Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 52
Wmjlows NT4.0 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Viðræður Emmu Bonino við íslendinga um úthafsveiðar Samstaða um að efla svæðisstofnanir EMMA Bonino, framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála hjá Evrópusam- bandinu, og Þorsteinn Pálsson sjáv- arútvegsráðherra eru sammála um að efla þurfi svæðisstofnanir, sem stjórna úthafsveiðum á Atlantshafi, og taka upp nýjar aðferðir til að útkljá deilumál innan þessara stofn- ana. Bonino átti í gærmorgun fund með þeim Þorsteini og Davíð Odds- syni forsætisráðherra, m.a. um þær -_x»'iskveiðideilur, sem enn eru óleyst- ar. A fundinum var farið yfir að- stæður á þeim meginsvæðum í út- hafinu sem verið hafa til umfjöllun- ar, bæði á vettvangi fiskveiðinefnda Norðvestur-Atlantshafsins og Norðaustur-Atlantshafsins, NAFO og NEAFC, á Flæmingjagrunni, Reykjaneshrygg og í Síldarsmug- unni. Fram kom á fundinum ein- dreginn vilji til þess hjá báðum aðil- um að styrkja þessar svæðisstofn- anir þannig að hægt verði að koma upp virkara eftirliti meðal strand- ríkja og fundnar verði leiðir til að útkljá deilur. Bonino greindi frá því á blaða- mannafundi í gær að af hálfu ESB hefði í gærmorgun verið ákveðið að koma á fót starfshópi til að fjalla um tillögur íslands og annarra um breytingar á starfsemi NEAFC. Bonino sagði að þar með gæfist tækifæri fyrir strandríkin fjögur, ísland, Noreg, Rússland og Færeyj- ar, að gera samkomulag ásamt Evrópusambandinu um nýtingu norsk-íslenska síldarstofnsins og hún vill að ESB verði viðurkennt sem fullgildur samningsaðili. Satta- eða úrskurðarnefndir Þorsteinn Pálsson sagði á fundi Alþjóðahafrannsóknaráðsins, sem hófst í Reykjavík í gær, að við stjórnun fiskistofna á alþjóðlegu hafsvæði væri ekki aðeins spurning um að fara að ráðleggingum um heildarafla, heldur þyrfti einnig að glíma við deilur milli þeirra ríkja, sem hagsmuna ættu að gæta. „Það er ekki síst í ljósi þessa, að nauðsyn- legt verður að koma á fót eins kon- ar sátta- eða úrskurðarnefndum innan hverrar svæðisstjórnar auk nákvæmrar útlistunar á fram- kvæmd þess samkomulags sem ákveðið verður,“ sagði Þorsteinn. Emma Bonino flutti í gær ræðu á ráðstefnu um íslenskan sjávarút- veg og ESB. Hún sagðist engar yfirlýsingar vilja gefa út um það hvort það geti verið góður kostur fyrir íslendinga að gerast aðili að Evrópusambandinu, aðspurð um þetta efni á blaðamannafundi. Hún tók það skýrt fram að hún væri ekki komin hingað til lands til að hvetja íslendinga til að sækja um aðild, heldur einvörðungu til þess að sýna fram á hvaða árangri hægt væri að ná þegar viðræðuaðilar semdu með jákvæðu hugarfari og væru ákveðnir í að ná samkomulagi sem báðir gætu unað við. Bonino lagði áherslu á að Islend- ingar og ríki ESB væru á úthöfun- um saman og yrðu að lifa þar í sátt og samlyndi þar sem ljóst væri að hvorugur aðilinn myndi hverfa frá veiðum. ■ Ráðstefna/18-19 ■ Ofverndun/6 Morgunblaðið/Tryggvi Þormóðsson Lyft til flugs FÝLSUNGA í Ásbyrgi fataðist flugið á leið út á sjó. Þessi góð- hjartaði maður vildi hjálpa hon- um áleiðis, en ekki fylgir sögunni hvort það dugði til. Arnór Sigfússon fuglafræðing- ur segir að fýlsungar lendi oft í vandræðum og drepist ef þeir lendi í skóginum í Ásbyrgi því þeir komast ekki á loft þaðan. Annars staðar tekst þeim yfirleitt að hefja sig aftur til flugs eftir dálitla bið og megrunarkúr. Arnór segir ekkert hæft í þeirri sögu að fýlsungarnir geti ekki flogið nema þeir sjái til sjávar. Skagfirðingur segir 90 manns upp störfum Morgunblaðið/Nebojsa Hadzic HRAUNEY rak mjög hratt undan vindi og var um tíma tvísýnt hvort tækist að þoka skipinu frá landi, en sökum snarræðis áhafnarinnar á Arnari RE var hægt að halda því stöðugu þang- að til Gullborg VE gat dregið það út. Kafari skar úr skrúfu Hrauneyjar í gærkvöldi í Vestmannaeyjahöfn. STJÓRN Fiskiðjunnar Skagfirðings hf. hefur sagt upp 90 af 950 starfs- mönnum í landvinnslu á Hofsósi, Sauðárkróki og Grundarfirði frá og með 1. október nk. Jón E. Friðriks- son, framkvæmdastjóri, segir ástæðuna hallarekstur á landvinnsl- unni frá árinu 1993. Ekki hafi leng- ur gengið að láta aðrar greinar rekstursins greiða fyrir tapið. Jón nefndi að tap af reglulegri starfsemi í landi hefði numið um 100 milljónum árið 1994. Enn meira tap hefði verið á landvinnsl- unni árið eftir. Ekki var af hálfu stjórnarinnar lengur talið ásættan- legt að aðrar greinar bæru land- vinnsluna uppi enda hefði tapið slæmar afleiðingar fyrir framtíð fyrirtækisins í heild. Stjórnin hefur því ákveðið að endurskipuleggja landvinnsluna. Skráð á hlutabréfamarkaði Jón sagði að reynt yrði að leita ráða til að ráða starfsmennina aft- ur. Hins vegar væri hann ekki bjartsýnn á að hægt yrði að ráða Hrauney VE rak stjórnlaust að landi eftir að hafa fengið net í skrúfuna „Menn voru í mikilli hættu“ „ÞETTA gerðist á örfáum mínútum og okkur rak mjög hratt að landi. Það varð engu tauti komið við skip- ið, allt var fast,“ segir Gunnar Frið- riksson skipstjóri á Hrauney VE frá Vestmannaeyjum. Skipið fékk net í skrúfuna á veiðum skammt undan Landeyjasandi um klukkan 16 í gær, með þeim afleiðingum að það varð aflvana og munaði minnstu að það ræki upp í landsteina. ---- „Ég myndi segja að menn hafi verið í mikilli hættu, því hefði kom- ið einn góður skafl hefði báturinn kastast þarna upp,“ segir Friðrik Benónýsson skipstjóri á Gullborg sem dró Hrauney áleiðis til hafnar í Vestmannaeyjum. Hrauney, sem er 66 tonna skip með sjö manna áhöfn, var á veiðum skammt undan Landeyjasandi, þeg- ar flækt netatrossa slitnaði frá og flæktist í skrúfunni. Það skipti eng- um togum að skipið varð stjórn- laust. Gunnar reyndi að ná talstöðvar- sambandi við nærstödd skip en tókst ekki og sendi upp neyðarblys. „Arn- ar RE, sem er 29 tonn, var kominn innan við tíu mínútum eftir að við fengum í skrúfuna. Þá var allt kom- ið í bál og brand en mennirnir voru hins vegar sallarólegir, fóru í flot- gallana og gerðu ankerið klárt. Allt gékk eins og smurð vél. Við slepptum að henda út anker- inu þegar Arnar kom að og hann kom taug yfir. Hún slitnaði hins vegar strax og þá varð mönnum ekki um sel því að okkur rak áfram undan vindi og orðið of seint að henda ankerinu. Við vorum komnir inn í brotin þegar Arnar náði okkur aftur. Við fengum einn skafl yfir okkur að aftanverðu, það freyddi í kringum okkur og aðeins inn á, en við sluppum með skrekkinn," segir Gunnar. Snarræði og rétt viðbrögð Þegar taugin slitnaði var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæsl- unnar, en sú beiðni var afturkölluð þegar seinni taugin hélt. Gunnar hrósar skipstjóranum á Arnari, Leó Óskarssyni, mjög fyrir björgunina. „Það var eins og Leó og áhöfn hans hefði aldrei gert ann- að, svo snar var hann og viðbrögðin úthugsuð," segir hann. Gullborg var á heimleið og sneri við til aðstoðar Arnari. „Arnar réð illa við Hrauney en við vorum með góðan dráttarvir og drógum skipið út úr brimgarðinum til móts við lóðsinn," segir Friðrik. nema lítinn hluta aftur til fyrirtæk- isins. í fréttatilkynningu kemur fram að vaxandi þrýstingur hafi verið á, t.d frá forsvarsmönnum verka- lýðsfélaga í Skagafirði og bæjar- stjórn Sauðárkróks, að hlutabréf í fyrirtækinu yrði skráð á hlutabréfa- markaði og þar með að arðsemi af fyrirtækinu yrði sett í öndvegi. Nú hefur aðalfundur fyrirtækisins sam- þykkt að skrá félagið á opna tilboðs- markaðinum frá og með nýju kvóta- ári í september á næsta ári. „Samkeppni RÚV von- laus án ann- arrar rásar“ STÖÐ 2 og Sýn hafa keypt einkarétt á útsendingum frá ensku knattspymunni frá og með næsta keppnistímabili. Enska knattspyrnan hefur verið á dagskrá Ríkissjónvarpsins í tæp 30 ár en hverfur nú þaðan og Ingólfur Hannesson, íþrótta- stjóri Sjónvarpsins, segir stofn- unina verða að læra af málinu. Hann segir að leiða verði hugann að því hvort ekki sé orðin „knýjandi nauðsyn fyrir sjónvarp í almenningseigu, sem ætlar að réttlæta sjálft sig, að hafa aðra rás. Samkeppnin er einfaldlega vonlaus án annarr- ar rásar," segir hann. ■ Stöð 2 / CI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.