Morgunblaðið - 03.10.1996, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
.
FRÉTTIR
Eldgos norður af Grímsvötnum árið 1938 kom flestum að óvörum
Flúor úr gosösku getur
valdið doða í búfénaði
Hlaupið var um sex
kílómetra breitt
FLESTUM að óvörum hófst gríðar-
mikið hlaup í Skeiðará 23. maí 1938.
F'jögur ár voru frá síðasta hlaupi og
var þá ekki vitað til þess að áður
hefði liðið svo skammt á milli hlaupa.
En þó menn yrðu áþreifanlega varir
við hlaupið var enginn var við eldgos
í jöklinum. Leiðangrar sem farnir
voru í maí og lok júní þóttu hins
vegar benda til að gosið hefði undir
jökli norðan við Grímsvötn.
í bók dr. Sigurðar Þórarinssonar
jarðfræðings „Vötnin stríð“ segir að
frá Kötlu og Grímsvötnum komi
„stórkostleg jökulhiaup, svo stór, að
ekki verða önnur slík annars staðar
á jarðarkringlunni." Hlaup úr Gríms-
vötnum voru almennt stærri fyrr á
þessari öld en hlaup á síðari árum.
Sum þeirra voru afleiðing eldgosa.
Þannig er vitað með vissu um gos
í Grímsvötnum 1922 og 1934.
Vöxtur hófst í Skeiðará mjög
skyndilega að morgni 23. maí 1938.
Flóðið náði að sprengja jökulsporð-
inn mikið upp og fleyta með sér all-
mikiu af ísjökum, smáum og stórum.
Hlaupið jókst enn næstu tvo daga
og náði hámarki, að því er talið er,
26. maí. Um nóttina breiddi það gíf-
urlega úr sér. Oddur Magnússon,
bóndi í Skaftafelli, skráði þá í lýs-
ingu sinni á hlaupinu: „Eitt öldu
hafrót hér frá brekkum 2 kílómetra
veg yfir hlaupið og eyralaust flóð
aðra 4 kílómetra; líklega er nú há-
mark flóðs.“
Hlaupið minnkaði hægt dagana á
eftir. Um hvítasunnu (8. júní) var
það mjög í rénun, en þó voru þá enn
þungir straumálar í Skeiðará. Talið
er að þegar hiaupið var mest hafi
runnið 40 þúsund rúmmetrar á sek-
úndu. Þegar hlaupinu lauk þöktu
jakar sandinn. Hlaupinu fylgdi auk
þess gífurlegt magn af aur.
Eldsumbrot uppgötvuð
Eins og nærri má geta höfðu jarð-
vísindamenn áhuga á að kanna þess-
ar miklu náttúruhamfarir. 27. maí
flaug Agnar Kofoed-Hansen með þá
Pálma Hannesson rektor og Steinþór
Sigurðsson jarðfræðing yfir Skeiðar-
ársand og daginn eftir flugu þeir
yfir Grímsvötn. Þetta var í fyrsta
PÁLMI Hannesson rektor tók myndina af Skeiðarársandi þegar hlaupið var í hámarki 27. maí 1938.
skipti sem flogið var yfir Grímsvötn
til að skoða afleiðingar Skeiðarár-
hlaups. Þá kom í ljós að ekki hafði
aðeins orðið mikið jökulsig í Gríms-
vötnum heldur hafði orðið mikið
umrót norður af Grímsvatnaöskj-
unni. Um 15 km norður af Svíahnúk
vestri hafði myndast mikið ketilsig
og var sjálf sigtrektin næstum 1,5
km að þvermáli en þvermál milli
ystu sigsprungnanna 3-4 km. Sunn-
an við og samtengt þessari sigtrekt,
sem var mörg hundruð metra djúp,
var annað miklu stærra sporöskju-
laga sig. Auk þess höfðu myndast
ketilsig á Grímsvatnasléttu.
Hvorki vísindamenn né íbúar í
nágrenni við jökulinn urðu nokkurn
tímann varir við eldgos eða ösku á
jöklinum. Það er þó talið að gosið
hafi, í skamma stund, náð að bijóta
sig í gegnum ísinn og jökulvatnið.
Bændum
bent á að
hýsaslát-
urfénað
ÖSKUFALLS frá gosinu við Bárðar-
bungu hafði í gær orðið lítillega
vart á Blönduósi, í Blöndudalnum
og í Bárðardal. Að sögn Sigurðar
Sigurðarsonar, sérfræðings á Til-
raunastöð Háskólans að Keldum,
getur flúor sem gjarnan berst með
gosösku valdið doða í búfénaði og
því hefur bændum verið bent á að
hýsa sláturfénað og folöld þar sem
hætta er á öskufalli.
Sigurður sagði að krónísk áhrif
flúoreitrunar í búfénaði væru þegar
flúorinn settist í beinin í stað kalks
og mýkti þau og gerði veikari. Ann-
ars vegar væri um að ræða svokall- I
aðan gadd þar sem tennur yxu niður j
og hins vegar fætlur, en það væru
hnútar sem mynduðust á fótum.
„Bráðu áhrifin eru erting í öndun-
arfærum af öskulofti sem andað er
að sér, og erting í meltingarvegi af
því sem etið er. Það getur jafnvel
valdið blæðingu í meltingarvegi og
blóðugum niðurgangi,“ sagði Sig-
urður.
Hættan er mest af vatnspollum )
Hann sagði að fíngerð aska sem )
gæti borist lengst þyrfti ekki að )
vera hættuminni en grófari aska sem
félli fyrr niður.
„Flúorinn binst við yfirborðið á
kornunum og þá er það meira magn
sem getur borist. í fyrri mælingum
hefur það komið í ljós að það dreif-
ist talsvert misjafnt á þau svæði þar
sem öskumökkurinn fer yfir og valda
því sjálfsagt einhver veðurfarsleg i
skilyrði. Ef það .rignir þá er hættan
minni því flúorinn þynnist svo fljótt, »
en hættan er mest af vatnspollum )
sem myndast og skepnur drekka úr.
Við höfum verið að ráðleggja
mönnum það að fylgjast vel með
veðri og vindum og hvar hætta er á
að aska falli og vera þá helst á und-
an henni og taka fénaðinn af beit.
Það þarf kannski ekki endilega að
setja hann inn, og óvíða piáss til
þess, en vera við því búnir að geta L
hýst ef það fellur," sagði Sigurður. ’
SIEMENS
LAUGARDAGINN 5. OKTOBER FRA KL. 10-16
G RIP T U GÆSIIA!
Sölusýning
á hinum stórglæsilegu Siemens heimilistækjum.
Þeir sem kunna gott aö meta láta tækifæri senn þetta ekkifram hjá sér fara.
Ótrúleg tilboðsverð á sjónvarps-, myndbands- og hljómflutningstækium.
í tilefni dagsins bjóðum víð auk þess verulegan afslátt af ýmsu
öðrum heimilistækjum. Ríflegur staðgreiðsluafsláttur veittur.
SM
NORLANI
Nóatúni 4 • Sími 511 3000
!
I
I
)
I