Morgunblaðið - 28.09.1996, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 i/IKII MORGUNB LAÐIÐ
IflltU ItK
LUIl
verið með 400 grömm af
sykri í einum lítra. Eins
og til dæmis í þessum
Haukadalsberjum.
Aðalbláberin geta ver-
ið undarlega ólík inn-
byrðis,“ segir Sveinn
Rúnar og heldur áfram
hinni faglegu greiningu.
„Þau verða fyrst blá, en
síðan svört og þegar þau
eru alveg fullsprottin og
eins og þau verða best,
þá eru þetta stórir svart-
ir hnullungar. Það eru
berin sem Dalvíkingar
sækja í Böggvistaðafjall,
og hafa verið að sækja í
allt sumar og ár eftir ár.
Það er alveg sérstök
saga að segja frá aðal-
bláberjunum þar og
tínslunni."
eru margvísleg og
margir slá tvær
flugur í einu höggi,
sinna áhugamálinu
um leið og þeir
njóta útiveru í guðs
grænni náttúrunni.
Sumir stunda veiði-
skap, aðrir fara í
golf eða hesta-
mennsku. Heimilis-
læknirinn Sveinn
Rúnar Hauksson
fer hins vegar í
berjamó. Sveinn
Guðjónsson sótti
hann heim til að
kanna afrakstur
SUMARIÐ var
okkur berja-
tínslumönnum afar
gjöfult," segir
Sveinn Rúnar þegar
við göngum niður í
kjallara, þar sem
framleiðsla sumars-
ins stendur í röðum,
Bláberjasaft, Aðal-
bláberjasaft, Kræki-
berjasaft, bæði
hrásaft og saft úr
annarri pressun, og
samsvarandi sultur
og hlaup, allt vand-
lega merkt með hlut-
fallstölum berja og
sykurs, tínslustað og
stund og upphafs-
stöfum framleiðand-
ans, Bjarkar Vil-
helmsdóttur og
tínslumannsins
Sveins Rúnars
Haukssonar. „Eg
gæti aldrei staðið í
þessu nema með
dyggri aðstoð eigin-
konunnar," segir
læknirinn. „Þetta er
allt hennar fram- i
leiðsla. Það munar _______SlimarSÍIlS.
öllu að hafa einhvern
heima til að taka við
„aflanum" ferskum og koma honum
strax í vinnslu. Reyndar byrjaði
hún líka í tínslunni með mér á sín-
um tíma, en í ákafa mínum tíndi ég
hana og bömin af mér, nema þann
yngsta, Guðfinn, sem er sjö ára.
Hann er nú minn að-
alfélagi í berjatínsl-
unni og hefur brenn-
andi áhuga, ennþá
að minnsta kosti.“
Sveinn Rúnar
segir að - kannski
megi líkja þessu
berjatínsluþoli sínu
við það þegar miklir
og úthaldssamir
drykkjumenn
„drekki félaga sína
undir borðið" eins
og það er kallað. Þó
segir hann að ákveð-
in hugarfarsbreyt-
ing hvað þetta varð-
ar hafi orðið hjá sér í
sumar, þegar hann
lagðist í berjalyngið
í Böggvistaðafjalli,
fyrir ofan Dalvík, í
lok ágúst.
Undariega
úlík inn-
byrðis
„Maður verður
aldrei samur eftir að
hafa tínt í Böggvi-
staðafjalli," segir
Sveinn Rúnar. „Eg
mun aldrei tína eins
eftir að hafa tínt þar. Þetta er fjall
sem breytir manni. Hafi maður ver-
ið í vafa um hvemig skemmtilegast
og best sé að tína aðalbláber og
hvaða afstöðu maður hafi haft til
brekkunnar og berjalestursins, þá
Endurfseðing
í mínu
berjaiífi
,HÉR höfum við eðal-krækiberjasaft, eða hrásaft, í hlutföllunum 1 lítri á móti 400
grömmum af sykri, berin tínd 22. ágúst í Haukadal.
sér maður það allt í nýju ljósi eftir
Böggvistaðafjall. Eftir að hafa tínt
við hliðina á fólkinu í þessu fjalli
finnst mér að ég sé rétt að byrja í
berjatínslu."
Sveinn Rúnar sækir nú tvö staup
og skenkir í þau Eðal-Ki-ækiberja-
saft, úr Haukadal, það er hrásaft í
hlutfallinu 1 lítri á móti 400 grömm-
um af sykri. Því næst smökkum við
Aðalbláberjasaft og setjum lögg af
rjóma út í. Þetta bragðast eins og
konfekt. Blaðamaður fer nú að láta
Ijós sitt skína og hafa skoðanir:
Þetta er afskaplega gott, ogAðal-
bláberjasaftin með rjómanum
hreinasta hnossgæti. Mér fínnst þó
krækiber yfírleitt betri en bláber.
Hvað fínnst þér?
„Mín uppáhaldssaft er kræki-
berja-hrásaft, fyrsta pressun, hrein
krækiber, engin suða, heldur bara
safinn úr berjunum eins og hann
kemur fyrir. Ög yfirleitt höfum við
„Þannig er að þetta
varð fyrir mér, ja, ég vil
segja nánast endurfæð-
ing í mínu berjalífi," seg-
ir læknirinn og færist nú
allur í aukana. „Eg hef
lengi verið haldinn, að
mínu mati, allt of stjórn-
lausri ástríðu í berjamó.
Keppst við, rétt eins og
ég væri á síld, að reyna
að afla sem mest, að ná
inn sem mestu, tína sem
mest á sem skemmstum
tíma og hef yfirleitt ver-
ið með tínuna á lofti. Ég
nota þá báðar hendur,
held í lyngið og reyni að
rífa það sem minnst upp.
Með þessu móti er hægt
að tína kynstrin öll af
berjum á stuttum tíma.
En þegar maður kemur
heim á eftir að hreinsa
berin. Dalvíkingar fara
allt öðruvísi að. Þeir fara aldrei með
tínu í sitt fjall. Aðalbláberin þar eru
eingöngu handtínd. Og í því liggur
galdurinn.
Eg hef aldrei áður komið í
Böggvistaðafjall, en hafði fengið
send ber þaðan og furðað mig á
stærð þeirra og þroska. Þegar ég sá
þessa svörtu hnullunga frá Dalvík-
ingum hugsaði ég með mér: „Þetta
hljóta að vera alveg sérstök aðalblá-
ber sem spretta þarna." I sjálfu sér
í
I
Hvað er njálgur?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Njálgur
Spurning: Hvað er njálgur, hvað
eru einkenni lengi að koma í ljós,
hvernig smitast hann, af hverju?
Svar: Njálgur er lítill innyflaorm-
ur og er algengasta sníkjudýr hjá
börnum og fullorðnum í löndum
með svipað veðurfai- og hjá okkur.
I sumum nálægum löndum er
talið að allt að 20% barna séu
smituð. Njálgurinn er þráðlaga,
hvítleitur að lit og er kvendýrið
um 10 mm að lengd en karldýrið
um 3 mm. Smitun verður á þann
hátt að egg berst frá smituðum
einstaklingi og í munn annars.
Eggin berast milli manna með
fíngrum, fötum, sængurfötum og
leikföngum og þau geta lifað í um-
hverfinu í allt að þrjár vikur við
venjulegan stofuhite. Eggin geta
einnig svifið um í loftinu og borist
þannig í öndunarfæri og síðan
meltingarfæri manna. Eggin
klekjast fljótt út í meltingarfær-
unum og dýrin ná fullum þroska í
neðri hluta þarmanna á 2 til 6 vik-
um. Kvendýrin skríða síðan út úr
endaþarminum, oftast að nætur-
lagi, og verpa eggjum sínum í
húðfellingar og festa þau þar með
límkenndu efni. Hreyfingar or-
manna og límið sem þeir festa
eggin með valda kláða. Ekki er
með vissu vitað til þess að njálgur
valdi öðrum óþægindum en kláða
og margir þeirra sem ganga með
njálg hafa engin einkenni. Eins og
ætti að sjást af þessari lýsingu er
ekki einfalt mál að losna við njálg.
Það verður að meðhöndla alla fjöl-
skyldumeðlimi og oftast þarf að
gefa meðferðina nokkrum sinn-
um. Auk þess verður að þvo vand-
lega föt og rúmföt.
Spurning: Hvað veldur sina-
drætti, hvað er hægt að gera til að
fýrirbyggja hann og bæta úr þeg-
ar hann kemur fram?
Svar: Sinadráttur er kröftugur,
sársaukafullur samdráttur í vöðva
eða vöðvum. Algeng tegund sina-
dráttar verður í kálfanum í svefni
en sinadráttur getur einnig orðið
vegna mikillar vinnu, meiðsla eða
við það að vera lengi í sömu stell-
ingum. Vökvatap eykur einnig
hættu á sinadrætti. Sinadráttur
er algengur hjá íþróttamönnum
sem reyna á sig mikið og lengi og
tapa við það vökva. Önnur vel
þekkt tegund sinadráttar er skrif-
krampi sem er sinadráttur í fingr-
um og hendi eftir langvarandi
Sinadráttur
skriftir með blýanti eða penna.
Við einhæfar hreyfingar í langan
tíma getur komið fram sinadrátt-
ur, nánast hvar sem er í líkaman-
um. Allir fá sinadrátt en hjá flest-
um eru það óþægindi sem koma
sjaldan og valda litlum vandræð-
um. Ekki má rugla sinadrætti
saman við verki í fótleggjum eða
lærum sem koma við áreynslu
vegna lélegrar blóðrásar eða
brjóskloss í hrygg. Þeir sem fá oft
verki í fótleggi við gang eða aðra
áreynslu ættu að leita læknis.
Besta ráðið við sinadrætti er að
teygja á viðkomandi vöðva, var-
lega en ákveðið, og þá hverfa
óþægindin venjulega íljótt. Oft er
gott að spenna vöðvana sem eru á
móti þeim sem sinadrátturinn er í,
t.d. er gott við sinadrætti í kálfa
að spenna fótinn upp á við og toga
svo í hann þar til sinadrátturinn
hverfur. Einnig getur verið gott
að kreista og nudda vöðvann og
sumum finnst gott að fara í heitt
eða kalt bað. Til að koma í veg
fyrir sinadrátt er mikilvægt að
forðast vökvatap, gera teygjuæf-
ingar fyrir og eftir áreynslu og
gæta þess að ofreyna sig ekki. Ef
sinadráttur er viðvarandi vanda-
mál sem truflar svefn er rétt að
leita læknis sem metur hvort
giápa þurfi til lyfjameðferðar. I
slíkum tilvikum kemur til greina
að nota svefnlyf af vissri gerð eða
kínín.
Spurning: Ég hef haft sjóntruíl-
anir af og til undanfarin ár, hafa
gert mig óvinnufæra, eru að vísu
horfnar nú. Er vitað af hverju
þær stafa og hvort hægt er að fyr-
irbyggja þær?
Svar: Sjóntruflanir geta verið
með ákaflega margvíslegu móti
og orsakirnar geta líka verið
margvíslegar. Orsakirnar er oft-
ast að finna í augunum sjálfum
eða í heilanum. Ein algengasta
tegund sjóntruflana er fljótandi
blettir fyrir öðru eða báðum aug-
um. Þessir blettir sjást venjulega
best ef horft er á sléttan hvítan
flöt. Fljótandi blettir fyrir augum
eru oftast algerlega meinlaust
fyrirbæri sem stafar af hreyfing-
um í vökvanum sem fyllir augun.
Ef skyndilega verður mikil aukn-
ing á fljótandi blettum, þeir verða
brúnir eða rauðir á lit eða ef þeim
fylgja ljósglampar er hætta á að
eitthvað alvarlegt sé að gerast
Sjóntruflanir
eins og t.d. sjónhimnulos. í slík-
um tilvikum ætti að fara tafar-
laust til augnlæknis. Sumir
mígrenisjúklingar fá sjóntruflanir
á undan kasti og þær eru oft eins
og ljósir eða blikkandi blettir.
Sumir fá blinda bletti og gefur
slíkt alltaf ástæðu til rannsóknar
hjá augnlækni. Sum lyf geta haft
sjóntruflanir sem aukaverkun og
sá sem hefur fengið slíka auka-
verkun ætti að forðast að taka
lyfið aftur. Að lokum geta sjón-
truflanir fylgt vissum geðsjúk-
dómum, einkum geðklofasýki.
Sjóntruflanir, aðrar en einstaka
fljótandi bletti, á alltaf að rann-
saka og fínna orsökina. Þegar or-
sökin er fundin er oftast hægt að
lækna eða bæta ástandið og
minnka líkur á að einkennin komi
aftur.
•Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á hjarta.
Tekið er á móti spumingum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 569
1100 og bréfum eða símbréfum merkt:
Vikulok, Fax 5691222.
!
I
I
!
I
I
I
I
I
»
l