Morgunblaðið - 08.10.1996, Síða 1
92 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
229. TBL. 84. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ottast að sprengjutilræði á N-Irlandi stefni friðartilraunum í hættu
31 særður eftir spreng-
ingar í breskri herstöð
Reuter
BRESKIR hermenn hjálpa særðum í höfuðstöðvum breska hersins í Thiepval á Norður-frlandi eftir
að tvær sprengjur sprungu í gær. Engin viðvörun var gefin áður en sprengjurnar sprungu.
Belfast, Bournemouth, Stamford. Reuter.
TVÆR sprengjur sprungu í höfuð-
stöðvum breska hersins á Norður-
írlandi í gær með þeim afleiðingum
að 31 maður særðist, þar af fímm
eða sex alvarlega. Atburður þessi
bindur enda á tveggja ára vopnahlé
á Norður-írlandi og er óttast að erf-
itt verði að bjarga friðarferlinu, sem
ætlað var að stöðva 25 ára vítahring
pfbeldis og hryðjuverka. Talið er að
írski lýðveldisherinn (IRA) beri
ábyrgð á sprengingunum, en einnig
hefur verið leitt getum að því að
fámennur klofningshópur úr IRA
standi að baki þeim.
Sagt var að þurft hefði að gera
að sárum 20 hermanna og 11 borg-
aralegra starfsmanna og voru tvö
böm þar á meðal.
Engin viðvörun
Samkvæmt lögreglu og breska
hernum virðist bílsprengja hafa
sprungið á bílastæði í Thiepval-her-
stöðinni og skömmu síðar hafi önnur
minni sprengja sprungið. Virtist
henni hafa verið ætlað að springa á
meðan verið væri að flytja hina
særðu að sjúkramóttöku á herstöð-
inni. Engin viðvörun barst áður en
sprengjurnar sprungu.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sem staddur var í Bourne-
mouth, þar sem flokksþing íhalds-
manna hefst í dag, fordæmdi tilræð-
ið harkalega og sagði „hraksmánar-
legt“ að koma fyrir tveimur sprengj-
um með þessum hætti.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
hins pólitíska arms írska lýðveldis-
hersins, sagði að tilræðið sýndi þörf-
ina á friðarviðræðum allra aðila.
Mike McCurry, talsmaður Bills
Clintons Bandaríkjaforseta, sagði að
framið hefði verið „svívirðilegt of-
beldisverk" og Bandaríkjamenn
tækju „undir með samfélagi þjóð-
anna í að fordæma" verknaðinn.
John Bruton, forsætisráðherra ír-
lands, fordæmdi sprengjutilræðið
einnig.
Enginn hafði lýst yfír ábyrgð á
sprengingunum í gærkvöldi, en
David Trimble, leiðtogi flokks sam-
bandssinna, sem kenndur er við
Ulster, sagði augljóst að lýðveldis-
sinnar hefðu verið að verki.
Þetta var fyrsta sprengjutilræðið,
sem framið hefur verið gegn sveitum
Breta á Norður-írlandi frá því að
írski lýðræðisherinn lýsti yfir vopna-
hléi í ágúst árið 1994.
IRA rauf vopnahléið hins vegar í
febrúar með árásum í Bretlandi og
á breska herstöð í Þýskalandi. Sinn
Fein hefur verið meinað að taka
þátt í friðarviðræðum um Norður-
Irland eftir að árásirnar hófust að
nýju.
Eftir árásina í gær hafa menn
áhyggjur af því að sambandssinnar
hefji árásir á kaþólikka, en IRA fær
stuðning úr þeirra hópi.
Samstarf
g’eg'ii
Taleban?
Kabúl, Teheran, Islamabad. Reuter.
HER afganska stríðsherrans
Ahmads Shah Masoods tókst um
helgina að hrinda að mestu árás
Taleban-hreyfingarinnar. Abdul
Rashid Dostum, einn af stríðsherr-
um landsins, gaf í gær í skyn að
hann mundi aðstoða Masood.
Talebanar ráða nú meirihluta
Afganistans. Ali Akbar Velayati,
utanríkisráðherra Irans, sagði í gær
að hernaðarsigrar Talebana í Afg-
anistan gætu ógnað öryggi írana
er gætu því ekki látið sem þeir
skiptu þá engu.
Fyrrverandi leiðtogi Afganistans,
Burhanuddin Rabbani, og stjórn
hans hafa bækistöðvar sínar í
Panjsher-dalnum en Masood er
varnarmálaráðherra í stjórn Rab-
banis. Auk þess ræður Dostum yfir
stóru svæði í norðvesturhlutanum.
Talebanar hafa hvatt hann til að
semja um frið en Dostum sagði í
gær að hann myndi veija alla „þjóð-
bræður“ sem yrðu fyrir árásum
Talebana.
-----»--♦■■■■«-
Juppé harðorður
Boðar aðgerðir
eftir tilræði
París. Reuter.
AÐSKILNAÐARSINNAR á Kors-
íku Iýstu í gær yfir ábyrgð á
sprengjuárás á borgarstjóraskrif-
stofu Alains Juppés, forsætisráð-
herra Frakklands, í Bordeaux á
laugardag.
Juppé hét því í gær að stöðva
starfsemi skæruliða aðskilnaðar-
sinna og herða aðgerðir gegn
hryðjuverkum.
Viðræður
hafnar um
Hebron
Jerúsalem. Reuter.
FULLTRÚAR ísraela og Palest-
ínumanna hófu í gær viðræður í
landamærabænum Erez um fyrir-
komulag brottflutnings herliðs frá
Hebron á Vesturbakkanum, en
ríkisstjórn Benjamins Netanyahus,
forsætisráðherra ísraels, krefst
trygginga fyrir öryggi um 400
gyðinga í borginni og varðveislu
helgra staða gyðingdómsins. ísra-
elsher lýsti yfir því að ferðafrelsi
í Ramallah á Vesturbakkanum
yrði aukið í dag.
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, kom við
í Israel á leið sinni til nokkurra
Afríkuríkja og sagðist hafa sann-
færst um að Netanyahu vildi
hvorki „fella úr gildi né breyta“
friðarsamningunum sem kenndir
eru við Ósló.
Palestínumenn segjast aðeins
sætta sig við minniháttar viðbætur
í samningnum vegna breyttra að-
stæðna en samkvæmt honum ættu
ísraelar þegar að vera búnir að
kaila herinn á brott frá Hebron.
Alexander Lebed heimsækir höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins
Brussel, Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Lebed, yfirmaður
öryggismála í Rússlandi, sagði í
gær að stækkun Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) í austurátt gæti
leitt til þess að Rússar ákvæðu að
standa ekki við afvopnunarsátt-
mála, sem bíða staðfestingar. Lebed
átti viðræður við Javier Solana,
framkvæmdastjóra NATO, í höfuð-
stöðvum bandalagsins í gær og
sagði á blaðamannafundi að þeim
loknum að Rússar myndu hins veg-
ar hvorki standa í vegi fyrir stækk-
un þess, né „fýllast geðshræringu“
vegna hennar.
Á blaðamannafundinum var
Lebed spurður hvort stækkun
NATO mundi hafa áhrif á afstöðu
Rússa til afvopnunarsáttmála.
„Harmleikurinn er sá að það gæti
gerst,“ svaraði Lebed. „Aðalatriðið
er að flýta sér ekki um of. Þá mun-
um við ná árangri.“
Lebed nefndi sérstaklega sátt-
mála Rússa og Bandaríkjamanna
frá 1993 um langdræg kjarnorku-
vopn, START-2, og fjölþjóðasátt-
málann frá 1990 um hefðbundinn
herafla í Evrópu, CFE. Hvorugur
sáttmálinn hefur verið staðfestur í
rússneska þinginu. í neðri deild
þess reyna andstæðingar sáttmál-
anna nú að safna meirihluta til að
koma í veg fyrir staðfestingu þeirra.
Ekkí í vegi fyrir
stækkun NATO
Reuter
ALEXANDER Lebed, yfirmaður öryggismála í Rússlandi, og
Javier Solana, f ramkvæmdastj ór i Atlantshafsbandalagsins, á
sameiginlegum blaðamannafundi í höfuðstöðvum banda-
lagsins í Brussel í gær.
Lebed hvatti til samvinnu og
lagði til að vandinn við að koma á
„umbótum í NATO“ yrði leystur og
„stofnað til sérstaks sam-
bands ... milli Rússa og NATO,
sem yrði sett fram í samkomulagi
eða sáttmála með lagagildi og þá“
yrði hægt „að taka ákvörðun um
útþenslu eða ekki útþenslu".
Haft var eftir háttsettum emb-
ættismanni bandalagsins að Solana
hefði þvertekið fyrir að tengja
stækkun NATO einhvers konar
samkomulagi. Vinna mætti að báð-
um þessum málum, en ekkert sam-
band yrði á milli þeirra.
Jeltsín fluttur
á heilsuhæli
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
var fluttur af spítalanum, sem hann.
hefur legið á í Moskvu, á heilsu-
hæli skammt frá Moskvu. Hann á
að gangast undir hjartaaðgerð inn-
an tveggja mánaða.
Anatolí Kulíkov, innanríkisráð-
herra Rússlands, gagnrýndi í gær
friðarsamkomulag Lebeds við
Tsjetsjena og sagði að með vopna-
hléinu hefði verið komið í veg fyrir
að Rússar gætu komið á röð og
reglu í Tsjetsjníju. Var greinilegt
að Kulíkov hugðist færa sér fjar-
veru Lebeds í nyt.