Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ Vextir hækka um 0,1-0,5 prósentustig Sj ó vá-Almennar Tekjutap yfir 200 milljónir ÁÆTLAÐ tekjutap Sjóvár- Almennra vegna lækkunar á ið- gjöldum bíltrygginga er á þriðja hundrað milljónir króna á ári, að sögn Einars Sveinssonar, forstjóra félagsins. Sjóvá-AImennar hafa verið með tæp 30% af markaðnum. VÍS er með um 40% af markaðn- um og segir Axel Gíslason, for- stjóri, að áætlað tekjutap séu sam- keppnisupplýsingar sem ekki verði látnar í té. Einar Sveinsson segir að erfitt sé að meta það nákvæmlega á þess- ari stundu hvert tekjutap Sjóvár-Al- mennra verði. Það komi ekki ljós fyrr en síðar hvemig tekist hafí til með þær ákvarðanir um iðgjalda- lækkun sem teknar hafi verið. INN- OG ÚTLÁNSVEXTIR banka og sparisjóða hækka um 0,1-0,5 prósentustig á vaxtabreytingar- degi í dag í kjölfar þess að Seðla- banki íslands hækkaði vexti sína um 0,4 prósentustig 23. september síðastliðinn og jók bindiskyldu banka og sparisjóða úr 10% í 12%. Búnaðarbanki íslands hækkar út- lánsvexti mest. Almenn víxillán banka og spari- sjóða hækka um 0,4 prósentustig og yfirdráttarlán einstaklinga og fyrirtækja og greiðslukortalán hækka einnig um 0,40 prósentu- stig nema hjá Búnaðarbankanum þar sem þessi lán hækka um 0,50 prósentustig. Sama gildir um óverðtryggð skuldabréfalán og af- urðalán að vextir þeirra hækka um 0,40 prósentustig nema hjá Búnað- arbankanum þar sem hækkunin er 0,50 prósentustig. Búnaðar- bankinn er einnig eina bankastofn- unin sem hækkar nú vexti á verð- tryggðum skuldabréfalánum um 0,10 prósentustig, en hjá öðrum bankastofnunum eru þessir vextir óbreyttir. Innlánsvextir hækka á bilinu 0,10 til 0,50 prósentustig. Al- mennar sparisjóðsbækur, ávísana- reikningar og sértékkareikningar hækka um 0,10 prósentustig, nema hjá sparisjóðunum sem hækka vexti þessara innlána um 0,20 prósentustig. Um það hækka almennar sparisjóðsbækur og sér- tékkareikningar einnig hjá ís- landsbanka. Óbundnir sparireikn- ingar hækka um 0,40 prósentustig nema hjá Búnaðarbankanum þar sem hækkunin er 0,50 prósentu- stig. 0,75-1,20% vextir á almennum sparisjóðsbókum Eftir vaxtahækkunina nú bera almennar sparisjóðsbækur 0,75- 1,20% vexti, lægsta hjá Lands- bankanum og hæsta hjá sparisjóð- unum. Yfirdráttarlán einstaklinga bera 14,40% til 14,75% vexti, lægsta hjá íslandsbanka, en hæsta hjá Landsbanka og Búnaðarbanka. Hæstu vextir á almennum skulda- bréfalánum eru 13,65% til 13,95%, hæstir í Búnaðarbankanum og hæstu vextir vísitölubundinna lána eru á bilinu 10,85% til 10,95%, lægstir í Landsbanka og íslands- banka og hæstir hjá Búnaðarbank- anum. Afvopn- uðu gest- gjafa sinn ÆSTUR og ofurölvi maður var handtekinn í húsi í Breið- holti síðla aðfaranætur laugar- dags, eftir að hafa látið ófrið- lega og veifað haglabyssu framan í gesti sína. Maðurinn hafði boðið sex starfsstúlkum af dansstaðnum Vegas heim í gleðskap eftir lokunartíma skemmtistaða. Hann sinnti hins vegar ekki gestgjafahlutverkinu betur en svo að hann sá ástæðu til að sækja byssuna og veifaði henni, án þess að ljóst sé hvað vakti fyrir honum með því athæfi. Stúlkunum sex tókst að ná vopninu af manninum og henda henni út fyrir dyrnar þar sem lögreglumenn lögðu hald á vopnið. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Heyrnarlaus skóla- stjóri ráðinn að Vesturhlíðarskóla BERGLIND Stefánsdóttir tók í gær við stöðu skólastjóra Vestur- hlíðarskóla. Skólinn er sérskóli fyrir heyrnarlausa og heyrnar- skerta og tvítyngisskóli með tákn- mál og íslensku. Var Berglindi vel fagnað á fyrsta degi í hinu nýja starfi. Fyrsti heyrnarlausi skólastjóri á Norðurlöndum Sjálf er Berglind Stefánsdóttir heyrnarlaus og með ráðningu hennar í stöðuna er brotið blað í sögu heyrnarlausra og heymar- skertra á Norðurlöndum, þar sem enginn heyrnarlaus gegnir skóla- stjórastöðu, samkvæmt upplýsing- um frá Fræðslumiðstöð Reykjavík- ur. Berglind hefur sérmenntun á sviði táknmáls og reynslu af kennslu heymarlausra, auk stjórn- unarreynslu. Hún hefur kennt á grunn-, framhalds- og háskóla- stigi. Verkefni á sviði menntunar heyrnarlausra og heyrnarskertra við Menntaskólann við Hamrahlíð, sem Berglind tók þátt í, hlaut nýverið silfurverðlaun í samkeppni á vegum HELIOS II, sem er sam- starfsáætlun á sviði fatlaðra á vegum Evrópusambandsins og EFTA. Berglind Stefánsdóttir hefur einnig verið í fullu starfí við kennslu í táknmálsfræði, menn- ingu og sögu fatlaðra við heim- spekideild Háskóla íslands. Morgunblaðið/Kristinn NYJUM skólastjóra fagnað í Vesturhlíðarskóla í gærmorgun. Berglind Stefánsdóttir lengst til hægri. Ekiðá skiltabrú EKIÐ var á skiltabrúna á mótum Reykjanesbrautar og Stekkjarbakka um helgina og skemmdist hún mikið. Lög- reglan biður þá sem geta veitt upplýsingar að gefa sig fram. Brúin er hátt yfir akbraut- inni, svo það eru aðeins allra stærstu farartæki sem ná að rekast í hana og skemma. Talið er að brúin hafi skemmst á tímabilinu frá föstudagskvöldi fram á há- degi á sunnudegi. Morgunblaðið/Júlíus Valt við aðforða árekstri TÆPLEGA 29 tonna þungur sandflutningabíll valt á mótum Suðurlandsvegar og Vestur- landsvegar á níunda tímanum í gærmorgun. Bíllinn var að koma að gatnamótunum þegar hemlar gáfu sig. Okumaðurinn sveigði frá umferð til að forðast árekst- ur en með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Ökumaðurinn slapp óskaddaður en töluvert tjón varð á bílnum. Fiskiðjan Skagfirðingur telur starfsfólk hafa rift samningi Starfsfólki í slátrun barst ekki uppsögn Sauðárkróki. Morgunblaðið. STJORN Fiskiðjunnar Skagfirð- ings lítur svo á að þeir sem hófu störf hjá Sláturhúsi Kaupfélags Skagfirðinga í kjölfar lokunar fyrirtækisins 12. ágúst síðastlið- inn hafi með því rift starfssamn- ingi við fyrirtækið. Fiskiðjunni var lokað vegna hráefnisskorts og skráðu flestir starfsmennirnir sig atvinnulausa, sem þýðir að þeir geta ekki neitað vinnu án þess að missa bótarétt en Slátur- húsið leitaði til skráningarskrif- stofu í upphafi sláturtíðar eftir starfsfólki. Um 90 starfsmönnum Fiskiðj- unnar Skagfirðings var sagt upp frá og með deginum í dag fyrir helgi og fengu þeir sem hafið höfðu störf annars staðar engin uppsagnarbréf. Árni Egilsson, sveitarstjóri á Hofsósi, segir að fólk sé þegar farið að flytjast burtu úr sveitarfélaginu í kjölfar uppsagnanna og segir hann jafn- framt að ástandið sé slæmt á Hofsósi. Gátu ekki neitað vinnu án þess að missa bótarétt Kemur verst niður á fiskvinnslukonum Fiskiðjan Skagfirðingur er stærsti vinnuveitandinn á Hofsósi og segir Árni að starfsmenn þaðan hafi mjög litla möguleika á ann- arri vinnu. Anna Halldórsdóttir hjá Verkakvennafélaginu Öldunni segir að uppsagnirnar hjá Fiskiðj- unni komi allra verst niður á fisk- vinnslukonum sem séu 50-60. Bendir hún á að í nokkrum tilvik- um sé um að ræða konur sem unnið hafi hjá fyrirtækinu við fisk- vinnsiu um áratugaskeið og að þær eigi hverfandi möguleika á annarri vinnu. Þá segir hún ekki gerlegt að sætta sig við að fólk fyrirgeri rétti sínum á hendur Fiskiðjunni þótt það fylgi reglum sem gilda vegna atvinnuleysis- skráningar og taki vinnu tíma- bundið. Sem fyrr segir fékk nokk- ur hluti hinna atvinnulausu vinnu hjá Sláturhúsi Kaupfélags Skag- firðinga en sláturhúsið og Fiskiðj- an eru í eigu Kaupfélagsins að meirihluta. Jón Eðvald Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skag- firðings, segir að vinnsla sé að hefjast að nýju í fyrirtækinu. Tveir togarar fyrirtækisins, Skagfírð- ingur og Klakkur, hafí komið inn á föstudag með 120 tonn hvor um sig. Jón sagði ennfremur að 40 manns hefði ekki verið sagt upp störfum og með aukinni saltfisk- vinnslu fjölgaði störfum þar og því unnt að endurráða einhveija aftur. Þá sagði Jón að uppsagnarfrestur væri frá einum upp í sex mánuði og því væri von til þess að úr rættist þótt hann væri jafnframt viss um að ekki yrði unnt að finna öllu því fólki, sem sagt var upp, önnur og ný störf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.