Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 17
VIÐSKIPTI
Valujet leyft að fljúga á ný
British Air
heldur
hlut sínum
í USAir
Washington. Keuter.
BREZKA flug-félag’ið British
Airways hyggst ekki afsala sér
hlut sínum í USAir að því er
forstjóri félagsins hefur sagt í
viðtali við Washington Post.
Robert Ayling forstjóri sagði
að hann hefði notað tækifærið
þegar hann hefði sótt fund í
stjórn USAir í Bandaríkjunum
til að upplýsa að British Airways
væri stór hluthafi í USAir og
hygðist vera það áfram.
British Air hefur átt 24,6% í
USAir síðan brezka félagið tók
þátt í að bjarga hinu bágstadda
bandaríska flugfélagi 1993.
USAir reynir að slíta sam-
bandi sínu við British Airways
vegna fyrirætlana brezka flug-
félagsins um bandalag við Am-
erican Airlines.
Ayling sagði í viðtalinu við
Post að hann vildi að USAir
yrði aðili að markaðsbandalagi
því sem British Airways og
American Airlines hygðust koma
á fót, en vildi ekki útskýra hvaða
hlutverki USAir gæti gegnt.
Slæmt útlit
hjá Saab
París. Reuter.
SÆNSKI bílaframleiðandinn
Saab kemur ekki slétt út í ár
og verið getur að hann skili ekki
hagnaði 1997 að sögn Roberts
Hendrys aðalframkvæmda-
stjóra.
VALUJET flugfélagið hefur fengið
leyfi bandaríska samgönguráðu-
neytisins til að hefja aftur áætlun-
arflug eftir þriggja mánaða flug-
bann, sem var fyrirskipað af ör-
yggisástæðum eftir flugslys í maí
þegar 110 létu lífið.
ValuJet hefur aftur áætlunar-
ferðir strax, en með færri vélum
og til færri borga. Áður en flug-
mest seldu fólksbila-
tegundirnar í Br frá
jan.- sept. 1996 fyrra ári
Fjöldi % %
1. Tovota 1.265 19,7 +14,0
2. Volkswaqen 828 12,9 +40,1
3. Nissan 583 9,1 -16,8
4. Hyundai 506 7,9 +4,1
5. Mitsubishi 431 6,7 +84,8
6. Subaru 414 6,5 +116,9
7. Suzuki 397 6,2 +78,1
8. Opel________374 5,8 +34,5
9. Ford________294 4,6 +245,9
10. Renault 268 4,2 +20,2
11. Honda 152 2,4 +90,0
12. Volvo_______123 1,9 -33,9
13. Masda 114 1,8 +5,0
14. Skoda 106 1,7 -13,6
15. Lada_________79 1,2 -34,2
Aðrarteg. 479 7,5 +20,4
Samtals 6.413 100,0 +24,8
Tölur
misrituðust
í töflu yfir 15 mest seldu fólksbíla-
tegundirnar sem birtist á viðskiptas-
íðu í gær komu fram rarrgar tölur
yfir sölu á nokkrum tegundum. Tafl-
an birtist því hér að nýju með leiðrétt-
um tölum um leið og beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
bannið kom til var félagið í örum
vexti og bauð upp á ódýr fargjöld
með 51 flugvél á leiðum til margra
borga í suður- og suðusturríkjum
Bandaríkjanna.
Ekki er vitað með vissu um or-
sakir slyssins í Flórída Everglades
11. maí, en talið að sprenging
kunni_ að hafa orðið í súrefnistækj-
um. í flugbannsskipun FAA var
fundið að ýmsu í sambandi við
rekstur félagsins og það skilyrði
sett fyrir því að banninu yrði af-
létt að umræddir ágallar yrðu lag-
færðir.
Munu mæta samkeppni
Sérfræðingar segja að ValuJet
muni mæta nýrri og harðri sam-
keppni Delta og Southwest Airli-
nes þegar félagið taki aftur til
starfa. Lág fargjöld félagsins fyr-
ir flugbannið höfðu valdið Delta
og fleiri félögum erfiðleikum.
Nýtt félag Delta, Delta Express,
býður upp daglegar ferðir með 25
Boeing 737-200 þotum frá 10
borgum í norðurríkjunum til Or-
lando og fjögurra annarra staða
á Flórída.
Nýtt frá PROFUTURA
Ekki fjárfesta bara í andlitinu.
Upplifðu nýja tilfinningu með líkams- og
baðlínunni frá PROFUTURA.
PROFUTURA andlits- og augnkremið með
NANOPART hefur lengið verð talin besta
lausnin á hrukkum og ótímabærri öldrun í andlitunu.
Húðlínan frá PROFUTURA inniheldur dýrmætt
NANOPART fyllt með mjög áhrifaríkum
Sea Buckthorn olíum, sem MARBERT eru fyrstir
til að nota í NANOPART, en það fer í dýpri lög
húðarinnar þar sem áhrifin eru mest.
PROFUTURA nærir og mýkir húðina, hún
veróur stynnari, teygjanlegri og glansandi falleg.
Hvert krem fyrir sig hefur sjálfstæða eiginleika,
þess vegna verður
PROFUTURA serían ennþá áhrifaríkari.
PROFUTURA húðvörur,
þú sérð og finnur áhrifin.
MARBERT
frábæru verði
Notaðir bílaleigubílar
af árgerð 1996 til sölu á
NOTAÐIR BfLAR
SUÐURLANDSBRAUT 12, SlMI: 568 1200 beint 581 4060
Bílarnir eru allir í fyrsta flokks
ástandi og þeim hefur aðeins
verið ekið u.þ.b. 20.000 km.
Þeir hafa fengið 15.000 km
þjónustuskoðun hjá B&L og
eiga eftir rúmlega tvö ár í
verksmiðjuábyrg. Kaupendum
bjóðast lánskjör til allt að 5 ára.
Verð miðað við beina sölu:
Hyundai Accent Ll 4 dyra
820^000 kr.
Hyundai Accent LSI 5 dyra, vökvastýri
880.000 kr.
Renault 19 RN 4 dyra, vökvastýri
980J)00kr
Renault Twingo 3 dyra
730.000 kr.