Morgunblaðið - 28.09.1996, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
MINNINGAR
Guðspjall dagsins:
Jesús læknar
á hvíldardegi.
(Lúk. 14.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Fermd
verður Katrín Tinna Gauksdóttir,
Kleppsvegi 24. Árni Bergur Sigur-
þjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
^mDÓMKIRKJAN: Messa kl. 11 með
altarisgöngu. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson. Dómkórinn syngur.
Organleikari Marteinn H. Friðriks-
son. Barnasamkoma kl. 13 í kirkj-
unni og í Vesturbæjarskóla. Guðs-
þjónusta með fermingarbörnum
kl. 14. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Prestur sr. Gylfi
Jónsson. Organisti Kjartan Ólafs-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 14. Prestur
sr. Haldór S. Gröndal. Organisti
Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnastarf
og messa kl. 11. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Ensk messa kl. 14. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Org-
anisti Pavel Manasek. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Útvarpsmessa kl.
11. Prestur sr. Flóki Kristinsson.
Organisti Sesselja Guðmunds-
^jfóttir. Kór Langholtskirkju (hópur
'0 syngur. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11 í umsjá sr. Guðmundar Karls
Brynjarssonar, skólaprests. Fé-
lagar úr Kristilegri skólahreyfingu
aðstoða. Barnastarf á sama tíma.
Organisti Gunnar Gunnarsson.
Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfsbjarg-
arhúsinu, Hátúni 12 í umsjá sr.
Gylfa Jónssonar. Ólafur Jóhanns-
son.
NESKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Opið hús frá kl. 10. Munið kirkju-
bílinn. Sr. Frank M. Halldórsson.
Frostaskjól: Barnastarf kl. 11.
Húsið opnar kl. 10.30. Sr. Halldór
Reynisson. Guðsþjónusta kl. 14.
Ath. breyttan tíma. Sr. Frank M.
tBFlalldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Kynn-
ingarguðsþjónusta fyrir ferming-
arbörn kl. 11. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Organisti
Pavel Manasek. Barnastarf á
sama tima í umsjá Hildar Sigurð-
ardóttur, Erlu Karlsdóttur og
Benedikts Hermannssonar.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Opið
hús fyrir aldraða kl. 14. Einar Stur-
luson, óperusöngvari, syngur í
helgistund. Kaffiveitingar í safn-
aðarheimili á eftir.
KIRKJA HEYRNARLAUSRA: Úti-
messa við Ingólfstorg kl. 14 á
degi heyrnarlausra, 29. septem-
ber. Sólrún Birna Snæbjörnsdóttir
nemi Vesturhlíðarskóla flytur hug-
vekju. Táknmálskórinn syngur
ásamt félögum úr Hamrahlíðar-
kórnum undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur. Sr. Miyako Þórðar-
son.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Foreldrar, afar og
ömmur boðin velkomin með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Ath.
breyttan messutíma. Organleikari
Kristín G. Jónsdóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prédikunarefni: Annað
og þriðja boðorðið. Óskað er eftir
þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Fundur með foreldr-
um eftir guðsþjónustuna. Sam-
koma Ungs fólks með hlutverk kl.
20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Dr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson þjónar. Barnaguðs-
þjónusta á sama tíma. Organisti
Sigríður Sólveig Einarsdóttir.
Sóknarprestur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestursr. Hreinn
Hjartarson. Ferming og altaris-
ganga. Fermd verður Emelía Jó-
hanna Guðjónsdóttir, Fýlshólum
3. Organisti Lenka Mátéová. Bar-
naguðsþjónusta kl. 11 í umsjón
Ragnars Schram. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjón
Hjartar og Rúnu og kl. 12.30 í
Rimaskóla í umsjón Jóhanns og
Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14. Org-
anisti Hörður Bragason. Prestarn-
ir.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Yngri og eldri kór
Hjallaskóla syngja undir stjórn
Guðrúnar Magnúsdóttur. Barna-
guðsþjónusta kl. 13 í umsjá írisar
Kristjánsdóttur. Organisti Oddný
J. Þorsteinsdóttir. Poppmessa kl.
17. Létt tónlist, mikill söngur. íris
Kristjánsdóttir flytur prédikun. All-
ir velkomnir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgumkl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Örn Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
HAFNARFJARÐARKIKRJA:
Sunnudagaskóli í Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 11. Munið kirkjubílinn.
Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Org-
anisti Natalía Schow. Prestur sr.
Þórhildur Ólafs. Opið hús í Strand-
bergi eftir guðsþjónustuna.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Altarisganga. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir prédikar. Organisti Bjarni
Þór Jónatansson. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Organisti Pavel
Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardagur: Messa kl. 8. Sunnudag:
Hámessa kl. 10.30, messa kl. 14,
messa á ensku kl. 20. Mánudaga
til föstudaga: messur kl. 8 og kl.
18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg:
Samkoma á morgun kl. 17. Vitnis-
burðir og ávörp. Fyrirbæn og lof-
gjörð. Barna- og unglingasamver-
ur á sama tíma.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
GuAþjónustu
sunnudag kl. 14.00
Kvenfélagsfundur
fimmtudag kl 20.30
Æskulýðsfélagar, sem vilja koma
með á Landsmótið tilkynnið
þátttöku fyrir 2. októbes,
með kveðju,
Cecil Haraldsson.
Fermingar
á sunnudag
FERMING í Áskirkju kl. 14.
Prestur sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson. Fermd
verður:
Katrín Tinna Gauksdóttir,
Kleppsvegi 24.
FERMING í Fella- og Hóla-
kirkju kl. 11. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Fermd
verður:
Emelía Jóhanna Guðjónsdóttir,
Fýlshólum 3.
FERMING í Lágafellskirkju
kl. 14. Prestur sr. Jón Þor-
steinsson. Fermd verður:
Tinna Guðmundsdóttir,
búsett í Osló í Noregi.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fðadelf-
ía: Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Snorri Óskarsson.
Allir hjartanlega velkomnir. Ath.
breyttan samkomutíma.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumað-
ur Ásmundur Magnússon. Fyrir-
bænaþjónusta/bænaklútar. Allir
hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæna-
stund sunnudag kl. 19.30, hjálp-
ræðissamkoma kl. 20. Miriam
Óskarsdóttir stjórnar. Elsabet
Daníelsdóttir talar.
LÁGAFELLSKIRKJA: Barnastarfið
hefst í safnaðarheimilinu sunnu-
dag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermd verður Tinna Guðmunds-
dóttir, búsett í Osló í Noregi.
Kirkjukór Lágafellssóknar. Organ-
isti Guðmundur Ómar Óskarsson.
Jón Þorsteinsson.
VÍDALÍNSKIRJA: Messa laugar-
dag kl. 17 með altarisgöngu í lok
héraðsfundar Kjalarnessprófasts-
dæmis. Sunnudag: Guðsþjónusta
kl. 11. Sunnudagaskólinn og yngri
deildir KFUM og K hefja vetrar-
starfið með samveru barna og
foreldra. Skólakór Garðabæjar
syngur. Kvöldsamkoma kl. 20.30.
Vænst er þátttöku fermingarþarna
og foreldra þeirra. Léttur söngur
og hljóðfæraleikur. Sýndar verða
myndir úr fermingarbarnaferðum
í Vatnaskóg. Veitingar að athöfn
lokinni. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sig-
urður Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Fyrsta
skiptið á þessum vetri. Börn í
Innri-Njarðvíkursókn sótt að safn-
aðarheimili kl. 10.45. Foreldrareru
hvattir til að mæta með börnum
sínum. Messa kl. 14. Altaris-
ganga. kirkjukórinn syngur undir
stjórn Steinars Guðmundssonar.
Baldur Rafn Sigurðsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. „Hveragerðist-
ónleikar" Tónlistarfélagsins kl. 20.
Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 10.30. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Úlfar Guð-
mundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
14. Úlfar Guðmundsson.
STRANDARKIRKJA: Messa kl. 14.
Rúta fer frá grunnskólanum í Þor-
lákshöfn kl. 13.15 og til baka að
messu lokinni. Svavar Stefánsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Sunnudagaskóli kl. 11.
Messufall kl. 14 vegna héraðs-
fundar Kjalarnessprófastsdæmis.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í dag, laugardag kl. 11.
Stjórnandi Sigurður Grétar Sig-
urðsson. Fjölskylduguðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Hans M. Haf-
steinsson, guðfræðingur, prédik-
ar. Fermingarbörn aðstoða.
Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
og fjölskylduguðsþjónusta verður
í Borgarneskirkju kl. 11. Framveg-
is verða barnaguðsþjónustur alla
sunnudaga kl. 11.15. Þorbjörn
Hlynur Árnason.
KARLINGIMUNDUR
AÐALSTEINSSON
+ Karl Ingimund-
ur Aðalsteinsson
fæddist á Djúpavogi
11. ágúst 1927.
Hann lést í Vífils-
staðaspítala 21.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Aðalsteinn
Pálsson, f. 5. mars
1888, d. 18. des.
1961, og Karólína
Auðunsdóttir, f. 24.
júlí 1893, d. 12. des.
1978. Þau eignuðust
tíu börn og var Karl
þriðja yngsta barn
þeirra.
Karl kvæntist Rannveigu
Hjálmarsdóttur, f. 27. nóv. 1933
frá Fagrahvammi við Berufjörð.
Börn þeirra eru: Ásgeir, f. 1954,
Jónas, f. 1955, og SvanhUdur,
f. 1958. Eiginkona Ásgeirs er
Viktoría Pettypiece og eiga þau
tvö börn, Daníel Shane, f. 1980,
og Nadíu Rannveigu, f. 1982.
Svanhildur á eina dóttur, Rakel,
f. 1980.
Útför Karls verður gerð frá
Hveragerðiskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.00.
Mig langar að minnast föðurbróð-
ur míns sem látinn er eftir áralanga
baráttu við erfiðan sjúkdóm.
Kæi, eins og hann var kallaður,
byijaði búskap sinn í Fagrahvammi
við Berufjörð en þurfti að bregða
búi er hann fór að kenna þess sjúk-
dóms sem hann átti eftir að beijast
við til æviloka. Fluttist hann þá á
Djúpavog og svo til Hveragerðis þar
sem hann hefur átt heima síðustu
árin.
Meðan Kæi bjó í Fagrahvammi
var mikill samgangur milli hans og
föður míns enda voru þeir bræður á
sama reki. Þegar Kæi fluttist burtu
urðu samverustundirnar færri og því
missir pabba mikill.
Alltaf þótti okkur krökkunum
gaman þegar Kæi kom í heimsókn,
hann var alltaf glettinn, hress og
kátur og við kepptumst um athygli
hans. Kæi hafði alveg sérstakt lag
á börnum enda var hann alltaf feng-
inn til að vera jólasveinn á jólaböllum
í sveitinni.
Barnaskólinn var á næsta bæ við
Fagrahvamm og kom ég oft þangað
um helgar með Svönu dóttur hans,
en við erum jafnöldrur. í minning-
unni eru þessar helgar mjög
skemmtiiegar. Við krakkarnir fórum
í leiki með útiverkunum en þegar inn
var komið var spilað á gítar og sung-
ið, eða þá að Rannveig las fyrir
okkur námsefnið sem okkur hafði
verið sett fyrir. Það var alltaf svo
notalegt að koma til Kæja og Rann-
veigar því yfir heimili þeirra var svo
sérstaklega hlýr, glaðvær en samt
rólegur blær.
Þegar Kæi hætti að geta stundað
vinnu vegna sjúkdóms síns, fór hann
að smíða stóla og litlar kistur sér
til dægradvalar eftir því sem hann
hafði þrek til. Á þessum hlutum má
sjá að Kæi var góður smiður en
ugglaust hefur hann lært hand-
bragðið af afa þótt hann notaði það
ekki fyrr en nú á seinni árum.
Eftir situr minning um hressan
og kátan frænda sem ekki verður
frá okkur tekin.
Elsku Rannveig, Ásgeir, Jónas,
Svana og ástvinir allir, ég sendi
ykkur öllum mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Megi Kæi frændi hvíla í guðs friði.
Guðlaug Björnsdóttir.
Að leiðarlokum langar okkur að
minnast vinar okkar og bróður sem
er látinn eftir löng og erfið veik-
indi. Um hann eigum við aðeins
góðar minningar. Hann var alltaf
hress og kátur, jafnvel þó hann
væri sárþjáður eins og hann var á
seinni árum. Á meðan hann bjó í
sveitinni hittumst við oft og það
voru okkar bestu stundir. Eins var
hann kærkominn gestur hjá börnum
okkar og alltaf gaman
þegar Kæi frændi birt-
ist.
Mikið söknuðum við
ykkar þegar þið flutt-
ust burt og samfundir
urðu færri. Og hvað við
nutum þess að hafa þig
út af fyrir okkur þegar
þú varst að lagfæra
bátinn þinn hér í fjör-
unni. í fyllingu tímans
hittumst við aftur og
getum vonandi hlegið
að vild án þess að
hóstaskömmin ætli að
gera útaf við okkur.
Hvíl þú í friði, kæri vinur. Hafðu
þökk fyrir allt og allt.
Elsku Rannveig og fjölskylda. Við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Gyða og Björn,
Hvannabrekku.
Á þessum tímamótum fer maður
í huganum yfir liðna tíð og gluggar
í gamlar minningar um þig. Elstu
brotin eru frá því þegar ég var smá-
barn. Það var svo spennandi þegar
þú komst í heimsókn. Ég man hvað
ég var stoltur af ykkur pabba þegar
þið voruð héraðslögreglumenn og
voruð að fara á böllin til að sjá um
löggæsluna, þið voruð svo flottir
með húfurnar.
Ég kynntist þér ekki almennilega
fyrr en ég var fluttur suður, en þá
varst þú orðinn sjúklingur. Það var
svo einstaklega gott að heimsækja
þig, þú hafðir frá svo mörgu að
segja. Við gátum talað endalaust
um gömlu dagana, um afa og ömmu
í Svalbarði og það sem á dagana
hafði drifið löngu áður en ég fædd-
ist. En það sem stendur upp úr ert
þú sjálfur. Hvernig þú lést aldrei
bilbug á þér fínna, þrátt fyrir erfiðan
sjúkdóm. Þú varst alltaf glettinn og
í góðu skapi og barst möglunarlaust
byrðarnar sem á þig voru lagðar.
Eftir heimsóknir til þín fór ég alltaf
heim ríkari en ég kom.
Mig langar að enda þetta með
orðum úr ritningunni sem mér finnst
viðeigandi.
Komið til mín, allir þér sem erfiði hafíð
og þungar byrðar, og ég mun veita yður
hvíld.
Takið á yður mitt ok og lærið af mér,
því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur,
og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.
Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.
(Matt. 11:28-30)
Ég votta öllum ástvinum Kæja
samúð mína með orðum Páls post-
ula: „Náðin Drottins vors Jesú Krists
sé með yður öllum." (2. Þess. 3:18)
Ragnar Birkir Björnsson.
Hjartahlýja,
lítillæti,
umhyggja,
glaðlyndi,
æðruleysi.
Þarf nokkuð fleiri orð?
Þökk fyrir allt.
Ásdís Stefánsdóttir
og fjölskylda.
Skilafrest-
ur minningar-
greina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnudags-
blaði ef útför er á mánudegi);
er skilafrestur sem hér segir: I
sunnudags- og þriðjudagsblað
þarf grein að berast fyrir há-
degi á föstudag. í miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags-
og laugardagsblað þarf greinin
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrir birtingar-
dag. Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.