Morgunblaðið - 04.10.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 21
37 Kúrdar
felldir
TYRKNESK stjórnvöld sögðu
í gær að 37 liðsmenn uppreisn-
arhreyfingar Kúrda í austur-
hluta landsins hefðu verið
felldir í bardögum í vikunni.
Meira en 20.000 manns hafa
fallið í átökum stjórnarhersins
og uppreisnarmanna síðan þau
hófust fyrir 12 árum.
Gorbatsjov
óánægður
MÍKHAÍL Gorbatsjov, síðasti
forseti Sovétríkjanna gömlu,
flutti ræðu á ráðstefnu í San
Francisco í gær og gagnrýndi
Bandaríkjaþing harðlega fyrir
að samþykkja hærri framlög
til varnarmála en stjórn Bills
Clintons forseta fór fram á.
Sagði Gorbatsjov að hækkunin
og áform um að taka nýfijáls
ríki í Mið- og Austur-Evrópu
inn í Atlantshafsbandalagið
hefðu valdið því að margir
Rússar efuðust nú um gagn-
semi afvopnunarsamninga.
Meintir
morðingjar
handteknir
YFIRVÖLD í Túnis hafa hand-
tekið tvo menn sem grunaðir
eru um að hafa myrt belgíska
stjórnmálamanninn André Co-
ols árið 1991. Heimildarmenn
sögðu mennina hafa játað að
hafa tekið að sér að myrða
Cools. Sex Belgar, þ. á m.
fyrrverandi ráðherra, hafa
verið fangelsaðir og sakaðir
um að hafa skipulagt morðið.
Kosningalög
brotin
FULLTRÚAR Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu,
ÖSE, í Armeníu segja í nýrri
skýrslu að kosningalög hafi
verið brotin með svo grófum
hætti að vafasamt sé að viður-
kenna beri endurkjör Levons
Ter-Petrosyans forseta. For-
setinn hefur að undanförnu
látið handtaka fjölda stjórnar-
andstæðinga og aðalandstæð-
ingur hans í forsetakjörinu 22.
september, Vazgen Manuky-
an, fer huldu höfði.
Major heitir
samstarfi
JOHN Major, forsætisráðherra
Breta, hefur heitið fullu sam-
starfi við að upplýsa mál Neils
Hamiltons, fyrrverandi ráð-
herra íhaldsmanna. Hamilton
er sakaður um að hafa þegið
fé af kaupsýslumanninum
Mohamed A-Fayed fyrir að
bera upp fyrirspurn er gagnað-
ist hagsmunum Al-Fayeds.
GÓOI* SKÓD
á cönim
í vtmt
át t
SympaTex
vatnivarðir
stærðlr 30-48
$ TU BAÍ
Pœgilegir skór
fyrir léttar
gönguferðir
Sg(3LAGERÐIN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavik s. 5112200
ERLENT__________
Gagnrýna lækna
í áttburamáli
London. Reuter.
ÝMSIR hvetja nú til þess í Bretlandi
að settar verði strangari reglur um
það hveijir fái fijósemislyf. Astæðan
er mál Mandy Allwood, 31 ára gam-
allar konu sem ákvað gegn læknis-
ráði að ala áttbura sem hún gekk
með eftir að hafa fengið slík lyf en
öll fóstrin dóu í vikunni.
Mál Allwood vakti mikla athygli
og var hún sökuð um ábyrgðarleysi.
Hún kvaðst í gær ekki iðrast ákvörð-
unar sinnar.
Ýmsir lýstu samúð með Allwwod
en gagnrýndu lækna fyrir að með-
höndla konu sem átti barn fyrir en
tók inn fijósemislyf til að reyna að
bjarga ótraustri sambúð sinni með
því að verða þunguð.
„Er það veijandi að bjóða með svo
fijálslegum hætti fólki fijósemisað-
stoð þegar um er að ræða fólk sem
greinilega er ófært um að þiggja
slíka þjónustu?", spurði blaðið Lond-
on Evening Standard í gær.
VANTAR INNRÉTTINGU?
Innval býður þér að koma og skoða eldhús,
baðinnréttingar og fataskápa í miklu úrvali, þar
semflestir finna eitthvaðsem hæfir bæði
smekk og pyngju.
Profil-innréttingar fást í 21 mismunandi gerð.
Einhver þeirra hentar þér og þínum.
Profil-innréttingabókin bíður þín
ásamt faglegri ráðgjöf.
; é-M B Hagstætt verð.
#llrffM* Opið laugardag 11-15.
Hamraborg 1, sími 554 4011
Mercedes-Benz
OgMAZDA
*v Mercedes-Benz
OPHh
Laugardag frá kl. 12.oo-l6.oo
Sunnudag M kl. 12.oo-l6.oo
'ú^mmsýnum það nýjasta frá
Mercedes-Benz: C og E skutbílana ásamt
fólksbílalínunni. Að auki nýja VITO sendi-
og fjölnotabílinn og Sprinter sendibilana,
sem slegið hafa í gegn á íslandi.
'mm,
MA2DA 626 og allar gerðir af MAZDA 323, með nýjum
innréttingum og auknum búnaði á betra verði en nokkru sinni fyn-
Að auki E- sendi- og pallbíla.
Komið og skoðið það
hesta frá tveim heinisálfum!
mm a.v fiuni _ '■"Jtr MmÍRÍÉI JyS'--1 - : 1 -.Bk Í
y«|k lliaáif ilÉi1 jt -««• • . |Bh { jí ' %■ ^ A W® ||i i
FEXEShI H H SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK SÍMI 561 9550 NETFANG: www.hugmot.is/mazda