Morgunblaðið - 28.09.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 39
FRETTIR
Kvöldnámskeið í kín-
versku og japönsku
FJÖREGGIÐ er handunnið íslenskt listaverk frá Gleri í Bergvík.
Vöruþróun kynnt
á matvæladegi
MATVÆLADAGUR Matvæla- og
næringarfræðingafélags Islands
(MNÍ) verður haldinn laugardaginn
19. október nk. á Grand Hóteli í
Reykjavík. Yfirskrift dagsins er
Vöruþróun og verðmætasköpun og
stendur dagskráin frá kl. 9-15. Eins
og undanfarin ár verður dagurinn í
ráðstefnuformi og í þetta sinn verð-
ur vöruþróun í matvælaiðnaði skoð-
uð frá ýmsum hliðum.
Á matvæladeginum verða veitt
verðlaun, Fjörgegg MNÍ, fyrir lofs-
vert framtak á matvælasviði. Fjör-
eggið er handunnið, íslenskt listaverk
frá Gleri í Bergvík, gefið af Samtök-
un iðnaðarins. Efni dagsins, vöruþró-
un og verðmætasköpun, verður haft
að leiðarljósi við val á verðlauna-
vöru/framtaki. Öllum er fijálst að
tilnefna vörur/framtak til keppninnar
og verða tilnefningar metnar af
þriggja manna dómnefnd.
Matvælaframleiðendur geta kom-
ið vörum sínum á framfæri við Ragn-
heiði Héðinsdóttur hjá Samtökum
iðnaðarins.
Áður hafa_ eftirtaldir aðilar hlotið
Fjöregg MNÍ: Emmess ísgerð fyrir
vöruna ísnál árið 1993, Mjólkursam-
salan í Reykjavík fyrir vöruna Fjör-
mjólk árið 1994 og Manneldisráð
íslands fyrir útgáfu fræðsluefnis um
manneldismál árið 1995.
Lög gefin
út á bók
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
gefið út bókina Lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins nr.
70/1996, ásamt greinargerðum og
nefndarálitum.
Fremst í bókinni eru almennar
athugasemdir sem fyigdu frum-
varpinu en svo eru hinar einstöku
greinar laganna birtar með greinar-
gerð. Vegna þess hvað lögin undir-
gengust miklar breytingar í með-
ferð Alþingis frá upphaflega frum-
varpinu hefur nefndarálitum verið
bætt aftan við þær greinar sem
tóku breytingum. Aftast í bókinni
er svo upphaflega frumvarpið látið
fylgja sem viðauki.
Bókin er gefin út í ritröð fjár-
málaráðuneytisins og er 72_bls. á
lengd. Hún fæst á Hagstofu íslands
og kostar einstakið 500 kr.
Norrænjafn-
réttisráðstefna
í Reykjavík
NORRÆN jafnréttisráðstefna á
Grand Hóteli í Reykjavík á vegum
Háskóla íslands og stjórnsýslusam-
taka háskóla á Norðurlöndum er
haldin dagana 28. og 29. septem-
ber. Efni ráðstefnunnar er fjöl-
breytt en fyrirlesarar, ellefu talsins,
eru frá fimm löndum. Þessi ráð-
stefna er aðeins fyrir þá sem hafa
skráð sig sem þátttakendur.
Hins vegar er öllum boðið að
koma sunnudagskvöldið 29. sept-
ember 1996 til fyrirlestra og pall-
borðsumræðna um jafnrétti í aka-
demíu. Rannsóknarstofa í kvenna-
fræðum hefur fengið þijá af fyrir-
lesurum jafnréttisráðstefnunnar til
að tala. Þær eru:
Lise Christensen, jafnréttisráðgjafi
við Háskólann í Osló. Lise er nú í
tveggja ára leyfi frá störfum til að
vinna að rannsóknarverkefni á veg-
um Norrænu ráðherranefndarinnar
um stöðu jafnréttismála í norræn-
um háskólum. Hún mun kynna nið-
urstöður þessarar rannsóknar í er-
indi sínu sem hún nefnir: „Gender
equality in Academia? What is the
status and what is done at the
universities in the Nordic Countr-
ies.“
Liisa Husu, sérfræðingur hjá
Jafnréttisskrifstofunni í Helsinfors.
Hún hefur umsjón með kvenna-
rannsóknum og námi í kvennafræð-
um í finnskum háskólum og er jafn-
réttisfulltrúi í finnska félagsmála-
ráðuneytinu. Liisa Husu er fyrsti
formaður stjórnar NIKK, Norrænu
kvennarannsóknarstofnunarinnar.
Liisa nefnir erindi sitt: „Gender and
Academia - problem only for wom-
en?“
Toni Benterud, jafnréttisráðgjafi
í Háskólanum í Ósló í fjarveru Lise
Christensen. í erindi sínu mun Toni
Benterud f'jalla um hvernig hefur
gengið að framkvæma áætlun Ósló-
arháskóla til að koma í veg fyrir
og bregðast við kynferðislegri
áreitni. Hún nefnir erindi sitt: „Act-
ions against annoying/threatening
sexual attention in Academia. The
case of the University of Oslo.“
Fyrirlestrarnir og pallborðsum-
ræðurnar verða í stofu 101 í Odda
og hefjast kl. 20. Allir eru velkomn-
ir.
Poppmessa
í Hjallakirkju
POPPMESSA verður haldin í fyrsta
sinn í Hjallakirkju í Kópavogi
sunnudaginn 29. september kl. 17.
Tilgangurinn er að höfða til fólks
á öllum aldri með léttu yfirbragði
tónlistar og talaðs orð. Hópur tón-
listarmanna leikur undir og leiðir
söng. Stefnt er að því að halda slík-
ar messur að jafnaði einu sinni í
mánuði yfir vetrartímann. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Bifreið stolið
í innbroti
BROTIST var inn að Sóltúni 25 í
Reykjavík aðfaranótt fimmtudags-
ins og þaðan stolið Hyundai Acc-
ent bifreið, árgerð 1996.
Bifreiðin er ófundin og eru þeir,
sem hafa orðið hennar varir eða
vita hvar hún er, beðnir að láta
Rannsóknarlögreglu ríkisins vita.
Bifreiðin er dökkfjólublá að lit
og ber skráningarnúmerið RY 462.
Hausthátíð
Vatnaskóg-ar
SKÓGARMENN KFUM, sem
starfrækja sumarbúðirnar í Vatna-
skógi, standa í dag fyrir sérstakri
hausthátíð fyrir þá u.þ.b. 1000
drengi sem dvöldu í Vatnskógi í
sumar.
Á hausthátíðinni verða m.a. rifj-
aðar upp minningar frá sumrinu í
máli og myndum og boðið upp á
dagskrá fram eftir degi. Þetta er
í fyrsta sinn sem slík hausthátíð
er haldin og hefst hún kl. 13.30
við aðalstöðvar KFUM og KFUK
á Holtavegi 28 í Reykjavík.
Fyrri hluta dagsins verður m.a.
keppt í kassabílarallý, farið í víta-
spyrnukeppni, ævintýraleik, borð-
tennis og ýmsar sérkennilegar
þrautir. Síðan verða bornar fram
veitingar og skemmtidagskrá hefst
innan dyra. Þar verður m.a. dregið
í happdrætti hátíðarinnar þar sem
fyrsti vinningu er dvöl næsta sum-
ar í Vatnskógi. Aðgöngumiði að
hátíðinni er 350 kr. en henni lýkur
kl. 17.30.
Fyrirlestur
um áburðargjöf
í ylrækt
FINNSKI ráðunayturinn Paul
Raiskinmaki flytur fræðslufyrirlest-
ur 11. október nk. í Garðyrkjuskóla
ríkisins, Reykjum, Ölfusi, um
áburðargjöf í ylrækt.
Fyrirlesturinn hefst kl. 13.30 og
lýkur kl. 17. Allur fyrirlesturinn
verður túlkaður yfir á íslensku.
Góður tími verður gefinn fyrir fyrir-
spumir og umræður.
Pauli er hér á landi á vegum Fijó
hf. Ekkert kostar inn á fyrirlesturinn
og kaffi verður í boði skólans.
Tíðar ferðir
til London og
Glasgow
„í VETRARÁÆTLUN Flugleiða,
sem tekur gildi þann 27. október
nk., er gert ráð fyrir níu ferðum á
viku frá Keflavík til London. Islend-
ingum hafa aldrei staðið til boða
jafn tíðar ferðir til London frá ís-
landi.
Þannig eru tvær flugferðir á dag
á fimmtudögum og sunnudögum,
morgunflug og síðdegisflug, og því
möguleiki á að skreppa í dagsferð
til London í fyrsta skipti. Einnig
fjölgar ferðum til Glasgow um
helming á vetraráætlun úr þremur
ferðum í sex á viku hverri,“ segir
í frétt frá Flugleiðum.
I tilefni af þessari auknu tíðni
verða sérstök Lilboð á ferðum til
London og einnig frá Bretlandi
hingað til lands í haust og vetur.
Á HAUSTMISSERI mun Endur-
menntunarstofnun Háskóla ís-
lands gangast fyrir kvöldnám-
skeiði í kínversku og japönsku.
Námskeiðin heljast um miðjan
október og lýkur í byijun desem-
ber;
Á kínverskunámskeiðinu, sem
er byijendanámskeið, verða kennd
undirstöðuatriði kínverskrar
tungu; uppruni, þróun og upp-
bygging rittáknanna; æfingar í
skrift og framburði hljóða sem
ekki eru til í íslensku; hljóðskrifta-
kerfið; kínverska skrifuð með vest-
rænu stafrófi; undirstaða í mál-
fræði; tákn og lestraræfingar.
Leiðbeinandi verður Hjörleifur
Sveinbjörnsson en hann nam við
Peking-háskóla ’76—’81. Kennt
verður á miðvikudagskvöldum.
„Smiðirnir“ í
Húsasmiðjunni
í HÚSASMIÐJUNNI verður opn-
uð málverkasýning á laugardag
með myndum eftir myndlistar-
manninn Úlfar Öm Valdimarsson.
Yfirskrift sýningarinnar er
„Smiðirnir" og tengist myndefni
listamannsins allt smiðum og
þeirra vinnu á einhvern hátt.
„í reynd má segja að myndir
listamannsins séu óður til allra
iðnaðarmanna og þá sérstaklega
smiða. Forráðamönnum Húsa-
smiðjunnar finnst slík sýning við-
eigandi í húsakynnum fyrirtækis-
ins þar sem smiðir og aðrir iðnað-
armenn eru mikilvægir viðskipta-
vinir,“ segir í kynningu.
Á sýningunni eru 40 olíumál-
verk og 40 smámyndir gerðar í
75 eintökum hver. Sýningin verð-
ur í versluninni í Skútuvogi 16 og
í timbursölunni í Súðarvogi 3-5.
Sýningin stendur í 3 vikur og
er opin á opnunartíma Húsasmiðj-
unnar.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá mennta-
málaráðunej’tinu:
„Vegna viðtals við Hjalta Jón
Sveinsson, skólameistara á Laugum
í Reykjadal, í fréttatíma Sjónvarpsins
25. september sl. og viðtals við hann
í blaðinu Dagur-Tíminn í dag vill
menntamálaráðuneytið taka fram
eftirfarandi:
Framhaldsskólinn á Laugum hefur
aldrei haft formlegt leyfi til þess að
útskrifa stúdenta eins og skólameist-
arinn hélt fram í ofangreindum við-
tölum. í bréfi dags. 9. mars 1990
er skólanum heimilað að starfrækja
þriggja ára íþróttabraut og ferða-
málabraut. í ársbyijun 1992 óskar
þáverandi skólameistari eftir því að
skólinn fái Ieyfi til þess að starf-
rækja fjórða ár á íþróttabraut vetur-
inn 1992-1993. Því er hafnað með
bréfi ráðuneytisins, dag. 5. maí 1992,
en þar segir m.a.: „Af þeim sökum
getur ráðuneytið, að svo stöddu, ekki
fallist á að Framhaldsskólinn á Laug-
um útskrifi „fjögurra árs nemendur"
veturinn 1992-’93 heldur ljúki námi
við skólann á íþróttabraut og ferða-
málabraut eftir 3ja ára nám, sbr.
bréf ráðuneytisins frá 9. mars 1990.“
28. júní 1993 sendir ráðuneytið
skólameistara Framhaldsskólans á
Laugum svofellt bréf:
„Með vísun til fyrri ákvarðana um
námsframboð Framhaldsskólans á
Laugum vill ráðuneytið hér með ít-
reka eftirfarandi:
1. Hvað varðar almennar bók-
námsbrautir skal námsframboð skól-
ans miðast við tvö fyrstu ár fram-
haldsskóla. Áfangar í boði skulu því
Japönskunámkeiðin eru tvö í
framhaldi hvort af öðru og er
kennt tvö kvöld í viku. Á byijenda-
námskeiðinu eru kennd; undir-
stöðuatriði í málfræði, hiragana
æft; undirstaða í orðaforða með
einföldum textum og samtölum;
skriftaræfingar og japanskt ritmál
lesið. Eftir hiragana táknin 47 er
lauslega farið yfir katakana.
Framhaldsnámskeiðið er ætlað
þeim sem þegar hafa tileinkað sér
undirstöðuatriði japanskrar tungu,
svo sem kanatáknin, og hafa ein-
hvern orðaforða, tekið verður mið
af stöðu hópsins. Leiðbeinandi
verður Jón Egill Eyþórsson, BA í ‘
kínverskum bókmenntum, en hann
lærði í Japan.
Nánari upplýsingar eru í síma
Endurmenntunarstofnunarinnar.
Upplestur í Hót-
el Hveragerði
RITHÖFUNDURINN og list-
málarinn Steingrímur St. Th. Sig-
urðsson les upp úr væntanlegri
lífsbók sinni sunnudaginn 29. sept-
ember kl. 16.30 í Hótel Hvera-
gerði í svonefndri Eiríksstofu.
Ennfremur mun Steingrímur
gera skyndimyndir af fólki.
LEIÐRÉTT
Hamborgarayddarar
I fréttaklausu hér í blaðinu í gær,
þar sem greint var frá opnunarhá-
tíð Sundanestis við Sæbraut, sem
verður í dag milli kl. 16 og 18.30
slæddist inn komma á röngum
stað, þannig að misskilja mátti
hvað ungum viðskiptavinum
stendur til boða, sem sækja Sund-
nesti heim. Hið rétta er að þeim
stendur til boða að fá hamborg-
arayddara, ekki hamborgara,
yddara og pylsuyddara. Beðist
er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
aðeins vera þeir sem að jafnaði eru
kenndir á fyrsta og öðru námsári í
framhaldsskólums sem starfa eftir
áfangakerfi.
2. Nám á íþróttabraut og ferða-
málabraut skal vera þriggja ára nám
skv. sérstakri skilgreiningu sem
ráðuneytið hefur staðfest."
Af þessu má Ijóst vera að ráðu-
neytið hefur ávallt hafnað ósk Fram-
haldsskólans á Laugum um að út-
skrifa stúdenta. Þrátt fyrir skýra
synjun kenndi skólinn til stúdents-
prófs veturinn 1992-1993 ogtil þess
að firra nemendur vandræðum fór
ráðuneytið þess á leit við Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ hann „meti og
útskrifi 9 nemendur frá Framhalds-
skólanum á Laugum". Hér er vitnað
1 bréf sem sýnt var í fréttatíma Sjón-
varpsins 25. september sl. þar sem
látið er að því liggja að væri leyfi
frá ráðuneytinu skólanum til handa
til þess að útskrifa stúdenta. Þetta
bréf sannar einmitt að skólinn hafði
ekki og hefur ekki leyfi til þess að
útskrifa stúdenta. Ef hann hefði
haft það var ekki þörf á að biðja
annan framhaldsskóla að útskrifa
nemenduma.
Hinn 9. maí 1996 áréttaði mennta-
málaráðuneytið það við Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ (FG) að nemend-
ur við Framhaldsskólann á Laugum
yrðu brautskráðir frá FG í síðasta
sinn sl. vor.
Af ofanskráðu má sjá að Hjalti
Jón Sveinsson, skólameistari, fór
með staðlausa stafi í fyrmefndum
viðtölum þar sem hann vændi m.a.
menntamálaráðherra um að fara með
ósannindi."
Athugasemd frá
menntamálaráðuneytinu