Morgunblaðið - 28.09.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞORSTEINN Pálsson ávarpar ársfund Alþjóða hafrannsóknaráðsins.
Þorsteinn Pálsson á ársfundi Alþjóða hafrannsóknaráðsins
Ofverndun hvala hættu-
leg og óábyrg afstaða
„HVALVEIÐAR eru nauðsynlegar
til að halda jafnvægi í lífkeðju hafs-
ins. Aframhaldandi ofverndun
hvalastofna og hvalveiðibann er
hættuleg og óábyrg afstaða," sagði
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, við setningu ársfundar
Alþjóða hafrannsóknaráðsins í
gær. „Það er ekki síður mikilvægt
að forðast ofverndun en ofveiði
helztu hlekkja lífkeðjunnar. Ég vil
leggja sérstaka áherzlu á að það
er ekki hægt að tala um ábyrga
nýtingarstefnu án þess að markm-
iðið sé að nýta alla helztu stofna
fiska og hvala með skynsamlegum
hætti. Hvalir eru mikilvægur þáttur
í lífkeðju sjávarins umhverfis ís-
land. Árlega éta þeir 4 til 5 milljón-
ir tonna af fiski og öðrum sjávarlíf-
verum. Það hefur verið áætlað að
nái ákveðnir hvalastofnar sömu
stærð og árið 1940, muni það
minnka afrakstur þorskstofnsins
um 10%,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn vék síðan að veiði-
stjórnun á úthöfunum: „Reynslan
VESTFIRSKIR bændur legga ekki
kjöt sitt inn á Þingeyri í þessari
sláturtíð. Sláturfélagið Barði hefur
samið um að slátra fénu sem verk-
taki fyrir Kaupfélag Steingríms-
fjarðar á Hólmavík og fá bændur
því uppgert þaðan.
Birgir Marel Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Barða, segir að eftir
að farið var að gera kröfu um um
20% útflutningsskyldu bænda
hefði strax orðið ljóst að Barði
gæti ekki greitt bændum hæsta
verð þrátt fyrir að svæðið væri
riðulaust og kjötið hentaði fyrir
útflutning á betri markaði. Því
hefði verið tekin upp samvinna við
kaupfélagið á Hólmavík og raunar
einnig Kaupfélag Vestur-Húnvetn-
inga á Hvammstanga og segist
hann líta á það sem fyrsta skrefið
í þátttöku félagsins í samruna slát-
urhúsa á Norður- og Vesturlandi,
svokölluðu Norð-vesturbandalagi.
hefur sýnt að þjóðir eins og ísland,
sem leitast við að að vera í hópi
þeirra þjóða er fremstar standa í
ábyrgri nýtingu fiskistofna sinna
og hafa náð verulegum árangri
innan eigin lögsögu, geta og hafa
lent í deilum við nágranna sína um
hlut sinn í veiðum á úthöfunum.
Við stöndum þar frammi fyrir
vandamáli, sem við getum ekki virt
að vettugi.
Það er mun flóknara að ná sam-
komulagi um úthafsveiðar, en að
stjórna veiðum innan eigin lögsögu.
Getum við komizt að ákveðinni nið-
urstöðu um veiðar innan eigin lög-
sögu með þeim hætti að sérstök
nýtingarstefna skili mestum af-
rakstri, er það auðvitað mikið hags-
munamál.
Sátta- eða
úrskurðarnefndir
Liggi sömu niðurstöður fyrir um
fiskistofna á alþjóðlegu hafsvæði,
er ekki aðeins spurning um að fara
að ráðleggingum um heildarafla,
Til að uppfylla útflutnings-
skylduna verður 1.400 lömbum
ekið til slátrunar á Hólmavík og
samsvarandi fjölda ekið þaðan til
slátrunar á Hvammstanga en hús-
ið þar hefur leyfi til slátrunar fyr-
ir Evrópumarkað. Ætlunin er að
selja kjötið til Noregs en sá mark-
aður skilar hærra verði en flestir
aðrir.
Útistandandi kröfur
Birgir Marel viðurkennir að
einnig tengist viðkvæm staða
Barða þessari ákvörðun. Félagið
eigi útistandandi miklar kröfur
sem óvissa sé með. Því hafi stjórn
félagsins talið tryggara fyrir
bændur að semja með þessum
hætti við Kaupfélags Steingríms-
fjarðar. „Þetta félag er bændafyr-
irtæki. Hagsmunir bænda eru okk-
ar hagsmunir,“ segir Birgir Marel
Jóhannsson.
heldur þarf einnig að glíma við
deilur milli þeirra ríkja, sem hags-
muna eiga að gæta, vegna þess
að engin þjóð gefst átakalaust upp
í baráttunni fyrir því sem hún telur
réttmætan skerf sinn. Það er ekki
sízt í ljósi þessa, að nauðsynlegt
verður að koma á fót eins konar
sátta- eða úrskurðarnefndum innan
hverrar svæðisstjórnar auk ná-
kvæmrar útlistunar á framkvæmd
þess samkomulags sem ákveðið
verður.
Það eru mörg óleyst mál á þess-
um vettvangi, sem varða ákvörðun
heildarafla og skiptingu hans milli
ríkjanna. Það eru einkum sátta-
nefndir, framkvæmd reglna um
veiðarnar, eftirlit og viðurlög við
brotum á gildandi reglum."
Tengsl íslands og
Frakklands mikil
Forseti Alþjóða hafrannsókna-
ráðsins, Alain Maucorps, ávarpaði
fundarmenn í upphafí ársfundar-
ins. Hann sagðist afar ánægður
með að ársfundurinn skyldi haldinn
í Reykjavík, þar sem svo margir
mikilvægir fundir hafi verið haldn-
ir. „Það hlýtur að segja mikið um
hina miklu athafnasemi og áhrif
þessarar fámennu þjóðar við Norð-
ur-Atlantshafið. Þar sem ég er
Frakki er ánægja mín margfalt
meiri vegna hinna gömlu og sterku
tengsla, sem tengja ísland og
Frakkland á svo marga vegu, sér-
staklega þó á sviði sjávarútvegs,“
sagði Maucorps.
Röndóttir bolir
St. 90-160 kr. 1.200
Gammósíur,
einl. og röndóttar kr. 1.200
Vandaður kven- og
barnafatnaður.
Kringlunni, sími 5681822
Vetrarskórnir frá
li iíCK Lr Mi/ S/íuc’
eru komnir
Áskrifendur vinsamlegast komið sem fyrst til að tryggja
ykkur eintak. Síðast fengu færri en vildu.
ENGÍABORNIN
Bankastræti 10
ísfirðingar leggja
inn á Hólmavík
Tilboð - Tilboð - Tilboð
Baðinnréttingar á einstöku verði.
Margar gerðir og stærðir. Gott
úrval eldhúsinnréttinga og
fataskápa með rennihurðum.
Opið laugardag.
Vikuferð til
Kanarí
19. nóvember
.. 39.932
{vetur fra 1
Kanaríferðir Heimsferða
hafa fengið ótrúlegar
undirtektir og nú eru
margar ferðir okkar
uppseldar eða að seljast
upp. Við bjóðum nú viðbótar-sæti á einstökum kjörum til
Kanarí 19. nóvember nk. fyrir þá sem vilja skjótast í sólina
í stutt frí. Bókaðu strax og tryggðu þér þá ferð sem hentar
þér best í vetur. Glæsilegt úrval gististaða í boði, beint flug
með glæsilegum Boeing 757-200 og þú nýtur traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða í fríinu.
Paraiso - glæsilegur garður.
Verð frá kr.
39.932
Vikuferð til Kanarí, hjón með 2 börn,
Paraiso
45.960
Verð frá kr.
Vikuferð til Kanarí, 19. nóv., 2 í íbúð
Paraiso Maspalomas.
Hvenær er laust?
20. okt. - 12 sæti laus
19. nóv. - 30 sæti laus
26. nóv. - laus sæti
17. des. - uppselt
24. des. - 21 sæti laust
31. des. - laus sæti
7. jan. - síðustu sætin
14. jan. - laus sæti
4. feb. - 11 sæti laus
11. feb. - 29 sæti laus
25. feb. - 21 sæti laust
4. mars - 23 sæti laus
Austurstræti 17, 2. hæö • Sími 562 4600
WS4
- kjarni málsins!