Morgunblaðið - 08.10.1996, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 43
1
i
1
]
1
I
I
<
í
I
í
<
<
<
(
(
(
(
i
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
KVARTETT Ómars Axelssonar leikur á Sólon íslandus.
Kvartett Omars Axelssonar
á Sólon íslandus
Vetrardag-
skrá Hreyfi-
myndafé-
lagsins
HREYFIMYNDAFÉLAGIÐ hefur
formlega vetrardagskrá sína í dag,
þriðjudaginn 8. október. í þessum
mánuði verða sýndar vísindaskáld-
sögur frá ýmsum tímabilum, ein
mynd á viku. Aðeins tvær sýningar
verða á hverri mynd, á þriðjudegi
og fimmtudegi, og eru allar sýningar
í Háskólabíói.
Opnunarmynd vetrardagskrárinn-
ar er hin sígilda þýska stórmynd,
Metropolis, eftir Fritz Lang, gerð
árið 1926. Árið 2000 er mannkynið
búið að skiptsat í tvær fylkingar,
hugsuði og verkamenn, en verka-
mennirnir búa við kröpp kjör og
kúgun í þessu framtíðarríki. Hin
englum líka María er sameiningar-
tákn verkamannanna en bijálaður
vísindamður smíðar vélmenni í henn-
ar mynd, vonda Maríu, til að æsa
til uppreisnar.
Aðeins félagsmenn komast inn á
sýningar Hreyfimyndafélagsins en
það eru allir nemar í Háskóla ís-
lands og framhaldsskólanemar. Aðr-
ir geta keypt sér félagsskírteini fyr-
ir 200 kr. Miðaverð er 300 kr.
Fyrirlestur um
þjóðgarða
DR. MARGARET G. Ottum flytur
opinberan fyrirlestur um þjóðgarða
í Bandaríkjunum og vandamál í
sambandi við stjórnun þeirra
fimmtudaginn 10. október kl. 17.15
í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn
er öllum opinn.
Dr. Margaret G. Ottum er pró-
fessor í umhverfisfræðum við John-
son State College í Johnson í Verm-
ontríki í Bandaríkjunum. Hún er
sem stendur Fulbrightstyrkþegi við
jarð- og landfræðiskor Háskóla ís-
lands þar sem hún kennir námskeið
í umhverfisfræðum og stjórnar
málstofu um umhverfi og ferða-
mennsku. Á meðan á dvölinni hér
á Islandi stendur mun Ottum kynna
sér notkun jarðhita til orkuvinnslu.
Ottum stundaði nám í lífræði við
Mankato State University í Minni-
sota og framhaldsnám í jarðvísind-
um við Bowling Green State Uni-
versity. Hún lauk doktorsprófi í
auðlindalandafræði frá ríkisháskól-
anum í Oregon í Bandaríkjunum.
Hún hefur kennt í landafræði,
jarðvísindi og umhverfisfræði við
ýmsa háskóla í Bandaríkjunum en
lengst við Johnston State College í
Vermont þar sem hún hefur yfirum-
sjón með kennslunni í umhverfis-
fræðum og sér sjálf um námskeið
í jarðvísindum, hnattræn umhverf-
isvandamál, meðferð spilliefna,
orkulindir, stjórnun þjóðgarða og
óbyggða.
Fundur um
jöfnun atkvæð-
isréttar
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
heldur fund á Grand Hótel Reykja-
vík við Sigtún í dag, þriðjudaginn
8. október, kl, 17.30-19.
Birgir Ármannsson, talsmaður
málefnadeidlar SUS, kynnir niður-
stöður nefndarinnar varðandi breyt-
ingar á kosningalöggjöfinni og kjör-
dæmaskipan. Þá ræða Geir H.
Haarde, formaður þingfiokks sjálf-
stæðismanna, Guðmundur Árni
Stefánsson, alþingismaður Alþýðu-
flokksins og Valgerður Sverrisdóttir,
formaður þingflokks framsókn-
armanna, um hvort vænta megi
breytinga á kosningalöggjöfinni á
kjörtímabilinu. Framsögumenn taka
þátt í umræðum og svara fyrirspurn-
um.
Fundarstjóri og stjórnandi um-
ræðna verður Guðlaugur Þór Þórð-
arson, formaður Sambands ungra
sj álf stæðismanna.
Á SÓLON íslandus leikur í kvöld,
8. október, Kvartett Ómars Ax-
elssonar og hefur leikinn kl. 22
og leikur til kl. 0.30. Kvartettinn
Fyrirlestur
um stöðu þjóð-
kirkjunnar
PÉTUR Pétursson, prófessor, held-
ur fyrirlestur í boði Félagsfræðinga-
félags íslands um stöðu þjóðkirkj-
unnar og trúarlega félagsmótun
þriðjudaginn 8. október kl. 20.30.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 201 í Odda, húsi félagsvís-
inda- og viðskiptafræðideilda HÍ.
Allir velkomnir.
Lýst eftir
bifreið
LÝST er eftir bifreið sem hvarf frá
Vatnsstíg í Reykjavík 30. september
sl. Bíllinn er af gerðinni Toyota Cor-
olla, dökkblár skutbíll, árgerð 1982.
Skráningarnúmer bifreiðarinnar er
A-12238.
Finnandi vinsamlegast láti lög-
regluna í Reykjavík vita.
Foreldrafundur
LAUF
LAUF, félag áhugafólks um floga-
veiki, verður með foreldrafund í
fundarsalnum á efstu hæðinni í
húsnæði félagsins á Laugavegi 26,
gengið inn Grettisgötumegin, mið-
vikudaginn 9. október kl. 20.30.
Astrid Kofoed-Hansen formaður
flytur inngang, en Guðlaug María
Bjarnadóttir og Jónína B. Guð-
munsdóttir félagsfræðingur flytja
erindi. Einnig verður félagið með
kökubasar í Kringlunni laugardag-
inn 12. október nk.
Friðarvaka í
Dómkirkjunni
FRIÐARVAKA verður haldin í
Dómkirkjunni í Reykjavík alla þriðj-
daga kl. 21 á vegum Friðar 2000.
í kvöld, þriðjudaginn 8. október,
verður m.a. greint frá aðstæðum
almennings í Irak.
í frétt frá Friði 2000 segir að
friðarvökurnar miðist ekki við nein
einstök trúarbrögð. Með þeim sé
leitast við að efla samstarf meðal
fólks með mismunandi trúar- og
lífsskoðanir sem vilja vinna af heil-
um hug að friðarmálum og styðja
viðleitni almennings í leit að innri
friði og kærleika.
■ ÞRIÐJUDAGSSPJALL
Kvennalistans verður haldið í
kvöld, þriðjudaginn 8. október, að
Austurstræti 16, 3. hæð (gengið
inn frá Pósthússtræti). Yfirskrift
fundarins er Hvenær fáum við
kvenbiskup? og munu séra Auður
Eir Vilhjálmsdóttir og séra María
Ágústsdóttir ræða stöðu kvenna
innan kirkjunnar. Fundurinn hefst
kl. 20.30 og er öllum opinn. Þeir
sem áhuga hafa á þessu málefni
eru boðnir velkomnir.
skipa Ómar Axelsson, píanó,
Hans Jensson, tenórsax, Leifur
Benediktsson, bassi, og Þor-
steinn Eiríksson, trommur.
Á MYNDINNI undirrita
Sveinbjörn Björnsson, há-
skólarektor og Ólafur Tómas-
son, póst- og símamálastjóri,
samninginn.
Minjasafn
fjarskipta
stofnað
PÓST- og símamálastofnun og
Háskóli Islands hafa ákveðið að
stofna til samstarfsverkefnis
um rekstur minjasafns fjar-
skipta á íslandi og rekstur þjálf-
unar- og rannsóknarstöðvar í
nútíma fjarskiptatækni.
Samkvæmt samningnum
kaupir Póst- og símamálastofn-
un af Háskólanum gamla lof-
skeytastöðvarhúsið á Melunum
og er ætlunin að koma þar upp
símasafni með aðaláherslu á
sögu loftskeyta og ritsíma. Enn
fremur að koma upp aðstöðu
fyrir þjálfunar- og rannsóknar-
stöð í nútíma fjarskiptatækni í
húsakynnum Háskóla íslands
sem notuð verður við kennslu í
fjarskiptum fyrir nemendur
Háskólans og tæknimenn Póst-
og símamálastofnunarinnar.
„Póst- og símamálastofnun
er það metnaðarmál að til sé
gott símasafn. Núverandi safn
í gamla símstöðvarhúsinu í
Hafnarfirði er bæði fyrir póst-
inn og símann og eru húsakynn-
in alltof lítil til þess að geta
rúmað bæði söfnin. Stefnt er
að því að gera safnið í gömlu
loftskeytastöðinni að fullkomn-
asta símasögusafni Iandsins,“
segir í frétt frá Pósti og síma.
Skipulagsskrá fyrir sam-
starfsverkefnið er undirritað á
90 ára afmæli símaþjónustu á
íslandi.
LEIÐRÉTT
I grein um Pourqui pas? í sunnudags-
blaði var staf ofaukið. Bærinn heitir
Straumfjörður, ekki Straumsfjörður.
Úr dagbók lögreglunnar
Olvaðar stúlkur áberandi
TILKYNNINGAR vegna afleiðinga
veðurofsa settu svip sinn á helgar-
dagbókina að þessu sinni. Þá bera
bókanir talsyerð merki ölvunar á
meðal fólks. í dagbókinni eru skráð
44 umferðaróhöpp, en í þeim urðu
slys á fólki í þremur tilvikum. Af-
skipti þurfti að hafa af 10 líkams-
meiðingum, 15 innbrotum, 9 þjófn-
uðum, 15 eignarspjöllum og 1 rán
var tilkynnt til lögreglu.
Enn sem fyrr var mikið um
kvartanir vegna hávaða og ónæðis
í heimahúsum, eða 23 talsins. í
flestum tilvikum var um að ræða
ölvað fólk, sem ekki kunni eða gat
tekið tillit til íbúa í sama húsi. Vista
þurfti 28 í fangageymslunum.
Líkamsmeiðingar og innbrot
Fiytja þurfti dreng á slysadeild
eftir átök í Bökkunum á föstudag.
Manni var hrint niður tröppur veit-
ingastaðar við Ármúla. Hann skall
með höfuðið í gólfið svo flytja varð
hann á slysadeild með sjúkrabif-
reið. Þrír voru fluttir á slysadeild
eftir slagsmál í Austurstræti að-
faranótt sunnudags.
Þremur tölvum var m.a. stolið í
innbroti í fyrirtæki við Hverfisgötu
aðfaranótt föstudags. Brotist var
inn í nuddstofu og hárgreiðslustofu
við Skólavörðustíg og þaðan stolið
tölvum og símum. Á föstudag var
farið inn í bifreið við Langholtsveg.
Þá var veskjum starfsfólks fyrir-
tækis við Bíldshöfða stolið úr yfír-
höfnum þeirra. Um kvöldið var
brotist inn í hús í Bláskógum og í
bifreiðir við Bergstaðarstræti,
Tryggvagötu og Reykás. Á laugar-
dag var farið inn í fyrirtæki við
Korngarða. Maður var handtekinn
eftir að hafa brotið upp hurð á
skrifstofu við Austurstræti aðfara-
nótt sunnudags.
Ógnaði með hnífi
Á föstudag var maður handtek-
inn í kjallara húss við Baldursgötu.
Við húsleit hjá honum fannst nokk-
urt magn af amfetamíni og meint
þýfi úr innbrotum. Aðfaranótt laug-
ardags var maður handtekinn á
Lækjartorgi. Á honum fundust tveir
hnífar og auk þess 30 svefntöflur.
Þegar dyraverðir skemmtistaðar
í miðborginni meinuðu manni inn-
göngu á staðinn aðfaranótt sunnu-
dags tók hann upp „mace“-brúsa
og sprautaði framan í einn dyra-
varðanna og nálægt fólk. Að því
loknu hljóp maðurinn á brott, en
var handtekinn skömmu síðar. í
fórum hans fannst gasbrúsi.
Um nóttina voru þrír ungir menn
undir áhrifum vímuefna handteknir
í austurborginni eftir að einn hafði
ógnað fólki þar með hnífí.
Hávær unglingasamkvæmi
Lögreglan hefur nokkrum sinn-
um beðið foreldra að huga sérstak-
lega að svonefndum unglingapart-
íum og það ekki að ástæðulausu.
Tilkynnt var um eitt slíkt i húsi
við Hraunbæ á föstudagskvöld. Þar
var talsverð háreysti.
Aðfaranótt sunnudags þurfti að
vísa um 30 unglingum úr sam-
kvæmi húss við Mávahlíð. Þá var
kvartað yfir samkvæmi unglinga
við Byggðaholt og við Hólmgarð.
í nokkrum tilvikanna reyndist vera
um almenna ölvun á meðal bam-
anna að ræða.
Engir unglingar sáust á ferli í
eða við miðborgina að næturlagi
um helgina. Talsverð ölvun var á
meðal fólks, sérstaklega aðfaranótt
sunnudags. Þá varð- stúlka fyrir
bifreið í Hafnarstræti. Hún hlaut
talsverða áverka.
Annars var áberandi hversu
stúlkur virtust ölvaðar og illa á
sig komnar. Sjá mátti ofurölvi
ungar konur, annars snyrtilega til
fara, sem varla vissu í hvorn fótinn
þær áttu að stíga. Tvær sátu á
tröppum húss við Hverfisgötu og
köstuðu upp í tvíómi, ein sat við
sömu iðju á hækjum sér í húsa-
sundi við Hafnarstræti og svona
mætti lengi telja. Þessi ásýnd ætti
að verða öllu sæmilega skynsömu
fólki umhugsunarefni.
Eftirlit með ljósabúnaði
Þessa viku munu lögreglumenn
á Suðvesturlandi beina athygli
sinni sérstaklega að ljósabúnaði
ökutæka, bifreiða jafnt sem reið-
hjóla svo og stefnuljósanotkun öku-
manna. Varla þarf að fjölyrða um
nauðsyn þess að hafa ljósabúnað-
inn í lagi og nota hann rétt í
skammdeginu. Sektir vegna van-
búnaðar ljósa geta verið á bilinu
2.000-5.000 kr.
Um helgina snjóaði lítillega á
höfuðborgarsvæðinu. Að gefnu til-
efni er rétt að geta þess að í regl-
um er gert ráð fyrir að neglda hjól-
barða megi ekki nota á tímabilinu
frá og með 15. apríl til og með 31.
október, nema þess sé þörf vegna
akstursaðstæðna.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur hlýju og samúð við fráfall
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÖLDU PÉTURSDÓTTUR,
Álfholti 2c,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjör-
gæsludeildar Borgarspítalans.
Hermann Valsteinsson,
Haukur Herrrutrtnsson,
Pétur Hermanrttson,
Reynir Hermannsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
RAGNHILDAR G. GÍSLADÓTTUR,
Tjarnarbraut 11,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Sólvangs.
Guð blessi ykkur öll.
Ásthildur Ólafsdóttir, Hörður Zóphaniasson,
Kristján Bersi Ólafsson, Sigríður Bjarnadóttir,
Ingileif Ólafsdóttir, Gunnar Finnbogason,
barnabörn og barnabarnabörn.