Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 23
ERLENT
Reuter
TONY Blair, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, og Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, spreyta sig sem
markmenn á knattspyrnuæfingu í barnaskóla í Blackpool. Fergu-
son sat sérstakan fund á flokksþinginu um knattspyrnuíþróttina.
Þing breska Verkamannaflokksins
Vinstrimenn
bornir ofurliði
Blackpool. Reuter.
TONY Blair, leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins, bar sigurorð af
vinstrimönnum í flokknum í gær
þegar síðasta flokksþingið fyrir
næstu kosningar hafnaði tillögu
þeirra um að ellilífeyrir yrði tekju-
tengdur ef flokkurinn kæmist til
valda.
Forystumenn flokksins sögðu að
tillagan fæli í sér aukin ríkisútgjöld
og Blair hefur lagt ríka áherslu á
að varast slík kosningaloforð, þar
sem þau gætu orðið vatn á myllu
íhaldsflokksins sem hefur varað
kjósendur við því að Verkamanna-
flokkurinn myndi auka útgjöldin og
hækka skatta ef hann kæmist til
valda.
Barbara Castle, fyrrverandi ráð-
herra, beitt sér fyrir tillögunni, en
henni var hafnað með miklum mun.
Þetta er annað flokksþingið í röð
þar sem vinstrivæng flokksins tekst
ekki að bera sigurorð af flokksfor-
ystunni, sem hefur sótt inn á miðj-
una til að auka sigurlíkur flokksins
í kosningunum.
Umræðan um tillöguna þótti hóf-
söm og leiddi ekki til þeirrar óein-
ingar, sem einkenndi flokkinn á síð-
asta áratug. Flokksforystan kom
til móts við Castle og bandamenn
hennar með því að lofa að endur-
skoða velferðargreiðslur ríkisins
fyrir kosningar.
Flokksþingið samþykkti enn-
fremur kosningastefnuskrá flokks-
ins, sem verður síðan send öllum
félögum í flokknum er eiga að
greiða atkvæði um hana. Þetta er
í fyrsta sinn sem slík atkvæða-
greiðsla fer fram í Bretlandi.
Herferð gegn glæpum
Jack Straw, talsmaður Verka-
mannaflokksins í innanríkismálum,
ávarpaði þingið í gær og lofaði að
beita sér fyrir róttækum breyting-
um á vopnalöggjöfinni og skera upp
herör gegn glæpum sem tengjast
fíkniefnum. Hann kvaðst stefna að
því að banna einstaklingum að eiga
skammbyssur, leggja bann við sölu
vopna eftir póstpöntun, meina fólki
undir átján ára aldri að eiga vopn,
og herða reglur um byssuleyfí.
TIL^
MÓTSvið
B8i
■
MENNTAÞING
LAUGARDAGINN 5. OKTÓBER
í HÁSKÓLABÍÓI OG ÞJÓÐARBÓKHLÖÐU.
HÁSKÓLABÍÓ SALURl KL. 9.30 - 12.00
9.30 Þingstjórnandi SigríöurAnna Þóröardóttirformaður menntamálanefndar
Alþingis setur þingið.
Nemendur Listdansskóla íslands dansa undir stjóm Ingibjargar Björnsdóttur skólastjóra
Bjöm Bjamason, menntamálaráðherra ávarpar þingið
Jón Torjijónasson, prófessor við Háskóla íslands: Þróun skólakerfisins
10.30 Kajfihlé
10.45 SigurÖur B. Stefánsson, framkvæmdastjóriVerðbréfamarkaðar íslandsbanka:
Skólakerfið og samkeppnisstaða Islands
Berglind Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri forsætisnefndar Norðurlandaráðs:
Gildi menntunar, markmið með fræðslu
Margrét Guðmundsdóttir, forstöðurmaður markaðssviðs Skeljungs:
Hlutverk fyrirtækja í menntun starfsfólks
Umræður og fyrirspurnir
12.00 Hádegishlé
MÁLSTOFUR KL. 13.00 - 15.00
Eftir hádegi verða 6 málstofur í Háskólabíói og Þjóðarbókhlöðu frá kl. 13.00 - 15.00 um
málaflokka sem em ofarlega í umræðu um skólamál. Um 50 aðilar af öllum skólastigum,
frá stofnunum, samtökum og fyrirtækjum halda erindi og taka þátt í pallborðsumræðum.
Eftirfarandi málstofur verða á menntaþingi:
Háskólabíó salur 1 Gæði og árangur skólastarfs
Háskólabíó salur 2 Hvers vegna símenntun?
Háskólabíó salur 3 Námsgögn f nútíma skólastarfi
Háskólabíó salur 4 Menntun í alþjóðlegu upplýsingasamfélagi
Menntun og jafhrétti
Forvamir í skóiakerfinu
Háskólabíó salur 5
Þjóðarbókhlaða
HÁSKÓLABÍÓ SALURl KL. 15.30-16.30
Þingslit þar sem dregnar verða saman niðurstöður fundanna.
SÝNINGARÁ MENNTAÞINGI KL. 8.30 - 18.30___________________________
Á menntaþingi verða auk þess um 100 aðilar sem kynna starfsemi sína. Nemendafélög,
foreldrasamtök, skólar af öllum skólastigum, samtök, stofnanir og fyrirtæki.
Þingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og öllum opið frá kl. 8.30 tíl 18.30.
Menntamálaráðuneytið
SIEMENS
LAUGARDAGINN 5. OKTOBER FRA KL.10-16
Sölusýning
á hinum stórglæsilegu Siemens heimilistækjum.
Þeir sem kunna gott að meta láta tækifæri sem þetta e/e/c7 fram hjá sér fara.
Otrúleg tilboðsverð á sjónvarps- myndbands- og hijomflutnmgstækjum
[ tilefni dagsins bjóðum við auk þess verulegan afslátt af ýmsum
öðrum heimilistækjum. Ríflegur staðgreiðsluafsláttur veittur.
SMITH &
NORLAND
i verslun '
að Nó
Nóatúni 4 • Simi 511 3000