Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ
■4 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
Dýraglens
V/E> EPV/M MEÐ 6HANNA 06\
SPBNGtL E6A ..þa/R.EfÍU,
HUM ■ ■ • SUNPFt T /
©1992 Tnbona M«d.« Swvices. Inc.
HVEMARGIFLEPJÚ
'HK/FhHP AF VÖfZflM,
RETT/£> Upp
HENPU/e /
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Hvers vegna byrj- Ég var í felum und- Ég reyndi að segja Menntun er mikilvæg.
aðir þú ekki í leik- ir rúminu mínu. . . að mér væri illt í háls-
skólanum í síðustu inum, en það virkaði
viku? ekki heldur . . .
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Til varnar
Christopher Bundeh
Frá Ingibjörgu Gísiadóttur:
ÉG VAR alin upp í þeirri trú að það
væri gott að vera íslendingur og að
við gætum verið stolt af arfleifð
okkar og uppruna en sumt er það
samt í fortíð okkar og nútíð sem ég
get ómögulega verið stolt af. Svo
undarlega vill til að margt af því
tengist meðferð okkar á útlending-
um. Fyrst skal nefna Spánveijavígin
á sautjándu öld er hópur vopnlausra
skipbrotsmanna var veginn undir
forystu Ara sýslum. í Ögri, svo Hvíta
stríðið 1921 er veikur rússneskur
unglingspiltur var sendur úr landi
líklegast til að klekkja á fósturföður
hans, Olafi Friðrikssyni, er var rót-
tækur jafnaðarmaður og verkalýðs-
sinni. Þriðja dæmið er um gyðingana
sem við vísuðum af landi brott á
Hitlerstímanum, trúlega út í opinn
dauðann. Grayson-málið kemur
næst, faðir sem fékk ekki einu sinni
að hringja í dóttur sína á afmælis-
degi hennar hvað þá senda henni
pakka eða hitta hana, og nýjasta
dæmið er um Christopher Bundeh
sem var framseldur til Finnlands
þótt gögn lægju fyrir um að hann
hefði fengið óréttláta málsmeðferð
þar.
Hvað er eiginlega að okkur? Af
hveiju rákum við gyðingana af landi
brott forðum daga vitandi að þeir
yrðu ofsóttir og kvaldir í Þýskalandi
og af hveiju endurtökum við söguna
með Christopher Bundeh.
Hvernig getum við krafist réttlæt-
is fyrir Sophiu Hansen en synjað
Brian Grayson um hið sama, réttinn
til að umgangast eigin afkvæmi?
Hægt er að afsaka Spánveijavígin
með því að þau gerðust á tíma er
sultur var almennur í landinu og
menn höfðu tæpast efni til að fæða
stóran hóp aðkomumanna og Gray-
son-málið má afsaka með því að
hann lagði niður skottið við fyrsta
mótbyr og gafst upp í stað þess að
beijast eins og Sophia hefur gert í
mörg ár. Engar afsakanir finn ég
fyrir hinum dæmunum.
Gæti það verið að Tyrkjaránið
sæti enn í okkur eins og fleinn í
þjóðarsálinni og ylli með- eða ómeð-
vitaðð andúð og hörku í garð útlend-
inga. Ég man enn hryllinginn er
greip mig er ég las í barnaskóla um
aðfarir ræningjanna og grimmdina
er þeir sýndu er þeir eltu uppi fólkið
sem flúið hafði í björg bara til að
drepa það. Að ráninu afstöðnu voru
um z/3 hlutar íbúanna horfnir, ýmist
látnir eða brottnumdir. Slík saga
gleymist ekki auðveldlega.
Christopher er hins vegar ekki
einu sinni ættaður frá Alsír og er
augljóslega vandaður maður sem
sést best á því hvað kærastan hans
vill leggja á sig fyrir hann, hefur
fylgt honum til Finnlands og ætlar
að giftast honum í fangelsinu verði
það leyft, og vel liðinn á ísafirði þar
sem hann hefur búið í 4 ár og unn-
ið hjá Norðurtanganum. Þótt ótrú-
legt sé hefur hann Ient í því í tví-
gang að vera ranglega ákærður fyr-
ir nauðgun fyrst í Finnlandi svo á
íslandi. í íslensku rannsókninni var
hann hreinsaður af öllum grun því
í leggöngum stúlkunnar er kærði
fannst sæði úr tveimur mönnum en
ekki úr Christopher. Finnar ómök-
uðu sig hins vegar ekki með læknis-
rannsókn og dæmdu manninn án
nokkurra sannana. Síðan var hann
rekinn úr landi án þess að fá tæki-
færi til að veija sig fyrir Hæsta-
rétti. Að honum fjarstöddum þyngdi
Hæstiréttur svo dóm undirréttar og
gerði hann óskilorðsbundinn og núna
þegar of seint er að áfrýja málinu
til Mannréttindadómstólsins hafa
Finnar fengið hann til sín í afplánun
- sama manninn og þeir ráku af
landi brott eftir dóm undirréttar 4
árum áður.
Er þetta aðlilegt? Er þetta rétt-
látt? Nei, og meðferð íslenskra
stjórnvalda á þessu máli er það ekki
heldur. Eins og við brugðumst gyð-
ingunum er flúðu hingað undan of-
sóknum höfum við brugðist Chri-
stopher. Ég get ekki annað en
skammast mín fyrir að hafa á þessu
landi dómsmálayfirvöld er meta und-
irskriftir á pappír ofar mannréttind-
um og hvet alla sem eru sama sinn-
is til að koma á framfæri mótmælum
til dómsmálaráðherra. Þau gætu
hljómað á þessa Iund:
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
dómsmálaráðherra Arnarhváli.
S. 560 9010 Fax. 552 7340
Ég undirr. mótmæli harðlega
ákvörðun yðar og Hæstaréttar um
að senda Christopher Bundeh úr
landi til afplánunar á dómi í landi
er braut á honum lög og veitti hon-
um ekki sanngjarna málsmeðferð.
Með framsali hans tel ég íslensk
yfirvöid samsek um að bijóta á hon-
um mannréttindi en þau réttindi
ættu að vera öllum öðrum lögum
og samningum æðri. Til að bæta
fyrir þessi mistök, því ég neita að
trúa að íslensk stjórnvöld fremji
mannréttindabrot með opnum aug-
um, mælist ég til þess að dómsmála-
ráðherra hlutist til um að mál Christ-
ophers verði endurupptekið í Finn-
landi og honum tryggð réttlát máls-
meðferð.
Virðingarfyllst,
INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR,
Flétturima 21, Reykjavík.
Hvað skal segja? 29
Væri rétt að segja: Ég vil bæði fá kjöt og kál; bæði er hollt og
af báðu er gott bragð,
Rétt væri: Ég vii bæði fá kjöt og kál; hvorttveggja er hoilt og
af hvorutveggja er gott bragð. Munum að fornafnið hvortveggi
beygist eins og greinir og veikbeygt lýsingarorð (t.d. hinn mikli).
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.