Morgunblaðið - 04.10.1996, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Dans er fjölskylduíþrótt
ÉG LAS grein í Morgunblaðinu
24. ágúst sl. þar sem verið var að
segja frá dansleik norður á Hrísum
í Eyjafirði og sýndar myndir af fólki
að dansa kántrídansa sem það hafði
lært á námskeið hjá Jóhanni Erni
Ólafssyni danskennara. Þarna voru
börn og fullorðnir saman komin og
mér varð hugsað til skólaskemmt-
ananna þegar ég var barn norður
á Látrum í Aðalvík.
Ég var 7 ára gömul þegar ég
lærði að dansa vikivaka (íslenska
söngdansa) í skólanum. Við fengum
T^svo að sýna foreldrum okkar kunn-
áttuna á skólaskemmtun. Eftir
þessa upplifun hef ég haft ómælda
ánægju af að dansa,
ekki bara íslenska
söngdansa heldur sam-
kvæmisdansa svo sem
rúmbu, sömbu, cha
cha, enskan vals og
tangó ásamt gömlu
dönsunum, þjóðdöns-
um og eiginlega öllum
dönsum hvað svo sem
þeir heita.
Spurningarnar þyrl-
uðust fram! Væri ekki
gaman ef til væri stað-
ur í Reykjavík þar sem
efna mætti til fjöl-
skyldudansleikja?
Matthildur
Guðmundsdóttir
Myndi nokkur koma?
Hvernig væri að for-
eldrafélögin í skólun-
um fengju danskenn-
ara til að kenna full-
orðnum og börnum
einfalda auðlærða
dansa sem allir gætu
tekið þátt í? Eða að
dansskólarnir bjóði
upp á stutt námskeið
sem gætu endað með
sameiginlegum fjöl-
skyldudansleik?
Af hveiju er farið
þannig með dansinn
að fólk er flokkað nið-
Dansinn er ein af þeim
íþróttum, segir
Matthildur Guð-
mundsdóttir, sem hjón-
in geta stundað saman.
ur eftir aldri þar sem boðið er upp
á unglingadansleik, dansskemmtun
fyrir aldraða, jóladansleiki fyrir
börn og fyrir þá sem eru ekkert
af þessu er opið á veitingahúsum
þar sem til staðar er örlítið dans-
gólk sem lítill hluti þess fólks sem
Reijí?íflviTí: Hagkaup Skeifunni og Kringiunni,
BorgarApótek, Olympia, Guilbrá
HafmrfjörHur: Bergþóra Nýborg, Embla
Mosfellsöær: Versl. Fell
A!'vtanes: Perla
Mqames: Kaupf. Borgfirðinga
Grutidarfjorhr: Fell
ísafiöÉr: Krisma
B olungarvík:
Patreksfjörkr: Höggið
Blönduós: Kaupf. Húnvetninga
SauMrkrókur: Kaupf. Skagfirðinga
Afeureijn: Amaró, KEA, Hrísalundi,
KEA, vöruhús
Húsiivili: Kaupf. Þingeyinga
Mývfltn: Verslunin Sel
Ejilsstflíir: Kaupf. Héraðsbúa
HöfnHornafié. Kaupf. A-Skaftfellinga
Hdlfl: Höfn-Þríhyrningur
Vestiimimjjar: Mozart
Keflavík: Samkaup
Grindavík: Paloma
95% bómull,
Takið 3 en borgið fyrir 2
Verd kr. 1.436
Tilboð þetta stendur aðeins meðan birgðir endast.
D KAUPIÐ 2 STK.
*■
EN FAIÐ 3 STK. af Sloggi Maxi • Stær&ir 40 til 50
í húsinu er getur fengið stæði til
að „dansa“ á af því að dansgólfið
er svo lítið.
Dansinn er alhliða þjálfun
fyrir líkamann
Dans hefur þann mikla kost að
tónlistarunnendur geta jafnframt
því að þjálfa líkamann hlustað á
mjög fjölbreytilega tónlist sem leik-
in er á margvísleg hljóðfæri. Dans-
inn er ein af þeim íþróttum sem
hjón geta stundað saman og í ann-
ríki þar sem fólk vinnur við ólík
störf og er kallað á fundi og ráð-
stefnur á kvöldin og um helgar
getur sú staða komið upp að hjónin
hittist varla nema við matarborðið
og blánóttina. Mín reynsla er sú
að við hjónin dönsum saman 1-2
kvöld í viku í dansskóla. Það er góð
samvera og eins og einn af dans-
kennurum okkar sagði eitt sinn:
„Það er mjög þroskandi fyrir hjón
að þjálfa sig í að taka tillit hvort
til annars á dansgólfinu." Það skilar
sér á fleiri stöðum. Við eigum þessi
kvöld saman og við tökum ekki í
mál að fara á neina fundi eða í
heimboð á danskvöldunum okkar.
Allir okkar kunningjar vita að það
er vonlaust að heimsækja okkur á
þessum kvöldum!
Við erum svo heppin að með
okkur í dansinum er vinahópur og
við erum 10 pör sem höfum dansað
saman í 15 ár.
Kostnaður við dansnám
Það hefur verið talað um að dans-
námi fylgi mikill kostnaður vegna
þess að það þurfi svo dýran fatnað
til þess að taka þátt í danskeppnum.
Dans sem keppnisíþrótt verður
líklega tekinn upp á Ólympíuleikum
en dans sem fjölskylduíþrótt og al-
hliða líkamsrækt er þjálfun sem
þarf engan dýran fatnað til að
stunda.
Dansinn er vörn gegn vímu
Þeir sem kunna fleiri en einn eða
tvo dansa vilja yfirleitt fá að læra
fleiri og njóta þess að dansa margs
konar dansa eftir fjölbreytilegri tón-
list. Þeir hafa ekki tíma né löngun
til að sitja yfir glasi með drykk sem
veldur jafnvægisleysi. Þeir þurfa
heldur ekki að blekkja sig með því
að þeir þori frekar að dansa ef þeir
hafi drukkið áfengan drykk. Kjark-
urinn kemur með kunnáttunni.
Reykjavíkurborg hefur 3 síðast-
iiðin ár veitt fé til 10 stunda dans-
námskeiðs fyrir öll 9 ára börn í
grunnskólum borgarinnar. Dans-
kennslan hefur farið fram á skóla-
tíma barnanna og í náinni samvinnu
við Dansráð íslands. í sumum skól-
um hefur námskeiðinu lokið með
sameiginlegri skemmtun foreldra
og barna undir stjórn danskennar-
anna og í náinni samvinnu við
skólastjórn og bekkjarkennara.
Þarna sýna börnin foreldrum sínum
hvað þau hafa lært og svo dansa
foreldrar og börn^ saman og það
ríkir mikil gleði. Ég veit um for-
eldra sem höfðu aldrei stigið á dans-
gólf fyrr, en uppgötvuðu að þetta
var bæði auðvelt og gaman.
Vonandi verður dans jafn sjálf-
sögð kennslugrein í skólum og aðr-
ar íþróttir svo að ekki þurfi að
sækja um sérstaka fjárveitingu til
■ danskennslunnar frekar en annarra
námsgreina sem sjálfsagt þykir að
séu innan grunnskólans.
Höfundur er kcnnsluráðgjafi á
Fræðslumiðstöð Reykja víkur.
• aSCOm Hasler
• Frímerkjavél framtíðarinrar
• Stilhrein, falleg hönnun
• Svissnesk tækni og nákvæmni