Morgunblaðið - 08.10.1996, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
KirkjuvikaReykjavíkurprófastsdæma
Endurskoðim
íhugunar í lífi okkar
UM ÞESSAR
mundir á íslenska
kirkjan þúsund ára
afmæli, en það er um
leið sá tími þegar
kirkjunnar menn
þurfa að heíja sam-
ræður við fulltrúa
annarra trúarbragða
hér á landi.
Margir virðist telja
að með skoðanaskipt-
um fólks, sem aðhyll-
ist ólík trúarbrögð, sé
verið að blanda trú-
arbrögðunum saman.
Hið rétta er að sam-
ræður hjálpa kirkjunni
okkar til að brýna sig og að rifja
aftur upp séreinkenni sín. I dag
langar mig til að reyna að endur-
skoða og prófa íhugunina í krist-
' inni kirkju með því að lita á Zen-
Búddhisma.
íhugunin í
Zen-Búddisma
Zen er ein stefnan innan Búdd-
hisma. Upprunalega orðið fyrir
Zen er „dhyna“ á sanskrít og
„dhyna“ þýðir umhugsun eða ein-
beiting. I stuttu máli þá er Zen
leið íhugunar til að beina hug og
hjarta að einum hlut (einu marki)
og reyna að ná fullkomu stigi
!„sjálfstæmingar“. Hvað íhuga
menn í Zen? Og af hveiju vilja
menn ná þessu stigi „sjálfstæming-
ar“? Zen-Búddhismi kennir að það
búi í eðli allra manna að geta náð
stigi Búddha sem er andlega upp-
ljómuð tilvera. Ástæða þess að
maðurinn getur ekki í upphafí
komið auga á eðli sitt sem Búddha
er sú að hugur hans og hjarta er
þakið óróleika, gimd, ótta og
græðgi, hann getur
ekki opnað hi_n and-
legu augu sín. Óróleik-
inn eða græðgin stafa
frá honum sjálfum, frá
hinum sjálfhverfa
hluta hugar hans. Það
er algjör nauðsyn að
vinna bug á sjálfselsk-
unni eða eigingiminni
og til þess að geta það
þarf hann að ganga í
gegnum Zen-íhugun.
I íhuguninni varpar
hann fyrir róða þekk-
ingu sinni, rökhugsun
og þrá og reynir að
ná stigi „sjálfstæm-
ingar“. Hann reynir að hætta að
sjá, heyra eða jafnvel að óska sér
einhvers. Þá smám saman vaknar
Búddha-eðli hans sem hefur legið
í dvala djúpt í undirvitundinni og
tekur að starfa í honum sjálfun
og opna hin andlegu augu. Líkam-
leg augu mannsins geta aðeins séð
yfírborð hlutanna í heiminum en
með andlegum augum sínum getur
hann greint sannleikann í heimin-
um. Þegar hin andlegu augu ljúk-
ast upp mun alheimurinn opinbe-
rast í eðli sínu. Þá skilur hann lög-
mál alheimsins og samræmið í
náttúrunni og hann verður sjálfur
hluti af því. Geram ráð fyrir að
tunglið sé fullt og fallegt uppi á
himninum. Einhver bendir okkur á
þetta og segir; „Sjáðu hvað tunglið
er fallegt!" Og við horfum á tungl-
ið. Hvað sjáum við á þessu andar-
taki? I stað þess að dást að tungl-
inu þá fylgjumst við með fíngrinum
sem bendir á tunglið, við hlustum
á röddina sem segir; „Sjáðu hvað
tunglið er fallegt!“, eða við hugs-
um; „Tunglið er nú ekki alveg fullt
Sjálfur lifi ég
ekki framar, segir
Toshiki Toma, heldur
lifír Kristur í mér.
ennþá“, eða „mér finnst þetta ekk-
ert sérstakt“. M.ö.o. jafnvel hinn
einfaldasti hlutur eins og að horfa
á tunglið er háð mörgum skilyrðum
hjá okkur sjálfum. Vegna hinna
ónauðsynlegu orða, hugmynda eða
tilfínninga getum við ekki notið
tunglsins eins og það í rauninni
er. Zen-íhugun leitast við að losna
undan viðjum þessara skilyrða sem
hafa truflandi áhrif á birtingu
tunglsins. M. ö.o. miðar Zen-íhug-
unin að þessu hugarástandi, þegar
daglega tungumálið týnir virkni
sinni og maður þarf að skerpa
eðlisávísun sína. Zen-Búddhismi
leggur ríka áherslu á það að þetta
hugarástand sé óendanlega auðugt
og að hið sanna eðli mannlegrar
vera búi þar. Þessi skoðun á gagn-
kvæmri virkni milli hugar og
tungumáls á vissulega einnig við
um kristna trú. Þetta er það sem
Zen-Búddhismi og kristin trú eiga
sameiginlegt. En munurinn á þeim
er þessi: Dýpst í huga mannsins,
þar sem eðli mannlegrar veru býr,
og þar sem algjört „sjálfstóm“
býr, þar hefur Zen-búddhismi eng-
an guð, en þarna setur kristin trú
Guð á sama stað og hlustar á orð
hans.
Að hverju beinist
kristin íhugun?
Um hvað eram við hugsa? Mér
fínnst mjög mikilvægt að við hugs-
Toshiki
Toma
um okkur að við búum yfir ein-
hveijum huldum hluta hugarins
sem við gleymum að nota. Þetta
er einhver hluti sem er ekki undir
áhrifum frá rökhyggju hversdags-
ins, okkar félagslegu þörfum eða
jarðnesku skynsemi.Við tölum um
orð Guðs og hugsum og íhugum
merkingu þess. En með hvaða
hluta hugarins nemum við það eða
íhugum?
Það var einu sinni mjög virtur
prestur í landi mínu (Japan), sr.
Enomoto, en hann er nú látinn.
Þegar hann var að læra guðfræði
þá varð hann á tímabili mjög
óánægður með kirkjuna sína og
leitaði til Zen-hofs og ætlaði jafn-
vel að skipta um trú. Hann þjón-
aði þar sem lærisveinn og reyndi
jafnframt að læra allt um Búddha.
En munkarnir voru alltaf að skipa
honum að hreinsa hofíð, taka til í
garðinum, búa til mat og slíkt en
þeir kenndu honum ekkert um
Búddha. Dag nokkurn fór Eno-
moto til eins munksins og bað
hann um að kenna sér eitthvað í
fræðum Búddha. Munkurinn svar-
aði; „Nú, nú, langar þig til að fræð-
ast um Búddha? Gott og vel, en
farðu fyrst með ketilinn og fylltu
hann af tei.“ Ungi maðurinn gerði
það. „Þakka þér fyrir, en náðu nú
í vatnsglas fram í eldhús.“ Og aft-
ur gerði ungi maðurinn það sem
fyrir hann var lagt. „Gjörðu svo
vel, hér kemur vatnið.“ „Gott ungi
maður, sestu nú hérna hjá mér.“
Ungi Enomoto varð nú ánægður
að eiga það nú loksins í vændum
að fá að heyra eitthvað um Búdd-
ha. En þá sagði munkurinn: „Núna
skaltu hella tei úr katlinum í vatns-
glasið.“ „Ha? Hella tei í glasið, en
glasið er jú fullt af vatni. Þætti
þér ekki verra ef teið flæddi út
yfír barmana á glasinu?" „Jæja,
skilurðu nú loksins?“ spurði munk-
urinn. „Nei, ég skil ekki neitt,“
svaraði ungi maðurinn. Þá sagði
munkurinn við hann; „Nú ert þú
eins og þetta glas, ungi maður.
Innra með þér er allt fullt af óþarfa
vangaveltum og pælingum. Ef ég
fer að bæta tali um Búddha inn í
slíkar aðstæður þá er hætt við að
hin dýrmætu sannindi um Búddha
flæði út yfír barmana og út í af-
kima. Farðu fyrst og tæmdu sjálf-
an þig áður en þú tekur við orðum
Búddha!"
Það er skoðun mín að orð Guðs
eigi að nema með innstu og dýpstu
rótum hjartans, á því sviði þar sem
ríkir algjört tóm sjálfsins. Ef við
reynum að nema orð Guðs án þess
að taka til rúm í hjarta okkar til
að meðtaka það eða njörvum það
niður á svið venjulegrar rökhyggju
og mannlegrar skynsemi þá mun
orð Guðs „flæða yfír“ og lenda úti
í afkimum lífs okkar. Ég er hrædd-
ur um að þetta gerist oft hjá okkur.
Við hlustum á orð Guðs. Við
lesum orð Guðs. Og við tökum við
því á afar yfirborðslegan hátt með
hugsunum okkar sem stjónast af
mannlegri skynsemi. Þannig gerist
það oft að við höldum bara eftir
þeim orðum sem skilningur okkar
og skynsemi getur tekið við. Þegar
við mætum einhveijum orðum sem
erfítt er að skilja eða sætta sig við
segjum við bara: „Já, þarna er
Jesús bara að sýna okkur hvað
ætti að vera ákjósanlegast hug-
myndafræðilega séð en hann ætl-
ast nú varla til að við förum eftir
því.“ Við þurfum að komast að
hinu djúpa hugskoti verundar okk-
ar, þangað sem rökhugsun og
skynsemi ná ekki til að trufla orð
Guðs. Niðurstaða mín er því sú að
íhugun okkar ætti að miða að því
að endurlífga leynda afkima hjarta
okkar og hugar svo að orð Guðs
nái þangað. Við eigum að finna
stað í okkur sjálfum þar sem
„sjálfstóm" ríkir. Að sjálfsögðu
getum við ekki farið eins að og
Zen-munkarnir en með því að gefa
okkur svolítinn tíma til íhugunar
gæti okkur auðnast að eignast slík-
an „stað“ og varðveita hann. Þar
mætum við orði Guðs. Þá hættir
orð Guðs að vera bara siðaboð-
skapur og „móralismi“ og fer að
verða lifandi játning okkar. Þá býr
orð Guðs alltaf með okkur, það
kennir og leiðbeinir, það setur okk-
ur skorður og dæmir og það hugg-
ar okkur og fyrirgefur.
„Sjálfur lifi ég ekki framar held-
ur lifír Kristur í mér“ (Gal. 2:20).
Þessi orð Páls varða leiðina að því
marki sem íhugun okkar hefur.
Höfundur er presturjapanskrar
lútherskrar kirkju.
Gefum gömlum bókum
annað tækifæri
ÁGÆTI háskóla-
nemi.
Hefur þú áhuga á
því að létta öðram
áhugasömum stúdent-
um róðurinn og bæta
möguleika þeirra til
menntunar, án þess að
það þurfí að kosta þig
mikið? Flest eigum við
gamlar kennslubækur
sem við höfum ekkert
frekara gagn af og era
jafnvel orðnar úreltar
til kennslu hér á landi.
Slíkar bækur era okk-
ur kannski lítils virði
en gætu gert háskóla-
stúdentum í
Sarajevó heilmikið
gagn.
Hugmyndin er
sú að við háskóla-
stúdentar á íslandi
tökum nú til í bóka-
Þórhildur
Kristinsdóttir
STÚCfcNTAB
t-JÁLFA
STllDENTUM
hillum okkar, söfnum
saman þessum
kennslubókum og
sendum út til háskóla
í Sarajevó. Til að auð-
velda söfnunina mun-
um við hafa móttöku
fyrir bækumar í flest-
um byggingum há-
skólans; Félagsstofn-
un stúdenta, Aðal-
byggingu, Lögbergi,
Árnagarði, Odda, Há-
skólabíói, VR II,
Læknagarði, Eirbergi
og Grensási. Aðalmið-
stöð mun verða í Odda
og mun móttakan
standa yfír fímmtudaginn 10. októ-
ber frá kl. 9.00 til 17.00. Legðu
okkur nú endilega lið og athugaðu
Leggið okkur lið, segir
Þórhildur Kristins-
------------^
BIODROGA
snyrtivörur
dóttir, tökum til í
bókahillum okkar.
hvort þú getur ekki losað hillu-
pláss. Hvert minnsta smáræði er
þegið með þökkum því að mörg
slík gera eitt stórt. Mundu að það
er óþarfi að láta viskuna rykfalla
uppi í hillu þegar hægt er að nýta
hana annars staðar.
Höfundur er læknisfræðinemi.
Sjávarplássið er
í ÞJÓÐFÉLAGI
sem byggir efnahags-
legt sjálfstæði sitt að
mestu á sjávarútvegi,
veiðum og vinnslu,
skiptir miklu máli
hvemig löggjöfín er á
því sviði. Sérstaklega
hefur löggjöf um
stjóm fiskveiða verið í
brennidepli og gífur-
lega umdeild árum
saman. Eitt hefur þó
einkennt málið öðra
fremur, gengið hefur
verið út frá því að fisk-
veiðar séu mál eigenda
skipa, útgerðarmanna.
Deilumar hafa síðan
snúist um þá hagsmuni. Löggjöfin
ber þess merki að hagsmunir ann-
arra sem starfa við veiðar og
vinnslu hafa verið mjög víkjandi.
Hin vanmetna
auðlind
Ég vil beina athygli að þætti sem
mér fínnst hafa verið algerlega
vanmetinn. Það er að fólkið sem
veiðir fískinn og vinnur úr honum
er stærsta auðlindin. Löggjöfín
verður að tryggja að það fólk
stundi störf til sjávar sem helst
vill það og helst kann það. Hefð-
bundið sjávarpláss er mikil auðlind
fyrir íslenska þjóð, einkum og sér
í lagi fyrir þá landsmenn sem kjósa
að stunda önnur störf en í sjávarút-
vegi. í sjávarplássinu snýst lífið
um físk og aftur físk og fólk sér-
hæfír sig á einn eða annan hátt
innan sjávarútvegsins.
Það er helst í and-
rúmslofti sjávarpláss-
ins að atvinnugreinin
laði til sín dugmikið
fólk, sem oft verða svo
framkvöðlar nýjunga
og framfara sem þjóð-
in öll nýtur góðs af.
Þegar að því kemur
að setja í stjórnarskrá
lýðveldisins ákvæði
um að fiskistofnarnir
séu sameign þjóðar-
innar er óhugsandi
annað en að jafnhliða
verði tryggður réttur
sjávarbyggðanna til
nýtingar á þeim.
Grunnslóðarmið -
verstöðvar
Ég legg áherslu á að löggjöf um
stjóm fiskveiða treysti íslenska
sjávarplássið ekki síður en fiski-
stofnana. Til þess þarf að skipta
fiskveiðilögsögunni og taka upp
grannslóðarmið. Eðli málsins sam-
kvæmt hafa þau mið verið sótt frá
nálægum verstöðvum og öðram
ekki. Ég tel því sjálfgefið að þegar
takmarka þarf veiðar verði tryggð-
ur réttur íbúa sjávarplássanna til
veiða á hefðbundnum miðum sín-
um. Sá réttur er einvörðungu
bundinn byggðunum og flyst ekki
með bátum eða mönnum. Hér er
um að ræða byggðatengdan veiði-
rétt grundvallaðan á sögulegri
skírskotun. Tiltölulega einfalt er
að afmarka grunnslóðina og svæð-
Kristinn H.
Gunnarsson
auðlind
Fólkið sem veiðir
fískinn og vinnur úr
honum, segir Kristinn
H. Gunnarsson, er
stærsta auðlindin.
isskipta henni. Þessari breytingu
fylgir að leyfðri heildarveiði verður
að skipta milli miðanna. Núverandi
löggjöf skilur hagsmuni byggðar-
laganna eftir í uppnámi og um
hana verður aldrei sátt að óbreyttu.
Tillaga mín þýðir að ákveðinn hluti
fískveiðilögsögunnar er tekinn
undan heildarlöggjöfínni og um
þann hluta gildi aðrar reglur. Þess-
ar tillögur lagði ég fyrir miðstjórn
Alþýðubandalagsins fyrir skömmu
og í ályktun miðstjómar segir:
„Miðstjórn telur að styrkja eigi
stöðu bátaútgerðar á grunnslóð og
tryggja aukinn rétt þeirra sem
stunda veiðar á heimamiðum. Það
er raunhæfasta leiðin til að efla
sjávarplássin og stuðla að aukinni
atvinnu í landi.“ Þessi ályktun tek-
ur að öllu leyti undir sjónarmið
mín. Það er verkefni sjávarútvegs-
hóps miðstjórnar að útfæra stefnu-
mörkun miðstjórnar nánar á næstu
vikum og vonandi verður sú út-
færsla lögð fyrir haustfund mið-
stjómar í nóvember næstkomandi.
Höfundur er þingmaður
Alþýðubandalagsins.