Morgunblaðið - 01.10.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGURil. OKTÓBER 1996 39 -•
Verð:
38.000 kr. m.vsk
HP DeskJet 820 Cxi
Tæknilegar upplýsingar:
Prenthraði: allt að 6,5 blaðslður
á min. í sv/hv, allt að 4
blaðsíður á mín. i lit.
Prentar undir Microsoft Windows
(95, 3.1).
600x600 dpi í sv/hv.
600x300 dpi i tit.
C-REt tækni og Cotor Smart sem
hámarkar litagæðin.
AÐSEINIDAR GREIIMAR
inn geti laskast við það að hróflað
sé við honum sem og að ímynd
okkar lands gæti verið í hættu.
Hvað þetta varðar má benda á
skýrslu jarðeðlisfræðingsins dr.
Guðmundar Pálmasonar sem gerð
var síðla árs 1992 fyrir Náttúru-
verndarráð. f skýrslunni kemur
fram það álit Guðmundar að sápu-
gjöf í þeim tilgangi að örva Geysi
eða aðra goshveri til goss sé þeim
ekki skaðleg. Sú sápa, sem sett er
í vatnið, leysist upp og kemur að
mestu eða öllu leyti upp aftur með
gosinu. Einnig kemur fram að ef
ekki verði hróflað við Geysi í fram-
tiðinni þá sé hætta á að kísilhrúðrið
i kringum hverinn molni af ágangi
gesta sem og af notkunarleysi. Það
hafl einungis jákvæð áhrif á hverinn
að láta hann gjósa, raufarnar
hreinsast auk þess að viðhalda
hrúðrinu sem er eitt af sérkennum
Geysis. Að endingu minnir Guð-
mundur á það að víða erlendis sé
fjöldi fyrirmynda að náttúruundrum
þar sem fram fer samspil náttúru
og manns og greiða þar gestir að-
gangseyri. Af þessu má því ljóst
vera að náttúruundrið Geysir þarfn-
ast skynsamlegs samstarfs við
manninn og þar þarf Náttúruvernd-
arráð að vera í fararbroddi.
Látum Geysi gjósa - við
höfum ekki efni á öðru
fsland er aðeins eitt af fjölmörg-
um ríkjum jarðar sem er að keppa
á sífellt harðnandi markaði um
hylli ferðamannsins. Þessari harðn-
andi samkeppni er meðal annars
farið að bera á hér á landi en blik-
ur eru á lofti að sú aukning sem
verið hefur í ferðaiðnaðinum und-
anfarin ár sé að minnka, jafnvel
staðna. Hugsanlegar ástæður
þessa má sjá þegar fylgst er með
erlendum sjónvarpsrásum en þar
má sjá í auglýsingatímum heilu
löndin kynna land sitt og þjóð. Sum
þessara landa eru að keppa um
hylli sama markhópsins og ísland
og má þar meðal annars minnast
á áhrifaríka auglýsingu frá Skot-
landi. í þessari auglýsingu eru sýnd
sú menning og náttúruundur sem
Skotland hefur að bjóða í einstöku
samblandi við tónlist og listrænar
myndatökur. í sumum kynningar-
myndum um ísland er Geysir látinn
gjósa en þar er þó hvergi minnst
á að síðast hafl hann gosið árið
1991. Því hljótum við að spyrjg..
okkur hvort við viljum að það sem
gæti verið eitt helsta aðdráttarafl
landsins eigi að vera í dái. Að mínu
áliti höfum við einfaldlega ekki
efni á því enda þarf hvert eitt land
að nýta öll þau spil sem það hefur
á hendi til að kynna land sitt og
þjóð, annars er líklegt að það verði
undir í samkeppninni um ferða-
manninn. Með réttu kynningar- og
markaðsstarfí væri hægt að fá gíf-
urlega „ókeypis“ auglýsingu sem
vafalaust myndi skila þjóðarbúinu
auknum arði. Ef við Islendingar
ætlum okkur ekki að eyða elliárunj-
um með allt hálendið undirlagt af
vatni og mengunarvaldandi stóriðj-
ur á helstu töngum landsins verðuyff-.
við að hugsa um alla þá þætti sem
hjálpað geta okkur í eflingu þjóðar-
tekna á skynsaman hátt.
Höfundur er nemandi í
útflutningsmarkaðsfræði við
Tækniskóla íslands.
*
Markaðssetjum Island -
látum Geysi gjósa
Hvergi er minnst
á, segir Hugi Hreiðar-
son, að Geysir gaus
síðast 1991.
sem ráðið vilji að landinn hinkri
við og bíði eftir næsta stóra Suður-
landsskjálfta svo að við getum bar-
ið undrið augum. Það var árið 1916
sem Geysir gaus síðast sökum jarð-
hræringa og ef ekki hefði komið
til inngrip mannsins þá værum við
enn að bíða eftir gosi. Það var í
apríl árið 1935 sem Trausti Einars-
son og Jón Jónsson frá Laug grófu
um 50 sm djúpa rauf norðanmeginn
í kísilbarm Geysisskálarinnar og
tókst þannig að lífga hverinn við
svo dugði í nokkur ár. Ef þessir
menn hefðu ekki gripið inn í gang-
verk náttúrunnar sem og Hrafn
Gunnlaugsson og Þórir Sigurðsson
gerðu 30. ágúst árið 1981 þá væru
einungis til gamlar svarthvítar ljós-
myndir af hvernum að gjósa. Öllum
ætti því að vera ljóst að erfitt hefði
verið að skapa það aðdráttarafl sem
Geysissvæðið hefur í dag ef inn-
grips mannsins í gangverk náttúr-
unnar hefði ekki notið við.
Gagnrýnisraddir segja að um-
hverfismengun sé að sápunni, hver-
HP býður glæsilegt úrval
af bleksprautuprenturum
allt frá 20.000 kr.
NÚ ER að ljúka 6.
goslausa sumrinu án
þess að einn frægasti
goshver hejmsins,
Geysir, gjósi. Ástæðu
þessa gosleysis má
rekja til ákvörðunar
Náttúruverndarráðs
frá 20. mars árið 1992.
Þann dag ákvað ráðið
að ekki skyldu fram-
kölluð gos af manna-
völdum í Geysi eða
eins og segir orðrétt í
fundargerð ráðsins:
„Töluverð gagnrýni
hefur komið fram á
það að gos voru fram-
kölluð í Geysi. Að
vandlega athuguðu máli telur Nátt-
úruverndarráð að virða beri það
náttúruundur sem Geysir er og
hefur (ráðið) því ákveðið að ekki
verði framkölluð gos í Geysi“.
Ekki er rökstutt nánar í fundar-
gerðinni ástæða þessarar
ákvörðunar en líklega spilar þar inn
í annarsvegar það jarðrask sem
verður þegar hróflað er við hvern-
um og hins vegar sú umhverfis-
og sjónmengun sem verður til þeg-
ar sápa er sett I hann. En tvær
hliðar eru á öllum málum og spurn-
ing er: Felst náttúruvernd í al-
gjörri friðun náttúrunnar eða getur
komið til samspil náttúru og
manns? Ef algjör frið-
lýsing væri stefna
ráðsins þá ætti hún að
loka borraufinni sem
boruð var í Strokk árið
1963. Síðan þá hefur
Strokkur eingöngu
gosið vegna inngrips
mannsins og víst er að
minna væri um ferða-
menn á Geysissvæðinu
ef gosa hans nyti ekki
við. Hér er því um tví-
skinnung að ræða en
aðdráttarafl svæðisins
er staðreynd - þetta
skapar gjaldeyri og er
jafnframt auglýsing
fyrir landið.
Hvers vegna má
Geysir eklu gjósa?
Geysir er til staðar en virkni
hans er engin og bæði leikmenn
sem lærðir eru búnir að gefa út
dánarvottorð hans. Það er eðli
hvera að mynda útfellingu af kísil
í aðfærsluæðum sem síðan byrja
að þrengjast líkt og kransæðar
þannig að ekki berst nægilega heitt
vatn til a§ suða geti myndast á
réttu dýpi til að mynda gos. Þessar
æðar þurfa að hreinsast eða nýjar
að koma í staðinn til að gos geti
myndast aftur og þar þurfa jarð-
hræringar að koma til. Svo virðist
Hugi
Hreiðarsson.
'S.i
aj huer^u ^y^feuJleLl lacKarcl
er meát LeyptL prentari í heimi
Sterkustu rökin fyrir að kaupa HP DeskJet 820 Cxi prentara
færðu þegar þú berð hann saman við aðra prentara.
Prentaðu í lit eða svart/hvítu á venjulegt Ijósritunarblað meó HP 820 Cxi prentaranum -
þú veist um leið að hann er rétti prentarinn! Prófaðu síðan að prenta sama skjalið á
sambærilegan pappir meó öórum prentara. Þegar þú berð saman gæði, prenthraða og
rekstrarkostnað verður þér Ijóst aó HP 820 Cxi prentarinn á í reynd engan keppinaut.
Gerðu kröfur -HP DeskJet 820 Cxi uppfyllir þær!
Viðurkenndir sölu- og þjónustuaðilar-------------------- ~~-------------------------------
HEWLETT
PACKARD
AC0, Skipholti 17, s. 562 7333
BOÐEIND Boðeind, Mörkinni 6, s. 588 2061
<fí>
Heimilistæki hf
ÁTæknival
Einar J. Skúlason, Grensásvegi 10, s. 563 3000
Heimilistæki, Sætúni 8, s. 569 1500
Tæknival, Skeifunni 17, s. 550 4000
Upplýsingatækni, Ármúla 7, s. 550 9090
Upplýsingatækni