Morgunblaðið - 01.10.1996, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
Svar til
Garðars
Sverris-
sonar
Frá Sigurbirni Einarssyni:
BÓK mín Haustdreifar kom út fyrir
fjórum árum og er því ekki nýlegri
en svo, að góðfúsir lesendur hafa
haft ríflegan tíma til að lesa hana,
jafnvel vandlega. Og ekki vonum
seinna að gera athugasemdir við
hana, ef rök eru til þess. Einn kafli
þessarar bókar heitir „Sorgin og
Guð“. Þar er reynt að horfast í augu
við þyngstu spurningar með reynslu
þeirra manna í huga, sem hafa hlot-
ið mikla áverka í lífinu. Hvað gerist
með þeim, sem missa, syrgja, þjást?
Hvar eða hvernig er svar að finna
við spurningunni um Guð, þegar
ógæfan dynur yfir, myrkrið hremm-
ir, kvölin verður óbærileg? í umræðu
minni um þetta tek ég nokkur dæmi
úr mannlífinu, sem sýna alkunnar
hliðar veruleikans, naktar, kaldar,
grimmar staðreyndir. Ég nefni eng-
in nöfn (nema þegar ég vitna í ljóð).
Tvö þessara dæma eru úr safni per-
sónulegra minninga minna en tvö
eru sótt í prentað mál. Ekki les ég
annað úr þvi máli en þar stendur.
En ef útlegging mín misferst eða
tilgangur misskilst gróflega, þá þyk-
ir mér það verra en tali taki, en fæ
ekki við því gert. Reyndar hef ég
ekki fyrr en nú orðið var við við-
brögð af slíku tagi gagnvart þessari
ritsmíð. Hins vegar hafa ýmsir glatt
mig með því að láta mig vita, að
þessi bókarkafli hafi hjálpað þeim,
veitt þeim styrk í sorg eða brugðið
einhverri birtu yfír erfið, áleitin,
þungbær vandamál.
Eitt dæmið í nefndum kafla er
um mann, sem mannleg illska á
hástigi níðist á að tilefnislausu frá
hans hlið. Hann fær löngu síðar
tækifæri til að lýsa að nokkru,
hvernig honum er innanbrjósts í
þeim sporum. Dreg ég fram dæmi
hans til þess að niðurlægja hann?
Því neita ég afdráttarlaust þó að
mér finnist raunar slík getsök ekki
þess virði að taka hana alvarlega.
„Þeir sem minna hafa að bera og
eru að velta fyrir sér trúarlegum
vandamálum mættu hugleiða þetta
dæmi“ segi ég og hef þá m.a. í
huga vanhugsuð orð, sem ég og
aðrir heyra svo oft um gátur, sem
engin ræður við. En svo oft hef ég
verið í námunda við sorgir og þján-
ingar, að mér kæmi síst í hug að
lítilsvirða þá, sem verða harðast úti
á þeim vettvangi, gildir einu hvað
þeir kunna að segja. Og síðast af
öllu mundi ég treysta mér til að
fullyrða, að ég hefði reynst sterkari
>' sömu aðstæðum. Ég efast um, að
ég hefði haldið viti og lífi við þá
meðferð, sem Leifur Muller átti að
mæta. En hefði svo farið er alveg
víst, að ekki hefði ég getað þakkað
sjálfum mér það né hreykt mér á
einhverjum trúartindi, sem ég hefði
hlaðið undir mig. í sporum hins
kvalda, vonlausa manns eða við
hans hlið er sama ákallið í okkur
öllum, leynt og ljóst: „Guð minn,
Guð minn, hví hefur þú yfirgefið
mig?“ Það er hið upprunalega,
mennska viðbragð, þegar myrkrið
verður mest, neyðin stærst. Og ein-
mitt þetta ákall barst af vörum þess
misskilda, dæmda, kvalda manns,
sem í kristnum augum „birtir Guð
á jörð“, birtir þann Guð og föður,
sem sjálfur líður í allri neyð og er
þeim næstur, sem líða mest, líka
þeim, sem ráða sér ekki sakir þrauta
sinna, svo að þeir neita því, að Guð
sé til. Út frá þessu grundvallarvið-
horfi er öll þessi hugleiðing mín
samin, því að hún er tilraun til að
vekja til umhugsunar um, hvernig
kristin trú svarar spurningunni
miklu um sorgina og Guð, og þetta
er undirstaða allra svara, sem hún
getur veitt.
SIGURBJÖRN EINARSSON.
1
Vita- og hafnamálastofnun og
Siglingamálastofnun ríkisins eru komnar í sömu höfn:
Ný lög - Nýtt fyrirtœki
Ný stofnun hefur orðið til með sameiningu
Siglingamálastofnunar ríkisins og
Vita- og hafnamálastofnunar. Lög þess efnis tóku
gildi í dag 1. október. Ný stofnun mun taka yfir öll
verkefni eldri stofnananna og sinna þeim áfram í lítt
breyttri mynd.
Sameiningunni er ætlað að skapa grundvöll fyrir
öfluga og nýja stofnun fyrir sjófarendur, ásamt því
að auka hagræðingu og sparnað í rekstri.
Sameiningin mun þannig nýtast viðskiptavinum
stofnunarinnar og ríkinu.
Starfsemi stofnunarinnar verður skipt
niður í fjögur meginsvið; stjórnsýslu-,
tækni-, rekstrar-, og skipaskoðunarsvið.
Siglingastofnun er staðsett að
Vesturvör 2, Kópavogi þar sem áður var
Vita- og hafnamálastofnunar.
SIGLINGASTOFNUN ÍSLANDS
VESTURVÖR 2 • 200 KÓPAVOGUR ■ SÍMI S60 0000 ■ FAX 560 0060