Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
STEFNURÆÐA FORSÆTISRAÐHERRA
MORGUNBLAÐIÐ
Árangur erfiðrar
baráttu að skila sér
DAVÍÐ Oddsson flytur stefnuræðu ríkisstjórnarinnar á Alþingi
í gærkvöldi.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
flutti stefnuræðu ríkisstjórnarinnar
á Alþingi í gærkvöldi og fer hún hér
á eftir. Millifyrirsagnir eru Morgun-
blaðsins.
Herra forseti, góðir áheyrendur,
Stjórnarsáttmálar og stefnuyfir-
lýsingar ríkisstjórna eru athyglis-
verð plögg þótt menn greini oftast
mjög á um innihald þeirra. Sáttmál-
arnir geyma jafnan ioforð eða a.m.k.
fögur fyrirheit þeirra, sem eru að
leggja af stað saman í ferð. En þeir
eru ekki síður tæki stjórnmálaflokka
til að kanna við stjórnarmyndanir,
hvort þeir geti sameinast um nokkur
megin verkefni næstu árin, þrátt
fyrir þann stjórnmálaiega ágreining,
sem milli flokkanna er. Og þeir eru
einnig notaðir til að kortleggja þau
sker, sem slíkt samstarf gæti helst
steytt á. Mjög langir stjórnarsátt-
málar, fullir af smáatriðum og þar
sem reynt er að setja undir alla
hugsanlega leka, gætu því bent til
þess, að verulegrar tortryggni gætti
um samstarf á milli flokka í upp-
hafi. Því þætti best að hafa sem flest
svið niðurnegld í skrifuðum texta.
Reyndar sýnist mér að stundum sé
nokkur fylgni á milli langra stjórnar-
sáttmála og lélegs samstarfs flokka
á milli. Stjórnarsáttmáli ríkis-
stjórnarinnar er stuttur og gagnorð-
ur, en gefur þó ágæta leiðsögn um
mikilvægustu viðfangsefni í íslensku
efnahags- og þjóðlífí. Og ég tel einn-
ig, að upphaf núverandi ríkisstjórnar
hafi verið gott og geti leitt til góðr-
ar og farsællar tíðar. Það er mála
sannast, að síðasta þing, fyrsta heila
þing núverandi ríkisstjórnar, var eitt
hið athafnasamasta um langt skeið.
Umræður voru vissulega langar og
strangar, eins og vill verða í upp-
hafi kjörtímabils, þegar stjórn og
stjórnarandstaöa, samsett með nýj-
um hætti, láta reyna með sér. En
hitt er þýðingarmeira, að fjöldi stór-
mála var leiddur til iykta og mörg
mál, sem áður höfðu lengi þvælst
fyrir þingmönnum, fengu nú af-
greiðslu.
Afgangur af ríkissjóði
Það sést glöggt, þegar litið er til
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar,
að störf hennar hingað til og stefn-
an, sem framundan er, verða í góðu
samræmi við hann. Fylgt hefur ver-
ið fast fram þeim fyrirheitum um
efnahagsmál, atvinnuaukningu og
bætt lífskjör, sem vikið er að í stjórn-
arsáttmálanum. Þar verður verkum
þó seint lokið og þeirra mun því einn-
ig sjá stað á þessu þingi, ekki síst
í tengslum við fjárlagagerð. Fjár-
málaráðherra hefur nú lagt fram
fjárlagafrumvarp, sem gerir ríkis-
stjórninni að reka ríkissjóð með
nokkrum afgangi og nú þykir ljóst,
að fjárlagahallinn á því ári, sem senn
er að ljúka, verður mun minni en
gert var ráð fyrir í fjárlögum. Þá
er settur innan sviga sá bókhalds-
halli, sem skráður verður vegna inn-
lausnar spariskírteina fyrr á árinu.
Eins og kunnugt er mun sú innlausn
ein spara ríkissjóði milljarða króna
á næstu árum. Á síðasta þingi var
vinnulöggjöfin endurskoðuð og er
það von ríkisstjórnarinnar að þegar
fram í sækir, muni sú lagasetning
teljast mjög til bóta, þótt nokkuð
hafi verið um hana deilt. Flutningi
grunnskóla til sveitarfélaga hefur
verið lokið áfallalaust. Margir óttuð-
ust að þar væru of mörg ljón í vegi
til þess, að það stóra mál mætti ná
fram að ganga. Flutningur grunn-
skólans er mesta verkefnatilfærsla
á miili ríkis og sveitarfélaga, sem
orðið hefur, og þá um leið stærsta
skref til valddreifingar, sem stigið
hefur verið. Endurskoðun lífeyris-
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra flutti
stefnuræðu ríkis-
stjómarinnar á Al-
þingi í gærkvöldi.
sjóðakerfisins, sem sérstaklega er
fjallað um í stjórnarsáttmála, er vel
á veg komin. Annað atriði, sem þar
er nefnt, hefur einnig breyst úr orð-
um í veruleika. Settar hafa verið
reglur um aðgang borgaranna að
upplýsingum hjá stjórnvöldum og
jafnframt verið mótuð heildarstefna
um upplýsingatækni og upplýsinga-
þjóðfélagið.
Vinna við að búa í haginn fyrir
erlenda fjárfestingu í landinu hefur
borið góðan ávöxt eftir langvarandi
kyrrstöðu í þeim efnum. Er það
fagnaðarmál fyrir þjóðina og reynd-
ar eru ýmis merki um það nú, að
þar verði frekari ákvarðanir teknar
á næstu mánuðum og misserum.
Ég hef, herra forseti, aðeins vikið
að fáeinum atriðum, sem stjórn-
arsáttmálinn lagði okkur í hendur
að huga sérstaklega að í upphafi
kjörtímabilsins. Þar hefur mörgu
verið þokað í rétta átt. En það er
ekki síður ánægjulegt, að samstarfið
á milli stjórnarflokkanna um fram-
kvæmd þessara verkefna hefur verið
afar traust og sú samheldni hefur
tryggt öruggan framgang málanna.
Útgjöld til heilbrigðis- og
menntamála aukast
Það var forgangsatriði ríkisstjórn-
arinnar að fjárlög skyldu nú lögð
fram hallalaus. Þó skyldi forðast,
að það yrði með þeim hætti, sem
hér hefur gerst stundum á árum
fyrr, þegar að útgjöld ríkisins voru
vanmetin stórlega og tekjurnar of-
metnar og með þeim hætti fengin
hagfelld niðurstaða. Óþarfi er að
rifja þau tiivik upp sérstaklega nema
tilefni gefist tii. Óðruvísi er í pottinn
búið nú og því hafa orðið mikil kafla-
skil í ísienskri efnahagsstjórn við
framlagningu þessa fjárlagafrum-
varps Til þess að ná markmiðum
þess, hefur verið óhjákvæmilegt að
sýna aðhald í ríkisrekstrinum á fjöl-
mörgum sviðum. Það hefur vissulega
verið gert, en á hinn bóginn munu
útgjöld til ýmissa málaflokka þó
halda áfram að aukast og er slíkt
óhjákvæmilegt, þótt viðspyrna sé
sýnd. Hinn umfangsmikli heilbrigð-
ismálaflokkur lýtur einmitt þessum
lögmálum, en útgjöld til hans aukast
jafnt og þétt, þótt þeir sem leggja
eyrun við pólitískum áróðri gætu
haldið annað. Meðalaldur lands-
manna eykst og sífellt koma til ný
dýr lyf og tækjabúnaður, sem nútí-
malæknisþjónusta getur ekki verið
án, eigi hún ekki að verða Jakari
hér, en þar sem hún er best. Áfram
er tryggt að ísiensk heilbrigðisþjón-
usta verður í fremstu röð meðal
þjóða. Slíkri stöðu er hægt að halda
þótt þess sé gætt að útgjaldaþensla
þessa málaflokks keyri ekki þjóðfé-
lagið á hliðina. Sömu sögu er að
segja um mál er lúta forræði
menntamálaráðuneytisins. Það er
enginn ágreiningur um það hér á
hinu háa Alþingi að tryggja æsku
landsins sem best tækifæri til
menntunar, enda er hún helsta for-
senda framfara og velmegunar þjóð-
arinnar. En á hinn bóginn er einnig
líklegt, að allir þeir stjórnmálaflokk-
ar og samtök, sem hér eiga fulltrúa,
vilji í lengstu lög forðast að safna
ríkisskuldum nú, þegar að hagur er
tekinn að vænkast, skuldum sem
ungviði landsins er ætlað að greiða
þegar það kemst á fullorðinsár. Því
var ljóst, að það þurfti að koma til
kasta menntamálaráðuneytisins sem
og annarra ráðuneyta, sem fara með
viðkvæma málaflokka, þegar að nið-
urskurði kæmi, ef framangreindum
markmiðum fjárlaganna skyldi ná.
Við flutning grunnskólans til sveit-
arfélaganna var auknu fjármagni
veitt til þess skólastigs. Háskólastig-
ið var ekki talið aflögufært, en á
hinn bóginn mætti gera ráðstafanir
til sparnaðar á framhaldsskólastigi.
Vonandi verður tekið málefnalega á
því vandasama verki, jafnt hér á
Alþingi, sem og hjá þeim aðilum
öðrum, sem að málinu koma. Nú er
unnið að endurskoðun á námsskrám
grunn- og framhaldsskóla, sem er
stórverkefni og liggur mikið við að
það takist vel. Á þeim nýja grunni
á að treysta inntak og gæði íslenskr-
ar menntunar. Heilbrigðismál og
menntamál feru útgjaldafrekir iiðir í
ríkisrekstrinum enda er almennur
vilji til þess í þjóðfélaginu, að skatt-
greiðendur leggi mikið á sig, til þess
að halda þar uppi háu þjónustustigi.
Auðvitað má hið sama segja um fjöl-
marga aðra þætti ríkisrekstursins.
Áskoranir um aukin útgjöld berast
úr öllum áttum, og hverjum og ein-
um þykir sín krafa hin eina og sanna
réttlætiskrafa. Engin ástæða er til
að gera lítið úr þess háttar óskum
eða hafa þær í flimtingum. En það
heyrast einnig aðrar raddir, sem
kannski eru ekki settar fram með
jafnmiklum þunga og hávaða. Það
er nefnilega einnig vaxandi krafa
frá öllum almenningi að ráðdeildar
sé gætt og skuldum ekki safnað og
sú krafa hlýtur einnig að ná eyrum
okkar þingmanna, enda hefur þjóðin
ekki ráð á að framhjá henni sé litið.
Herra forseti,
Það hefur mikill árangur náðst í
íslenskum þjóðarbúskap á undan-
förnum árum. Hagvöxtur hefur ver-
ið mikill, verðbólga mjög í hófi, at-
vinnuleysi fer minnkandi og lífskjör
batna. Samkvæmt þessum mæli-
kvarða er ísland í hópi þeirra aðildar-
þjóða OECD, sem bestum árangri
hafa náð að undanförnu.
í þjóðhagsáætlun er vikið að þeim
fjórum atriðum, sem einkum geti
skýrt þessa jákvæðu þróun. í fyrsta
lagi, er bent á þær víðtæku umbæt-
ur, sem gerðar hafa verið í íslenskum
efnahagsmálum á undanförnum
árum og þar nefnt til sögunnar efl-
ing markaðsbúskapar, opinn fjár-
magnsmarkaður og aðiid að evr-
ópska efnahagssvæðinu. I öðru lagi
hafi tekist að tryggja stöðugleika
og jafnvægi í þjóðarbúskapnum og
í þriðja lagi hafi vaxið skilningur á,
að laga þurfi rekstur þjóðfélagsins
að þeim skilyrðum, sem það býr við
á hveijum tíma og í fjórða lagi hafi
ytri skilyrði lagst á sveif með inn-
lendum skilyrðum. íslendingar hafi
með öðrum orðum búið hagkerfi sitt
undir batnandi hag.
Einkavæðingu haldið áfram
Það er enginn bilbugur á ríkis-
stjórninni að halda áfram á sömu
braut og á kjörtímabilinu verður
komið í verk áformum um að breyta
eignarformi ríkisfyrirtækja og auð-
velda einstaklingum og fyrirtækjum
að eignast í þeim hlut. Ríkið hefur
hvorki ástæðu né þörf á að standa
í rekstri í beinni samkeppni við ein-
staklinga og fyrirtæki þeirra. Á síð-
ustu árum hefur í fyrsta sinn verið
gengið skipulega til slíkra verka. Á
þeim tíma voru seldir hlutir ríkis-
sjóðs í fyrirtækjum fyrir rúmar 2000
milljónir króna. Sérstök fram-
kvæmdanefnd annast stefnumótun
á sviði einkavæðingar og sitja í henni
auk mín, utanríkisráðherra, fjár-
málaráðherra og viðskiptaráðherra.
Hefur ríkisstjórnin samþykkt tillög-
ur nefndarinnar um nýjar reglur um
framkvæmd einkavæðingar. Nýlega
voru hlutabréf ríkissjóðs í Jarðbor-
unum hf., seld fyrir 160 milljónir
króna, en í fjárlögum yfirstandandi
árs var gert ráð fyrir að heildartekj-
ur af sölu eigna yrðu 100 milljónir
króna. Sala á hlutabréfum í Sem-
entsverksmiðjunni hf., Áburðai'verk-
smiðjunni hf., Skýrr hf., og Bifreiða-
skoðun íslands hf., er nú í undirbún-
ingi. Þá er unnið að því að breyta
Póst- og símamálastofnun í hlutafé-
lag, sem að gert er ráð fyrir að taki
til starfa um næstkomandi áramót.
Samkeppni á sviði símaþjónustu
verður gefin fijáls í flestum ríkjum
Evrópu hinn 1. janúar 1998 og má
gera ráð fyrir mikilli breytingu á
samkeppnisumhverfi símafyrirtækja
frá og með þeim tíma. Símafyrir-
tæki í Evrópu eru í óða önn að und-
irbúa sig fyrir umskiptin. Þeim hefur
flestum verið breytt í hlutafélög og
hafa myndað með sér þqu megin
bandalög ásamt öflugum bandarísk-
um símafyrirtækjum. Norski, danski
og finnski síminn tilheyra einu slíku
bandalagi og sænski síminn öðru.
Það er yfirlýst stefna allra þessara
fyrirtækja að hasla sér völl utan
heimalanda sinna. Norrænu fyrir-
tækin skilgreina Norðurlöndin öll
sem hluta af sínum heimamarkaði.
Það er því afar mikilvægt að gera
Pósti og síma kleift að mæta þeirri
samkeppni, sem framundan er, en
það verður aðeins gert með því að
breyta fyrirtækinu í öflugt hlutafé-
lag, sem getur brugðist við nýjum
aðstæðum með skjótum og skilvirk-
um hætti. En jafnframt verður að
gæta þess, að ný fyrirtæki á þessu
sviði hér á landi fái svigrúm og oln-
bogaiými og að þau búi við eðlileg
og sanngjörn samkeppnisskilyrði.
íslenskt atvinnulíf verður ávallt að
eiga völ á eins fullkomnum og hag-
kvæmum fjarskiptum og best gerist
í öðrum löndum og eiga aðgang að
fullkomnustu tækni á hveq'um tíma.
Á þessu veltur framtíð okkar í hinni
tölvuvæddu upplýsingaveröld.
í stefnuyfírlýsingu ríkisstjórnar-
innar segir m.a. að áhersla verði
Iögð á að breyta rekstrarformi ríkis-
viðskiptabanka og íjárfestingarlána-
sjóða. Hvort tveggja er nú í undir-
búningi. Að því er varðar fjárfesting-
arlánasjóðina er markmiðið að
tiyggja atvinnulífinu aðgang að
langtímafjármagni á markaðskjör-
um á sem hagkvæmastan hátt og
að tryggja atvinnulífinu aðgang að
fjármagni til nýsköpunar og þróun-
ar. Skilyrði er, að fyrirtæki í hvaða
atvinnugrein sem er, eigi jafnan
aðgang að slíku fjármagni, hvort
sem er til fjárfestingar eða nýsköp-
unar.
Sjóðakerfið hefur um langt skeið
verið hólfað niður eftir atvinnugrein-
um og það hefur staðið starfsemi í
nýjum greinum fyrir þrifum. Þessu
verður því að breyta. Nauðsynlegt
er að eiga samráð um þær breyting-
ar við fulltrúa þeirra atvinnugreina
sem helst tengjast núverandi sjóða-
kerfi. Það má hins vegar ekki koma
í veg fyrir það að nýtt kerfi verði
öllum opið. Nýtt sjóðakerfi þarf að
skoða í nánu samhengi við banka-
kerfið, en ríkisbönkunum verður
breytt í hlutafélög með löggjöf á
þessu þingi. Samspil banka og sjóða
er margslungið og verður að leita
þar hagkvæmustu lausna og líta um
leið til annarrar samkeppni á lána-
markaði. I fyrirhugaðri uppstokkun
sjóðakerfisins er æskilegt að taka
strax verulegt skref í þá átt að draga
úr umsvifum ríkisins í lánakerfinu
og minnka þannig hlut þess í at-
vinnulífinu.
Sanngirni og ábyrgð í
kjarasamningum
Herra forseti,
I áætlunum ríkisins er nú byggt
á því, að hagvöxtur verði um 2,5%
á komandi ári og áþekkur á næstu
árum þar á eftir. Er þetta mun minni
hagvöxtur en varð á þessu ári. Þá
er því spáð, að verðbólgan verði um
2%. Segja má, að vel muni til takast
fyrir þjóðina, ef þetta gengur eftir.
En hafa verður í huga, að langflest-
ir kjarasamningar eru lausir um
næstkomandi áramót. Engum blöð-
um er um það að fletta, að atbeini
aðila á vinnumarkaði á góðan hlut
í þeim umskiptum til hins betra, sem
orðið hafa á Islandi. Gera verður ráð
Það er enginn vaf i á, að stór þáttur í of-
veiði í heiminum er sú mikla opinbera að-
stoð sem sjávarútvegi er víðast hvar veitt