Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLA.ÐIÐ Dýraglens Í6AMM Grettir Ljóska Ferdinand Ég heyrði að Rabbi Nei, hann Skyldi hann Kannski finnur hefði ekki farið í faldi sig reyna það hann annan felu- leikskólann í vikunni undir rúmi. aftur? stað... sem leið. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is SELTJARNARNESKIRKJA Nýjungar í safnaðar- starfinu á Seltjarnarnesi Frá sr. Solveigu Láru Guðm undsdóttur: NÝJUNGAR verða í safnaðar- starfinu á Seltjarnamesi í vetur. Sr. Hildur Sigurðardóttir hefur verið ráðin í fullt starf á vegum safnaðarins auk fjölda annarra, sem ráðin hafa verið í fjölbreytt barna- og unglingastarf. Barnastarfíð verður með sama sniði og undanfarin ár á sama tíma og almennar messur og æskulýðs- starf verður á sunnudagskvöldum eins og undanfarin ár. Nú verður TTT-starfið í tvennu lagi og verður starf fyrir níu tii tíu ára börn á þriðjudögum kl. 17 og starf fyrir ellefu til tólf ára börn á fimmtudögum. Fræðslustarf verður nú tekið upp með skipulegri hætti en verið hefur undanfarin ár og nú munu verða fræðsluerindi eftir messu alltaf fyrsta sunnudag í mánuði. Þann 6. október mun dr. Arnfríður Guðmundsdóttir halda erindi um konur í Biblíunni og 3. nóvember, sem er allra heilagra messa, mun dr. Pétur Pétursson halda erindi um það hvers vegna kirkjan hefur hafnað spíritisma. Eftir erindin verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður, auk þess sem snæddur verður hádegisverður. Helgistund í húsi aldraðra verð- ur áfram á fímmtudögum kl. 13.30. íhugunarefni í vetur er Jobsbók. Samverur fyrir eldri bæjarbúa verða einnig einu sinni í mánuði í kirkjunni, og er það nýbreytni. Verða þær fyrsta eða annan þriðjudag í mánuði og hefjast kl. 11 með helgistund í kirkjunni. Eftir hana verða flutt erindi um áhugaverð efni og snæddur hádeg- isverður. Fyrsta samveran verður þriðjudaginn 8. október kl. 11. Þá mun dr. Gunnar Kristjánsson fjalla um kristna trú í íslenskum bók- menntum. 5. nóvember mun sr. Gylfi Jónsson fjalla um áhrif tón- listar á andlega líðan okkar. Kirkjuvika verður haldin í Reykjavíkurprófastsdæmum vik- una 6.-13. október. Kirkjuvika er haldin annað hvert ár og er til- gangur hennar að kynna starf safnaðanna í prófastsdæmunum. Þá verður öllum tíu ára börnum boðið sérstaklega í kirkjuna, ferm- ingarstörfín verða opin foreldrum, og haldin verður götumessa á Eið- istorgi fímmtudaignn 10. október kl. 17. SOLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR, sóknarprestur. Hvað skal segja? 24 Væri rétt að bera orðið ástríður fram eins og konunafnið Ástríður? Svar: Nafnorðið ástríða er myndað af því, að eitthvað stríðir á einhvern. í framburði hlýtur það því að skiptast í á-stríða. Nafnið Ástríður er hins vegar sett saman úr Ást- og -ríður (sem e.t.v. er til orðið úr Ás-fríður), og skiptist í atkvæði samkvæmt því. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að 'ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Sœtir sófar á óviðjafnanlegu verði HÚSGA GNALA GERINN Smiðjuvegi 9 (gul gata)-Kópavogi-sími 564 1475 Opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.