Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 AÐSENDAR GREIIMAR MORGUNBLAÐIÐ Islensk tónlist. Hvert nú, afturábak eða áfram? SÚ TÓNLIST sem í útlöndum er kennd við orðið „popular“ og nefnd popptónlist er mikilvægur hluti menningar þessarar aldar. Hér á landi hefur þessi sama tón- list verið kennd við „dægur“, orð sem vafalaust á að undirstrika endingargildi tónlistarinnar og endurspeglar jafnframt ríkjandi iaLÍðhorf í garð þessarar greinar hjá ríkjandi yfirvöldum. Því eru áhrif hennar löngum vanmetin og van- nýttir þeir möguleikar sem byggj- ast á eflingu íslensks tónlistariðn- aðar til grósku á eigin heimamark- aði. Svo ekki sé talað um til út- flutnings í önnur lönd. Það ætti hins vegar að vera á færi tónlistar- fólks, útgefenda, fjölmiðla og al- mennings í landinu að viðhalda nokkurri grósku og nýsköpun í íslensku tónlistarlífi. Sé litið yfir sviðið nú síðsumars blasir við að trosið flýtur yfir og hylur flest af því sem vel er gert. Sú kenning hefur verið viðloð- andi um nokkurt skeið að miðbik áratuga og fyrstu árin þar á eftir séu íslensku tónlistarfólki erfiðir. Hinn skapandi kraftur þverri á þessu tímabiii og eftirliggjandi tónlistarafurðir einkennist af ófrumleika og eftirgerð þess sem áður hefur verið skapað. Markaðs- legir eiginhagsmunir verði sköp- unargleðinni yfirsterkari. Tíma- spegillinn sem sprettur upp úr tíð- arandanum er kæfður í ullarlögð- Tími er til kominn, segir Steinar Berg Isleifsson, að íslenskir tónlistarmenn blási til orustu. um ábreiðum (sbr. cover) fortíðar- innar. Sé leitað staðfestingar á því að kenning sem þessi sé gild, þarf varla annað en að líta í kringum sig og nema það sem íslenskir höfundar og flytjendur hafa verið að bjóða upp á þetta sólríka sumar. Sérstaklega er dapurlegt að heyra unga og efnilega flytjendur sem fram hafa komið sogast niður í pytt fortíðarhyggju. Leiðin inn í vítahring íslenskrar sveitaballa- eða pöbbaspilamennsku er greið þar sem hinn skapandi neisti sem svo vandlega hefur verið hulinn mun endanlega kulna. Nú er það auðvitað svo að spilamennska á slíkum stöðum á fullan rétt á sér og er mikilvægur hluti tónlistar- flóru þessa lands. Og ekki er það hollt fyrir tónlistar- þróun sé hún tekin á of alvarlegum nótum. Hins vegar verður að gera þá kröfu til ís- lenskra flytjenda og höfunda að þeir séu að minnsta kosti skrefinu á undan ein- hveiju almennu meðaltalsgildi en dragist ekki á eftir eins og nú virðist reyndin. Fyrir aðeins nokkrum árum stóðu íslenskir tónlistar- menn í fararbroddi og gerðu kröfu um að fá að flytja eigið efni að meirihluta þar sem þeir kæmu fram. Þetta féll í góðan jarðveg. Það sem eftir er af þessu fyrrum metnaðarfuila fólki er nú innilokað á Gauki á Stöng eða Njálsbúð og verst þar ágangi ungliðahreyf- ingarinnar sem vill inn. Hvernig hefur markaðurinn, hinn almenni tónlistarkaupandi, tekið þessari þróun? Því miður hafa allt of margir látið blekkjast. Of mikið af illgresi hefur fengið að vaxa í skjóli hans og jafnvel náð vinsældum. Stór hluti fólks gerir í raun litlar sem engar kröf- ur til tónlistar. Annar hluti og minni er virkur þátttakandi í þeirri uppsprettu fjölbreytilegs tónlistar- lífs sem fram fer á hveijum tíma. Þeir eru ekki margir verðugir framheijar íslenskrar tónlistar sem geta staðið undir kröfum þessara áheyrenda. Þessi undir- stöðuhópur tónlistaráhugafólks leitar í vaxandi mæli á önnur mið t.d. með kaupum á hljómplötum erlendra flytjenda. Merki um þetta má glöggt sjá á vinsældarlistum og sölutölum líðandi sumars. Þær eru teljandi á fingrum annarrar handar íslensku plöturnar sem selst hafa í yfir eitt þúsund eintök- um, reyndar langflestar á bilinu 200-500 eintök. Sorglegt en satt, íslenskt tónlistarsumar, nei takk. Það er því blendin gleði fyrir íslensk útgáfufyrirtæki að heildar- sala hljómplatna á fyrstu sex mán- uðunum hefur aukist talsvevert miðað við sama tíma í fyrra. Þetta á hvort tveggja við um sölu inn- lendra og erlendra hljómplatna. Hins vegar ber að gæta þess að mjög stór hluti innlendra hljóm- platna er í raun með erlendu efni, þ.e. svokallaðar safnplötur en hlut- deild þeirra er stór og vaxandi í sölu eigin framleiðslu útgáfufyrir- tækjanna. Þau útgáfufyrirtæki sem starfað hafa hér á landi um árabil hafa minnkað verulega hlut- deild sína í útgáfu á nýju íslensku efni hvað titlafjölda varðar þar sem tónlistin stenst ekki gæða- kröfur að mati þeirra. Þróunin hefur því orðið sú að flestir titlar eru gefnir út af einstaklingum sem tilbúnir eru að taka á sig fjárhags- legt tap til þess að koma eigin efni á framfæri. Ekki er hins veg- ar samræmi milli aukningar titla- fjölda og sölumagns. Hlutverk hefðbundinna útgáfufyrirtækja, sem þjóna því að vera nokkurskon- ar gæðaeftirlit á innlenda tónlist, hefur því minnkað verulega. Inn- lent efni einheija, útgefenda sem jafnframt eru flytjendur og stund- um höfundar flæðir því á markað- inn. Ljóst er að sá þröskuldur gagnrýni sem slíkar útgáfur, þurfa að fara yfir er ekki alltaf hár. Árangurinn blasir líka við. Ástand sem skapast hefur á sama hátt erlendis er þekkt og leiðir end- anlega til þess að markaðurinn hafnar afurðinni að verulegu leyti. Hætta er á að slíkt muni einnig eiga sér stað hér á landi og ýmislegt bendir til þess að þróun í þá átt sé þegar hafin. Segja má að sú fjölmiðlastefna sem ríkt hafi á íslandi sé nokkurskonar raun- birting á kenningu Andy Warhol um að allir þegnar þjóðfé- lagsins eigi að fá að vera frægir a.m.k.í stundarfjórðung af lífi sínu. Þannig hafa útvörp og sjón- vörp þegna ríkisins og blöð allra landsmanna miklu fremur fylgt þeirri stefnu að gefa öllum tæki- færi og lítill sem enginn greinar- munur gerður á því hvort um fag- lega, frumlega, framsækna og skapandi tónlist er að ræða eða einhverskonar tómstundagaman eða byijendafikt. Hæfileikinn til að greina á milli ómarkvissrar leik- mennsku og faglegrar atvinnu- mennsku er ekki nægjanlega mik- ið fyrir hendi. Vonandi er ríkjandi ládeyða ein- ungis lognið á undan storminum. Tími er til þess kominn að íslensk- ir tónlistarmenn blási til orustu og feyki burtu þeim fúa sem feng- ið hefur að búa um sig í rótunum þ.e. þeim sjálfum. Tími er kominn til þess að fjölmiðlar móti sér stefnu og styðji við íslenska tón- listarútgáfu á raunhæfan hátt svo að hér megi vaxa fjörlegt litróf tónlistarflóru sem þrifist getur á sínum litla heimamarkaði. Misgott efni sem nánast allt fær sömu meðhöndlun í fjölmiðlum bitnar hvað mest á þeim tónlilstarmönn- um og útgáfum sem unnið hafa verk sín af metnaði og fag- mennsku. Ekki síst er mikilvægt að Islendingar allir geri sér grein fyrir því að nauðsynlegt er að styðja það sem vel er gert í ís- lensku tónlistarlífí með virkri þátt- töku til að forða frekari hnignun. Þessi smái markaður getur vel orðið uppspretta tónlistar sem gleðja mun eyru okkar og annarra þjóða því útflutningur á íslenskri tónlist er engin bábylja. Að öðrum kosti blasir við frek- ari niðurlæging íslensks tónlistar- markaðar þar sem hæfileikafólk í tónlistargerð fær ekki notið sín til fullnustu og horfir á þá valkosti að brenna annaðhvort út hér á landi á fáum árum eða rækta hæfileika sína á erlendri grund. Atgervisflótti er þegar orðinn staðreynd. Sú óáran sem viðloð- andi hefur verið um miðbik und- anfarinna áratuga getur því enst fram á næstu öld sé fótum ekki spyrnt við nú þegar. N m Opið virka daga kl. 16-21 Matvælamarkaðurinn er opinn kl. 16-19 Síld, lax# egg, ýsutilboð, smálúða, rcekja grœnmeti, harðfiskur og margt fleira. Vinnuföt og verkfæri á sprengiverði Trausti trésmiður fékk nýtt verkefni og þurfti að kaupa vinnuföt og verkfœri. Hann fékk vinnugalla á kr. 990,-, slípirokk á kr, 3500,-, hjólsög á kr. 4900,- og borvél 2900,- á Kvölámarkaðinum. Barnaföt kr.190,- Þvottavélin bilaði og barnafötin eyðilögðust (ótryggð). Gunna bjargaði málinu og fékk ný barnaföt á einstöku verði á Kvöldmarkaðinum. Skartgripir og geisladiskar Hún Gunna var alsœl með nýja hálsmenið sem Traustu gaf henni og keypti uppahaldsgeisladiskinn handa Trausta sínum. Skór á verði frá kr. 500,- Trausti og Gunna fengu sér hund og hann eyðilagði alla skóna af fjölskyldunni. Þau fengu nýja skó á alla fjölskylduna fyrir 1500,- krónur. Rimlagardínur frá kr. 320,- Gunna þurfti að senda allar rimlagardínurnar í hreinsun en komst að því að miklu ódýrara vœri að kaupa nýjar á Kvöldmarkaði Kolaportsins. Hræódýrar pottaplöntur Gunna er miloð fyrir blóm og hún hreinlega fyllti húsið af pottaplöntum þpgar hún sá verðið semPoðið var á Kvöldmarkaði Kolaportsins. Urval af austurlenskri ævintýravöru Trausti er veikur fyrir austurlenskri vöru og Gunna náði honum ekki út fyrr en eftir tvo tíma með fullt fang af sverðum og Plœvœngjum. Frábœrt verð á vörum frá versluninni Blazer sem hœtti fyrir nokkru. Herraföt, skyrtur, skór, peysur og vesti. G r\ ALLTAF GOTT VEÐUR OGFRÁBÆR STEMAANING f KOLAPORTINU Eftir a& Trausti og Gunna höfSu verslaÖ á Kvöldmarkaiinum og gefiS börnum fs, fengu þau sér aS borða hjá Kaffiporti og sluppu viS eldamennsku og uppvask þann daginn. KOIAPORTIÐ -kemur alltaf d óvart r Waldorf brúðugerð Kvöld- og helgarnámskeið. Upplýsingar í síma 554 4637 eða í náttúruvöruversluninni Yggdrasil, Kárastíg 1, Rvík., sími 562 4082. Hildur Guðmundsdóttir. Höfundur er forstjóri Spors hf. Steinar Berg ísleifsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.