Morgunblaðið - 03.10.1996, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
AÐSEIMDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Yestfirskir vegir
— vestfirskur vilji?
NU NYVERIÐ voru
hin glæsilegu göng
undir Breiðadals- og
Botnsheiði formlega
vígð og þar með að
mestu lokið við að
tengja byggðir á norð-
anverðum Vestfjörð-
um varanlega saman.
***■ Að sögn samgöngu-
ráðherra, Halldórs
Blöndal, er næsta
stórverkefni í vega-
gerð á Vestfjörðum að
bæta leiðina um ísa-
fjarðardjúp og tengja
með því byggðirnar á
norðanverðum Vest-
fjörðum við aðra hluta
Jónas
Guðmundsson
landsins, þá að ráðast í veginn
austur Barðastrandarsýslu, og loks
að tengja saman byggðirnar í Vest-
ur-Barðastrandarsýslu og á
norðanverðum íjörðunum. Vissu-
lega eru þetta góð tíðindi fyrir þá
sem búa á norðanverðum Vest-
fjörðum, a.m.k. norðan Breiðadals-
heiðar og í samræmi við vilja
margra sem þar búa, en á fleira
er að líta. Vestanvert á sunnan-
verðum fjörðunum búa um 1.700
manns við þær einstæðu aðstæður
á fastalandinu að vera flesta vetur
vegasambandslausir við aðra hluta
VERÐIÐ!
Léttir og meðfærilegir
Ræstivagnar
NICK
Sterkur og léttur ræstivagn
úr heilsteyptu plasti með
Rilsan handfangi. NICK
vagninum fylgia pressa og
tvær 15 Itr. fötur.
MINI
Tveggja hólfa ræstivagn fyrir
stofnanir og heimili.
• Mlkiö úrval ræstlvagna,
• Margar togundlr moppa.
• Alvöru JJ moppuvagnar.
t Góð verð og þjónutta
Besta ehf., Nýbýlavegi 18,
Kópavogi. Sfmi 564 1988
Útibú Suðurnesjum:
Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 421 4313
landsins nokkra mán-
uði ár hvert og þurfa
því að treysta á flug
og feijusiglingar.
Þann tíma sem opið
er eru vegir víðast
þannig að líkast er að
komið sé áratugi aftur
í tímann. Er til.efs, að
íbúar þar láti sér þetta
ástand lynda öllu leng-
ur. Ekki síst í ljósi
þess, að þegar á næsta
ári verður opnað fyrir
umferð með vegfyll-
ingu og brú yfir Gils-
fjörð. Með þeirri fram-
kvæmd, hinum nýju
Vestfjarðagöngum og
væntanlegum göngum undir Hval-
fjörð, sem tekin verða í notkun
1998, má segja að nýjar víddir
opnist í vegasamgöngum á Vest-
fjörðum og milli Vestijarða og
höfuðborgarsvæðisins. Því þykir
rétt að hreyfa þeirri hugmynd að
þeim fjármunum, sem fara eiga i
þá u.þ.b. 120 km sem eftir eru til
að fullgera veginn um ísafjarðar-
djúp, verði þess í stað varið í svo-
nefnda vesturleið, eða leiðina frá
Þingeyri í Flókalund í Vatnsfirði
og áfram þaðan austur Barða-
strandarsýslu áleiðis að núverandi
vegslóða yfir Þorskaijarðarheiði.
Kostnaður
Áætlað hefur verið að kostnaður
við að ljúka uppbyggingu vegar
um Ísaíjarðardjúp sé vart undir
1.500 milljónum kr. Þá er ótalinn
kostnaður við veg yfir Þorskaijarð-
arheiði, sem hlýtur að liggja beint
við að leggja í framhaldi af Djúp-
vegi til að brúin yfir Gilsijörð nýt-
ist, og einn og sér mun kosta 400
til 450 milljónir kr. samkvæmt því
sem samgönguráðherra segir í
grein í Morgunblaðinu 21. október
á liðnu ári.
Vegur vestur Barðastrandar-
sýslu til Vatnsijarðar mun kosta
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 5112200
Ef íbúar við norðan-
verða og sunnanverða
Vestfirði standa saman,
segir Jónas Guð-
mundsson, má leysa
samgönguvandann á sjö
til átta árum.
um 1.200 til 1.300 milljónir kr.
samkvæmt tilvitnaðri grein.
Oljósara er hvað vegur frá Þing-
eyri yfir í Arnarfjörð og þaðan
yfir Dynjandiheiði mun kosta.
Flestir sem til þekkja eru líklega
sammála um að ekki verði með
góðu móti komist yfir Hrafnseyrar-
heiði að vetri og því sé ekki annað
ráð en að grafa göng. Til eru hug-
myndir um 4,7 km göng innarlega
í Dýrafirði og ef miðað er við sama
verð á kílómetra og áætlað var í
Breiðadals- og Botnsheiðar-
göngum áður en vatnslekavanda-
mál þar komu til, má áætla að þau
kosti ekki yfir 2.000 milljónum kr.
með vegum að Mjólkárvirkjun í
Arnarfirði, en við þau styttist leið-
in um 26 km. Frá Mjólkárvirkjun
yfir Dynjandiheiði í Vatnsfjörð eru
nú 36 km. Gera má ráð fyrir að
heilsársvegur þá leið kosti allt að
600 milljónir kr. ef miðað er við
sama kílómetraverð og á Þorska-
fjarðarheiði samkvæmt grein sam-
gönguráðherra. Heildarkostnaður
við þessa leið og áfram austur
Barðastrandarsýslu er þvi gróft
áætlað 3.800 milljónir. Til eru hug-
myndir um að fara lengri en ódýr-
ari leiðir milli Þingeyrar og Flóka-
lundar, en ekki verður farið nánar
út í þær hér, auk þess sem fast-
lega má gera ráð fyrir að með
aukinni verkþekkingu og tækni
yrði þessi leið í raun ekki eins
kostnaðarsöm og hér er áætlað.
Heildarkostnaður samkvæmt
framansögðu við leiðina um Djúp
og Þorskafjarðarheiði verður um
1.900 milljónir kr. og svipað við
vesturleiðina ef göng eru frátalin.
Þar sem ganga þykir mega út
frá þeim orðum samgönguráð-
herra, að það sé yfirleitt á dagskrá
þegar þar að kemur að tengja
byggðirnar á sunnan- og norðan-
verðum Vestfjörðum saman og þar
með að gera heilsársleið milli Dýra-
ijarðar og Arnarljarðar ætti sá tími
sem það tekur að byggja upp vest-
urleiðina frá Arnarfirði austur eft-
ir Barðastrandarsýslu að nýtast til
að velja hagkvæmasta kostinn. Á
sama tíma þyrfti að leggja kapp á
I tilefni 10 ára afmælis Aifaborgar bjóðum
nýjar flísar á sérstöku afmælistiiboði i' okt
Verödæmi: Verð: Tilboö;
Gólfflísar 30x30 1650 mz 1240 m:
Gólfflísar 20x20 1670 m2 1336 m:
Veggflísar 15x20 1765 m2 1412 m;
Veggflísar 20x25 1950 m2 1560 rrv
.
Bolungarvík^,
NSuðureyri ■ ,
\ ísafjorður ^
Flateyri J
\ Súðavík^ a
Mjóifjörbur
-r- ísafjörbur
Þingeyri
Steingríms-
fjarbarheibi
Bíldudalur
Dynjandi
heibi
Tálknafjörður,
atreksfjörður
Þorska-
fjarbar-
heibi
Hólmavíkj®
Flókalundur
•baströnd
Reykhóiar
Hornstrandir
Ný jarbgöng undir
Breibadals- og
Botnsheibar
/o
Hrafns
eyrar
heibi
Baröastrandarsýslur. . tc’Mörí,ur
> Saurbær
að halda Hrafnseyrarheiði opinni
og ætti það ekki að reynast veru-
lega erfiðara en að halda Breiða-
dals- og Botnsheiði opnum.
Það sem sparast
Verði þessi leið farin sýnist til
lengri tíma litið mega spara veru-
lega ijármuni þar sem ekki verður
séð að nein knýjandi þörf verði
yfirleitt á að leggja í mikinn kostn-
að við endurbætur á veginum um
ísaijarðardjúp, ekki þyrfti að
leggja fé í veg um Þorskafjarðar-
heiði í bráð auk þess sem mjög
ætti að draga úr þörf fyrir ferju-
siglingar yfir Breiðafjörð en sú
ferja sem nú er í förum kostaði á
sínum tíma um 400 milljónir kr.
Annar ávinningur
Lítið eitt styttra er fyrir íbúa
Isafjarðar og nágrannabyggða,
nema Súðavíkur, að aka vestur-
leiðina til Suðvesturlands þangað
sem flestir eiga óneitanlega leið,
en með göngum milli Dýrafjarðar
og Arnarfjarðar, Gilsfjarðarbrú og
Hvalfjarðargöngum yrði leiðin til
höfuðborgarinnar um 440 km en
Djúpleið yfir Eyrarfjall og um Þor-
skafjarðarheiði um 450 km. Frá
Þingeyri yrði vesturleiðin innan við
400 km en leiðin um Djúp tæpir
500 km. Samgangur innan íjórð-
ungsins yrði allur annar_ og öll
samvinna ætta að eflast. Ódýrara
er að reka og halda einum vegi
en tveimur opnum yfir veturinn á
löngum leiðum. Auðveldara ætti
að vera að halda úti almennings-
samgöngum á þessari leið og veita
öryggisþjónstu þar sem fleiri væru
á ferð. Leiðin um Barðastrandar-
sýslu austanverða býður upp á tals-
verða möguleika á styttingu þar
sem firðir eru víða grunnir, en slíkt
er víðast útilokað í Isaíjarðardjúpi.
Þeir miklu fjármunir sem bundnir
eru í Breiðadals- og Botnsheiðar-
göngunum og brúnum á Önundar-
og Dýrafirði nýttust miklu betur.
Loks verður að telja miklar líkur
á því, að framkvæmdum miði hrað-
ar en nú stefnir í ef hinir rúmlega
7.000 íbúar norðan- og sunnan-
verðra ijarðanna sameinast um að
knýja á um þessa leið fremur en
að bítast um það vegafé sem til
skiptanna verður.
Landsamgöngur eru framtíðin
Þótt það verði afar ijárfrekt að
laga þá vegi sem þarf til að tengja
byggðir á Vestfjörðum við hring-
veginn að kröfum nútímans, hvaða
leið sem farin verður, er að fleiru
að hyggja. Það hefur sýnt sig og
á eftir að koma enn betur í ljós
með hinum nýju samgöngumann-
virkjum sem nú þegar eru eða senn
verða til staðar og fyrr voru nefnd,
að íbúar á Vestfjörðum sem ann-
ars staðar á landinu, treysta æ
meira á landsamgöngur. Brátt
geta nánast allir landsmenn nema
íbúar Vestfjarða og sumra staða á
Norðausturlandi ekið árið um kring
milli heimabyggðar og höfuðborg-
arinnar á bundnu slitlagi og þekkja
vart annað. Það má því fastlega
gera ráð fyrir að skilningur skatt-
greiðenda og fjárveitingavaldsins
fari vaxandi á því að sérstaks átaks
er þörf á þessum stöðum til að
færa vegakerfið til samræmis við
það sem það er nú þegar víðast
annars staðar á landinu. Forseti
íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, hefur þegar lagst á þá
sveif. Þeim sem þessum málum
ráða, þ.e. íbúum svæðisins og
kjörnum fulltrúum þeirra, ber því
skylda til að velja hagkvæmasta
kostinn litið til lengri tíma og mið-
að við heildarþarfir. Ef íbúar sunn-
an- og norðanverðra Vestijarða
bera gæfu til að sameinast um
þessi áform í stað þess að vilja
fara hver sína leið má telja senni-
legt að nær allir íbúar svæðisins
geti innan sjö til átta ára ekið
hver til annars og til og frá höfuð-
borg sinni á bundnu slitlagi á rúm-
um fimm klukkustundum hvora
leið við bestu aðstæður. Samstilltur
vilji er allt sem þarf.
Höfundur er sýslumaður í
Bolungarvík.
BRETTALYFTUR
ÓTRÚLEGT VERÐ!
CML brettalyftur
eru úrvalsvara
á fínu verði.
Þær eru á einföldum
eða tvöföldum
mjúkum hjólum,
sem ekki skaða gólf.
Verð m/vsk frá
kr. 35.990 stgr.
Hringás ehf.
Langholtsvegi 84, Rvk. S. 533 1330
Mímir
Tómstundaskólinn
Sími: 588 7222 / 588 2299
Fax: 533 1819
GQC Attalus
* Fjölbreytt, vandað úrval af efnum
* Fullkomnar plasthúðunarvélar
* Vönduð vara - betra verð
J. RSTVFHD5SON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavík, simi 533 3535.