Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Afkoma Landsbankans eftir átta mánuði
Hagnaðurinn
272millj. kr.
HAGNAÐUR af rekstri Lands-
banka íslands og dótturfélaga
fyrstu átta mánuði ársins nam 272
milljónum króna eftir fjármagnsliði
og skatta. Allt síðastliðið ár var
hagnaður bankans 175 milljónir.
Brynjóifur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, segir að
helstu skýringarnar á bættri afkomu
bankans séu áframhaldandi lækkun
á framlagi í afskriftarreikning út-
lána sem skýrist m.a. af bættri af-
komu fýrirtækja í landinu. „Launa-
kostnaður bankans hækkar minna
en sem nemur almennum launa-
hækkunum, rekstartekjur hafa auk-
ist hjá bankanum og vaxtamunur
hefur lækkað minna en var áætlað
í upphafí árs,“ segir Brynjólfur.
Iðnlánaþróunin hagstæð
Innlánaþróunin var bankanum
hagstæð fyrstu átta mánuði ársins.
Heildarinnlán bankans, að banka-
bréfum og bankavíxlum meðtöld-
um, námu í lok ágúst tæplega 77
milljörðum króna og hafa aukist
um 6,3 milljarða eða 9% frá síðustu
áramótum. Að sögn Brynjólfs hafa
útlán bankans ekki aukist að sama
skapi, en þau námu 81,5 milljörð-
um króna í lok ágúst og höfðu
lækkað um 2,2 milljarða, eða 2,6%
á árinu.
í frétt frá Landsbankanum kem-
ur fram að í tilefni af 110 ára af-
mæli bankans gafst viðskiptavinum
kostur á að leggja inn á sérstakan
12 mánaða sparireikning, afmælis-
bréf, í júlímánuði. Reikningurinn
hlaut góðar viðtökur hjá sparifjár-
eigendum og voru lagðar 707 millj-
ónir króna inn á reikninginn.
Eiginfjárhlutfall Landsbanka ís-
lands og dótturfélaga í lok ágúst
er um 9%.
ER BÓKHALDSKERFIÐ OF HÆGVIRKT?
Þú færð betri svörun d
CONCORDE
með
AlphaServer
Digital á íslandi
Vatnagaröar 14-104 Reykjavík
Sími 533-5050 - Fax 533-5060
Morgunblaðið/Ásdís
FRÁ blaðamannafundi Kaupþings, f.h. Olivier d’Auriol, aðalbankastjóri hjá Rothschild, Guðmundur
Hauksson, stjórnarformaður Kaupþings, Anne de la Valleé Poussin, bankastjóri, Hreiðar Már Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Hávöxtunarfélagsins hf., Jean Heckmus, forstöðumaður
hjá Rothschild og Guðrún O. Blöndal, markaðsstjóri.
Nýtt dótturfyrirtæki Kaupþings hf. í Lúxemborg
Kymur íslensk verð-
bréf í Evrópuríkjum
KAUPÞING hf. hyggst með stofnun
nýs dótturfyrirtækis í Lúxemborg
og rekstri verðbréfasjóða þar í landi
vekja athygli fjárfesta um alla Evr-
ópu á möguleikum á ávöxtun fjár-
magns í _ verðbréfum í íslenskum
krónum. í því sambandi teiur fyrir-
tækið t.d. að hin víðtæka verðtrygg-
ing hér á ríkistryggðum skuldabréf-
um geti verið fýsilegur kostur fýrir
fjárfesta. Hér á landi hafi vextir ver-
ið hærri en víðast erlendis og það
geti einnig freistað eriendra fjárfesta.
„Við höfum um langt skeið reynt
að markaðssetja íslensk verðbréf til
íslenskra fjárfesta, en nokkrir þrösk-
uldar eru í vegi fyrir því,“ sagði
Sigurður Einarsson, starfandi for-
stjóri Kaupþings, á fundi með blaða-
mönnum í gær. „íslensk verðbréf
eru í pappírsformi, en einnig eru
engin verðbréf í íslenskum krónum
skráð í neinni kauphöll nema hjá
Verðbréfaþingi íslands. Þá þekkja
erlendir aðilar ekki til reglugerða
hérlendis. Hins vegar eru 12 þúsund
verðbréfaflokkar skráðir í kauphöll-
inni í Lúxemborg. Þegar þetta tvennt
kemur saman, þ.e. pappírslaus við-
skipti og daglegar upplýsingar um
fjárfestingar, þá teljum við að tveim-
ur af þeim meginþröskuldum, sem
hafa verið í vegi fyrir því að útlend-
ingar hafi fjárfest, sé rutt úr vegi.“
Kaupþing hefur efnt til samstarfs
við Rothschild-bankann um stofnun
fyrirtækisins, en hann verður vörslu-
aðili verðbréfasjóðanna í Lúxem-
borg. Bankinn er hluti af Edmond
De Rothschild-bankasamsteypunni
sem hefur höfuðstöðvar sínar í Genf
í Sviss. Hann teygir anga sína víða
um heim því auk þess að starfrækja
útibú í Lúxemborg er að fínna útibú
í Suður-Ameríku, Máritaníu, Lond-
on, Hong Kong og Taipei.
Olivier d’Auriol, aðalbankastjóri
hjá Rothschild, kvaðst telja hugsan-
legt að verðtryggð íslensk skulda-
bréf gætu vakið einhvern áhuga
meðal evrópskra fjárfesta. Hlutabréf
hér á landi hefðu hins vegar hækkað
mikið að undanförnu þannig að óvíst
væri hvaða möguleikar væru á sölu
þeirra nú, en í því efni gætu án efa
falist tækifæri í framtíðinni.
Kröfuhart bankaeftirlit
í Lúxemborg
Guðmundur Hauksson, stjórnar-
formaður Kaupþings, sagði á fund-
inum að stofnun hins nýja fyrirtæk-
is í Lúxemborg hefði reynst vera
mjög flókið mál. „Kaupþing hefur
verið tekið til skoðunar m.a. hjá
bankaeftirlitinu í Lúxemborg sem
er mjög kröfuhart og hefur mjög
stífar reglur. Lúxemborg er mjög
virt land hvað snertir rekstur fjár-
málafyrirtækja og fyrir vikið er far-
ið mjög gaumgæfilega í gegnum
allar umsóknir um uppsetningu á
sjóðum, bæði hvað snertir persón-
urnar sjálfar og fyrirtækin. Það eru
margir mánuðir frá því við tókum
ákvörðun um að stofna fyrirtækið,
en undirbúningurinn sjálfur hefur
tekið nokkur ár. Fyrst leituðum við
að því hvar ætti að setja niður starf-
semi af þessu tagi og þegar ákvörð-
un hafði verið tekin um Lúxemborg
töluðum við við marga banka. Við
enduðum með því að velja Rot-
hschild."
|J 1IITADDCCACIÁAIID
MLU IADl\CrA)IUyUI\ NORÐURLANDS HF„ *
i HLMENNT HLUTAFJÁRÚTBOÐ
Utgefandi: Hlutabréfasjóður Norðurlands hf.
Sölutímabil: 1. október 1996 til 1. apríl 1997.
Nafnverð hlutabréfanna: 119.029.494 kr.
Sölutímabil: Sölugengi bréfanna er í upphafi 2,22 til almennra kaupenda, en 2,00 til núverandi hluthafa í hlutfalli við núverandi eign þeirra. Tilboð þetta gildir til 11. október nk. A útboðstímanum verður gengi sjóðsins reiknað út daglega og munu söluaðilar veita upplýsingar um gengi hverju sinni.
Söluaðilar: Kaupþing Norðurlands hf., Kaupþing hf., auk afgreiðslu Búnaðarbankans og sparisjóða á Norðurlandi.
Skráning: Áður útgefin hlutabréf Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. eru skráð á Verðbréfaþingi íslands og hefur félagið einnig óskað eftir skráningu á þeim hlutabréfum sem gefin verða út í þessu útboði. Vænst er að viðskipti með ný hlutabréf hefjist á VÞI þegar útboði lýkur.
Umsjónaraðili útboðs: Kaupþing Norðurlands hf.
Útbobs- og skráningarlýsing liggur frammi hjá saluabilum og útgefanda.
44% KAUPÞING
AÍORÐURLANDS HF -Löggilt verðbréfafyrirtæki Kaupvangsstrœti 4, 600 Akureyri - sími 462 4700, fax 461 1235
Dalur hækk-
argagn-
vartjeni
London. Reuter.
GENGI dollars gegn jeni hefur ekki
verið hærra í 2 1/2 ár vegna nýrra
vísbendinga um hægari efnahags-
bata Japana og aukins bils milli
vaxta í Bandaríkjunum og Japan.
Dollarinn "komst hæst í 111,66
jen í Evrópu og urðu sérfræðingar
varir við auknar fjárfestingar jap-
anskra stofnana erlendis.
Fundur sjö helztu iðnríkja heims
(G7) um helgina treysti einnig
stöðu dollars. A fundinum létu fjár-
málaráðherrar og seðlabankastjór-
ar í ljós ánægju með núverandi
gjaldeyrisgengi.
Lágt verð á gulli
Gull heldur áfram að lækka í
verði og í gær seldist únsan á inn-
án við 380 dollara í fyrsta skipti
í rúmt ár.
Lokaverð var 378,60 dollarar
únsan í London. Gull seldist síðast
á innan við 380 dollara 6. septem-
ber 1995.
Verðið hefur stöðugt lækkað í
fjórar vikur. Spákaupmenn fóru
að selja þegar þeir urðu úrkula
vonar um að verðið mundi hækka
og jjrýstu verðinu niður.
Ymsir telja síðustu lækku stafa
af nýjum þrýstingi vegna gullsölu
bandarískra fjárfestingasjóða.
Skandia
er ekki
til sölu
STJÓRNARMAÐUR í sænsku
tryggingasamsteypunni Skan-
dia segir að tryggingafélagið
Skandia á íslandi sé ekki til
sölu. Viðræður hafí átt sér
stað, en niðurstaðan hafí orðið
sú að selja ekki fyrirtækið og
því sé það ekki til sölu.
Per Björgás, sem sæti á í
stjórn tryggingafélagsins
Skandia í Svíþjóð, sagði að
íslensk fyrirtæki hefðu sýnt
áhuga á starfsemi Skandia á
íslandi nýlega og viðræður
hefðu átt sér stað. Skandia
hefði hins vegar ákveðið að
athuguðu máli að slíta þessum
viðræðum og halda áfram
óbreyttri starfsemi sinni á ís-
landi. Fyrirtækið væri því
ekki til sölu.
Aðspurður sagði Björgás
að viðræður um kaup á fyrir-
tækinu hefðu komið til að
frumkvæði viðræðuaðila
Skandia. Skandia hefði ekki
átt frumkvæðið. Þeir hefðu
hins vegar athugað málið af
þessu tilefni og komist að
þeirri niðurstöðu að ekki væri
um hagkvæman kost að ræða.
I
>
>
i
i
í
í
i
I
i
I
I
I-
I
i
r
r
l
i
I
L
í
I
i
t
i
l