Morgunblaðið - 03.10.1996, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR FINNBOGASON,
frá Útskálahamri, Kjós,
Hörðalandi 24,
Reykjavík,
verður jarðsunginn á morgun, föstudaginn 4. október,
frá Bústaðakirkju kl. 13.30.
Pálmi Gunnarsson, Álfheiður Gísladóttir,
Finnbogi Reynir Gunnarsson, Þórdís Egilsdóttir,
Kristfn G. Gunnarsdóttir, Skúli Kristinn Gislason.
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
STURLA JÓNSSON
frá Súgandafirði,
lést að Hrafnistu í Reykjavík 2. október.
Eva Sturludóttir,
Sigrún Sturludóttir,
Kristín Sturludóttir,
Jón Sturluson,
Eðvarð Sturluson,
Guðni Þ. Jónsson,
Þórhallur Halldórsson,
Guðbjörn Björnsson,
Sigurbjörg Björnsdóttir,
Arnbjörg Bjarnadóttir.
t
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞIÐRIK BALDVINSSON,
Þorsteinsgötu 5,
Borgarnesi,
sem lóst á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 26. september, verð-
ur jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn 5. október
kl. 13.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á minningarkort Dvalar-
heimilis aldraðra í Borgarnesi.
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Rebekka Björk Þiðriksdóttir, Viðar Pétursson
og barnabörn.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
sem lést 26. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. október kl. 15.00.
Guðmundur E. Erlendsson, Þurfður Skarphéðinsdóttir,
Kristín G. Guðmundsdóttir, Edvard G. Guðnason,
Skarphéðinn Kristján Guðmundsson,
og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
stjúpamma,
FRIÐFINNA HRÓLFSDÓTTIR,
Laugalæk 58,
Reykjavík,
verður jarðsungin í Dómkirkjunni föstu-
daginn 4. október kl. 13.30.
BJÖRK
RAGNARSDÓTTIR
+ Björk Ragnars-
dóttir fæddist á
Akureyri 5. október
1958. Hún lést á
Landspítalanum 25.
júlí siðastliðinn eftir
skamma sjúkdóms-
legu. Hún ólst upp í
Oddagötunni hjá
foreldrum sinum,
þeim Sigríði
Tryggvadóttur og
Ragnari Pálssyni,
ásamt 11 systkinum
sínum. Fimm af þeim
búa á Akureyri en
hinn helmingurinn
víðs vegar um landið. Einn af
bræðrum Bjarkar, Ævar Ragn-
arsson, fórst með Suðurlandinu
25. mars 1982.
Björk eignaðist Pétur Frið-
rik í fyrri sambúð
16. nóvember
1980. En hann hef-
ur um árabil búið
á Reykjum í Hóla-
hreppi, Skaga-
firði. Hinn 23.
september 1989
gekk Björk í heil-
agt hjónaband með
eftirlifandi manni
sinum, Jóhannesi
Stefánssyni. Heim-
ili stofnuðu þau á
Akureyri og eign-
uðust tvö börn,
Stefán Ævar 13.
maí 1990 og Sigurbjörgu 29.
apríl 1992.
Utför Bjarkar fór fram frá
Akureyrarkirkju 1. ágúst síð-
astliðinn.
Nú er Björk dáin og kemur ekki
framar á heimili okkar hér á Hall-
gilsstöðum, en minningin um hana
lifir, og mun lifa um ókomin ár.
Ég þekkti Björk mjög vel og hafa
þau kynni varað í meira en áratug.
Það sem ég kunni svo vel að meta
í fari hennar var gamansemin og
orðheppnin. Ég vildi óska þess núna
að ég ætti nokkrar setningar niður-
skrifaðar eftir henni, en það hvarfl-
aði aldrei að mér að hún myndi
senn yfirgefa þennan heim. Þegar
hún var lögð inn á Fjórðungssjúkra-
hús Akureyrar fyrir um tveimur
árum segir hún við mig: „Mér hund-
leiðist hérna ... getur þú ekki komið
mér héðan út, og það hið snar-
asta?“ Ég sagðist ekki hafa umboð
til þess, en benti henni á að hún
gæti hresst upp á liðið í kringum
sig. Það þurfti ekki meira, hún skip-
aði mér að sækja nikkuna, sem ég
og gerði, og svo var spilað, sungið
og dansað á deildinni. Ef hún var
niðurdregin vegna mótlætis í lífinu,
sem hún fékk sinn skerf af, þurfti
ekki annað en slá á létta strengi,
og málin reyndust auðleystari.
Það sem gladdi mig mest í fari
hennar var bjargföst trú hennar á
frelsarann Jesúm Krist. Hún þekkti
vel ýmis loforð Ritningarinnar, svo
sem orð Frelsarans í Matt. 11:28:
ÞÓRIR
FRIÐGEIRSSON
+ Þórir Friðgeirs-
son var fæddur
á Finnsstöðum í
Ljósavatnshreppi
14. september 1901.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Húsavikur 23.
september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Friðgeir Kristjáns-
son og Kristbjörg
Einarsdóttir. Þórir
var fimmti í röð
átta systkina, og
eru tveir bræður á
lífi, Ingimar og
Arni, báðir búsettir á Akureyri.
Þórir kvæntist 26. júní 1927
Arnfríði Karlsdótt-
ur frá Túnsbergi, f.
26. júní 1905, d.
1976, dóttir hjón-
anna Onnu Maríu
Árnadóttur og
Karls Einarssonar.
Þórir og Arnfríður
eignuðust sex börn,
en tvö þeirra misstu
þau, stúlku í fæð-
ingu og dreng, Frið-
geir Karl, sem lést
á öðru ári. Hin eru:
1) Anna Maria, f.
24.10. 1929, gift
Sigurði Sigf ússyni
og eiga þau þrjár dætur, Arn-
fríði, Sigríði og Ragnheiði og
Þegar lýk ég lífsins vist,
láttu í mínu spori
gróa mjúkan grænan kvist,
gjöf frá hlýju vori.
(Þ.F.)
Elsku afi, nú hafa leiðir skilist.
Þú ert farinn að hitta ömmu og
börnin ykkar tvö sem guð tók til
sín svo lítil. Við vitum að það hafa
verið ljúfir endurfundir.
Það eru fallegar og bjartar
minningar sem við systkinin eigum
um þig. Fyrst þegar við áttum
Sigrún Pálina Viktorsdóttir,
Viktoría Bryndís Viktorsdóttir,
Haukur A. Viktorsson, Gyða Jóhannsdóttir,
Jóhann Árni Helgason, Jón Ari Helgason.
+
Ástkær faðir minn,
HREIÐAR GUÐJÓNSSON
málarameistari,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Haðarstig 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 4. október kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hans, láti
Heilsugæslusjóð Hrafnistu, Hafnarfirði,
njóta þess.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Róbert Árni Hreiðarsson.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur og fjölskyldum okkar
samúð og hlýhug í veikindum og síðan
við andlát og útför ástkærs drengsins
okkar,
SÆMUNDAR BJARNASONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Flug-
leiða, Dagvistar barna, fjölskyldu okkar,
nágranna og vina, séra Jóns A. Bald-
vinssonar í London, lækna og hjúkrun-
arfólks barnadeildar 12E, Landspítala, Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna og starfsfólks veitingastaða okkar.
Megi góður guð blessa ykkur öll.
Hrafnhildur Ingimarsdóttir, Bjarni Óskarsson,
Sigurgisli Bjarnason, Óskar Björn Bjarnason,
Birta Fróðadóttir,
Ingimar Ingimarsson, Sigriður Sigurgísladóttir,
Auður Sæmundsdóttir, Francisko Domingos,
Óskar Á. Sigurðsson, Karin McQuillan,
Fróði Jóhannsson, Steinunn Guðmundsdóttir,
„Komið til mín, allir þér sem erfiði
hafið og þungar byrðar, og ég mun
veita yður hvíld.“ Hún sagði mér
að Kristur væri sér ávallt nálægur
og sér dytti ekki í hug að koma
nálægt spíritisma, nýaldarrugli eða
öðru þess háttar.
Eitt sinn spurði hún mig hvað
um mann yrði við dauðann. Þá lás-
um við saman 1. Þess. 4:16-17,
en þar er að finna lýsingu atburða,
er Kristur kemur aftur til jarðarinn-
ar í mætti og mikilli dýrð: „Því að
sjálfur Drottinn mun stíga niður
af himni með kalli, með höfuðeng-
ilsraust og með básúnu Guðs, og
þeir, sem dánir eru í trú á Krist
munu fyrst upp rísa.“ Þangað til
sefur hún í dufti jarðar og bíður
komu frelsarans. Það verður stór-
kostlegt að hitta hana aftur á gler-
hafinu mikla fyrir framan hásæti
Drottins (Op. 4:6).
Það er erfitt fyrir Jóa og börnin
að skilja hvers vegna Björk er nú
farin frá eiginmanni og ungum
börnum, en Guð mun gefa full-
komna skýringu á því síðar. Björk
tókst að skapa gott heimili fyrir
fjölskylduna, og það eru engar ýkj-
ur að út frá fjölskyldunni geislaði
andi hjálpsemi, góðvildar og hlýju.
Ég bið Drottin að blessa Jóa og fel
framtíð barnanna í hans hendur.
Jói hefur sýnt það að undanförnu
að hann býr yfir niiklum innri styrk.
Minningin um Björk er í mínum
huga björt og fögur og ég er þakk-
látur fyrir að hafa fengið að kynn-
ast henni og kveð hana með sökn-
uði.
Niðurlagsorð til Jóa og fjölskyld-
unnar eru þessi: „Vertu trúr allt til
dauða, og ég mun gefa þér lífsins
kórónu“ (Op. 2:10).
Skúli Torfason, Hallgils-
stöðum, Hörgárdal.
sjö barnabörn. 2) Kristbjörg
Hildur, f. 31. janúar 1933, gift
Inga Kristinssyni, þau eiga þrjú
börn, Þóri, Kristin og Brynhildi
og sjö barnabörn. 3) Ragnheið-
ur Gríma, f. 2.6. 1939, gift Sig-
urði Friðrikssyni, þau eiga tvær
dætur, Sigurveigu og Þóru
Guðnýju, og fjögur barnabörn.
4) Ingiríður, f. 4.8. 1945, gift
Aðalsteini Skarphéðinssyni,
þau eiga þrjú börn, Arnfríði,
Þóri og Hólmfríði Jónínu, og
fjögur barnabörn.
Þórir starfaði hjá Kaupfélagi
Þingeyinga í 45 ár, þar af sem
gjaldkeri í 38 ár. Jafnframt sá
hann um Bókasafn Suður-Þing-
eyinga í 30 ár og var bókavörð-
ur við safnið í fullu starfi frá
1973-1983. Þórir var einn af
stofnendum Skógræktarfélags
Húsavíkur og sat í bæjarstjórn
Húsavíkur í 12 ár.
Útför Þóris fór fram frá
Húsavíkurkirkju 2. október.
heima hjá ykkur ömmu í Sóibakka
og svo eftir að þú fluttist til okkar
í nýja húsið í Baldursbrekkunni.
Þú varst alltaf til staðar og lést
þér annt um velferð okkar.
Það varst þú sem kenndir okkur
bænirnar okkar, last fyrir okkur
á kvöldin og sagðir okkur sögur.
Og ef eitthvað bjátaði á þá hugg-
aðir þú okkur og þerraðir tárin
með vasaklútnum þínum. Þú fórst
með okkur í gönguferðir, skóg-
ræktarferðir og berjaferðir og
hafðir alltaf tíma fyrir okkur. Og
þegar við vorum að rifja þetta upp
um daginn og sögðumst nú stund-
um hafa verið dálítið óþekk, þá
sagðir þú: „Ég vildi vera ykkur
góður." Og það varst þú svo sann-
arlega.
Við vitum að þú munt áfram
vaka yfir velferð okkar eins og
þú hefur alltaf gert enda þótt þú
hafir kvatt þessa jarðvist. Þú munt
lifa í hjörtum okkar og barna okk-
ar,
Við þökkum góðum guði fyrir
að hafa gefið okkur þig og biðjum
hann að blessa þig og varðveita.
Vertu sæll, elsku afi.
Þín barnabörn
Arnfríður, Þórir
og Hólnifrídur.