Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÚRVERINU Sölumiðstöðm selur 9% hlutí Plastprenti SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna hefur selt 9% hiut í Plastprenti hf. af ríflega 29% hlutafláreign sinni í fyrirtækinu. Bréfin eru að nafnvirði 18 milljónir og voru seld á genginu 6,5 þannig að söluandvirði þeirra nam um 117 milljónum. Þetta er hæsta verð á hlutabréfum í Plast- prenti frá því bréfin í félaginu komu á almennan markað í vor. Viðskipti hafa verið að eiga sér stað á geng- inu 6,15-6,27 að undanförnu. Viðskiptin áttu sér stað fyrir milli- göngu Kaupþings og voru kaupend- ur bréfanna nokkrir öflugir lang- tímafjárfestar, bæði sjóðir og fjár- festingarfélög, en nöfn þeirra hafa ekki verið gerð opinber. Plastprent bauð út nýtt hlutafé sl. vor á genginu 3,25 og hefur geng- ið því tvöfaldast á þeim tíma. Nemur gengishagnaður SH á þessu tímabili 58,5 miiljónum, en á það ber að líta að SH hefur átt bréfin um langt árabil. Bjarni Lúðvíksson, framkvæmda- stjóri hjá Sölumiðstöðinni, sagði í samtali við Morgunblaðið að SH hefði beitt sér mjög fyrir því að Plastprent yrði opnað og gert að almenningshlutafélagi. „Það voru margir sem fengu ekki bréf í hluta- fjárútboðinu en hefðu gjarnan viljað verða hluthafar. Því fylgja ákveðin réttindi að eiga 20% hlut, en 9% gaf okkur ekkert meira. Þetta var eðli- legt framhald af útboðinu. Við feng- um mjög trausta fjárfesta inn í félag- ið sem ætluðu sér að kaupa í útboð- inu, en voru of seinir. Því er heldur ekkert að leyna að okkur fannst gengið orðið þokkalega álitlegt." Bjarni sagði að til greina kæmi að selja meira af hlutafé SH í Plast- prenti ef rétt verð væri í boði. Hins vegar væru í sjálfu sér engin áform uppi um það. Stór dagur á Verðbréfaþingi Viðskipti á hlutabréfamarkaði námu alls um 174 milljónum í gær að meðtöldum viðskiptum með Plast- prentsbréfín. Þá voru einnig við- skipti með hlutabréf í SÍF að nafn- virði tæpar 5,6 milljónir í gær og seldust þau fyrir um 18 milljónir. Hlutabréf Þróunarsjóðs sjávarútvegs í Búlandstindi seld Kaupendur fá umtals- verðan gengishagnað ALLS höfðu 40 hluthafar og starfs- menn Búlandstinds hf. á Djúpavogi sent inn óskir tii Þróunarsjóðs sjáv- arútvegs í gær um að nýta forkaups- rétt að 70 milljóna hlutabréfaeign sjóðsins í fyrirtækinu. Því er endan- lega útséð með að tilboð ísfélags Vestmannaeyja, sem stjórn sjóðsins hafði áður samþykkt, nái fram að ganga. Tilboðið miðaðist við gengið 1,15 og verða bréfin seld á því gengi. Ljóst er að væntanlegir kaupend- ur bréfanna munu hagnast umtals- vert á þessum viðskiptum þar sem hlutabréfin í Búlandstindi hafa hækkað verulega á Opna tilboðs- markaðnum undanfarið. Þegar til- boð ísfélagsins var samþykkt í stjórn Þróunarsjóðs voru til sölu hlutabréf á genginu 1,2, en í gær voru bréf seld á genginu 1,95. Miðað við þetta gengi nemur hagnaður væntaníegra kaupenda um 56 milljónum króna. Samkvæmt lögum um sjóðinn skiptast bréfin jafnt á kaupendurna óháð hlutfallslegri eign þeirra þann- ig að hver og einn fær um 1,7 millj- ónir að nafnvirði í sinn sinn hlut. Hagnast þeir um 1,4 milljónir á við- skiptunum miðað við núverandi markaðsgengi. Þá höfðu í gær borist óskir frá 5 hluthöfum í Meitlinum hf. í Þorláks- höfn um að nýta forkaupsrétt að hlutabréfum sjóðsins að nafnvirði 119,3 milljónir. Fá þeir bréfin á genginu 1,0. Nýlega voru seld bréf í fyrirtækinu á genginu 1,5 á Opna tilboðsmarkaðnum sem gefur til kynna að þeir beri einnig nokkuð úr býtum. Þróunarsjóður á nú einungis eftir hlutabréf í Fáfni að nafnvirði 7,4 milljónir og Fiskiðjunni Skagfirðingi að nafnvirði 13,3 milljónir, en engin ákvörðun hefur verið tekin um sölu þeirra. Verðbréfa- útibúíHá- skólanum VERÐBRÉFAÚTIBÚ verður opnað af Finni Ingólfssyni við- skiptaráðherra í Háskóla ís- lands mánudaginn 30. septem- ber kl. 12:10 í Odda. Ekki er um eiginlegt verð- bréfafyrirtæki að ræða, heldur verðbréfaleik sem er sam- vinnuverkefni viðskiptafræði- nema við Háskóla íslands, Verðbréfamarkaðar íslands- banka og Einars J. Skúlason- ar. Viðskiptaráðherra er fyrsti keppandinn í leiknum en aðrir keppendur eru nemendur, starfsmenn og kennarar í Há- skóla Islands og Tækniskóla Islands. Þeim gefst kostur á að versla með verðbréf líkt og um raunverulegan verðbréfa- markað væri að ræða. Verð- bréfaleikurinn stendur yfir í tvær vikur og eru útibú starf- andi alla virka daga í helstu byggingum HÍ og TÍ. Rannsóknaráætlun ESB Um 800 millj- ónir til Islands ÍSLENSKIR aðilar hafa fengið úthlutað styrkj- um sem nema nálægt 800 milljónum króna frá rannsóknar- og þróun- aráætlun Evrópusam- bandsins á undanfömum árum. Fjórða rannsóknar- og þróunaráætlun Evr- ópusambandsins, sem hófst árið 1994 og lýkur í árslok 1998, hefur til ráðstöfunar 1.000 millj- arða til samstarfsverk- efna. Ein helsta áherslan er á sviði upplýsinga og renna 180 milljarðar til verkefna á sviði upplýsingatækni. Hr. Metakides, yfirmaður upplýsinga- tækniáætlunar ESB,_ kynnti á fundi sem Rannsóknarráð íslands stóð fyrir á Hótel Sögu í gær helstu áherslur ESB á sviði upplýsingatækni og möguleika íslenskra aðila til þess að sækja um sam- starfsverkefni til áætl- unarinnar en verkefni sem áætlunin styrkir miðast sérstaklega við þarfír notenda og mark- aðarins. Næsti umsóknarfrest- ur til áætlunarinnar rennur út þann 15. desember nk. en alls er úthlutað styrkjum innan áætlunarinnar Ijórum sinnum á ári. Hafinn er undirbún- ingur að fimmtu áætlun- inni sem hefst árið 1999 og er búist við að svipað fjármagn renni til hennar. Að sögn Metakides verður megináherslan lögð á rann- sóknir á sviði líf- og fæðukeðjunnar og leiðir til að auðvelda aðgang að upplýsingum og menntun. Metakides, yfir- maður upplýsinga- tækniáætlunar ESB Eigendaskipti hjá Teppalandi FYRIRTÆKIÐ Timburvinnslan hf. sem rekið er í tengslum við Húsa- smiðjuna hefur keypt öll hlutabréf í Teppalandi í Mörkinni 4 af Birgi Þórarinssyni, framkvæmdastjóra og eiganda Egils Árnasonar hf. Birgir og fjölskylda hans keyptu Teppaland í desember 1994 af Víði Finnbogasyni, en fyrirtækið hefur verið umsvifamikið í sölu gólfteppa og gólfdúka. Var fyrirtækið flutt frá Grensásvegi 13 í nýtt húsnæði í Mörkinni í ágústmánuði 1995. Birg- ir hefur lengi verið viðloðandi Teppa- land og var m.a. sölustjóri fyrirtæk- isins um átta ára skeið eða uns hann keypti Egil Árnason hf. árið 1986. Teppaland hefur verið rekið að- skilið frá Agli Árnasyni, en fyrirtæk- in hafa samnýtt lager og skrifstof- ur. Timburvinnslan kaupir einungis reksturinn sjálfan, en húsnæðið í Mörkinni er í eigu Byggingarfélags- ins Gunnars og Gylfa. Þeir Birgir Þórarinsson og Jón Snorrason, forstjóri Húsasmiðjunnar vildu lítið sem ekkert tjá sig um kaupin í gær í samtali við Morgun- blaðið. Morgunblaðið/Árni Sæberg EMMA Bonino segir að grundvallarforsenda inngöngu í Evrópu- sambandi sé að umsækjandi samþykki það sem nefnt er „sameig- inlegu reglurnar" sem gilda í sambandinu. Emma Bonino framkvæmdastjóri sjávarútvegsdeildar ESB Sameiginlegu reglurnar for- senda inngöngu NORÐMENN fengu aldrei fulla tryggingu fyrir því, að fiskveiði- stjórnun yrðu óbreytt frá því sem var, í samningum sínum um inn- göngu í Evrópusambandið. Þetta kom fram í ræðu Emmu Bonino, framkvæmdastjóra sjávarútvegs- deildar ESB á ráðstefnu um íslenzk- an sjávarútveg og Evrópusamband- ið í gær. Þar sagði hún: „Af ein- skærum lögfræðilegum ástæðum gat sambandið ekki veitt slíka tryggingu svart á hvítu vegna þess að sameiginlega fiskveiðistefnan er endurskoðuð á tíu ára fresti. í reynd er það svo að aðeins hafa verið gerðar minni háttar breytingar á reikningsforsendum varðandi inn- byrðis skiptingu veiðistofna milli aðildarþjóða en þessi trygging reyndist vera ófullnægjandi fyrir marga kjósendur í Noregi.“ Bonino kynnti sjávarútveg og sjávarútvegsstefnu Evrópusam- bandsins og lagði mikla áherzlu á nauðsyn ábyrgrar fiskveiðistjórnun- ar og nauðsyn þess að draga úr afkastagetu fiskiflotans. Hún vék síðan að spurningunni um það hvort rétt væri fyrir Island að sækja um aðild að Evrópusambandinu: Ekkert svar „Við erum oft beðin um að tjá skoðun okkar á hugsanlegri inn- göngu Islands í Evrópusambandið og við vitum að þessi mál eru nú rædd hér á landi. Ég hef að sjáif- sögðu ekkert svar við þessari brenn- andi spurningu en ef til vill get ég lagt fram minn skerf til umræðn- anna með því að rifja upp sumt af því sem gerðist síðast þegar sam- bandið stækkaði svo að um mun- aði; þegar Austurríki, Finnland og Svíþjóð gengu í það og Noregur hætti við, að miklu leyti vegna sjáv- arútvegsmálanna. Sameiginlegu reglurnar Grundvallarforsenda inngöngu er að umsækjandi samþykki það sem nefnt er „sameiginlegu regl- urnar“ sem gilda í sambandinu: Innganga merkir að reglurnar eru samþykktar. Þessi forsenda var undirrót hressilegra skoðanaskipta við Norðmenn sem voru með annað skipulag á fiskveiðum sínum en sambandið og voru ófúsir að kasta því fyrir róða. Undir lok aðildarvið- ræðnanna fundu samningsaðilar lausn sem báðir voru ánægðir með: Norðmenn fengu leyfi til að nota sína tilhögun í norskri lögsögu norð- an við 62. breiddarbaug fram til 30. júní 1998. Þaðan í frá yrði skipulag þeirra fellt inn í sameigin- lega fiskveiðistefnu Evrópusam-. bandsins, að teknu tilliti til mark- miða stjórnunarinnar og aðferða við hana, gerð var grein fyrir þessu í sameiginlegri yfirlýsingu. Inntökugjald Önnur grundvallarforsenda var að ekki yrði um það rætt að greiða „inntökugjald". Það er ekkert laun- ungarmál að samningamenn sam- bandsins voru beðnir um að velta slíkum hugmyndum fyrir sér. Mál- inu var jafnvel slegið upp í fjölmiðl- um en komst aldrei alla leið á samn- ingaborðið. Það var tekið skýrt fram í upphafí viðræðnanna að tilhögun fiskveiða eins og þær voru fyrir stækkunina yrði grundvöllurinn þegar reiknaður yrði út „hlutfalls- legur stöðugleiki". Mikilvægast í þessum efnum var hins vegar að svara spurningunni: „Hve stöðugur er hlutfallslegur stöðugleiki?" Norð- menn kröfðust þess að gerð yrði skrifleg, ótvíræð samþykkt um að „mikilvægustu reikningsforsendum hlutfallslegs stöðugleika yrði aldrei breytt". Veiðar á fiski utan kvóta Síðasta atriðið sem var mjög at- | hyglisvert var umræða um það sem nefnt er í sambandinu „aðgangur að hafsvæðum“ eða rétturinn til að veiða úr fiskistofnum sem ekki eru háðir kvóta. Öll veiðiskip sambands- ins sem hafa veiðikvóta á tilteknu veiðistjórnarsvæði mega veiða þar þær tegundir sem ekki eru háðar kvóta. Þetta byggist á sameiginlegu reglunum í sambandinu og hefði því átt við norsk skip á hafsvæðum ' sambandsins og öfugt. Þegar það } kom í ljós að Norðmenn myndu | ekki geta sætt sig við að skip frá öðrum ríkjum sambandsins mættu veiða úr stofnum utan kvóta í norskri lögsögu var þessum hluta sameiginlegu fiskveiðistefnunnar einnig ýtt til hliðar um sinn meðan beðið væri þess að mótuð yrði sér- stök stefna sambandsins er hefði það markmið að koma á jafnvægi j í veiðunum á umræddu svæði. Hægt að ná árangri | Ég hef sagt ykkur frá þessum þremur dæmum, ekki til þess að hvetja ykkur til að sækja um aðild en einvörðungu til þess að sýna ykkur hvaða árangri hægt er að ná þegar viðræðuaðilar semja með jákvæðu hugarfari og eru ákveðnir í að ná samkomulagi sem báðir geti unað við. Og sú grundvallar- } regla ætti alltaf að gilda í samskipt- ^ um okkar, hvort sem íslendingar sækja um aðild að sambandinu eða * ekki,“ sagði Emma Bonino.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.