Morgunblaðið - 08.10.1996, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
MEÐAL þeirra stóðhestaefna sem tamin verða í vetur er Kormákur frá Kjarnholt- HUGMYND frá Ketilsstöðum hefur nú þegar skipað sér á bekk með fremstu kyn-
um sem Þorkell Bjarnason, fyrrum hrossaræktarráðunautur, skoðaði í sumar og bótahryssum landsins og nú er kominn fram á sjónarsviðið efnilegur stóðhestur
leist vel á. undan henni og Otri frá Sauðárkróki fjögra vetra foli, albróðir Hjörvars, sem
spennandi verður að fylgjast með á næsta ári.
Hinar stóru
vonir fram-
tíðarinnar
Skyggnst baksviðs
í heimi hrossaræktar
Reiðmennskan er sá þáttur hesta-
mennskunnar sem laðar flesta að
hrossum til að byrja með, á því leik-
ur enginn vafi. Hinu er ekki að
neita að það er sköpunin eða rækt-
unin sem býður upp á mestu spenn-
una, veitir mönnum útrás fyrir
sköpunargleðina og viðheldur
áhuganum á hestamennskunni bet-
ur en nokkuð annað.
VONIN er stór hluti af hesta-
mennskunni. Að skapa með því að
welja saman stóðhest og hryssu
gefur vonina um vænlega ávöxtun
í fyllingu tímans þegar ungviðið er
tamið. Spennan er líka fólgin í að
fylgjast með öllum snillingshross-
unum ungu sem fram koma hvert
ár. Til að gefa lesendum kost á að
skyggnast inn í heim hinna stóru
vona var haft samband við eigendur
nokkurra af frægustu hryssum
seinni ára og kannað hvaða stóð-
hestar voru valdir á hryssurnar í
sumar og hvað er til undan þeim
og hverjir eru feðumir.
Rauðhetta fylfull
Við hæfi þótti að hefja leikinn í
Kirkjubæ og kanna hvernig gengi
með drottninguna Rauðhettu sem
er hæst dæmda hryssa landsins og
efst stóð á síðasta landsmóti í sírium
flokki. Ekki hefur gengið sem skyldi
að fá Rauðhettu til að skila folöldum
í þennan heim og eru aðeins til tvö
hross á lífi undan henni. Ágúst Sig-
urðsson í Kirkjubæ flutti þau gleði-
tíðindi að Rauðhetta væri nú fyl-
full við Otri frá Sauðárkróki og ef
allt færi að óskum er það þriðja
afkvæmi hennar. í fyrra var hún
hjá Kjarval, bróður Oturs, en reynd-
ist geld eftir þær samvistir. Sama
ár átti hún sitt annað folald, hest
ILLA hefur gengið að koma folaldi í Vordísi frá Meðalfelli undanfarið en Einar Ellertsson segir
hvert folald sem hann fái héðan í frá sé happdrættisvinningur. Fyrir á hann vel ættuð og efnileg
trippi undan henni svo ekki þarf hann að örvænta. Myndin er tekin þegar Vordís var sýnd með
afkvæmum á landsmótinu ’94 og situr Einar Ellertsson hryssuna lengst til hægri á myndinni.
undan Trostan frá Kjartansstöðum
sem er veturgamall og Ágúst segir
vera myndarfola, fríðan og framfal-
legan en frekar þroskalítinn enda
er hann mjög síðkastaður.
Eydís undir Galsa
Næst var borið niður hjá Einari
Ellertssyni sem ræktar hross út af
Vordísi frá Sandhólaferju en hún
er líklega frægust fyrir að vera
móðir Adams frá Meðalfelli. Einar
var fyrst spurður hvemig málin
stæðu með Vordísi sem nú er 25
vetra gömul. Svörin voru þau að
ekki gengi of vel að fá hana til að
halda. í fyrra var hún hjá Hrannari
frá Kýrholti en reyndist geld í vor.
í sumar hefur hún verið hjá Pilti
frá Sperðli frá því í maí og tvisvar
verið ómskoðuð en fyllaus í bæði
skiptin. Einar sagði að hvert folald
sem hann fengi undan Vordísi héð-
an í frá væri lottóvinningur en hún
væri við góða heilsu að öllu leyti.
Til er veturgamall foli undan henni
og Kraflari sem Einar sagði að liti
býsna vel út. Einnig væri til þriggja
vetra óvanaður foli undan Kolfinni
frá Kjarnholtum. „Hann er spurn-
ingarmerki" sagði Einar en bætti
við að aldrei væri að vita hvernig
þessi trippi þróuðust en heldur
stefndi í rétta átt með hann.
Þá þótti forvitnilegt að vita und-
ir hvaða hest Einar hélt Eydísi,
„Spila áfram á
svipuðum nótum“
Segir Bæring Sigurbjörnsson sem keypt
hefur Stóra-Hof og hrossin þar
BÆRING Sigurbjörnsson sem búið
hefur ásamt sambýliskonu sinni
Kolbrúnu Jónsdóttur á Stóra-Hofi
á Rangárvöllum um árabil festi fyrr
á þessu ári kaup á jörðinni ásamt
hrossunum sem hin þekkta Stóra-
Hofsræktun hefur byggst á. Auk
þess keypti Bæring stóðhestinn Stíg
frá Kjartansstöðum sem var að
hálfu í eigu Þorvalds Sveinssonar á
Kjartansstöðum og föður Bærings,
Sigurbjörns Eiríkssonar. Jörðin og
stóðið var í eigu Sigurbjörns.
Öfugt við það sem margir kynnu
að halda segist Bæring ekki fá jörð-
ina og stóðið á silfurfati. „Þarna
er um beinhörð viðskipti að ræða
og kaupin fjármögnuð að hluta með
lántökum og nú er að sjá hvort
hægt er að lifa á hrossarækt,“ sagði
Bæring, sem vildi ekkt gefa kaup-
verðið upp.
Um framtíðaræktunaráform
sagði Bæring að hann myndi spila
á svipuðum nótum og gert hefur
verið. Stígur er og verður aðalhest-
urinn um sinn. Aðspurður kvaðst
hann ekki telja sig ofnota hestinn.
„Ég mun nota Stíg áfram meðan
góð sala er í hrossum undan hon-
um.“ Þá sagði hann einnig koma
til greina að skipta á honum og
öðrum hestum sum árin og væru
slík skipti í umræðunni. Þá sagðist
Bæring alltaf keyra með hryssur á
hveiju ári í ýmsa stóðhesta og
nefndi hann sem dæmi að Vaka
hefði verið hjá Seimi frá Víðivöllum
fremri, Morgunstjarna hitti And-
vara frá Ey og Kveikja fór undir
Kormák frá Flugumýri. Óður var
notaður á megin þorra hryssanna
á Stóra-Hofí, en tvær fóru undir
bróður hans, Höld frá Brún. Stígur
var hinsvegar að heiman í ár.
En héðan af munu hrossin frá
Stóra-Hofi vera í eigu Bærings, sem
nú hefur með formlegum hætti tek-
ið við árangursríku ræktunarstarfi
föður síns.
Valdimar Kristinsson
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
EITT af þeim hrossum sem fylgdi með í kaupum Bærings á
Stóra-Hofi er Nótt frá Kröggólfsstöðum sem nú er komin á fer-
tugsaldurinn, fædd ’66. Bæring, sem hér heldur í hryssuna, segir
hana komna úr folaldseign en hún fái að lifa sem heiðurshross
í stóðinu meðan hún sé við góða heilsu og það sé hún svo sannar-
lega um þessar mundir.