Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 2
'MORGUNBLAÐIÐ 2 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís VERIÐ var að þvo glugga Alþingishússins í gær en 121. þing verður sett í dag. Lántakendur farnir að greiða af greiðslujöfnunarreikningum Greiðaaf 870 milljóna skuld Alþingi kemur saman í 121. sinn Þingsetning með venju- bundnum hætti SETNING Alþingis fer fram í dag, með venjubundnum hætti, eftir að hugmyndir um breytt fyrirkomulag þingsetningar strönduðu á andstöðu eins þing- flokksins. Athöfnin hefst með guðs- þjónustu í Dómkirkjunni kl. 13:30. Að henni lokinni gengur þingheimur til þinghússins. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur þingið. Að lokinni setningarræðu forseta er starfsaldursforseti þingsins kvaddur I forsetastól, en hann er nú Ragnar Arnalds, Alþýðubandalagi. Hann stýrir kjöri þingforseta. Að loknu kjöri þingforseta verður þingfundi frestað, en samkvæmt breytingartillögum var gert ráð fyrir að er hér væri komið sögu flytti forsætis- ráðherra stefnuræðu sína. Fjárlagafrum varpi dreift til þingmanna Þingsetningarfundi verður fram haldið kl. 13:30 á morgun. Fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn- arinnar verður þá dreift til þingmanna. Þá fer fram kjör í embætti varaforseta og þing- nefndir. Einnig er gert ráð fyrir að tilkynnt verði um stofnun hins nýja þingflokks jafnaðarmanna á fundinum. Loks verður hlutað um sæti í þingsalnum. Stefnuræða forsætisráðherra annað kvöld Nýr fundur verður siðan sett- ur kl. 21 annað kvöld, og hefst hann með stefnuræðu forsætis- ráðherra. Stefnuræðunni fylgja ræður þingflokkanna með sama hætti og tíðkazt hefur. Fund- inum verður sjónvarpað og út- varpað beint. LÁNTAKENDUR eldri bygginga- lána skulda um 870 milljónir á svo- kölluðum greiðslujöfnunarreikning- um. A þessu og síðasta ári hafa laun hækkað meira en verðlag og þess vegna hafa lántakendur verið að greiða niður skuldir af þessum reikn- ingum með hærri afborgunum. I upphafi síðasta áratugar varð það sem stundum er kallað misgengi milli launa og verðlags, en það þýðir að í verðbólgu þeirra tíma hækkaði verðlag meira en launin. Húsnæðis- lánin voru vísitölutryggð og hækk- uðu en launin ekki. Þetta leiddi til þess að margir áttu í erfiðleikum með að standa í skilum með afborg- anir af lánum. Eftir harða gagnrýni lántakenda ákváðu stjómvöld að setja á stofn sérstaka reikninga sem var ætlað að minnka greiðslubyrði húseigenda. Hluti mismunarins á verðlagi og launum var settur inn á sérstakan reikning í stað þess að láta lántak- endur borga hann strax. Þannig myndaðist skuld húseigandans sem honum var ætlað að borga síðar þeg- ar betur áraði. Borga til baka Undanfarin tvö ár hafa laun hækkað meira en verðlag eins og sést á vísitölu sem kölluð er launa- vísitala til greiðslujöfnunar. Frá 1991-1994 stóð húnmánast í stað í rúmum 2.800 stigum. Á síðasta og þessu ári hefur hún hækkað umtals- vert og er komin upp fyrir 3.200 stig. Þetta þýðir að lántakendum hjá Húsnæðisstofnun er nú gert að borga hluta af skuld þeirra á greiðslujöfnunarreikningum auk hinna venjulegu afborgana af lán- unum. Grétar Guðmundsson, rekstr- arstjóri hjá Húsnæðisstofnun, segir að mismunurinn sé ekki há upphæð enda dreifist hún á allan lánstím- ann. Upphæðin sé mishá milli lán- takenda, en að jafnaði sé ekki um margar krónur að ræða. Alls eru 46.000 lán með greiðslu- jöfnunarreikning, en þar af eru um 24.000 reikningar með skuld. Staða annarra reikninga er núll. Um 15.000 lántakendur eru með þessi 24.000 lán. Heildarupphæðin á reikningunum er 870 milljónir þann- ig að meðalskuld lántakenda er um 60.000 krónur. Með tilkomu húsbréfakerfisins hættu nýir lántakendur að greiða inn á greiðslujöfnunarreikninga. Sláturhús SS Starfs- menn g’engn út Selfossi. Morgunblaðið. UM HELMINGUR starfs- manna í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands á Selfossi lagði nið- ur vinnu um tíma í gær vegna samstarfsörðugleika við yfir- menn sína. Starfsmennirnir héldu fund í húsi verkalýðsfélagsins og fengu Pál Lýðsson formann stjórnar SS á sinn fund. Niður- staða þess fundar var að starfs- mennirnir héldu aftur tii vinnu með ioforð um að fundin yrði lausn. Lyktir málsins urðu þær að komið var til móts við óskir starfsmannanna. Til þess að koma í veg fyrir að starfsemi sláturhússins stöðvaðist gengu yfirmenn til verka við sláturlín- una, þar á meðal Steinþór Skúlason forstjóri SS. Ný sláturlína hefur verið tek- in upp í sláturhúsinu sem talin er geta skilað meiri afköstum og betra gæðaeftirliti. Breti hefur unnið að því að kenna starfsmönnum á línuna. Starfs- menn telja sig þurfa meiri þjálf- un við störf á sláturlínunni til þess að ná fram þeim afköstum sem til er ætlast. Upp úr sauð hjá starfsmönnum þegar setja átti verkstjóra til hliðar og fá nýjan í staðinn. Niðurstaða málsins varð sú að verkstjórinn hélt áfram störfum og störf voru betur skilgreind en áður. Stálu úr baukum barna BROTIST var inn í leikskóla við Suðurströnd á Seltjarnar- nesi í fyrrinótt og stolið 20 þúsund krónum úr sparibauk- um barnanna. Ekki er ljóst hverjir frömdu þetta afbrot, en málið er í rann- sókn. • • OIl hlutabréf í Norðurtanganum til söiu 7 tilboð bár- ust í bréfin SJÖ tilboð hafa borist í hlutabréf Norðurtangans hf. á ísafírði, en 80% hluthafa buðu völdum sjávar- útvegsfyrirtækjum þau til kaups fyrir helgi. Ásgeir og Hörður Guð- bjartssynir, sem eiga 20% í fyrir- tækinu, ákváðu um helgina að selja einnig sinn hlut og því eru öll hlutabréf fyrirtækisins til sölu. Erfíðleikar hafa verið í rekstri Norðurtangans síðustu ár. Fyrir- tækið skuldar mikið og hefur ver- ið rekið með tapi síðustu misseri eins og mörg sjávarútvegsfyrir- tæki sem byggja á landvinnslu. Ágreiningur hefur verið milli hlut- hafanna um stefnu fyrirtækisins í nútíð og fortíð. Þessi ágreiningur kom m.a. fram á aðalfundi nýlega. Búist er við að það skýrist á allra næstu dögum hver kaupir Norðurtangann, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins telja hluthafarnir að bestu tilboð sem bárust séu þannig að áhugi þeirra á að selja hafi ekki minnkað. Við- ræður standa yfír milli hluthafa og tilboðsgjafa fyrir milligöngu Ráðs hf., sem tekið hefur að sér að selja bréfín. Ekki fengust upplýsingar um hvaða fyrirtæki gerðu tilboð í hlutabréfin eða um verðtilboð. Mikill titringur er á ísafírði út af þessu máli. Pétur Sigurðsson, formaður verkalýðsfélagsins Bald- urs, sagði menn óttast mjög það sem kynni að fylgja þessum kaup- um. Hann sagði alveg ljóst að það sem öflug sjávarútvegsfyrirtæki í öðrum landshlutum væru að sækj- ast eftir með kaupum á Norður- tanganum væri 3.000 tonna kvóti í eigu fyrirtækisins. Það væri alveg ábyggilegt að þau hefðu ekki áhuga á að reka fískvinnsluhús á ísafírði. Brak úr herflugvél borið af Eyjafjallajökli Morgunblaðið/Ámi Alfreðsson ALFREÐ Gíslason, faðir Árna, við skrúfublaðið sem vegur um 200 kíló. Tepokar og skrúfa undan jöklinum ÁRNI ALfreðsson líffræðingur hefur í sumar safnað saman hlutum og braki úr flaki bandarísku herflugvél- arinnar sem fórst árið 1952 á norðanverðum Eyja- fjallajökli. Arni hefur komið þessu fyrir að Stóru- mörk undir Eyjafjöllum, en von hans er, að þar rísi í framtíðinni safn til minningar um flugslysið. „Ég hef fundið allt frá tepokum upp í skrúfublað sem vegur um 200 kíló, heilan bílfarm af alls kyns munum, öllum nýög heillegum, næstum eins og nýj- um,“ segir Arni. Fyrir réttu ári kom stærsti hluti vélarinnar loks undan ísnum. í flugslysinu fyrir 44 árum fórust fimm manns, einn fannst við flakið en hinir fjórir fundust fjórtán árum síðar, neðar á jöklinum langt frá slysstað. Ami fékk fjölskyldu og vini í lið með sér til að koma mununum ofan af jöklinum, en til að komast að flakinu þarf að ganga um 2 km. Gríðarlegar breytingar hafa átt sér stað á jöklinum í sumar, að sögn Arna, hann hefur bráðnað mikið og skriðið fram. „Það eru þvi eru síðustu forvöð að hirða flakið sjáift og það Iitla sem eftir er af vélarhlutum," segir hann. Ámi segir gripina hafa mikið sögulegt gildi og þvi hafl hann áhuga á að koma upp safni að Stómmörk undir Eyjafjöllum þar sem ferðamenn geta komið, fræðst um flugslysið og séð hluti og brak úr flakinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.