Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Björn Bjarnason segir mikla endurskipulagningu á döfinni á framhaldsskólastigi Markmiðið gott nám í samræmi við fjárveitingu BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra segir mikla endurskipulagn- ingu fyrir dyrum á framhaldsskóla- stiginu og að markmiðið hljóti að vera að bjóða upp á gott nám innan þess ramma sem fjárveiting leyfi. Skólameistarar þriggja framhalds- skóla á Húsavík, Laugum og Höfn í Hornafirði fengu tilmæli frá ráðu- neytinu í síðustu viku um að minnka kennslumagn um 18-22%. Að þeirra sögn myndi skerðingin skila 6-7 milljóna sparnaði á Húsavík, um 3 milljónum á Laugum og 3-4 milljón- um í Framhaldsskólanum í Austur- Skaftafellssýslu. Áform ráðuneytisins hafa jafn- framt kallað á viðbrögð frá skóla- nefndum og sveitarstjómum viðkom- andi staða þar sem segir að með þessum ráðstöfunum sé skólunum gert ókieift að uppfylla skyldur sínar við byggðarlagið. Þá sendi Hið ís- lenska kennarafélag frá sér ályktun, meðal annars þess efnis að sparnað- urinn væri „aðför að jafnrétti til náms eftir búsetu og fjárhag nem- enda“. Björn Bjarnason segir að jafnrétti til náms þýði ekki að hægt sé að leggja stund á „hvaða nám sem er, hvar sem er“. Þá segir ráðherrann: „Framhaldsskólastigið er að mínu mati mjög mikilvægt skólastig, sem þarf að þróa, efla og styrkja og það er síður en svo markmið í sjálfu sér að þrengja að því fjárhagslega. Verk- efnið er að ná halla ríkissjóðs niður og þá verða allir að leggja sitt af mörkum. Það er mitt meginmarkmið sem ráðherra að styrkja og efla skól- ana, en ég verð eins og aðrir að laga mig að þeim aðstæðum sem okkur eru skapaðar varðandi efni.“ Gjald tekið vegna endurinnritunar Bjöm segir að menntamálaráðu- neytinu sé gert að draga saman segl- in og skila 4-500 milljónum króna. Hann vill ekki gefa upp hversu mikl- ar ijárhæðir verða sparaðar á fram- haldsskólastigi en segir stefnt að auknu samstarfí innan framhalds- skóla og einnig að heimild verði feng- in til gjaidtöku vegna endurinnritun- ar í próf og áfanga, auk minnkunar á kennslumagni. Hann segir þá ákvörðun hafa verið tekna að beita ekki flötum niðurskurði og að skóla- meistarar fyrrgreindra skóla hafi verið kallaðir til fundar þar sem um mestar breytingar yrði að ræða á starfsemi þeirra. „Það er verið að færa fjárveitingu til þessara skóla til samræmis við það sem gerist í ýmsum öðrum skól- um úti á landi og Þroskaþjálfaskól- anum og Fósturskólanum í Reykja- vík. Laugaskóli hefur til dæmis verið langdýrasti framhaldsskólinn," segir Björn. Guðmundur Birkir Þorkelsson skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík segir viðurkennt í nýjum samningum sveitarfélaga við ríkis- valdið um grunnskólann að fámennir skólar séu dýrari en fjölmennir. „Rík- isvaldið samþykkir að leggja stórfé í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til þess að styðja við bakið á minni skólun- um. Ef ég hef réttar upplýsingar geta nemendur í dreifbýli verið allt að þrisvar sinnum dýrari en í þétt- býli. Því spyr ég: Þarf ekkert að horfa á þessi lögmál þegar litið er á framhaldsskólana? Okkur er ætlað að vera með svipað kennslumagn í þetta litlum skóla eins og í helmingi stærri skólum," segir Guðmundur Birkir. Hann segir jafnframt að því sé ekki sýndur nægilegur skilningur í ráðuneytinu að í áfangaskóla geti nemendur lokið stúdentsprófi á 3-3‘A ári, í stað fjögurra, sem ekki sé hægt í skólum með bekkjakerfi. „Mér finnst að eigi að taka tillit til þeirra skóla sem reynt hafa að nýta sér kosti áfangakerfisins, bæði fyrir nemendur og byggðarlagið." Guð- mundur Birkir spyr ennfremur hvort eigi að miða landsbyggðina við það sem best gerist í höfuðborginni. „Þar geta menn sýnt mikla hagkvæmni í rekstri en á ekki að taka tillit til þess að skólarnir eru að þjóna byggð- arlögum sem þeir telja að þurfi á þeirri þjónustu á halda í stað þess að velta kostnaðinum yfir á heimilin vegna náms annars staðar. Á að líta á framhaldsnám sem forréttindi?" Ætla að segja nei! Þá segir hann að á meðan sam- dráttur í kennslumagni í framhalds- skólunum verði um 2,5% að meðal- tali eigi skólinn á Húsavík að taka á sig 18,45%. „Við segjum bara nei og ætlum ekki að láta þetta yfir okkur ganga,“ segir Guðmundur Birkir að lokum. Björn Bjarnason segir aðspurður hvort yfirvöld menntamála séu mót- tækileg fyrir sparnaðarhugmyndum skólameistaranna telji þeir sig geta náð tilættuðum árangri með eigin ráðstöfunum. „Við höfum gert tillög- ur um blandaðan sparnað sem fallist var á að reyna í ríkisstjórn og hjá þingflokkunum og líta munu dagsins ljós þegar fjárlagafrumvarp verður til umræðu. En það þýðir ekki að við viljum ekki ræða við einstaka skóla og finna hentugar leiðir til að þeir geti starfað á skynsamlegum forsendum. Það er alger misskilning- ur ef menn halda að við séum ekki tilbúin til viðræðna," segir Björn. Skólanefndir Laugaskóla og Framhaldsskólans á Húsavík telja fótunum kippt undan starfsemi skól- anna og að framtíð þeirra sé stefnt í óvissu verði kennslustundum fækk- að til jafns við það sem ráð er fyrir gert. Rothögg fyrir skólann Hjalti Jón Svéinsson skólameistari á Laugum segir að samdrátturinn þýði 52 stunda fækkun kennslu- stunda á viku, eða tvær kennarastöð- ur. „Kennarastöðurnar hér geta ekki verið rýrari því við höfum þegar lagt niður tvær til þijár stöður í skyni hagræðingar og til þess að mæta brotthvarfi 10. bekkjar úr skólanum nú í haust. Við getum því ekki kom- ist af með færri enda er ekki hlaup- ið að því að fá kennara með háskóla- próf í tveimur eða þremur greinum. Auk þess er ekki hægt að fá stunda- kennara til að hlaupa inn í kennslu einn, tvo tíma á dag. Það er vandséð að hægt sé að reka skólann hér með þessu móti og ég óttast að þetta verði rothögg fyrir hann.“ Hjalti Jón segir sjálfsagt að skól- inn taki á sig byrðar til jafns við aðra skóla. „En ég vil ekki viður- kenna að skólinn hér hafi haft það eitthvað betra en aðrir skólar. Það er vitað mál að fámennur skóli úti á landi er dýrari í rekstri. Núna erum við settir á bekk með stærri skólum í Reykjavík og annars staðar og það bara gengur ekki upp. Ég tel líka sanngjarnt að inn í heildarmyndina séu reiknaðar tekjur skólans. Árið 1995 voru hreinar tekjur vegna hót- elreksturs um 8,3 milljónir, auk þess sem greiddar voru um 3,2 milljónir í virðisaukaskatt. Ef þessi áform ganga eftir finnst mér miklu hrein- legra að tekin verði pólitísk ákvörðun um það að við höfum ekki efni á að reka litla framhaldsskóla úti á landi og leggjum þá niður,“ segir Hjalti Jón. Afturför um tíu ár Eyjólfur Guðmundsson skóla- meistari Framhaldsskólans í Austur- Skaftafellssýslu segir að fækka þurfí kennurum við skólann um tvo verði kennslumagn skert sem fyrirhugað er, eða um 22%. „Ég tel okkur vera alveg á mörkunum og ef kemur til meiri niðurskurðar missum við nem- endur, sem þýðir að skólinn verður enn minni og óhagkvæmari. Menn eru hins vegar því mjög fylgjandi í byggðarlaginu að hnekkja þessum áformum og við tökum þessum hug- myndum alls ekki sem gefnum. Skól- inn verður ekki samur ef þessar breytingar ná fram að ganga heldur líkastur því sem var fyrir tíu árum við stofnun, þegar nemendur voru einungis 40-50.“ Eyjólfur segir enn- fremur að niðurskurðurinn skili 3-4 milljónum. „Sem er tiltölulega lítið. Þessi ákvörðun hefur hins vegar mjög afdrifaríkar afleiðingar fyrir byggðarlagið og ég er ekki viss um að mennirnir hafi gert sér almenni- lega grein fyrir því.“ Björn Bjarnason er inntur álits á þeim fullyrðingum að jafngott sé að hætta starfseminni. „Ég hef ekki á minni stefnuskrá að leggja skólana niður. í svona umræðum fara menn oft öfganna á milli og við hljótum að geta fundið eitthvert meðalhóf svo þessir skólar starfi áfram. Metnaðar- fullum skólameisturum sem vilja sín- um stofnunum allt hið besta kann að svíða að fá ekki fjármagn sem þeim finnst nauðsynlegt. En þetta er mál sem við verðum að vinna okkur út úr og leita lausna á. Mér finnst ekki skynsamlegt að ganga til verks með því hugarfari að skól- arnir leggist af,“ segir Bjöm að lok- um. Dæmdur fyrir fjárdrátt Sex mánaða fangelsi og 4 milljónir í skaðabætur HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt fyrr- verandi framkvæmdastjóra Hrað- frystihúss Grindavíkur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Þá er honum gert að greiða þrotabúi hraðfrystihússins tæpar ijórar millj- ónir króna, auk 300 þúsund króna málskostnaðar. Maðurinn var ráðinn framkvæmda- stjóri Hraðfrystihúss Grindavíkur í árslok 1988, eftir að hann hafði keypt meirihluta hlutafjár í félaginu. í dómi Hæstaréttar kemur fram að hann hafi í reynd rekið félagið eins og hann væri einkaeigandi þess, allt þar til búið var tekið til gjaldþrotaskipta ári síðar, í desember 1989. Auk þess hafi hann ekki haldið aðgreindum fjármunum félagsins og Lagmetisiðj- unnar Garði hf. sem hann veitti for- stöðu. Maðurinn krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi vegna dráttar á meðferð þess. Hæstiréttur féllst á, að þrátt fyrir að rannsóknin hefði verið viðamikil hefðu ekki komið fram fullnægjandi skýringar á hinum mikla drætti á rannsókn málsins af hálfu Rannsóknarlögreglu ríkisins. Hins vegar hafi drátturinn ekki orðið til þess að hinn ákærði hafi misst tæki- færi til þess að koma að vörnum, auk þess sem hann hafi sjálfur borið nokkra ábyrgð og m.a. viðurkennt að hafa dregið eins lengi og hann gæti að koma bókhaldsgögnum til skiptastjóra. Þá hafnaði Hæstiréttur að taka til greina að maðurinn hafí átt launa- kröfu á þrotabúið, á grundvelli starfs- samnings, sem dagsettur var eftir að Hraðfrystihús Grindavíkur fékk greiðslustöðvun. Fjárhæð launa og annarra fríðinda samkvæmt því skjali hafi ekki verið í neinu samræmi við bágboma fjárhagsstöðu . félagsins, sem hafði sáralitla starfsemi með höndum á árinu 1989. Hæstiréttur taldi refsingu hæfilega 6 mánaða fangelsi, en vísaði sérstak- lega til þess að við rannsókn málsins hafí verið brotið gegn mikilvægum réttarreglum um hraða og eðlilega málsmeðferð, svo rétt væri að skil- orðsbinda refsinguna til tveggja ára. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómaramir Gunnlaugur Claessen og Amljótur Bjömsson og Bjöm Þ. Guð- mundsson prófessor. CA JCCI • RflYMOND WEIL* SEIKQ • CIHZEN • Pl[RP0ny GUCCI 1956 1996 > í tilefni 40 ára afmælis verslunarinnar bjóðum við 20-50% afslátt dagana 30. sept.-5. október af öllum vörum s.s. úrum, klukkum og skartgripum. > Þeir sem versla fyrir 5000,- kr. eða meira fá vandaða quartz verkjaraklukku í kaupauka. • Getraun í sýningaglugga RAYMOND WEIL úr í verðlaun. GENEVE - 40 ár á sama stað - GARÐAR ÓLAFSS0N úrsmiður - Lækjartorgi - s. 551 0081. OMEGA • r.I m • PflYMONO WFU • PIFPPnflT* SEIKÖ~ • P8ERBE EALMAIN Morgunblaðið/Ásdís Einkavinir Vinalíununnar PRENTSMIÐJAN Hjá GuðjónÓ ehf. og Prentþjónustan ehf. hafa verið sæmd viðurkenningu Vina- línu Rauða krossins og lýst „Einkavinir" hennar. Viðurkenn- inguna hlutu fyrirtækin fyrir að hafa stutt starfsemi Vinalínunnar með því að gefa alla vinnu við að útbúa veggspjald Vinalínunn- ar. Vinalínan er símaþjónusta sem rekin er af Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands og starfrækt hefur verið í hartnær fimm ár. Markmið þjónustunnar er að að- stoða fólk, sem þarfnast þess að geta rætt nafnlaust i trúnaði um vandamál sín við einhvern sem hlustar. Á hverju kvöldi eru af- greidd 4-10 símtöl, sem eru af ýmsu tagi. Aðstandendur Vinalín- unnar segja, að þeim hafi tekizt að bjarga nokkrum hringjendum frá því að fremja sjálfsvíg. Á myndinni eru Jóna Jóhanns- dóttir, formaður Vinalínunnar, Sigurður Þorláksson fulltrúi grentsmiðjunnar Hjá GuðjónÓ og Oðinn Valdimarsson fulltrúi Prentþjónustunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.