Morgunblaðið - 08.10.1996, Síða 12

Morgunblaðið - 08.10.1996, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stórtækar áætlanir um orkuöflun og fyrirhugaðar stóriðjuframkvæmdir Dæmdur Fjárfesting á 3 árum gæti numið 38-39 milljörðum Virkjun vib Sultartanga Þjórsá Sultartangalón iru jöfnu Stöövar vé •• Abgöng 2 km Yfirfall II —I - Frárennslisskurbur \s~~ Líklegar raforku- og stóriðjuframkvæmdir / 1997-1999 Milljónirkr. n -Sj245 m.y.s. Jiúrfellsstífla Jöfnunarþró- Stöðvarhús-i Sultartangi 125 MW 250,7 m.y.r Abrenmlisaöna • Aögöng 3,6 3,5 297,5 m.y. Abrennslisskur&ur-, Gangainntak I 200 m 1~ 100 m -1- M.y.s 280 260 240 220 Sultartangavirkjun Nesjavellir 13.500 5.500 Krafla 1.400 Hágöngumiðlun 1.200 Háspennulína 3.000 Laxárvirkjun 400 Samtals: 25.000 Álver Columbia 10,.5-11.500 Stækkun Járnbl. 2.500 Samtals: 38-39.000 Bygging Sultartangavirkjunar er lang- stærsta framkvæmdin sem Landsvirkjun hyggst ráðast í á næstunni. I samantekt Ómars Fríðrikssonar kemur fram að heild- arkostnaður við orkuöflun og stóriðjufram- kvæmdir geta numið a.m.k. 38-39 milljörð- um kr. á árunum 1997-1999. LANDSVIRKJUN stendur nú frammi fyrir miklum fram- kvæmdum við orkuöflun ef samn- ingar nást við Columbia Ventures um 60 þús. tonna álver við Hval- fjörð og einnig er stækkun Járn- blendiverksmiðjunnar talin mjög líkleg, þrátt fyrir að stjórn fyrir- tækisins hafi nýverið frestað fram yfir áramót ákvörðun um hvort þriðja bræðsluofninum verður bætt við. Þetta kom fram á fundi Edvards Guðnasonar, verkfræð- ings hjá Landsvirkjun, á fundi Tæknifræðingafélgs íslands og Verkfræðingafélags íslands sl. fimmtudag. Ákvörðun fyrir áramót þrátt fyrir óvissu Gerð útboðsgagna vegna bygg- ingar 125 MW Sultartanga- virkjunar er þegar hafin. Sam- kvæmt endurskoðaðri áætlun er framkvæmdatíminn nú talinn geta orðið 3‘/2 ár. Er gert ráð fyrir að unnt yrði að gangsetja virkjunina haustið 1999 og er þá miðað við að stækkun Járnblendi- verksmiðjunnar verði komin í gagnið um svipað leyti. Ef samn- ingar nást við Columbia Ventures á næstu vikum mun Landsvirkjun væntanlega óska eftir því að stjórn Jámblendifélagsins gefi svör um hversu líklegt sé að ráð- ist verði í stækkun. Að því búnu yrði tekin ákvörðun um hvort ráð- ist verður í útboð vegna Sultar- tangavirkjunar um næstu áramót, en fyrirhugað er að bjóða þá út allt verkið. Skv. endurskoðuðum áætlunum og áformum um að flýta framkvæmdum er sú fjár- festing talin nema um 13,5 millj- örðum kr. Áætluð stækkun Járnblendi- verksmiðju 2,5 milljarðar Gert er ráð fyrir að stækkun Járnblendiverksmiðjunnar gæti kostað um 2,5 milljarða kr., skv. upplýsingum Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Járnblendifé- lagsins. Heildarfjárfesting álvers Columbia er áætluð 10-11,5 milljarðar kr. Yrði það að hluta til komið í rekstur á miðju ári 1998 og framleiðsla hafin með fullum afköstum um áramótin 1998-1999. „Þetta setur okkur í mikinn vanda, vegna þess að talað er um að byggja álverið nánast áður en við getum byggt virkjan- irnar,“ sagði Edvard Guðnason. Skv. samkomulagi Landsvirkj- unar við Reykjavíkurborg um kaup á raforku frá Nesjavalla- virkjun mun Hitaveita Reykjavík- ur setja upp tvo 30 MW hverfla á Nesjavöllum og ætti fyrri hverf- illinn að geta hafið framleiðslu á haustmánuðum 1998 og sá síðari um áramótin 1998-1999. Kostn- aður hefur verið áætlaður að há- marki 5,5 milljarðar kr. Unnið hefur verið að gerð útboðsgagna vegna Hágöngumiðlunar sem á að auka miðlunarrými vegna virkjana á Þjórs- ár- og Tungnaársvæð- inu. Er ætlunin að ljúka verkinu haustið 1998 en umhverfismat Iiggur enn ekki fyrir. Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 1.200 milljónir króna. Ráðist verður í lokaáfanga í aflaukningu Kröfluvirkjunar í 60 MW, hvort sem af fyrirhuguðum stóriðjuframkvæmdum verður eða ekki. Boraðar verða nýjar lág- þrýstiholur við Kröfluvirkjun þannig að hægt verði að gang- setja vél tvö í lok næsta árs. Heildarkostnaður við stækkun Kröfluvirkjunar er um 1.400 millj- ónir kr., skv. upplýsingum Lands- virkjunar. Einnig gera áætlanir Lands- virkjunar ráð fyrir stækkun Laxárvirkjunar með hækkun stíflu um 8-12 metra, sem eykur afl virkjunarinnar um 4-5 MW og er verkið talið kosta um 400 milljónir kr., skv. upplýsingum Edvards Guðnasonar. 3,5 km löng aðrennslisgöng undir Sandafell Stærsta framkvæmd Lands- virkjunar til að auka raforkufram- leiðslu er hins vegar bygging Sultartangavirkjunar á ármótum Þjórsár og Tungnaár, sem yrði gangsett á síðari hluta árs 1999 og svo hönnun og lagning há- spennulínu frá virkjun- inni. „Á meðan þetta stendur yfir verður mjög knappt framboð á rafmagni eða þangað til Sultartangavirkjun kemur í rekstur,“ sagði Edvard á fundinum með verk- fræðingum og tæknifræðingum. Áætlanir Landsvirkjunar gera hins vegar ráð fyrir að um alda- mót verði til umframorka í raf- orkukerfinu til að mæta aukinni eftirspurn á almenna markaðin- um. - Gerð hefur verið stífla við Sult- artanga sem verður hækkuð um tvo metra en virkjunin sjálf verð- ur neðan til í svokölluðu Sanda- felli. Ráðist verður í gerð gríðar- stórra aðrennslisganga úr Sult- artangalóni, undir Sandafell og að stöðvarhúsinu, sem verða um 3,5 km að lengd. Umfang gang- anna verður um 140 fermetrar og gert er ráð fyrir að rennslið um þau verði rúmlega 300 rúm- metrar á sekúndu. Með aukinni eftirspurn þarf Landsvirkjun einnig að leggja háspennulínu frá Sultartanga nið- ur í Búrfell og þaðan yfir á Sand- skeið. Rætt er um að línan verði hönnuð fyrir 400 kílóvolt, sem fjórfaldar flutningsgetuna, en fyrst í stað yrði hún þó rekin miðað við 220 kV eins og aðrar háspennulínur á landinu. Kostn- aður við háspennulínuna er áætl- aður tæpir þrír milljarðar. Skv. þeim upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað má gera ráð fyrir að samanlagður kostnaður við raforku- framkvæmdir fram til aldamóta á vegum Landsvirkjunar og á Nesjavöllum geti orðið nálægt 25 milljörðum kr. Eru þá ekki meðtaldar þær fram- kvæmdir sem nú standa yfir vegna stækkunar álversins í Straumsvík, en reiknað er með að framleiðsla í nýjum steypu- skála ÍSALs hefjist í júlí á næsta ári. Ljúka á fimmta áfanga Kvíslaveitu næsta haust, unnið er að stækkun Búrfells um 60 megawött og mikii endurbóta- vinna stendur yfir í Sogstöðvun- um sem á að vera lokið næsta haust þegar nýi kerskáli ÍSALs verður tekinn í notkun. Gerir Landsvirkjun ráð fyrir að orkuframkvæmdir verði í hámarki á árinu 1998. Á því ári einu nemi fjárfestingar Landsvirkjunar níu milljörðum kr. og mannaflaþörfin jafngildi um 500 ársverkum. Minna umfang en á árunum1968-69 Fyrirhugaðar stórframkvæmd- ir við stóriðjuuppbyggingu og raf- orkuöflun á fáum árum yrðu þrátt fyrir allt öllu minni að umfangi en þær framkvæmdir sem ráðist var í við byggingu álvers ÍSALs í Straumsvík og við raforkumann- virki á sjöunda áratugnum, skv. upplýsingum Þórðar Friðjónsson- ar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Á árunum 1968 og 1969 voru stóriðjuframkvæmdir um fjórð- ungur af heildarfjárfestingu landsmanna og um 7% af lands- framleiðslu. Ef af fyrirhuguðum framkvæmdum við orkuöflun og nýjan orkufrekan iðnað verður á næstu þremur árum má reikna með að þær verði um 15% af heild- arfjárfestingu landsmanna að jafnaði á ári og 3-4% af lands- framleiðslu að mati Þjóðhags- stofnunar. Verði bygging álsvers á Grund- artanga að veruleika á næsta ári leiðir það að mati Þjóðhagsstofn- unar til þess að hag- vöxtur á árinu verði um 4% í stað 2,5%. Þórður segir að þá mætti búast við verulegum breyt- ingum í þjóðarbú- skapnum frá því sem gert er ráð fyrir í Þjóðhagsáætlun. Halli á viðskiptum við önnur lönd myndi aukast umtalsvert, en spáð er að viðskiptahallinn verði 15 milljarð- ar kr. á næsta ári án tillits til þessara framkvæmda. Líklegt sé þó að kannað yrði hvort ástæða þætti til að draga úr opinberum framkvæmdum á öðrum sviðum til þess að skapa svigrúm fyrir þessar stórframkvæmdir. Framkvæmd- irnar 3-4% al iandsfram- leiðslu 400 kV há- spennulína kostar 3 millj arða króna fyrir til- efnislaus- ar árásir HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt mann á fertugsaldri í þriggja mánaða fangelsi fyrir þijár líkamsárásir og til greiðslu 560 þús- und króna skaðabóta til tveggja manna. Þá er honum gert að greiða 160 þúsund krónur í sakarkostnað. Maðurinn var dæmdur fyrir að skalla annan mann í andlitið, svo sá hlaut skurð yfir nefrót, nefbrot, brot í augntóft og glóðarauga, ásamt heilahristingi. Þá réðist hann að manni á veitingastað og sló hann fyrirvaralaust með krepptum hnefa í andlit, svo vinstri framtönn brotn- aði úr í heilu lagi og sú hægri skekkt- ist og kvamaðist úr henni. Loks réð- ist hann að konu í húsi í Grafarvogi og sneri hana niður á hárinu, svo hún hlaut mar í hársverði allt aftur á hnakka, mar á handlegg, við herða- blað og á vinstra læri. Mennimir tveir, sem maðurinn skallaði og sló, höfðu uppi kröfur um skaðabætur og vom þeim fyrrnefnda dæmdar 210 þúsund krónur og þeim síðamefnda 340 þúsund krónur. ♦ ♦ ♦---- Grunnskólar marki sér áætlun um vímuvarnir STEFNT er að því að allir grunnskól- ar í Reykjavík marki sér eigin vímu- vamaáætlun í því skyni að sinna forvömum gegn ávana- og fíkniefn- um. Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs Reykjavíkurborgar, skýrði frá þessu á fundi borgar- stjórnar á fimmtudaginn í svari við athugasemdum Ingu Jónu Þórðar- dóttur, borgarfulltrúa D-lista, við yfirlitsskýrslu vímuvamanefndar Reykjavíkurborgar, sem tók til tíma- bilsins október 1995 til jafnlengdar 1996. Inga Jóna taldi að í skýrslunni væri ekki nægilega vikið að forvörn- um gegn ávana- og fíkniefnum, einkum reykingum, í grunnskólum og sagði hún að slíkt forvarnarstarf yrði að hefjast eigi síðar en í 7. bekk. Sigrún Magnúsdóttir greindi frá því að á næsta fundi fræðsluráðs yrðu teknar fyrir hugmyndir um að grunnskólarnir marki sér vímu- varnaáætlanir en markmið þeirra væri að efla forvarnir og gera starfs- menn skólanna betur í stakk búna til að fræða nemendur annars vegar og kenna þeim hins vegar að þekkja einkenni hjá þeim sem ánetjast hafa reykingum eða fíkniefnum. -----» » 4----- Hverfisgata og Frakkastígur Kveikt á nýj- um umferðar- ljósum KVEIKT verður á nýjum umferðar- ljósum á mótum Hverfisgötu og Frakkastígs í dag, þriðjudaginn 8. október. Þar voru áður hnappastýrð gangbrautarljós. Ennfremur verða fljótlega tekin í notkun hnappastýrð gangbrautarljós á Hverfísgötu við Vitatorg og ný umferðarljós á Bústaðavegi við brúna yfir Kringlumýrarbraut, vest- an megin.og tengjast þau við ljósin sem fyrir eru við austurenda brúar- innar. I" í 9 t i i i i í t ft C I i L l t": L t t L i e

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.