Morgunblaðið - 04.10.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 9
Bjargað
úr brenn-
andi íbúð
TVEIMUR mönnum var
bjargað eftir að eldur kom upp
í íbúð á annarri hæð í húsi
við Mávahlíð um fimmleytið
aðfaranótt miðvikudags.
íbúar í risi hússins urðu
eldsins varir og gerðu
slökkviliði viðvart. Tveir menn
voru í íbúðinni og voru þeir
báðir fluttir á Sjúkrahús
Reykjavíkur. Þar fengust þær
upplýsingar að þeir hefðu
fengið reykeitrun, annar
þeirra þó sýnu vægari og
hefði hann fengið að fara
heim í gærmorgun. Hinn
maðurinn reyndist vera með
nokkuð alvarlega reykeitrun.
Samkvæmt upplýsingum
frá Slökkviliðinu í Reykjavík
gekk nokkuð greiðlega að
slökkva eldinn, en talsverðar
skemmdir urðu af sóti og
reyk. Talið er að kviknað hafi
í út frá hljómflutningstækj-
um.
Alþýðubandalagið
Fjölskyldan
og lífskjörin
ÞINGFLOKKUR Alþýðubandalags-
ins og óháðra lagði við þingsetningu
á þriðjudag fram tuttugu þingmál
um „fjölskylduna og lífskjörin“. Þau
eru lögð fram í framhaldi af skýrslu
forsætisráðherra um samanburð á
lífskjörum á íslandi og í Danmörku,
sem gerð var sl. vor að kröfu Alþýðu-
bandalagsins. Meðal þingmálanna
tuttugu ber hæst þingsályktunartil-
lögu um styttingu vinnutímans án
launalækkunar, tvö lagafrumvörp
um niðurfellingu þjónustugjalda í
heilsugæzlu, þingsályktun um jaðar-
skatta og lækkun þeirra, ásamt
fleiru. Þingflokkurinn stendur
óskiptur að flutningi allra þessara
þingmála.
A mánudaginn 7. október mun
fara fram utandagskrárumræða um
fjölskylduna og lífskjörin.
------*—*—*----
• •
Onnur skilta-
brú skemmd
SKILTABRÚ á Vesturlandsvegi
skemmdist mikið í vikunni og þykir
ljóst að stór bifreið hafi rekist upp
undir hana. Þetta er í annað skipti
á fáum dögum sem skiltabrýr
skemmast með þessum hætti, en
viðgerðir eru kostnaðarsamar.
Um síðustu helgi skemmdist
skiltabrúin við Stekkjarbakka á
þennan hátt. Skiltin, sem nú
skemmdust, eru þvert yfir Vestur-
landsveg skammt frá Höfðabakka-
brú. Líklegast er talið að skiltabrú-
in hafi skemmst á tímabilinu frá
kl. 15 á þriðjudag til kl. 7 ámiðviku-
dagsmorgun.
Lögreglan hvetur ökumenn, eða
aðra þá sem veitt geta upplýsingar
um málið, að gefa sig fram.
imiJM’s
Full búð af nýjum vörum.
Ótrúlegt úrval fylgihluta.
2-14 ára aldurshópurinn
fbarnastígurÓ
Skólavörðustíg 8. S. 552 1461
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
NÝBYGGING við Hamraskóla.
Stakir jakkar og dragtir
TESS
v neð;
ncðst við
Dunhaga,
sínii 562 2230
Opið virka daga
kl.9-18, "
laugardaga
kl. 10-14.
aðdáendur
Síðasta sending vetrarins er komin.
Frábært úrval af úlpuni, peysurn, buxum, sokkabuxum,
sokkum, skóm, húfuni og treflum. Allt í stfl.
Verslið meðan úrvalið er.
EN&LABÖRNÍN
Ps. Tilboð: Franskir jogginggallar kr. 2.980.
Bankastræti 10
Tvær nýbyggingar
við grunnskóla
OPNAÐAR hafa verið formlega
nýbyggingar við Hamraskóla og
Ölduselsskóla í Reykjavík. Með
nýrri tæplega þúsund fermetra
viðbyggingu við Hamraskóla er
hann orðinn einsetinn, að undan-
skilinni sérdeild fyrir einhverf
börn sem tók til starfa í haust.
Aðstaða fyrir handmennt og heim-
ilisfræði hefur verið bætt og unn-
ið er að standsetningu tölvuvers
og raungreinastofu. Kostnaður
við viðbygginguna er um 132 millj-
ónir. Samtals eru 19 bekkjardeild-
ir með 380 nemendum í Hamra-
skóla.
í 655 fermetra nýbyggingu
Ölduselsskóla eru sex kennslu-
rými. Auk einnar almennrar
kennslustofu er aðstaða til
kennslu í myndmennt, handmennt
og tónmennt. I tengslum við bygg-
inguna hefur eldra húsnæði, þar
sem fram fer trésmíði og járn-
smíði, einnig verið lagfært. Þar
er meðal annars eldsmiðja, sú eina
sinnar tegundar í borginni. Hún
er notuð til að kenna nemendum
gömul vinnubrögð og viðhalda
verknienningn sem er að hverfa.
Framkvæmdirnar við Öldusels-
skóla kostuðu um 105 milijónir
króna. Nemendur eru 530.
Fimmtán af þrjátíu grunnskól-
um í Reykjavík eru nú einsetnir.
Þrír skólar bættust í þann hóp í
haust; Hamraskóli, Langholtsskóli
og Austurbæjarskóli.
FIB-Tryggingar enn
utan bílabankans
FÍB-Tryggingar, sem hafa hleypt
af stað verðstríði á bílatrygginga-
markaðnum, hefur ekki fengið að-
gang að bílabanka tryggingafélag-
anna, sem er sameiginlegur upplýs-
ingamiðill þeirra.
Að sögn Halldórs Sigurðssonar,
tryggingamiðlara, settu hin trygg-
ingafélögin upp óaðgengileg skil-
yrði fyrir þátttöku FIB-Trygginga
í bílabankanum. Hann sagði samn-
inga um aðildina vera enn í gangi.
Halldór sagði ekkert liggja á; þeir
hefðu nú gert gagntilboð, sem væri
verið að skoða.
Halldór segir fjölda fyrirspurna
almennings um FIB-Tryggingar lítt
hafa dalað; fyrstu dagana hringdu
allt að 3.000 manns á dag, núna
væru það um 1.500 til 2.000 manns.
m
Langur laugardagur
( 15 % afsláttur af öllum skyrtum?)
Opíð
frá kl. 10-16
laugardag.
Full búð af
fallegum vörum
Tilboð af „leggings" og bolum
Opið á laugardag
frákl. 10-17
Dimmalimm
Skólavörðustíg 10, sími 551 1222.
Fólk er alltaf
aðvinna
í Gullnámunnh
79 milljónir
Vikuna 26. sept. - 2. okt. voru samtals 79.638.674 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um alit land. Þetta voru
bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn ailur af öörum
vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður Upphæð kr.
26. sept. Háspenna, Laugavegi 220.576
29. sept. Monaco 409.505
30. sept. Café Royale, Hafnarfirði... 204.788
30. sept. Háspenna, Kringlunni 59.079
1. okt. Háspenna, Laugavegi 173.049
2. okt. Keisarinn 81.328
2. okt. Mónakó 53.351
2. sept. Háspenna, Laugavegi 139.773
2. okt. Háspenna, Hafnarstræti... 69.796
2. okt. Háspenna, Hafnarstræti... 111.307
Staöa Gullpottsins 3. október, kl. 8.00
var 2.970.000 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka siðan jafnt og þétt þar til þeir detta.