Morgunblaðið - 01.10.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 25
ERLENT
Taleban-hreyfingin ræður þremur fjórðu hlutum Afganistan
Flóttamenn flykkjast að
landamærum víð Pakistan
Konum sagt að hylja andlitið og
körlum að láta skeggið vaxa
Islamabad, Kabul, Torkham. Reuter.
SKÆRULIÐAR Taleban-hreyfing-
arinnar sögðust í gær hafa tekið
Kapisa-hérað, norður af höfuðborg-
inni Kabúl, en þeir ráða nú um 75%
Afganistan. Mikill mannfjöldi hefur
safnast saman við landamærin að
Pakistan sem eru lokuð, en Pakist-
anar óttast að flóttamannastraum-
urinn inn í landið muni aukast um
allan helming. Er ekki síst um að
kenna strangtrúarstefnu Taleban,
sem hafa fyrirskipað körlum að
láta sér vaxa skegg og konum að
hylja andlit sitt, auk þess sem þeim
er jneinað að vinna utan heimilis.
í gærmorgun var tilkynnt að
Taleban hefðu náð Jabal os-Siraj,
sem var eitt helsta vígi eins herfor-
ingja stjórnarhersins, Ahmad Shah
Masood, eftir þriggja klukkustunda
bardaga. Stjórnarherinn stöðvaði
hins vegar framrás Taleban við
Pansjher-dal, urn 60 km norður af
höfuðborginni. Ovíst er hvernig
Taleban mun ganga að taka dal-
inn, sem mönnum Mashood tókst
að veija gegn ásókn Sovétmanna
á áttunda áratugnum.
Hliðum lokað
Pakistanskir landamæraverðir
gættu þess vandlega að hlið að
landamærunum við Afganistan
væru lokuð en þúsundir manna
hafa safnast við þau á síðustu vik-
um. Stöðvuðu landamæraverðirnir
bílalest Alþjóðaráðs Rauða kross-
ins, alls 35 bíla, sem fluttu um 20
tonn af mat frá Pakistan til Kab-
úl. Töldu verðirnir ekki óhætt að
hleypa lestinni í gegnum hliðið, þar
sem mannfjöldinn myndi þá reyna
að komast yfir landamærin.
Margir Afganir eru óttaslegnir
vegna hreintrúarstefnu Taleban,
ekki síst konur. „Við höfum glatað
frelsi okkar,“ sagði ein þeirra í
samtali við fréttamann Reuters.
Talsmaður hreyfingarinnar neitaði
því í gær að hreyfingin hygðist
banna konum að afla sér menntun-
ar, að minnsta kosti ekki hjúkrun-
armenntunar. Margir skólar fyrir
stúlkur eru hins vegar enn lokaðir
og konum er bannað að vinna utan
heimilis, á skrifstofum og fleiri
stöðum. Þær konur sem verða að
hætta að sækja vinnu, munu fá laun
fyrir að sitja heima, að því er sagði
í tilskipun leiðtoga Taleban, Mullah
Mohammad Omar. Ekki er ljóst
hversu lengi það verður.
Á sunnudag var karlmönnum
sem starfa í opinberum stofnunum
og í hernum, fyrirskipað að láta
sér vaxa skegg. Þá er konum fyrir-
skipað að hylja andlit sitt á al-
mannafæri.
Reuter
LÍK Najibullah, fyrrverandi forseta Afganistan, og bróður hans,
Ahmed Zai, hengu uppi á Ariana-torgi í Kabúl eftir að Taleban-
skæruliðar tóku þá af lífi. Jevgení Prímakov, utanríkisráðherra
Rússlands, fordæmdi í aftökurnar og sagði þær „viðurstyggilegt
morð“. Um helgina var að minnsta kosti fjórum konum misþyrmt
á götum úti fyrir að óhlýðnast tilskipunum Taleban um klæðaburð.
Neitar að hafa
myrt Olof Palme
Jóhannesarborg. Reuter.
ANT White, fyrrverandi liðsmaður
rhódesískra sérsveita, vísaði því á
bug í gær, að hann hefði átt ein-
hveija aðild að morðinu á Olof
Palme, fyrrverandi forsætisráð-
herra Svíþjóðar, sem myrtur var í
lok febrúar 1986 í Stokkhólmi.
Dirk Coetzee, foringi suður-
afrískra dauðasveitar, hélt því
fram við sænska blaðamenn, að
hann hefði fengið upplýsingar um
að White hefði vegið Palme.
Sænski forsætisráðherrann var
svarinn andstæðingur minnihluta-
stjórna hvítra manna í Rhódesíu
og Suður-Afríku en aldrei hefur
tekist að upplýsa morðið á honum.
White sagði að yfirlýsingar Co-
etzee hefðu enga þýðingu og hann
ætti ugglaust eftir að draga þær
til baka. Sagðist hann vera tilbúinn
að leggja málið í dóm réttra yfir-
valda og fá sig hreinsaðan af
áburðinum.
White rekur nú timburverk-
smiðju í Mósambík. Ron Reid-
Daly, yfirmaður Whites í sérsveit-
um stjórnar Ians Smiths í Rhódes-
íu, sagði að hann hefði verið af-
burða hermaður. Sagðist Reid-
Daly lítið mark taka á ásökun
Coetzee.
„Það eru allir orðnir hundleiðir
á þessum hugleysingjum sem alltaf
eru að reyna að koma sök af sjálf-
um sér yfir á aðra,“ sagði Reid-
Dalby.
Eugene de Kock, arftaki Co-
etzee sem yfirmaður skítverka-
deildar suður-afrísku öryggislög-
reglunnar, sagði við réttarhöld í
Pretoríu í síðustu viku samverka-
mann sinn, Craig Williamson, hafa
framið ódæðið.
Því vísaði Williamson alfarið á
bug sem hreinum hugarburði.
Hann og White ráku saman fyrir-
tæki á síðasta áratug er vann m.a.
að njósnum fyrir suður-afrísk yfir-
völd. Játaði Williamson að hafa á
sínum tíma staðið fyrir þrem
sprengjutilræðum gegn andstæð-
ingum aðskilnaðarstefnu stjórnar-
innar í Pretoríu.
HEALTHILIFE
TRYGGIR GÆÐIN
Heilsuefni sem virka
Antioxidant-
Betacaroten
B-fjölvítaniín
. C-500 vítamín
Calcium-
Pantothen
E-500 vítamín
Fólinsýra-járn
4/40 Ginseng
Ginkgo-biloba
Hár & Neglur, Hvítlaukur,
Kvöldvorrósaolía, Lesetin,
Þaratöflur, Q-10 (30 mg.).
Fœst i mörgum
heilsubúðunt, apótekum og
niörkuöum.
BIO-SELEN UMB. SIMI 557 6610
SUIEP
varmaskiptar
stjórnbúnaður
Þú finnur |j
varla betri ij
lausn. i[
EHÉÐINNs
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
NÝ HÖNNUN
Léttari m Meðfærilegri
Ræstivagnar
- Á EINSTÖKU VERÐI #-
MINIVA6NINN
Burðargrind úr heilsteyptu plasti
sem gerir hann mun léttari en
aðra vagna. Allir hlutar vagnsins
framleiddir til að endast.
Nick vagninum fylgja tvær 15L.
föturogpressa. Rilsan handfang.
Verð kr. 15.998.- án vsk.
TANDUR
Dugguvogi 1-104
Er tveggja
hólfa.
Hentar
jafnt
stofnanir
Verð kr. 8.554.- án vsk.
aðbera
hann milli
hæðaán
þess að taka pressuna
úrvagninum.
Mini vagninn Litli stórí v
Ný, lítil, létt og afar nett ryksuga frá Aí^
Rosso ryksugc
aðri tösku sem hefur
gan kemur
í vandaori tösku
margvíslegt notagildi
q/
/o
orkusparnaburl
14.900,- stgr.
Óko Vampyr Rosso
Fjórföld ryksíun
Stillanlegur sogkraftur
Stillanlegt Sogrör
Fylgihlutageymsla
Tveir auka sogstútar
Inndraganleg snúra
Rykpoki 4,0 lítrar
750wött (Nýtt sparar 30% orku
skilar sama sogKrafti
og 1400w mótor)
Umbobsmenrt um alll iand
Reykjavík: Byggt og Búiö Kringlunni. Vesturland: MálningarþjónustanAkranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni E.Hallgrímsson, Grundarfiröi.
Vestfiröir:. Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvík. Straumur.ísafiröi. Noröurland: Kf.Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö,
Sauöárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Verslunin Vík,
Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergsson, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes,
Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Hönnun: Gunnar Steinþórason / FlT / BO-07.96-AEG Rosso