Morgunblaðið - 01.10.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 47
FRÉTTIR
SVONA leit verslun Garðars Ólafssonar út fyrir 40 árum.
*
Uraverslun í 40 ár
á sama stað
ÚRA- og skartgripaverslun Garð-
ars Olafssonar hefur verið til húsa
á sama stað á Lækjartorgi í 40 ár.
I tilefni afmælisins er boðið upp
á 20-50% afslátt af öllum vörum
verslunarinnar dagana 30. sept-
ember til 5. október. Auk þess fá
allir sem kaupa fyrir 5.000 kr. eða
meira góðan kaupauka.
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD Rauða kross
íslands gengst fyrir námskeiði í al-
mennri skyndihjálp sem hefst mið-
vikudaginn 2. október. Kennt verður
flögur kvöld og verða kennsludagar
2., 3., 7. og 8. október. Námskeiðið
teíst vera 16 kennslustundir og er
þátttaka heimil öllum 15 ára og eldri.
Námskeiðið verður haldið í Fákafeni
11, 2. hæð.
Námskeiðsgjald er 4.000 kr. og
fá skuldlausir félagar í RKÍ 50%
afslátt. Hægt verður að ganga í fé-
lagið á staðnum. Einnig fá nemendur
í framhaldsskólum 50% afslátt og
giidir þetta einnig um háskólanema.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna, blæðingum úr sárum og
mörgu öðru.
Ráðstefna um
umhverfisrétt
RÁÐSTEFNA á sviði umhverfisrétt-
ar um mengun sjávar verður haldin
hér á landi dagana 1.-3. október á
Hótel Borg í Reykjavík. Er ráðstefn-
an á vegum íslandsdeildar samtaka
evrópskra laganema (ELSA).
Guðmundur Bjarnason umhverfis-
ráðherra setur ráðstefnuna í dag kl.
10. Fyrirlesarar eru Wybe Th. Do-
uma, kennari við háskólann í Gron-
ingen í Þýskalandi, Ketill Siguqons-
son lögfræðingur, Össur Skarphéð-
insson alþingismaður, Julian Morris
frá Umhverfisdeild The Institute of
Economic Affairs á Bretlandi, Ove
Caspersen upplýsingafulltrúi sendi-
ráðs ESB fyrir Noreg og ísland,
Asta Magnúsdóttir deildarstjóri al-
þjóðadeildar umhverfisráðuneytisins,
Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri
umhverfisráðuneytisins og Davíð
Egilsson _ forstjóri Hollustuverndar
ríkisins. I lok ráðstefnunnar verða
pallborðsumræður.
Námskeið
Lífssýnar
LÍFSSÝN býður \ vetur upp á eftir-
talin námskeið: í október: Heilun,
ljósgjöf og vígsla; í nóvember: Hugur
og hugblik; íjanúar ’97: Orkustöðvar
manns og jarðar; í febrúar ’97: Hul-
iðsheimar manna og álfa; í mars:
Þróunarleiðir og helgir menn.
Námskeiðin eru haldin á þriðjudags-
kvöldum í Bolholti 4, 4. hæð. Fyrir-
lesari námskeiðanna er Erla Stefáns-
dóttir sjáandi. Einnig eiu hugaræf-
ingar hvern þriðjudag kl. 19.45. Fé-
lagsfundir eru haldnir fyrsta þriðju-
dag í hveijum mánuði.
Verslunin hefur sérhæft sig í
úrum og klukkum af öllum gerð-
um en selur einnig skartgripi s.s.
demantshringa, trúlofunar-
hringa, hálskeðjur og eyrna-
lokka. Þá er fyrir hendi viðgerð-
arþjónusta á úrum, klukkum og
skartgripum ásamt áletrun.
Áttavitanám-
skeið í 30 ár
ÞAÐ hefur verið fastur liður í
haustdagskrá Hjálparsveitar skáta
í Reykjavík undanfarin 30 ár að
halda námskeið fyrir almenning í
ferðamennsku og notkun áttavita.
Á þessu hausti verða haldin tvö
námskeið, það fyrra 2. og 3. októ-
ber en það síðara 9. og 10. októ-
ber. Námskeiðin verða á Snorra-
braut 60 og byija kl. 20 fyrra
kvöldið, en kl. 19 seinna kvöldið
og er það verkleg æfing. Nám-
skeiðsgjald er 3.500 kr. og eru öll
námsgögn innifalin en þátttakend-
ur þurfa að koma með áttavita.
LEIÐRÉTT
Mistök við myndvinnslu
LEIÐINLEG mistök urðu við
myndvinnslu á sunnudagsblaði
Morgunblaðsins með þeim afleið-
ingum að myndir á blaðsíðu 2b og
lOb víxluðust á milli síðna og
greina.
Morgunblaðið biður lesendur
sína og hlutaðeigandi velvirðingar
á þessum mistökum.
Myndatextar í Lesbók
í grein Bergljótar Arnalds um
Edinborgarhátíðina, sem birtist í
Iæsbók á laugardaginn, víxluðust
myndatextar á bls. 10. Reyndar
mátti lesa í mistökin, þar sem ekk-
ert snjóaði á myndinni, sem textinn
um mikla snjókomu birtist undir.
Sú mynd var frá sýningu á Ifige-
neiu á Taurus,en hin myndinm var
frá snjóleik Rússans Slava Polunin.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Rangt föðurnafn
í fyrirsögn, formála og upphafi
minningargreinar um Stefán R.
Gunnarsson, yfirflugvélstjóra í
Lúxemborg, á blaðsíðu 36 í
Morgunblaðinun á laugardag, 28.
september, var Stefán sagður Guð-
mundsson. Hlutaðeigendur eru
innilega beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
Hátt í tvöþúsund krakkar
tóku þátt hjá Olís
í frétt hér í blaðinu sl. laugardag
af leik sem Olís hefur staðið fyrir
í sumar, fyrir börn, undir heitinu
Happaferð á Olísstöð misritaðist
þátttakendafjöldinn. Sagt var að á
annað hundrað börn hefðu verið
meðal þátttakenda, en hið rétta er,
að þátttakendur voru hátt í tvöþús-
und talsins. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
Ólympíuskákmótið í Armeníu
Sigur á Þjóðverjum og
Indónesum um helgina
Jerevan. Morgunblaðið.
ÍSLENDINGAR stóðu sig vel um
helgina þegar fram fóru 11. og 12.
umferð Ólympíuskákmótsins í Jere-
van. Enginn þeirra tapaði skák og
íslenska sveitin þokaðist upp í 9.-14.
sæti, sem verður að teljast mjög
gott veganesti fyrir síðustu umferð-
irnar tvær.
Á laugardag tefldu íslendingar við
Þjóðveija og mátti búast við erfiðri
viðureign. En í þetta sinn var stríðs-
gæfan á bandi íslendinga, þar sem
sigur vannst, 2,5-1,5 og hefði meira
að segja getað orðið stærri.
Margeir Pétursson hafði á efsta
borði hvítt gegn Artur Jusupov, sem
hefur verið einn allra sterkasti skák-
maður heims í 15 ár og er marg-
reyndur heimsmeistarakandídat. Það
er því ekki heiglum hent að sigrast
á Jusupov en Margeir var þó ekki
langt frá því. Þeir félagar tefldu
bráðfjöruga og skemmtilega skák,
þar sem Margeir virtist um tíma
hafa öll ráð Arturs í hendi sér. En
Jusupov er seigur undir tönn, og
Margeir leyfði honum að sleppa í
þetta sinn.
Á öðru borði tefldu þeir Jóhann
Hjartarson og Rustam Dautov ekki
síður bragðmikla skák. Dautov hafði
hvítt en hann er Rússi, rétt eins og
Jusupov. Jóhann náði frumkvæðinu
og innbyrti síðan sigur af mikilli festu
og öryggi. Á þriðja borði hafði Helgi
Ólafsson hvítt gegn Eric Lobron,
amerísk-þýskum „töffara", og gaf
Lobron engan höggstað á sér og
varð jafntefli því niðurstaðan. Á
fjórða borði hafði Helgi Áss Grétars-
son svart gegn Christopher Lutz,
mjög stigaháum stórmeistara, og
jafnaði taflið án mikilla erfiðleika og
samdi síðan jafntefli.
Niðurstaðan varð því íslenskur sig-
ur og er óhætt að segja að vel hafi
verið að verki staðið hjá íslenska lið-
inu. Af öðrum úrslitum má nefna að
Rússar og Úkraínumenn sömdu fyr-
irfram um jafntefli á öllum borðum;
ísraelsmenn unnu Kínveija 2,5-1,5;
Georgíumenn og Armenar skildu
jafnir.
Sett í gang gegn Indónesíu
í tólftu umferð lentu íslendingar
á móti Indónesíu og þótt andstæðing-
arnir virtust í léttari kantinum var
ekki allt sem sýndist. Indónesar voru
í 56. sæti styrkleikalistans fyrir mót-
ið og mættu ekki með sinn laiigsterk-
asta mann, stórmeistarann Utut
Adianto, en þeir höfðu staðið sig
mjög vel það sem af var mótinu og
skýringin á þvi að þeir hafa ekki
mikið af alþjóðlegum skákstigum er
fyrst og fremst sú að þeir tefla mjög
lítið utan síns heimalands.
Efsta borðs maður Indónesíu, Sit-
anggang, er íslenskum skákmönnum
kunnur undir nafninu „Sett’ann í
gang“, og stafar nafngiftin af því
að hann var á sínum tíma fyrsti skák-
maðurinn sem Karl Þorsteins vann
á ólympíumótinu og vonuðust félagar
Karls til þess að sigurinn á Indónes-
anum hefði „sett hann í gang“. í
viðureign íslendinga og Indónesa
hafði Margeir Pétursson svart gegn
Sitanggang og reyndi of snemma að
hrifsa til sín frumkvæðið. Hann fékk
afleita stöðu en var á góðri leið með
að tryggja sér skiptan hlut þegar
Indónesinn leyfði fyrir handvömm
sömu stöðunni að koma upp þrisvar,
en slíkt hefur sjálfkrafa í för með
sérj'afntefli.
Á öðru borði hafði Hannes Hlífar
hvítt gegn Situru, en Situru sat ekki
lengi I þetta sinn. Hann hafði fram
að þessu staðið sig einna best allra
annars borðs manna mótinu, en gerði
sig nú sekan um mistök í byrjuninni
og Hannes var ekki lengi að nýta
sér þau. Hann beinlínis valtaði yfir
Indónesann í fáeinum leikjum. í stað-
inn fyrir að Situru kæmi til greina
til verðlauna fyrir árangur á öðru
borði er Hannes nú farinn að láta
mjög að sér kveða í baráttunni um
besta árangurinn á þriðja borði.
Á þriðja borði gegn Indónesum
tefldi Helgi Ólafsson með svörtu við
Juswanto. Helgi hugðist líkt og Mar-
geir hrifsa til sín frumkvæðið og
átti um tíma dágóð tækifæri til þess,
en lék ekki sem nákvæmast og stóð
uppi með lakari stöðu. Hann hélt þó
jafntefli án mikilla erfiðleika. Og á
fjórða borði hafði Þröstur Þórhalls-
son hvítt gegn Barus og samdi jafn-
tefli fljótlega.
Ýmsir hefðu vissulega búist við
stærri sigri gegn Indónesíu, en mestu
skipti að sigur vannst og ísland þok-
aðist enn upp töfluna,
Rússland vann ísrael, eða Rúss-
land B eins og ísraelska liðið er
stundum kallað þar sem það er skip-
að eintómum útflytjendum frá Rúss-
landi. Bandaríkin unnu Búlgaríu
2.5- 1,5 og Armenía vann Bosníu
með sama mun. Úkraína vann Úzb-
ekistan 3-1 og skaust upp í annað
sætið á mótinu. Norðmenn töpuðu
hroðalega fyrir Kazakstan, 0,5-3,5,
og hefur koma Simens Agdesteins
til liðs við liðið síður en svo haft góð
áhrif á það. Hann tapaði á efsta
borði. Og ekki vegnaði Dönum bet-
ur, því þeirtöpuðu fyrir Bangla Desh,-
1.5- 2,5. Finnar unnu Singapore 3-1
en Færeyingar gerðu jafntefli við
Paragvæ.
Staðan í karlaflokki eftir 12. um-
ferðir var þessi:
1. Rússland 33,5.
2. Úkraína 30,5.
3. Bandaríkin 30,0.
4. -8. Búlgaría, Króatía, Armen-
ía, England og ísrael 29,0.
9.-14. ísland, Pánn, Ungveija-
land, Georgía, Uzbekistan, Kína
28,5.
15.-17. Bosnía, Hollandi og
Þýskaland.
Kvennasveit Georgíu efst
í kvennaflokknum hefur Georgía
örugga forystu, 26,5 vinninga, en
næst koma Rússar og Kínveijar me
24 vinninga, þá Englendingar og
Úkraínumenn með 23,5.
Frábært um helgina
SKAK
Jercvan, Armcníu
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
Ólympíuskákmótið er haldið í Arme-
níu 15. september til 2. október.
ÍSLENSKA skáksveitin hefur unnið
sigur í þremur síðustu viðureignum
og er í 3.-7. sæti með 31% vinning
fyrir lokaumferðina á Ólympíumót-
inu í Jerevan. Þetta er frábær
frammistaða og fleiri vinningar en
íslendingar hafa áður haft fyrir síð-
ustu umferð á Ólympíuskákmóti. En
lokaumferðin skiptir öllu máli, hag-
stæð úrslit gætu jafnvel fleytt sveit-
inni í verðlaunasæti, en við tap gæti
sveitin fallið verulega niður töfluna.
Ljóst er að erfitt hlutskipti bíður
sveitarinnar, því andstæðingamir í
síðustu umferð verða að öllum líkind-
um Rússar.
Frammistaðan í helgarumferðun-
um og í gær var frábær. Á laugar-
dag unnu íslendingar Þjóðveija með
2‘A vinningi gegn l'A. Á sömu leið
fór gegn sveit Indónesíu á sunnudag
og loks vannst sigur á Kína 3-1 í
gær. Jóhann Hjartason er kominn í
mikinn ham og vann báðar skákir
sínar og það er athyglisvert að eng-
inn skák tapaðist í þessum þremur
viðureignum. Árangur allra sveitar-
meðlima er á heildina litið viðun-
andi, mest hefur reynt á Hannes
Hlifar og Jóhann Hjartarson. Þröstur
Þórhallsson, sem fékk útnefningu
sem stórmeistari á þinginu í Jerevan
og Helgi Áss Grétarsson hafa einnig
staðið sig frábærlega með hvassri
taflmennsku og mikilli þrautseigju.
Heimsmeistarinn Garrí Kasparov
byrjaði rólega á Ólympíuskákmótinu
en hefur unnið hvetja skákina á
fætur annari í síðustu umferðum.
Við skulum að lokum fylgjast með
hvernig hann lék fyrrum landa sinn
sem fluttur er búferlum til ísarel.
Hvítt: I.Smirin (ísarel)
Svart: G.Kasparov (Rússland)
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 — a6
6. Be3 - Rg4 7. Bg5 - h6 8. Bh4
- g5 9. Bg3 - Bg7 10. Be2 - h5
II. Bxg4?! Smirin hefur greinilega
ekki áhuga að reyna kunnáttu heims-
meistarans í byijunarfræðunum. 11.
h4 gxh4 12. Bxh4 — Rc6 er hvass-
ara framhald og eina leiðin fyrir
hvítan til þess að reyna að öðlast
frumkvæði
11 - Bxg4 12. f3 - Bd7 13. Bf2?
- Rc6 14. Rd5 - Hb8! 15. 0-0 -
e6 16. Rxc6 - bxc6 17. Re3 - d5!
18. Hbl - 0-0
Svartur hefur öðlast öruggt frum-
kvæði með biskupaparið og sterka
miðborðsstöðu. Kasparov hafði að-
eins eytt níu mínútum af umhugsun-
artíma sínum þegar hér var komið
til sögu og því ekki ólíklegt að stöð-
una hafi hann áður séð á vinnuborð-
inu.
19. c4 - d4 20. Rc2 - e5 21. Rel
- f5! 22. Rd3 - g4 23. Rc5 -
gxf3 24. Dxf3 — fxe4
Sjá stöðumynd
25. Dxh5
25. Dxe4 — Bf5 26. Dxc6 strand-
ar á 26 — Hc8! og svartur tapar liði.
Nú verða hins vegar miðborðspeðin
svörtu illráðanleg.
25 - De8 26. Dg5 - Hf5 27. Dd2
- e3!
Þvingar fram unnið endatafl.
28. Bxe3 - Hxfl+ 29. Hxfl -
dxe3 30. Dxd7 - Dxd7 31. Rxd7
- Hxb2
Svartur hótar nú 32 — e2 því eft-
ir 33. Hel - e4 34. Kf2 - Bd4+
35. Kg3 — Bc3 fellur hrókurinn.
32. Rf6+ - Bxf6 33. Hxf6 - Hxa2
34. Hfl - a5 35. Hel - e2 36.
Kf2 — a4 37. Hbl - a3 38. Hb8+
- Kf7 39. Ha8
» b c d • I Q h
39..Hal!
Laglegur leikur sem tryggir sjgur-
inn.
40. Kxe2 - a2
Svartur gafst upp. Eftir 41. Kf2
- e4 32. h4 - e3+ 33. Ke2 - Hgl
fellur hvíti hrókurinn.
Karl Þorsteins