Morgunblaðið - 01.10.1996, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR í. OKTÓBER 1996
MORGUNBUAÐIÐ
MENNTUN
Atvinnurekendur kalla
á gæðasljómun í skólum
ATVINNUREKENDUR eru farnir að sýna menntastefnu meiri
áhuga því þeir vilja fá hæft starfsfólk.
ísland var síðasti viðkomustaður Diane S.
Ritter í fyrírlestrarferð um Evrópu. Hún
segir að gæðastjómun eigi miklu fylgi að
fagna. Um 120 manns sóttu námstefhu um
gæðastjómun í menntakerfinu sl. föstudag
og komust færri að en vildu.
ÞEGAR Morgunblaðið
hitti Diane Ritter deild-
arstjóra menntasviðs
hjá bandaríska ráð-
gjafafyrirtækinu GO-
AL/QPC tók hún strax
fram að varasamt gæti
-líwrið að nota orðið
gæðastjómun í sam-
bandi við mennta- og
heilbrigðisgeirann því
þetta orð virtist fara í
taugarnar á fólki þar.
í staðinn mætti tala um
„að vinna starf sitt svo-
lítið öðmvísi og á svo-
lítið betri hátt“. Hér á
eftir verður þó rætt um
gæðastjómun.
Hún segir að í langflestum tilvik-
um aukist áhugi nemenda og kenn-
ara á námsefninu þegar gæðastjórn-
un hefur verið tekin upp því árang-
ur láti yfirleitt ekki á sér standa,
þar sem námið verður mun áhuga-
verðara. „Menntun getur sem sagt
verið skemmtileg," segir hún.
Róttæk breyting
Ritter kveðst vona að sem flestir
skólamenn á íslandi séu nógu opnir
fyrir því að minnsta kosti að hug-
leiða gæðastjórnun þó að þeir séu
ekki tilbúnir að stíga skrefið til fulls
strax. „Þetta er róttæk hugarfars-
breyting fyrir marga en ég tel að
hér á landi sé menntageirinn tilbú-
inn til að taka á móti breytingum,
Æíjria sýnir áhuginn á námstefnu
Gæðastjómunarfélags íslands það
best. Þetta á ekki einungis við um
ísland heldur varð ég
vör við sama áhugann
á fyrirlestraferð minni
um Evrópu."
Hún segir vaxandi
áhuga á menntamálum
meðal atvinnurekenda
vera áberandi. Þeir vilji
fylgjast með hvort
stefnubreyting eigi sér
stað í menntageiranum
líkt og hjá fyrirtækjum.
„Mjög algengt er að
fyrirtæki hafi gengið í
gegnum gæðastjómun
og þau vilja sjá skólana
breytast á sama hátt.
Það er því mjög mikil-
vægt að velta fyrir sér
hvernig hægt er að styðja við hug-
myndir þeirra í menntakerfinu."
Aðspurð á hvaða skólastigi hún
telji mikilvægast að hefjast handa
á Islandi, miðað við að fjármagn til
þessara mála sé í lágmarki, svarar
hún að byija eigi þar sem skólamir
sýni fmmkvæði, sama á hvaða stigi
þeir em.
Fyrirtæki styrkja skóla
Hún tekur fram að í Bandaríkj-
unum sé algengt að samvinna sé
milli fyrirtækja og skóla. Til dæmis
styrki fyrirtækin kennara til að
sækja ráðstefnur og námskeið, sem
þeir geti síðan notfært sér í kennslu
eða að þau borgi laun fyrirlesara sem
koma inn í skólana. „Til lengri tíma
litið sjá fyrirtækin með þessu móti
fram á að fá betur menntaða nem-
endur út í atvinnulífíð," segir hún.
Hún segir að menntakerfið hafí
ekki skilgreint þarfir atvinnulífsins,
nemenda og fjölskyldna þeirra
nægilega vel hingað til. Samkvæmt
niðurstöðum úr verkefnavinnu, sem
fram fór meðal atvinnurekenda og
kennara í Bandaríkjunum, komust
menn að því að þrátt fyrir að nem-
endur hefðu fullnægjandi þekkingu
í líffræði, stærðfræði og öðru því
sem þeir lærðu af bókum skorti
verulega á ýmsa aðra þætti svo sem
gagnrýna hugsun, hæfileika til að
leysa vandamál, sjálfsþekkingu og
kunnáttu til að vinna úr þeim að-
föngum sem standa til boða.
Diane S.
Ritter
Hún telur menntakerfið vilja
gæði í sínu starfi eins og aðrir. Þau
komi hins vegar ekki af sjálfu sér
heldur verður að vinna kerfisbundið
að því að auka þau, segir Ritter.
Hún tekur fram að í upphafi verði
menn að gera sér grein fyrir hveij-
um skólakerfið þjónar og á hvern
hátt hægt er að sinna þeim sem
best. Markhópur skólakerfisins eru
nemendur, fjölskyldur þeirra og at-
vinnulífið, sem taka mun við þeim
að skóla loknum.
„Fyrir sérhvern skóla er kennsla
og lærdómur mikilvægast, þannig
að færa þarf hugmyndafræðina og
aðferðimar inn í skólastofuna. Það
á að nota gæðastjórnun til að fram-
leiða nýtt námsefni og bæta það sem
fyrir er, til að kenna betur eða
markvissar,“ sagði Ritter. Hún
bendir á að gæðastjórnun í skóla-
stofunni snúist um að nemandi skilji
námsefnið. Oft miðist kennslu-
aðferðir einungis við lítinn hóp nem-
enda sem hafa hæfileika til að læra
með því að hlusta. Margir nemendur
hafa hins vegar sjónrænt minni eða
verða að tengja upplýsingar við
annað samhengi. Oft ná nemendur
ekki tilskildum árangri þó að þeir
séu vel gefnir, einungis vegna þess
að kennsluaðferðir henta þeim ekki.
Frá öðrum sjónarhóli
Hún segir að því miður líti fólk
á gæðastjómun sem eitthvað sem
þarf að vinna að aukalega í stað
þess að líta á hana sem aðra aðferð
við það verk sem nú þegar er unn-
ið. Af þeim sökum þurfi oft að finna
tíma aukalega til að koma gæða-
stjómun á. Hún leggur aftur á móti
áherslu á að hér sé aðallega um
hugarfarsbreytingu að ræða, að
menn sjái störf sín unnin með öðrum
hætti en þeir eru vanir. „Til lengri
tíma litið mun árangurinn skila sér
í betra andrúmslofti innan skólans
eða fyrirtækisins. Einnig hefur sýnt
sig að þegar fólk fer að sjá árangur
eykst hann hröðum skreíum eftir
það,“ segir Diane Ritter.
skólar/námskeið
heilsurækt
HBirna Smith,
Laugarásvegi 27,
■ Bætt heilsa -
Hæ, elskumar!
Hef fengið lærabanann
góða í umboðssölu á 6.500 kr. og selló-
lite-obur, (gott verð). Verð áfram með
sogæðanudd og Trimm-form. Saman 5
tímar á 8000 kr. Losar um fitu, bjúg
og seilólite, styrkir varnarkerfið og eyk-
ur úthald.
myndmennt
■ Viltu læra að teikna?
Teikninámskeið fyrir byrjendur og
lengra komna. Frumform, skyggingar,
áíerðir, uppstillingar. Einnig vatnslitun.
Lærður kennari. Upplýsingar í síma
554-6585 eftir kl. 18.00.
tónlist
■ Píanókennsla. Einkakennsla á píanó
og í tónfræði.
Upplýsingar og innritun í síma
553 1507.
Anna Ingólfsdóttir.
skjalastjórnun
■ Inngangur að skjalastjórnun.
Námskeið, haldið 21. og 22. okt.
(mánud. og þriðjud.). Gjald kr. 11.000.
Bókin „Skjalastjórnun" innifalin.
Skráning hjá Skipulag og skjöl
' í síma 564 4688, fax 564 4689.
tungumál
ENSKUSKÓLINN
Túngötu 5.
¥
Hin vinsælu enskunámskeið eru að hefjast.
★ Áhersla á talmál.
★ 5 eða 10 nemendur hámark í bekk.
★ 8 kunnáttustig.
Viðskiptaenska, rituð enska. Einnig er
í boði stuðningskennsla fyrir unglinga,
enska fyrir börn 6-12 ára og enskunám
í Englandi. Enskir sérmenntaðir kennar-
ar. Markviss kennsla í vinalegu um-
hverfi.
Hafðu samband og fáðu frekari
upplýsingar i síma 552 5330.
nudd
■ Ungbarnanudd
Nýtt námskeið í ungbarnanuddi byijar
þriðjudag 8. október.
Upplýsingar vinsamlega veittar í síma
554 1734 hjá Ragneiði.
ýmisiegt
■ Heimspeki er fyrir alla
Fimmtudagskvöldið 3. okt. nk. hefst
námskeið í heimspeki fyrir almenning.
Viðhorf heimspekinga til mannlegra
samskipta, ástar og afbrýðisemi verða
kynnt og þau skoðuð í tengslum við
hversdagslega reynslu.
Kennt verður einu sinni í viku, á fimmtu-
dögum kl. 19-21 í alls sex vikur.
Kennsla fer fram að Vatnsstíg 10 (MÍR
salnum). Leiðbeinandi er Jóhann Björns-
son, MA í heimspeki frá Leuvenháskóla
í Belgíu.
Upplýsingar og innritun í síma 551
0877. Þátttökugjald kr. 5.000,-.
■ Leiklistarstúdíó Eddu Björgvins
og Gísla Rúnars
Aðeins eitt námskeið fyrir áramót. Örfá
sæti laus.
Upplýsingar í símum 581 2535 og
588 2545.
■ Námskeið um starf með öldruðum
14. október - 4. nóvember
4 kvöld x 2 tímar kr. 2.000
Sérkenni kærleiksþjónustu kirkjunnar.
Leikmannaskóli kirkjunnar,
sfmi 562 1500.
■ Námskeið um Jobsbók
16. október - 6. nóvember
4 kvöld x 2 tímar kr. 2.000
Eitt merkasta rit um böl og þjáningu
þessa heims.
Leikmannaskóli kirkjunnar,
sími 562 1500.
Sex málstofur á menntaþmgi
Menntun rædd
frá mörgum
sjónarhornum
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
boðar laugardaginn 5. október nk.
til menntaþings sem ber yfirskrift-
ina Til móts við nýja tíma. Er þetta
í fyrsta sinn sem sambærilegt þing
er haldið og munu um 100 skólar,
stofnanir og samtök kynna þar
starfsemi sína. Auk þess verða um
50 manns með erindi eða verða
þátttakendur i umræðum um ýmis
májefni í málstofum.
Ásdís Halla Bragadóttir aðstoð-
armaður menntamálaráðherra, sem
hefur haft veg og vanda af undir-
búningi þingsins segir markmiðið
vera að kynna einstaklingum, for-
eldrum, nemendum, sveitarfélögum
og kennurum metnaðarfullt skóia-
starf. „Við viljum draga fram það
jákvæða sem er að gerast í skóla-
málum þjóðarinnar. Þetta er í raun
markaðstorg menntunar," sagði
hún.
Nýjungar
þróunarstarf
Ásdís Halla segir að viðbrögð
þátttakenda hafi verið mjög góð og
áhugavert sé hversu fjölbreytt
starfsemi verði kynnt. Þama megi
sjá skóla og samtök víðs vegar af
að landinu, allt frá leikskólastigi
upp í háskólastig, einkaskóla sem
opinbera skóla, tónlistarskóla og
samtök. „Þetta er í fyrsta sinn sem
svo mikill fjöldi manna kemur sam-
an til að kynna það sem þeir eru
að gera. Þarna gefst fólki gott tæki-
færi til þess að veija einum degi í
að kynna sér menntakerfi þjóðar-
innar,“ sagði hún.
Meðal þess sem kynnt verður eru
nýjungar, þróunarverkefni, sam-
starf skóla og hvernig skólar og
menntakerfi geta nýtt sér tæknina
til að bæta námið. „Einnig er þama
tækifæri fyrir skólafólk að kynna
sér hvað aðrir eru að gera. Sömu-
leiðis eru foreldrar orðnir virkir í
skólastarfí. Þarna geta þeir séð
hvað aðrir em að gera og komið
með þær hugmyndir inn í foreldra-
ráð eða rætt um þær við kennara
barna sinna. Segja má að þetta sé
skref til að auka samkeppni og
metnað meðal skólanna."
Sex málstofur
Þingið fer aðallega fram í Há-
skólabíói en ein málstofa fer fram
í Þjóðarbókhlöðu. Umræðuefni í
málstofum eru: gæði og árangur
skólastarfs, hvers vegna símenntun,
námsgögn í nútíma skólastarfi,
menntun í alþjóðlegu upplýsinga-
samfélagi, menntun og jafnrétti og
forvarnir í skólakerfinu.
Menntaþingið er öllum opið og
enginn aðgangseyrir. Það verður
sett kj. 9.30 á laugardaginn af Sig-
ríði Önnu Þórðardóttur formanni
menntamálanefndar Alþingis og
síðan mun Björn Bjarnason ávarpa
þingið. Því næst hefst dagskrá sem
stendurtil kl. 15 en kl. 15.30-16.30
verða dregnar saman niðurstöður
fundanna. Sýningar á menntaþingi
standa yfír kl. 8.30-18.30.