Morgunblaðið - 28.09.1996, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 29
i
i
3!
í
Í
I
I
«
I
I
j
i
3
I
IMEYTENDUR
Hvað kostar að halda sér í formi?
1 mán.
3mán.
6mán.
Arskort
a
ja
1 & s
i a I
:§ 'B 1S
Margskonar
leikfimitímar
Þokkabót Frostaskjól 6, Rvk. 4.990.- staðgr. V 7.500, - dagskort 9.500. - nemakort 10.900.- staðgr. 16.500,- staðgr. fataúttekt m. sérstökum afsláttarmiða 28.500,- staðgr. já j nei já já já
Ræktin Suðurströnd 4, Seltj.n. » 4.100.- tilboð 4.400,- staðgr. 10% skólaafsláttur 9.100,- tilboð 9.900.- staðgr. 10% skólaafsláttur 14.990,- staðgr. 10% skólaafsláttur 1 28.000.- staðgr. 10% skólaafsláttur já já já já já
Máttur Faxafen 14, Rvk. 3.900.- nemakort 5.200.- staðgr. gildir lika i Skipholti 9.990.- nemakort 11.950,- staðgr. gildir lika i Skipholti 19.990.- staðgr. gildir lika i Skipholti 37.200.- staðgr. gildirlíka i Skipholti HiB' já já já já já
Máttur Skiphoiti 50B fyrirkonur 3.900,- dagskort 4.500,-staðgr. f ' V ' 9.000 - dagskort 11.950.-sfadgr. iIBMIIBF .... '*! ekkitil jjlgjÉ já já já já já
Hress Bæjarhraun 4, Hf. 4.590,- staðgr. 10% skólaafsláttur JQMPBi 10.990,- staðgr. 20% Skólaafsláttur 18.500,- staðgr. ■3 3-3/Vý* 35.000.- staðgr. já já nei nei já
World Class Fellsmúli 24, Rvk. 5.450.- staðgr. 10% skólaafsláttur 11,950.- sfaðgr. 18%skólaafsláttur 18.950,-staðgr. 18% sk&aafslattur 83.000,- 18% skólaafsláttur já já nei já já
Aerobic sport Faxafen 12, Rvk. 4.690,-s taðgr. 10% skólaafsláttur 12% skólaafsláttur 17,900.- staðgr. 12% skólaafsláttur 28.360,- staðgr. 12%skólaafsláttur já nei já já ■ já
Gym80 Suðurlandsbr. 6, Rvk. 3.900.- morgunkort 4.900.- staðgr. 10% skólaafsláttur 10.700.’ morgunkort 11.700.- staðgr. 12% skólaafsláttur 20.500,- staðgr. 15% skólaafsláttur 35.300.- staðgr. 20% ékólaafsláttur já nei nei já já
Baðhúsið Ármúla 30, Rvk. fyrirkonur 5.200.- staðgr. 15% skólaáfsláttur innif. sloppur, handklæði, sjampó, hárnæring 13.500.- staðgr. 15% skólaafslattur 24.000.- staðgr. 15% skólaafsláttur 39.000,- staðgr. 20% afsláttur i nudd, hár- og snyrtistofu já já já já já
Betrunarhúsið Garðartorg1,Gb. 4.990,- staðgr. 12.990.-1 mán. fylglr sem opnunartilboð “ 19.990.- 33.990.- já nei já já já
Studio Ágústu og Hrafns Skeifan 7, Rvk. 4.840,- staðgr. 10% skólaafsláttur 12.125.- staðgr. 20% skólaafsláttur 22.500.- Bónusklúbbur 25.125.- 38.990,- Bónusklúbbur já já nei já já
Munur á hæsta og lægsta verði
þriggja mánaða korta er 44%
VERÐMUNUR er töluverður milli
líkamsræktarstöðva og til dæmis
munar um 44% á hæsta og lægsta
verði þriggja mánaða korta hjá
þeim líkamsræktarstöðvum á höf-
uðborgarsvæðinu sem haft var
samband við í vikunni. Á móti
kemur að það er mismunandi
hvaða þjónustu verið er að bjóða
viðskiptavinum. Spurt var hvað
almennt kort, sem veitir ótaka-
markaðan aðgang að öllum tímum
stöðvarinnar og tækjasal, kostar.
Það er hins vegar hægt að fá kort
á ýmsum öðrum kjörum en hér
koma fram í töflunni. Skólafólk
fær í flestum tilfellum afslátt af
líkamsræktarkortum, ellilífeyris-
þegar líka. Sumir eru með afslátt-
armiða og síðan er mun dýrara á
flestum stöðvum að kaupa kort
sem hægt er að leggja inn á gildis-
tímabilinu. Á nokkrum stöðvum
er innifalið að leggja kortið inn
eins og t.d. hjá Aerobic Sport og
Gym 80. Nokkrar stöðvar eru líka
farnar að bjóða ódýrari kort handa
þeim sem geta stundað hreyfingu
á morgnana og kallast sá valkostur
dagskort.
Fyrirtæki niðurgreiða
líkamsrækt
Á haustin er mikið að gera í lík-
amsræktarstöðvum og ný dagskrá
er yfirleitt tekin í notkun á þessum
árstíma. Það er ekki bara hefð-
bundin leikfimi, pallar og tæki sem
stendur fólki til boða heldur eru
margir farnir að bjóða upp á aðra
valkosti, jóga, teygjur, kínverska
hreyfilist, slökun, karlatíma,
styrktaræfingar fyrir bak og
maga og svo framvegis.
Sum fyrirtæki niður-
greiða líkamsræktarkort
starfsmanna sinna og sum
stéttarfélög hafa gert
samninga við líkamsrækt-
arstöðvar. Að sögn for-
svarsmanna hjá Mætti er t.d. um
helmingur þeirra sem stundár leik-
fimi eða æfingar við líkamsræktar-
stöðina á slíkum sérkjörum.
Þá eru sumar stöðvarnar með
afsláttarmiða eða hafa gert samn-
inga við verslanir um kaup á
íþróttavörum á sérkjörum.
Einkaþjálfun
og ráðgjöf lækna
Einkaþjálfarar eru komnir til
starfa á nokkrum líkamsræktar-
stöðvum og getur fólk komið og
fengið einkatíma með þeim. Þá
veita til að mynda tveir læknar
ráðgjöf hjá Ræktinni, næringar-
fræðingur, hjúkrunarfræðingur,
læknar og sjúkraþjálfarar eru í
vissum störfum hjá Mætti og svo
mætti áfram telja.
Líkamsræktarstöðin Betrunar-
húsið er ný líkamsræktarstöð og
verður ekki opnuð fyrr en á morg-
un, sunnudag.
Samkeppnisstofnun boðar hertar aðgerðir
Verðmerkingar hafa batnað
I júní sl. athugaði starfsfólk Sam-
keppnisstofnunar ástand verð-
merkinga í 788 sérverslunum á
höfuðborgarsvæðinu. Kristín Fær-
seth hjá Samkeppnisstofnun segir
að niðurstaða þessarar athugunar
gefi til kynna að enn skorti á að
ástand verðmerkinga sé viðunandi
og á það sérstaklega við um verð-
merkingar í sýningargluggum.
„Þess ber að geta að ástand verð-
merkinga er mun betra nú en fyrri
athuganir okkar gáfu til kynna.“
Kristín segir að verðmerkingar
séu í 82% tilvika óaðfinnanlegar
inni í verslunum en bendir enn-
fremur á að ef litið sé á sýningar-
glugga sé það einungis helmingur
verslana sem er með verðmerking-
ar í lagi.
Ástand verðmerkinga
í verslunum á
höfuðborgarsvæðinu
samtals 788 verslanir
verslunum gluggum
„Til samanburðar má geta þess
að fyrir þremur árum voru 37%
verslana með óaðfinnanlegar verð-
merkingar í sýningargluggum.
Ástandið hefur því batnað til muna
og á það einkum við um Laugaveg."
Skóverslanir til sóma
Að sögn Kristínar skera skó-
verslanir sig úr hvað góðar verð-
merkingar varðar sem og heimilis-
tækja-, húsgagna- og búsáhalda-
verslanir. Þá segir hún að lyfja-
verslanir skeri sig hins vegar úr
hvað lélegar verðmerkingar snertir
þar sem ekki er hirt um að verð-
merkja vörur í sýningargluggum í
64% tilvika.
Starfsfólk Samkeppnisstofnun-
ar og Neytendasamtakanna hefur
starfað saman að athugun á verð-
merkingum í verslunum og hjá
ýmsum þjónustufyrirtækjum úti á
landi. Kristín segir að fyrstu niður-
stöður bendi til að ástand verð-
merkinga sé lakara á landsbyggð-
inni en gengur og gerist á liöfuð-
borgarsvæðinu.
Hertar aðgerðir
Hún bendir á að samkeppnisyfir-
völd hafi reynt að komast hjá því
að beita viðurlögum samkeppnis-
laga við broti á skyldunni til að
verðmerkja. Hins vegar segir hún
ljóst að verði ekki frekari breyting-
ar til batnaðar eigi samkeppnis-
yfirvöld ekki um aðra kosti að velja
en beita ákvæðum laganna um
brot á verðmerkingarreglum.
Nýr upp-
skrifta-
bæklingur
EFTIR helgina er væntanlegur I
verslanir uppskriftabæklingur frá
Sól hf. Heitir hann Ljómandi fiskur
og inniheldur átta mismunandi upp-
skriftir að fiskréttum sem Úlfar
Eysteinsson matreiðslumeistari hef-
ur sett saman.
„Stór hluti ungs fólks er ekki vel
að sér þegar kemur að því að elda
fisk og okkur fannst takmarkað
framboð af auðveldum en hollum
fiskuppskriftum. Við erum að reyna
að koma til móts við þennan hóp
fólks með uppskriftabæklingnum,"
segir Jón Scheving Thorsteinsson,
markaðsstjóri hjá Sól hf.
Hér kemur ein uppskrift úr bækl-
ingnum sem er að ufsabitum í súr-
sætri sósu.
Ufsabitar í súrsætri sósu
800 g ufsaflök
Ljóma smjörlíki
____________hveifi___________
hvítlaukur eftir smekk (pressaður)
karrí eftir smekk
salt
Sósa:
1 bolli lager edik
1 bolli sykur
__________1 bolli vatn_______
1 -2 msk. tómatkraftur
1 græn paprika
I laukur
kartöflumjöl til þykkingar
Roðdragið og beinhreinsið fisk-
inn, skerið í hæfilega bita, veltið
uppúr hveitinu og steikið í smjörlíki
á vel heitri pönnu. Kryddið með
karri og saltið, snúið bitunum og
kryddið með hvítlauknum. Hellið
síðan súrsætu sósunni yfír og látið
suðuna koma vel upp. ■
STARFSFÓLK apóteksins.
Nýtt apótek
í Skeifunni
FYRIR skömmu var apótekið Skeifan
opnað í Skeifunni 8 í Reykjavík.
Apótekið er í rúmlega 200 fermetra
húsnæði og eigendur þess Andri Jón-
asson, lyfjafræðingur og lyfsali, og
Helgi Sigurðsson lyfjafræðingur.
Starfsmenn eru átta í sex stöðugild-
um. Elli-, og örorkulífeyrisþegar fá
fyrst um sinn 20% afslátt af lyfseðils-
skyldum lyfjum en aðrir fá 10% af-
slátt. Einnig fá elli-, og örorkulífeyr-
isþegar 10% afslátt af öllum öðrum
vörum sem seldar eru í apótekinu. í
fréttatilkynningu frá Skeifunni segir
að apótekið sé opið virka daga frá ,
klukkan 8-19 og á laugardögum frá ,
klukkan 10-16. Boðið er upp á heim- (
sendingarþjónustu á lyfjum og fleiru
alla þá daga sem opið er.