Morgunblaðið - 03.10.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 35
AÐSENPAR GREINAR
Menntaþing náms-
manna — Til móts
við breytta tíma
LAUGARDAGINN
5. október stendur
menntamálaráðherra
fyrir menntaþingi í Há-
skólabíói undir yfir-
skriftinni Til móts við
nýja tíma. Náms-
mannahreyfingunni
finnst mjög jákvætt að
menntamálaráðherra
blási til menntaþings.
Námsmenn hafa nefni-
lega lagt sig fram við
að efla málefnalegar
umræður um mennta-
mál. Nú hefur hins veg-
ar komið upp ágreining-
ur milli menntamála-
ráðherra og
nams-
manna. Ágreiningurinn snýst um það
hvort stúdentar og aðrir námsmenn
eigi að taka þátt í umræðunni um
menntamál. Námsmenn telja tví-
mælalaust að svo eigi að vera og
kemur á óvart að ráðherra virðist
vera annarrar skoðunar. Það eru
auðvitað margar leiðir til að stjórna
fyrirtæki, skóla eða landi. Ein leiðin
er að taka mið af skoðunum neyt-
enda, nemenda og kjósenda. Þetta
er gjaman kölluð hin lýðræðislega
leið. Svo er til önnur leið sem er að
stjómendur fari sínu fram og hlusti
bara á þá sem þeir vilja hlýða á en
skelli skollaeyrum við skoðunum
hinna. Þetta er sú leið sem á að fara
á menntaþingi menntamálaráðherra.
Þar á t.d. að ijalla um menntun og
jafnrétti án þess að minnast einu orði
á Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þar
á að tala um gæði í skólakerfmu án
þess að leita eftir áliti einhvere sem
situr á skólabekk. Og þar á að tala
um framtíðina - nýja tíma án þátt-
töku þeirra sem eru framtíðin.
Námsmönnum úthýst?
Geta námsmenn sagt með réttu
að þeim sé úthýst á menntaþingi
menntamálaráðherra? Aðeins einn
námsmaður er meðal 59 ræðumanna
á þinginu og hann á að tala um dóp.
Það gefur augaleið að samskipti
námsmanna við menntakerfið eru
meiri og margslungnari en það við-
fangsefni gefur vísbendingu um.
Þegar farið var fram á að námsmenn
tækju meiri þátt í störfum þingsins
fengust þau svör að dagskránni yrði
ekki breytt. Námsmannahreyfing-
arnar hugðust þá standa fyrir mái-
þingi í sal fimm í Háskólabíói, en
hann er ekki í notkun fyrri hluta
dagsins. Það hefði líklega verið besta
lausnin úr því sem komið var.
Menntamálaráðuneytið hafnaði því
og kom i veg fyrir að námsmenn
gætu fengið salinn að láni. Náms-
mannahreyfingunni var hins vegar
boðið að setja upp kynningarbása
fyrir framan klósettin í kjallara bíós-
ins. Okkur var úthýst.
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Tjaldþing
námsmanna
I stað þess að fyrtast
við og leggja árar í bát
hefur námshreyfingin
ákveðið að halda eigið
menntaþing þar sem
okkur hefur verið ætl-
aður staður - úti í
kuldanum. Tjaldi verður
komið upp í nágrenni
Háskóiabíós og þar
munu fulltrúar náms-
manna ræða þau meg-
inmál í menntastefnu
stjórnvalda sem nauð-
synlegt er að ræða, en
mörg þessara mála
komast ekki fyrir í dagskrá mennta-
þings menntamálaráðherra fremur
en námsmenn. Gripið er til þessa
Okkur var úthýst á
menntaþingi, segir Vil-
hjálmur H. Vilhjálms-
son, sem hér boðar
„Tjaldþing námsmanna“.
ráðs svo að rödd námsmanna, neyt-
enda menntakerfisins, heyrist og til
að lykilmál í menntaumræðunni, sem
urðu útundan á menntaþingi ráðherr-
ans, gleymist ekki. Þá vilja náms-
menn ekki bregðast þeirri lýðræðis-
legu skyldu sinni að láta í ljós skoð-
anir sínar, ábendingar, tillögur og
stefnu í málum sem standa þeim
næst, en varða þjóðina alla.
Meginefni menntaþings náms-
manna eru: í fyrsta lagi. Fjárframlög
til menntamála, en nær engin ný lög
á sviði menntamála hafa komið að
fullu til framkvæmda undanfarin ár.
í öðru lagi. Hlutur námsmanna í
þróun menntakerfisins, en náms-
menn hafa gegnt lykilhlutverki í
mörgum þeim málum sem til framf-
ara hafa leitt í menntamálum á Is-
landi allt frá því er stúdentar sömdu
fyrsta frumvarpið til laga um LIN,
til jafningjafræðslu framhaldsskóla-
nema gegn vímuefnum. í þriðja lagi.
Lánasjóður íslenskra námsmanna, en
þar verður leitast vð að svara þeirri
spurningu hvort núgildandi lög um
LÍN tryggi jafnan aðgang að mennt-
un óháð búsetu og efnahag.
Með þessu framtaki vill náms-
mannahreyfingin leggja sitt lóð á
vogarskálarnar í málefnalegri og
mikilvægri umræðu úm menntamál.
Til móts við breytta tíma.
F.h. formanna námshreyfinganna.
Höfundur er formaður
Stúdentaráðs Háskóla Islands.
svahr
KDPHUQDI
Penthouse-íbúðir
• Þvottaherfoergi í íbúð • Sturta og baðkar • Sjónvarpshol
632353
3ja til 6 herbergja ibúðirj
Skóli, íþróttamannvirki og verslanamiðstöðvar
í þægilegu göngufæri.
Greið leið er úr hverfinu inn á aðalumferðar-
æðar; þ.e. Reykjanesbraut, Breiðholtsbraut og
Arnarnesveg.
Ymist suður eða vestursvalir.
Sambland litaðra og spónlagðra
flata einkenna innréttingar.
BYGG
BYGGINGAFÉLAG
GYLFA OG GUNNARS
Ibuðir an golfefna en flisar a
baði og þvottahúsi.
Varanlegur utanhussfragangur.
Söluaðilar:
FJARFESTIHG
FASTílGNASALA'rf
31
Sími
562
4250
BIFROST
fastmghmma
Vegmula 2 • Simi 533-3344
Ibúðimar verða afbentar i júlí 9T
Aukaherbergi í kjallara
fylgja íbúðum á jarðhæð
Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. Á sláturmarkaði
GOÐA, Kirkjusandi v/Laugarnesveg, færðu Borgamesslátur og
Búðardalsslátur og einnig nýtt kjöt og innmat á góðu verði.
Sláturmarkaður GOÐA er opinn mánudaga
til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14.