Morgunblaðið - 04.10.1996, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996______________________________________ ___________________MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Arafat Palestínuleiðtogi tjáir sig um leiðtogafundinn í Washinglon
Framtíð friðarferlis undir
viðbrögðum Israela komin
Rabat, Jerúsalem, Damaskus, Kaíró. Reuter.
Reuter
Mótmæli í
Baskahéruðum
YASSER Arafat, forseti Palestínu-
manna, sagði í gær í Saudi-Arabíu
að ísraelar yrðu að hlíta ákvæðum
friðarsamninganna út í ystu æsar,
framtíð friðarferlisins væri komin
undir stefnu ísraela. Hann var
spurður hvort hann hefði fengið ein-
hver loforð á leiðtogafundi þeirra
Benjamins Netanyahus, forsætisráð-
herra ísraels, í Washington. „Við
verðum að bíða og sjá hvað setur,“
svaraði Arafat.
Netanyahu hafnaði kröfum Ara-
fats um að loka umdeildum jarð-
göngum í Jerúsalem og kalla þegar
burt ísraelskt herlið frá Hebron eins
og kveðið er á um í friðarsamningun-
um. Palestinuleiðtoginn vék sér und-
an því að svara er hann var spurður
um líkur á frekari fundum með Net-
anyahu. Haldinn yrði fundur hátt-
settra embættismanna deiluaðila á
sunnudag og yrði Dennis Ross,
sendimaður Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, viðstaddur. „Við teljum
Fergie
hættir við
málssókn
London. Reuter.
HERTOGAYNJ AN af Jórvík,
Sarah Ferguson, hætti í gær við
tilraunir til að koma í veg fyrir
útgáfu bókar, sem sagt er að
innihaldi nákvæmar lýsingar á
ástarævintýri hennar og „fjár-
málaráðgjafans“ John Bryan.
Ferguson, oft kölluð Fergie, var
gift Andrési prins, syni Elísa-
betar Bretadrottningar.
Ferguson tók þessa ákvörðun
skömmu áður en taka átti lög-
bannskröfu hennar á bókina fyr-
ir hjá dómara. Hefði málið verið
tekið fyrir, hefði hertogaynjan
neyðst til að koma fyrir dóm sem
vitni og tjá sig um einkalíf sitt.
Bókin kallast „Fergie. Her
Secret Life“ og er eftir Allan
Starke, sem var vinur Bryans.
Kemur hún út 4. nóvember en
samkomulag hefur náðst um að
í henni sé ekkert að finna sem
skaðað geti orðstír bresku kon-
ungsfjölskyldunnar.
GÖNGIN umdeildu í Jerúsalem,
sem urðu kveikjan að átökunum
á hernumdu svæðunum, eru æva-
forn og liggja meðal annars með
Grátmúrnum, mesta helgistað
gyðinga. Eru þau um 490 metra
löng og voru fyrr á öldum notuð
sem vatnsleiðsla. I mörg ár hafa
þau aðeins verið opin í annan
endann eða í gyðingahverfinu i
Jerúsalem. Hinn endinn liggur i
hverfi araba í borginni og opnast
nú við Via Dolorosa.
Borgaryfirvöld í Jerúsalem
segja, að þau hafi viljað greiða
fyrir ferðafólki með því að opna
gangamunnann í arabahverfinu
en nú fara um göngin 70.000
manns á ári en gætu verið
400.000 þegar þau eru orðin opin
í báða enda. Ekki eru þó allir
trúaðir á þessa skýringu og
segja, að yfirvöldin hafi mátt
vita á hveiju væri von. ísraelar
opnuðu gangaendann í araba-
hverfinu 1988 en lokuðu honum
aftur eftir uppþot meðal Palest-
ínumanna.
að Clinton forseti hafi sýnt hugrekki
er hann koma á Ieiðtogafundinum í
Washington til að efla friðarferlið í
Miðausturlöndum," sagði Arafat.
Ekki kom til alvarlegra átaka á
Gaza og Vesturbakkanum í gær eins
og margir höfðu óttast að yrði reynd-
in vegna vonbrigða Palestínumanna
með leiðtogafundinn í Washington.
Viðbrögð í arabaríkjum voru víðast
hvar á sömu lund og var Netanyahu
sakaður um að grafa undan friðar-
ferlinu með óbilgirni.
„Ættu að slíta tengslin“
„Arabar ættu ekki að eyða tíma
sínum í að bíða eftir einhvetjum skila-
boðum frá stjóm Netanyahus," sagði
opinbert málgagn Sýrlandsstjómar,
al-Baath. „Þeir ættu að slíta tengslin
við ísrael og hætta þátttöku í alþjóð-
legum viðræðum [um friðarferlið]".
Ráðamenn í Jórdaníu og Egypta-
landi, ríkjum sem gert hafa friðar-
samninga við ísrael, voru nokkuð
Margir telja, að opnun gang-
anna nú hafi verið bein ögrun
af hálfu ísraelsstjórnar og benda
á, að unnið hafi verið að henni
í skjóli nætur og með fjölmennt
lögreglulið á verði. Hin raun-
verulega ástæða fyrir opnuninni
sé að styrkja það tilkall, sem ísra-
elar gera til yfirráða í allri Jerú-
salem.
Palestínumenn hafa sumir
sagt, að opnun gangamunnans sé
óvirðing viðhelgistaði múslima í
borginni en ísraelar vísa því á
bug og segja, að göngin og um-
ferð um þau komi þar hvergi
nærri. Það er líka rétt enda er
andstaða Palestínumanna fyrst
og fremst byggð á því, að þeir
vilja, að Austur-Jerúsalem verði
mildari og hrósuðu þeir Clinton for-
seta fyrir að reyna að leggja sitt af
mörkum til að leysa deilumar. „Hann
tók áhættu og við metum það mik-
ils,“ sagði háttsettur embættismaður
í Kaíró. Jafnframt var tekið fram að
arabar væru búnir að fá nóg af loforð-
um ísraela, færi svo að athafnir
fylgdu ekki fögrum orðum myndi
friðarferlið renna út í sandinn.
Palestínumenn óttast að ísraels-
stjórn hyggist beita sér fyrir breyt-
ingum á ákvæðum Óslóarsamning-
anna. Athygli vakti í gær að Shimon
Peres, fyrrverandi forsætisráðherra
ísraels, sagði í viðtali við franska
tímaritið Le Nouvel Observateur sem
birtist í gær að Arafat hefði bak við
tjöldin stutt þá ákvörðun Peres að
bíða með að flytja herliðið frá Hebr-
on. Hefði Arafat óttast að öfgasam-
tökin Hamas myndu verða allsráð-
andi í borginni; að sögn Peres voru
90% íbúanna á bandi Hamas.
höfuðborg síns nýja ríkis. Ríkis-
sljórp Verkamannaflokksins vildi
semja um þessi mál eins og kveð-
ið er á um í Óslóarsamkomulag-
inu en ríkisstjórn Benjamins Net-
anyahus er á öðru máli.
Musterishæðin
Þegar komið er inn í göngin
blasir við skilti þar sem segir á
hebresku og ensku, að leiðin liggi
um „fortíð gyðinga í bland við
vonir þeirra um framtíðina".
Leiðsögumaðurinn sýnir fólki
undirstöður Grátmúrsins og
stansar næst við lítinn helli. Þar
var áður sýnagóga og sagt er, að
hún liggi við rætur Musterishæð-
arinnar, þess mikla helgistaðar
gyðinga.
LIÐSMENN sérsveita lögregl-
unnar í Baskahéruðum Spán-
ar, Erzaintza, fjarlægja nokkr-
ar fullorðnar konur sem tóku
þátt í mótmælum við héraðs-
þing Baska í Vitoria í gær.
Fólkið er úr röðum ættingja
LEIÐTOGAR Bosníu og Serbíu
samþykktu í gær að taka upp
stjórnmálasamskipti, auk þess sem
Serbar viðurkenna Bosníu sem eitt
ríki, og Bosníumenn viðurkenna
Júgóslavíu; Serbíu og Svartfjalla-
land, sem arftaka gömlu Júgóslav-
íu. Þetta var niðurstaða fundar
leiðtoganna Alija Izetbegovic og
Slobodans Milosevic, í París í gær.
Lzetbegovic og Milosevic rædd-
ust við í tvígang en snæddu auk
þess hádegisverð með Jaqcues
Chirac Frakklandsforseta í Elysée-
höll. Náðu þeir samkomulagi um
viðskipti, tollabandalag og fullt
ferðafrelsi á milli landanna, sem
felur í sér að ekki þarf lengur árit-
anir er farið er á milli landanna.
„Ég held að við höfum sagt allt
í skjalinu sem undirritað var í dag.
Nú þarf að koma því í fram-
kvæmd,“ sagði Izetbegovic.
„Við höfum stigið mikilvægt
Leiðsögumaðurinn nefndi hins
vegar ekki, að Musterishæðin er
jafn heilög í augum Palestínu-
manna og þar með allra múslima
og gyðinga. Gyðingar segja, að
þar hafi Salómon konungur reist
musterið um 1000 f. Kr. en mú-
slimar trúa því, að á Musteris-
hæðinni eða Haram as-Sharif
eins og þeir kalla hana, hafi
Múhameð stigið til himna á sjö-
undu öld eftir Krist.
Fréttaskýrendur segja, að
ákvörðun Netanyahus um að
opna göngin sé í raun mikill hval-
reki fyrir Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna. Vonir þeirra
um aukna sjálfstjórn og jafnvel
stofnun sjálfstæðs ríkis hafi farið
dvinandi og jafnframt hafi
óánægja þeirra með Arafat og
þá spillingu, sem þrífst í kringum
hann og meðreiöarsveina hans,
farið vaxandi. Ogrun Netanya-
hus sé því kærkomið tækifæri
fyrir hann til að bæta stöðu sína
meðal Palestínumanna.
fanga úr hermdarverkasam-
tökum Baska, ETA, er krefjast
sjálfstæðis Baska. Var þess
krafist að fangarnir afplánuðu
dóma sína í fangelsum í Baska-
héruðunum.
skref í átt að því að koma á fullum
stöðugleika í stjórnmálaástandinu
á svæðinu," sagði Milosevic. „Ég
er algerlega sannfærður um að
okkur mun takast það sem við
ætlum okkur og er í þágu ibúa
Júgóslavíu og Bosníu.“
Sprengjutilræði
við mótorhjóla-
klúbb í Málmey
Fjórir slas-
aðir - tutt-
ugu íbúðir
óíbúðar-
hæfar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FJÓRIR slösuðust, þar af
eitt ungbarn, tuttugu íbúðir
eru óíbúðarhæfar og gluggar
brotnuðu í heilu hverfi, þegar
tíu kílóa sprengja sprakk í
einu af íbúðahverfum Málm-
eyjar í fyrrinótt. Sprengjan
sprakk við hús í eigu svokall-
aðra Vítisengla, sem er mót-
orhjólaklúbbur, tengdur
ýmiss konar glæpastarfsemi.
Tilræðið er það alvarlegasta
í röð tilræða í Svíþjóð undan-
farið, sem eru hluti af átökum
Vítisenglanna og annars
klúbbs og snúast að öllum lík-
indum um undirtök á eitur-
lyfjamarkaðnum.
Bæði í Danmörku og Sví-
þjóð hefur komið til átaka
milli stríðandi klúbba undan-
farið. Fólk, sem býr í ná-
grenni þeirra er felmtri slegið
og krefst þess að klúbbunum
verði úthýst, en það vefst
fyrir stjórnvöldum að finna
lausn á málinu.
Reuter
PALESTÍNUMENN á Vesturbakkanum brenna mynd af Benja-
min Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, í gær.
Deilur Israela og Palestínumanna um opnun gangamunnans
Táknrænn fyrir yfír-
ráðin í A-Jerúsalem
Leiðtogar Bosníu og Serbíu funda í París
Taka upp sljórn-
málasamskipti
París. Reuter.