Morgunblaðið - 08.10.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 21
Óþolandi framkoma
„Þau telja sig ekki bera neina
ábyrgð gagnvart starfsfólki sínu
þegar ekki er þörf fyrir vinnu þess.
Eðlilegt andsvar okkar gæti verið
að við teldum okkur ekki bera neina
ábyrgð gagnvart atvinnustarfsemi
sem hagár sér með þessum hætti.
Þessi atvinnuvegur sem heild verður
að axla þá ábyrgð sem fylgir alvöru
atvinnustarfsemi. Svo tekin séu
dæmi, þá er framkoma Fiskiðjunnar
á Sauðárkróki við starfsfólk alveg
óþolandi. Þar hefur fiskverkafólk
undanfarnar tvær vikur búið við
mikla óvissu þrátt fyrir að nýtt
kvótaár sé hafið og ekki sé hægt
að bera við hráefnisskorti.
Á þessum málum verður að taka
í næstu samningum, ætli menn á
annað borð að halda í kauptrygging-
arsamninginn. Það hlýtur að liggja
fyrir, ef atvinnurekendur svara því
til að Fiskiðjan á Sauðárkróki hafi
haft heimild skv. kauptryggingar-
samningnum að koma fram við
starfsmenn eins og hún hefur gert
og ef sjávarútvegsráðherra dregur
ekki til baka tillögur um niðurskurð
á fjárveitingum til starfsfræðslun-
ámskeiða, komi gerð kauptrygging-
arsamnings ekki til greina. Við hljót-
um sömuleiðis að gera þá kröfu að
atvinnurekendum verði gert að til-
kynna í síðasta lagi mánuði fyrir
upphaf orlofstöku, það er fyrir 2.
maí ár hvert, ætli þeir að loka vegna
sumarleyfa. Eins og nafnið ber með
sér á kauptryggingarsamningurinn
að veita fólki starfsöryggi en ekki
óöryggi. Fiskverkafólk krefst sama
starfsöryggis og aðrar stéttir," sagði
Aðalsteinn.
Fjárfest fyrir
tvo milljarða
Magnús _ Magnússon, útgerðar-
stjóri hjá ÚA, sagði að þjóðfélagið
allt hefði orðið fyrir afleiðingum af
kvótaniðurskurði. „Okkar viðbrögð
við þessum mikla niðurskurði voru
hinsvegar þau að við höfum fjárfest
í skipum og kvótum fyrir tæpa tvo
milljarða kr. til að verja störf innan
okkar fyrirtækis, en vegna þess
hversu langt við erum frá miðunum
hefur það gert landvinnslunni erfitt
fyrir, sem aftur kemur niður á hrá-
efnisgæðum fisksins."
Um framtíð landvinnslu segir
Magnús ÚA ekki vera á því að gef-
ast upp. Síður en svo, þótt fyrirséð
sé að breytinga sé þörf. ÚA hafi
síðustu þijú árin rekið landvinnsluna
á núlli, en hagnaðurinn að mestu
komið úr sjófrystingunni. „Við vitum
hinsvegar að það er hægt að gera
miklu betur og við ætlum okkur að
gera það.“ Hann nefndi það að fímm
manns hefði verið sagt upp störfum
fyrir skömmu sem rekja mætti til
skipulagsbreytinga. Um hefði verið
að ræða fimm verkstjóra, alla karl-
kyns, enda hugmyndin að fletja fyr-
irtækið út, fækka millistjórnendum
og virkja hina.
Magnús sagði að sérstaklega væri
brýnt að bæta meðferð hráefnis. I
því efni væri ekki við landverkafólk-
ið að sakast, heldur þyrftu sjómenn-
irnir að taka sig á, svo og markaðirn-
ir. Sömuleiðis þyrftu húsin að vera
opin fyrir nýrri fjárfestingu, end-
urnýjun og nýju vinnufyrirkomulagi,
jafnvel vaktavinnu. Stóru sölusam-
tökin væru of föst í þeim hugsana-
gangi að þurfa að vera með gríðar-
legt magn á sem lægstum verðum
á mörkuðum. Einnig væri nú komið
að því að tengja rannsóknaþáttinn
starfandi sjávarútvegi, en sér virtist
sem um væri að ræða tvo ólíka og
ótengda heima. „Eg tel að við þurf-
um ekkert að rannsaka meira í bili,
heldur sé brýnna að við förum að
nota þessar niðurstöður, sem að
mínu mati eru flestar í mjög óað-
gengilegu skýrsluformi. Það eru
miklir möguleikar í landvinnslunni,
en við þurfum að stokka upp og
breyta til.“
Sigrúnu Clausen frá Akranesi fýsti
undir fundarlok að vita hvar Magnús
ætlaði að finna fisk til þess að setja
á vaktavinnu í landi. Hann svaraði
því til að hann hygðist taka hráefnið
frá hinum, auðvitað. „Einingamar
eiga enn eftir að stækka. Vélarnar í
húsunum geta gengið allan sólar-
hringinn og það verða einfaldlega
eftir færri hús, jafnvel færri þorp.“
Yarað við
erfða-
vopnum
London. The Daily Telegraph.
VÍSINDAMENN kunna að
þróa erfðavopn, sem eru til
þess gerð að gera menn ófijóa,
veikja og drepa ákveðna kyn-
þætti eða þjóðir, að því er seg-
ir í skýrslu sem breska lækna-
félagið hefur látið taka saman
vegna aðalfundar Alþjóðasam-
taka lækna (WMA) í október.
í skýrslunni er m.a. fjallað
um hættuna sem stafar af
leysigeislavopnum sem blinda
og öðrum vopnum sem skaða
og drepa með hljóði og hita.
Vivienne Nathanson, höfundi
skýrslunnar, þykir þó stafa
enn meiri ógn af erfðavopnum.
Tekur hún sem dæmi borgara-
styijöldina í Rúanda og mögu-
legar afleiðingar þess, hefðu
verið til vopn, sem beita hefði
mátt gegn annað hvort Hútú-
um eða Tútsum. Þótt slík vopn
séu ekki til, að því er best sé
vitað, séu þau ekki langt und-
an, hvað tæknina varðar.
Segir Nathanson að ef til
vill verði hægt að framleiða
vopn útbúin kanna sem geti
greint á milli kynþátta og þjóð-
flokka og eitrað fyrir þeim.
Þá sé einnig mögulegt að vís-
indamenn geti þróað vírus sem
leggist ^ eingöngu á ákveðna
hópa. Ástæða þessa sé sú að
ákveðin gen séu sameiginleg
ættflokkum og jafnvel þjóðum.
Auk þess sem slíkt vopn
geti skaðað og drepið þá sem
fyrir þeim verða, segir Nat-
hanson að þau kunni að gera
menn ófijóa eða valda stökk-
breytingu sem verði til þess
að banvænn erfðagalli berist
til næstu kynslóða.
Nathanson segir ákaflega
mikilvægt að sjá til þess erfða-
vopn verði ekki framleidd,
enda sé t.d. ekki hægt að
ganga út frá því að þau falli
undir alþjóðasamninga um líf-
ræn- og efnafræðileg vopn.
Verði skýrsla Nathanson
samþykkt á aðalfundi WMA
og sett á stefnuskrá félagsins,
kann hún að verða til þess að
læknafélög um heim allan
þrýsti á yfirvöld í löndum sín-
um að koma í veg fyrir að slík
vopn verði þróuð og framleidd.
Finnland
Ásakan-
ir um
skattsvik
Helsinki. Morgunblaðið.
ARJA Alho, fjármálaráðherra Finna,
hefur fyrirskipað Jukka Tammi rík-
isskattstjóra að gera grein fyrir
eignaraðild og afskiptum hans af
fyrirtæki mágs skattstjórans. í nafn-
lausum bréfum sem send hafa verið
lögreglu og fjölmiðlum er fyrirtækið
sakað um að hafa komið virðisauka-
skatti undan.
Jukka Tammi segir hins vegar að
þessar nafnlausu ásakanir séu runn-
ar undan rifjum andstæðinga hans
innan skattstjórnarinnar.
Talið er að málið eigi rætur að
rekja til valdabaráttu innan kerfis-
ins. Tammi sé andvígur því að senda
út sérsveitir til þess að gera kannan-
ir á vinnustöðum, t.d. hjá bygginga-
verktökum, en nýlega hófst herferð
skattyfirvalda, stéttarfélaga og
ýmissa samtaka iðnrekenda gegn
skattsvikurum.
Tekjuskattar og launatengd gjöld
í Finnlandi eru með því hæsta sem
þekkist í heiminum.
Nóbelsverðlaun fyrir rann-
sóknir á ónæmiskerfi
ÁSTRALINN Peter Do-
herty og Svisslendingnr-
inn Rolf Zinkernagel
(t.h.) skipta með sér
Nóbelsverðlaunum í
læknisfræði á þessu ári
en þau nema rúmlega 70
milljónum ísl. króna. Sten
Grillner, formaður nefnd-
arinnar sem úthlutar
læknisfræðiverðlaunun-
um, sagði rannsóknir
mannanna tveggja marka
þáttaskil. Er þeir unnu
saman við sjúkrahús í
Canberra í Ástralíu fyrir
23 árum uppgötvuðu þeir
hvernig ónæmiskerfið ber
kennsl á og drepur frumur sem
smitast hafa af veirum og sýnt
fram á hvernig hanna beri bólu-
efni. Grillner sagði að uppgötv-
anir verðlaunahafanna hefðu
þegar verið notaðar til að búa
til bóluefni handa dýrum og
hlyti því að vera stutt í að hægt
verði að nota þau gegn sjúk-
dómum í mönnum.
Sjúkdómarnir sem vonast er
til að hægt verði að finna bólu-
efni gegn eru m.a. ákveðnar
Reuter
tegundir krabbameins,
sykursýki og alnæmi.
Zinkernagel, sem er 52
ára, var læknanemi er
hann vann að uppgötvun-
inni. Hann starfar nú við
ónæmisfræðistofnun í
Ziirich og sagðist himin-
lifandi yfir tíðindunum.
Framlag sitt og Dohertys
væri þó aðeins stutt skref
í þessum rannsóknum.
„Við vitum svo lítið og það
er nóg vinna eftir fyrir
mig á næstu árum og ára-
tugum,“ sagði hann.
„Þetta er stórkostleg
tilfinning... Ég er enn eins
og lamaður, þetta er frábær
viðurkenning," sagði Doherty
í símaviðtali en hann er 55 ára
gamall og starfar við sjúkra-
hús í Tennessee í Bandaríkjun-
um.
nna ao auar pe.st.ai
epclurbætur ásamt einkar
uövcldu viöhaldi siuöli aö
ámarks hagkvæmni tækisii
TOYOTA
LYFTARAR
KRAÉTVÉLAR
JÆÆFÆ/Æj^F JF Æ Funahöfða 6 - Sími: 563 4500
Plnrgtmlífa&ili
- kjarni málsins!