Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 60
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTOBER 1996 Ircpc) WCMyjKSOFNÆMl fNQNJtMEJM VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Jarðskjálftar í Bárðarbungu í Vatnajökli gætu verið fyrirboði eldgoss Stærsti skjálfti 5 stig STERK jarðskjálftahrina hófst í Bárðarbungu í Vatnajökli á sunnu- dag. Hún hófst með skjálfta sem náði 5 stigum á Richtersskala að styrkleika. Að sögn jarðskjálfta- fræðinga gæti hrinan verið fyrir- boði eldsumbrota. Almannavarnir sendu frá sér tilkynningu í gær- kvöldi þar sem varað er við flugi yfir Bárðarbungu og ferðalögum á jökli í nálægð við eldstöðvarnar. Stóri upphafsskjálftinn reið yfir skömmu fyrir kiukkan ellefu á sunnudagsmorgun. Röð veikari skjálfta fylgdi í kjölfarið, sem hafa haldið áfram síðan með hléum. Að sögn Ragnars Stefánssonar jarð- skjálftafræðings hafa frá árinu 1989 mælzt jarðskjálftahrinur í Bárðarbungu á eins til tveggja ára fresti. Jafnstórir skjálftar og nú mældust hafa ekki komið fyrir frá því í maí 1994. Þessi nýjasta hrina hagar sér hins vegar nokkuð frá- brugðið hinum fyrri, sem einkennd- ust af því að fyrst kom einn stór skjálfti og í kjölfar hans fáeinir eftir- skjálftar. Núna er meira framhald á skjálftunum, og svæðið sem skjálft- arnir ná yfir breiðir meira úr sér. Fyrstu skjálftarnir voru vestar- lega í Bárðarbungu, en þeir sem fylgdu í kjöfarið færðust sunnar og austar, í átt að Grímsvötnum. Mesta virkni í 20 ár Ragnar segir þetta vera mestu jarðskjálftavirkni á svæðinu í tutt- ugu ár. Erfítt sé að svo stöddu að segja nákvæmlega fyrir um hvort von sé á eldgosi, þar sem lítil reynsla sé af mælingum á aðdrag- anda eldgosa á þessu svæði. Vitað er að Bárðarbunga er virk eldstöð, en Grímsvötn hafa verið mun virkari á þessari öld og gosið þrisvar sinnum frá aldamótum svo vitað sé, síðast árið 1983. Herðu- breið/ TröUa- Bárðarbunga Köldukvislar- pi jökull VATNA- JÖKULL Grimsvötn HORFT í austur yfir Bárðarbungu frá Systrafelli. Skýjað var yfir bungunni þegar myndin var tekin í gær. Morgunblaðið/Rax í 3. sæti fyrir loka- umferðina í Jerevan Jerevan. Morgnnblaðið. ÍSLENDINGAR unnu glæsilegan sigur á Kínvetjum, 3-1, í næstsíðustu umferð Ólympíuskákmótsins í Jere- van og eru nú í 3. sæti á mótinu, ásamt nokkrum öðrum þjóðum. Lík- legt verður að telja að þeir mæti Rússum í síðustu umferðinni í dag. Jóhann Hjartarson tefldi með svörtu gegn stórmeistaranum Ye á efsta borði og sneri taflinu örugglega sér í vil. Hannes Hlífar Stefánsson hafði hvítt gegn Wang á öðru borði og virtist lengi vel hafa mjög væn- lega stöðu, en Wang þvældist fyrir út í endatafl, sem Hannesi tókst ekki að vinna. Á þriðja borði var nærri búið að afskrifa Þröst Þórhalls- son, sem í gær náði þeim langþráða áfanga að vera útnefndur stórmeist- ari í skák. Þröstur hafði mjög þrönga og leiðinlega stöðu gegn Peng, en náði um síðir jafntefli. Á fjórða borði vann Helgi Áss Grétarsson fljótasta sigurinn gegn Zhang. Helgi hafði hvítt, fórnaði skiptamun snemma og Kínveijinn tefldi framhaldið ekki sem best. Rússar hafa 36 vinninga og hafa nálega tryggt ser sigurinn á mótinu. í öðru sæti er Úkraína með 33 vinn- inga. í þriðja sæti á mótinu koma svo íslendingar, ásamt Bandaríkja- mönnum, Englendingum, Armenum og Georgíumönnum. ■ Sigur á/47 -----» ♦ ♦----- 26 sagt upp hjá Aðal- verktökum Vogum. Morgunblaðid. ÍSLENSKIR aðalverktakar sögðu 26 starfsmönnum upp störfum í gær. Ólafur Thors starfsmannastjóri segir að flestir starfsmannanna sem sagt var upp séu véla- og tækjamenn eða í samsvarandi starfí, til dæmis á bíla- verkstæði. Ólafur segir uppsagnirnar að hluta til hefðbundnar haustuppsagnir en að þær séu einnig til komnar vegna breytinga á starfseminni á Keflavík- urflugvelli þar sem lítið er um jarð- vinnu og nýframkvæmdir en meira unnið að viðhaldsverkefnum. Kaupþing stofnar fyrirtæki í Lúxemborg í samvinnu við Rothschild-banka Fyrsta íslenska fjármálafyrir- tækið sem starfar í útlöndum Morgunblaðið/Ingvar Eldur ígaskút SLÖKK VILIÐIÐ var kallað út á sjötta tímanum í gær vegna elds í gaskúti við Ártúnsbrekku. Þar var verið að vinna við vegmerk- ingar þegar slanga losnaði af kósangaskúti og stóð þá logi upp úr honum. Vel gekk að slökkva TE kæla kútinn. KAUPÞING hf. hefur sett á stofn dótturfyrirtæki í Lúxemborg, Kaup- þing Management Company, í sam- starfi við Rothschild-bankann þar í landi. Fyrirtækið mun starfrækja verðbréfasjóði og verða í upphafi reknir tveir sjóðir. Annarsvegar er um að ræða alþjóðlegan skulda- bréfasjóð, Kaupþing Fund - Global Bond Class, og hins vegar alþjóðleg- an hlutabréfasjóð, Kaupþing Fund - Global Equity Class. Þetta er fyrsta íjármálafyrirtækið á erlendri grundu sem að fullu er í eigu Islendinga, eftir því sem best er vitað. „Við lítum á þetta sem eðlilegt skref,“ sagði Sigurður Ein- arsson, starfandi forstjóri Kaupþings hf., á blaðamannafundi í gær. „Við höfum um árabil stýrt verðbréfasjóð- um sem fjárfesta eriendis og náð prýðilegum árangri. Því teljum við tímabært að selja okkar sjóði ekki einungis til íslenskra fjárfesta heldur einnig erlendra aðila.“ Sigurður sagði að fjárfestingar- stefna verðbréfasjóðanna yrði sniðin að þörfum íslenskra fjárfesta og þeir gætu að hluta til fjárfest í verð- bréfum sem gefin eru út af íslensk- um aðilum. „Þessir verðbréfasjóðir verða skráðir í kauphöllinni í Lúx- emborg sem við teljum mikilvægt til að fá erlenda aðila til að fjárfesta í þeim. Þetta er sérstaklega mikil- vægt vegna þess að langtíma- markmið með stofnun á Kaupþing Management Company er að skila eigendum sjóðanna, þ.e.a.s. fjárfest- um, og íslensku þjóðarbúi góðum arði þegar fram í sækir," sagði Sig- urður. Sigurður sagði Lúxemborg hafa orðið fyrir valinu vegna þess hversu hagkvæmt það væri að reka þar verðbréfasjóði. Þetta lýsti sér best í því að í Lúxemborg væru staðsettir yfir 2 þúsund verðbréfasjóðir, en fá ríki væru jafn umsvifamikil á þessu sviði. Sala bréfa hefst í dag Byrjað verður að selja hlutdeild- arskírteini í sjóðunum strax í dag, en gengi sjóðanna verður fyrst skráð í kauphöllinni í Lúxemborg 14. október nk. ■ Kynnir/20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.