Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.09.1996, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Jassí Deiglunni Á morgun sunnudag verða haldnir jasstónleikar í Deiglunni á Akur- eyri. Þar spila þeir Hilmar Jensson, gítarleikari og Skúli Sverrisson, bassaleikari. Skúli hefur verið búsettur í New York undanfarin ár og gert það gott þar sem bassaleikari, m.a. í hljómsveit gítarleikarans Alans Holdsworth. Væntanlegur er innan skamms geisladiskur með Skúla, þar sem eingöngu er að finna tón- list eftir hann sjálfan. Hilmar þarf ekki að kyrina fyrir akureyskum jassunnendum, hann hefur komið fram á Listasumarsjasssi og vakið gífurlega hrifningu. Hilmar sendi frá sér geisladisk á sl. ári, sem vakið hefur verðskuldaða athygli- Tónleikarnir heijast kl. 21.00 og er aðgangur ókeypis. Þessi bygging hefur hýst sendikennarann sendiherrann, ;gmg nciui 11701 sænska rússneska bandaríska breska íslenska sendiráðsritarann sendiráðið. auglýsingastofan að Laufásvegi 49 - 51. Þegar Sturluhallir risu við Laufásveg voru þaer ásamt öðrum stórbyggingum á þessum slóðum að sínu leyti tákn um trú manna á bjarta framtíð, öflugra viðskiptalíf á íslandi og vaxandi velmegun. Það er því eðlilegur þáttur í sögu þessa gamla og virðulega húss að nú, þremur aldarfjórðungum síðar, skuli það verða aðsetur einnar öflugustu auglýsinga- stofu landsins.fyrirtaekis sem hefur á undanförnum árum hlotið fjölda viðurkenninga hér heima og erlendis og getið sér mjög gott orð í íslenskum viðskiptaheimi með alhliða gerð auglýsinga og kynningarefnis, markaðsráðgjöf og birtingaþjónustu. Sturluhöllum • Laufásvegi 49-51 »101 Reykjavík Sími 511 4300 • Fax 511 4301 islenska@centrum.is Morgunblaðið/Kristján Messur AKUREYRARKIRKJA: Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins kl. 11. Munið kirkjubílana. Guðs- þjónusta kl. 14. Ræðuefni: Er kerfið fyrir manninn eða mað- urinn fyrir kerfið? Kirkjukaffi eftir messu. Rútuferð í mess- una frá Víðilundi kl. 13.40 með viðkomu í Hlíð. Farið til baka kl. 16. Guðsþjónusta kl. 16 í Hlíð. Vikulegir Biblíulestrar hefjast í safnaðarheimilinu kl. 20.30 á mánudagskvöldum og hefjast þeir næstkomandi mánudagskvöld, 30. septem- ber. Opinberunarbók Jóhannes- ar lesin. GLERÁRKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta verður í kirkjunni á morgun, sunnudag, kl. 11. Barnastarf vetrarins verður kynnt. Foreldrar hvattir til að fjölmenna með börnum sínum. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Samkoma kl. 20.00 á sunnu- dag, „Kraftaverkin gerast enn“. Vörður L. Traustason prédikar. Beðið fyrir sjúkum og Guð svarar. Bænasamkom- ur verða frá þriðjudegi til fímmtudags kl. 20. Unglinga- samkoma á föstudagskvöld kl. 20.30. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 11 á morg- un, bænastund kl. 19.30 og almenn samkoma kl. 20. Heim- ilasamband kl. 16. Krakka- klúbbur á miðvikudag ki. 17 og Biblía og bæn kl. 20.30. 11+ á fímmtudag kl. 17 og á föstu- dag verður æfíng hjá unglinga- kór kl. 19.30. og unglinga- klúbbur verður kl. 20.30 sama kvöid. ÓLAFSFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 í Dvalar- heimilinu Hornbrekku. Guðs- þjónusta kl. 14 í Ólafsfjarðar- kirkju. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í dag, laugardag, og kl. 11 á morgun, sunnudag. Viimufundur F AO á Akureyri HLUTUR kvenna og fjölskyldna í atvinnuuppbyggingu til sveita og umhverfisvernd því tengd er þema 8. vinnufundar FAO, Mat- vælastofnunar Sameinuðu þjóð- anna, sem haldinn var á Hótel KEA á Akureyri í vikulokin. Um 40 þátttakendur frá 17 þjóðlöndum sátu fundinn og voru konur í miklum meirihiuta. I dag heldur hópurinn í skoðunarferð að Goðafossi, Mývatni og Náma- skarði og í bakaleiðinni verður komið við í Laufási. Björn Sigurbjörnsson, ráðu- neytisstjóri í landbúnaðarráðu- neytinu setti fundinn á fimmtu- dag. Með honum á myndinni eru f.v. Maureen Lally, varaformaður vinnuhóps kvenna innan Evrópu- ráðs landbúnaðarins, Jela Tvrdonova, formaður ráðsins og Tea Petrin, aðstoðarsvæðisstjóri FAO í Evrópu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.