yrkjabandalagsins og ósk- aði eftir íbúðaskiptum en fékk óblíðar móttökur hjá ákveðnum starfsmanni þar. Ég hringdi í yfirmann þessa starfsmanns og kvartaði yfír framkomu hans við mig. Síðan þá hef ég svo sannarlega fengið að finna til tevatnsins þau skipti sem ég hef hringt til að ítreka beiðni mína um íbúðaskipti. Af hálfu starfsmannsins hef ég þurft að þola þessa slæmu framkomu og er ég viss um að það er vegna kvört- unar minnar. Ég er sjúklingur og á það ekki skilið að komið sé fram við mig á þennan hátt þó ég leyfi mér að biðja um íbúðaskipti, og fer fram á að Öryrkjabanda- lagið skoði þetta mál.” er vinsamlega beðinn að hringja í síma 566-8359. Kíkir tapaðist KÍKIR tapaðist í fjörunni við Dyrhólaey 23. ágúst sl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 587-2849. Lyklaveski tapaðist LJÓSBRÚNT leðurveski með þremur lyklum tap- aðist, líklega í Skeifunni eða í Álfheimum. Utan á veskinu eru stafirnir SMM. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 568-7458. Gæludýr Týndur köttur SVÖRT læða með gyllta hálsól hvarf frá Gígjulundi í Garðabæ 18. september sl. Hún svarar nafninu Dimma og á það til að fara inn í bílskúra og lokast þar inni. Hafi einhver orðið hennar var er hann vin- samlega beðinn að hafa samband við Sigrúnu B. í síma 565-8686 eða vinnu- síma 551-5055. Tveir týndir kettir TVÆR læður, sem nýlega fluttu frá Vestfjörðum á höfuðborgarsvæðið, hurfu frá Grýtubakka í Breiðholti fyrir rúmum hálfum mánuði. Önnur læðan er sex ára norskur skóg- arköttur, fremur smá, grábrún og beislit, og var með ómerkta ól. Hin er svört og hvít með merkta ól. Geti einhver gefið upp- lýsingar um ferðir þeirra er hann vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 555-4393. Tapað/fundið Gleraugu týndust GYLLT og svört falleg kvenmannsgleraugu töp- uðust aðfaranótt laug- ardagsins 14. september. Líklegir staðir eru íþróttahús Breiðabliks, Smárinn í Kópavogi, við Álfheiði eða Ásbraut í Kópavogi. Skilvís fínnandi Armbandsúr tapaðist GYLLT armbandsúr með gylltu og silfruðu armandi tapaðist 6. september sl. Líklegir staðir eru við Kjarrhólma í Kópavogi, í Úthlíð í Reykjavík eða í eða við IKEA. Finnandi vin- samlega hringi í síma 564-1446. HOGNIHREKKVÍSI Farsi V' ' / k/A/S6 LA Q S/ccúc-tU*OT ,/WOD/fZ /níu WKAEH tolG l//£> fl£> Gtrwsr tþROTM- DÓ/H//KA- „ Bró&irminn, i/innurd maurexbúc sem hef- ur verkaltjfrsfé/ag ■■ oa þar sxttir sia eng/nn Víkveiji skrifar... GAMALT baráttumál Víkveija, að krana með freyðandi Gu- inness-bjór sé að finna á sérhverri (a.m.k. annarri hverri) bjórkrá á Islandi, virðist ætla að verða að veruleika með undraverðum hraða. Eftir að írska kráin The Dubliner varð sú fyrsta til að bjóða upp á þennan myrka mjöð fyrir fáeinum mánuðum, hafa furðumargar bætzt við, þar á meðal hverfiskrá Vík- veija og kráin, sem næst er vinnu- stað hans. Víkveiji er satt að segja ekki vanur því að svona mikið mark sé tekið á nöldrinu í honum og svona hratt. XXX ÍKVERJI brá sér í „ríkið“ í Svíþjóð þegar hann var þar staddur ekki alls fyrir löngu. í Sví- þjóð heitir ríkið Systembolaget eða Kerfisfyrirtækið. Þótt sænska nafn- giftin gefi mun betur til kynna hver hugsunin að baki fyrirtækinu er og hvernig starfsháttum þess er hag- að, en hið óræða „Áfengis- og tób- aksverzlun ríkisins" eru sum atriði í rekstri Systembolaget fijálslegri en hjá ÁTVR. í fyrsta lagi er úrval- ið miklu meira, enda er System- bolagt einhver stærsti einstaki kaupandi áfengis í heimi. í öðru lagi er miklu meira gert af hálfu Systembolaget til að kynna vínin, sem þar fást, fyrir neytendum með útgáfu bæklinga þar sem smekk- menn á vín gefa söluvöru verzlunar- innar einkunnir. í þriðja lagi er hægt að kaupa bjór í flöskuvís í Systembolaget, en í ÁTVR eru menn, eins og allir vita, þvingaðir til að kaupa sér sex bjóra, langi þá á annað borð í bjór. Þó vantar bjór- kælinn í Systembolaget, rétt eins og ríkið hér heima. xxx * AÐURNEFND krafa ÁTVR, um að menn kaupi ekki færri en sex bjórflöskur eða -dósir, er Vík- veija algerlega óskiljanleg. Hún hlýtur m.a. að koma í veg fyrir að hægt sé að selja í verzlunum fyrir- tækisins suma af hinum vandaðri bjórum Evrópu, sem tappað er í stórar umbúðir, t.d. lítraflöskur. Og svo hélt Víkveiji að „áfengisstefna“ stjórnvalda miðaði að því að draga úr drykkju. Ef menn langar í einn bjór, eru þeir neyddir til að kaupa sex! Líklega er þessi regla, eins og aðrar hjá ÁTVR, sett með hags- muni fyrirtækisins og þægindi starfsfólks í fyrirrúmi en ekki óskir neytandans. Við megum öll þakka fyrir að vera ekki þvinguð til að kaupa heilan kassa af sérríi fyrir baksturinn. xxx ÝÐINGAR í erlendum fréttum fjölfhiðla geta orðið mjög spaugilegar og bera þekkingu þýð- endanna ekki alltaf gott vitni. Þann- ig rak fjölskylda Víkveija upp lítið org fyrr í vikunni er rætt var um „hofhæðina" í Jerúsalem. Langt er síðan þýðendur þar á bæ lásu bibl- íuna sína, ef þeir muna ekki eftir hinni margfrægu Musterishæð. Fyrr í vikunni var talað um „Bavaríu“ í fréttum DV, en ekki Bæjaraland. Auðvitað er fréttamönnum og þýð- endum vorkunn; erlend staðaheiti eru yfírleitt enskuð í fréttaskeytum erlendra fréttastofa. Einu sinni tal- aði Morgunblaðið um dönsku borg- ina Elsinore í forsíðufrétt, en þar var Helsingor komin í felubúningi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.