Morgunblaðið - 08.10.1996, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBl@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Vísindamenn búast við Skeiðarárhlaupi á hverri stundu
Lýst yfir hættuástandi
á Skeiðarársandi
ALMANNAVARNARÁÐ ríkisins
ákvað í gær, að höfðu samráði við
vísindamenn, að lýsa yfír hættu-
ástandi á Skeiðarársandi. Hættu-
ástandið varir þangað til hlaupið
hefur úr Skeiðaráijökli. Ef ekki kem-
ur hlaup í dag verður veginum yfir
Skeiðarársand lokað kl. átta í kvöld,
en undanfama daga hefur veginum
verið lokað kl. ellefu.
Sigurður Gunnarsson, sýslumaður
.__í Vík í Mýrdal, sagði að það væri
mat Almannavarna að ekki væri
óhætt að leyfa umferð um sandinn
nema í björtu þegar vel sæist til
Skeiðaráijökuls. Hann sagði að í yfír-
lýsingu Álmannavárna um hættu-
ástand fælist að þeim sem leið ættu
um Skeiðarársand bæri að hafa vara
á sér og að þeir sem færu um sandinn
utan vega gerðu það á eigin ábyrgð.
Sigurður sagði að við upphaf
hlaups yrði öll umferð utan vega á
sandinum bönnuð og þyrla yrði send
á loft til að kanna hvort einhveijir
væru á sandinum. Ennfremur yrðu
bílar taldir inn og út af veginum
yfir Skeiðarársand. Það færi síðan
eftir umfangi og eðli hlaupsins hvort
gripið yrði til frekari aðgerða við
upphaf hiaups.
Jarðvísindamenn flugu upp að
gosstöðvunum í Vatnajökli í gær.
Skyggni var slæmt og ekki sást nið-
ur á jökulinn. Af þeim sökum tókst
ekki að gera mælingar á vatnshæð
Grímsvatna. Ekki tókst heldur að
gera mælingar um helgina, en vís-
indamenn áætla að yfirborð Gríms-
vatna þafi nú náð hátt í 1.500 metra
hæð. I síðustu Grímsvatnahlaupum
hefur að jafnaði hlaupið þegar yfír-
borð vatnanna hefur staðið í um
1.450 metrum.
Morgunblaðið/Þorkell
UM helgina brotnaði nokkuð úr Skeiðarárjökli ofan við Gígju-
kvísl. Þetta kann að vera fyrirboði hlaups, en gæti einnig verið
afleiðing rigninga. Að mati heimamanna hefur Skeiðaráijökull
hækkað síðustu daga, en það er talið öruggur undanfari hlaups.
Morgunblaðið/Ásdís
Annað GSM-kerfi
kemur á næsta ári
Útboð á
starfsleyfi
fyrir
áramótin
HALLDÓR Blöndal, sam-
gönguráðherra, segir vilja
sinn standa til þess að útboð
á starfsleyfi til reksturs ann-
ars GSM-farsímakerfis til við-
bótar við kerfi Pósts og síma
verði auglýst fyrir áramót.
Nýtt GSM-þjónustufyrirtæki
geti því tekið til starfa eigi
síðar en 1. júlí á næsta ári.
Samgönguráðherra skýrði
frá þessu á ráðstefnu Pósts
og síma um fjarskiptaþróun
sem haldin var í gær í tilefni
af því að 90 ár eru liðin frá
lagningu sæsíma til íslands.
„Útboðsgögn munu liggja
fyrir á næstu vikum en áður
en frá þeim er endanlega
gengið er nauðsynlegt að taka
afstöðu til einstakra ákvæða
eða skilyrða sem við kunnum
að vilja setja vegna fámennis
okkar og strjálbýlis.
Ég hef gengið út frá því
að eitt starfsleyfi verði gefið
út til viðbótar starfsleyfi
Pósts og síma, sem er sú leið
sem Norðmenn, Danir og
raunar fleiri þjóðir hafa far-
ið,“ sagði samgönguráðherra
meðal annars í ávarpi sínu á
ráðstefnunni.
■ Samkeppni/18
Bílvelta
í Langadal
JEPPI valt í Langadal í Húnavatns-
sýslu um tvöleytið í gærdag. Öku-
maðurinn var einn í bílnum og slapp
með skrámur að sögn lögreglu á
Blönduósi.
Svo virðist sem ökumaðurinn
hafí misst stjórn á bílnum með þeim
afleiðingum að hann fór út af vegin-
um og valt nokkrar veltur. Bíllinn
skemmdist mikið.
Fagnaðarfundir
" viðkomuÓðins
FAGNAÐARFUNDIR urðu með
19 skipveijum Oðins, varðskips
Landhelgisgæslunnar, og fjöl-
skyldum þeirra í gærkvöldi þeg-
ar varðskipið lagðist að bryggju
í Reykjavík á 47. degi ferðar í
Smuguna. Óskar Skúlason háseti
fékk reglulega hlýjar móttökur
hjá sinni heittelskuðu, Svandísi
Hákonardóttur, og létu þau ljós-
myndara ekki trufla sig.
Ferð Óðins er sú þriðja ájafn
mörgum árum á veiðislóðir í
Smugunni. Að sögn Kristjáns Þ.
Jónssonar skipherra var túrinn
sá stysti hingað til, en var þó
„alveg nógu langur“ að mati eins
skipveijans. Oðrum fannst
tíminn reyndar óveiyu fljótur að
Hða að þessu sinni og sá hefur
farið í öll þijú skiptin.
Kristján skipherra sagði að
ferðin hafi verið tiltölulega ró-
leg. Til marks um það hafi „dokt-
orinn“ aðeins þurft að sinna 34
tilvikum um borð og öðrum 15 í
gegnum talstöð. Ekkert þeirra
gat þó talist mjög alvarlegt. „Síð-
ustu þrjár vikurnar var aflinn
mjög lélegur og þá er eðlilega
lítið að gera. Á meðan svo er
slasa menn sig ekki,“ sagði Krist-
ján.
Skipherrann segir að stærsta
breytingin frá fyrri ferðum Óð-
ins í Smuguna 1994 og 1995 sé
að samskipti norsku landhelgis-
gæslunnar og islensku skipanna
hafi batnað til muna. Segir hann
að Norðmenn hafi verið mjög
ánægðir með samvinnuna við ís-
lendinga.
Útboð vegna Sultartangavirkjunar ráðgert um áramót
Aætlað að verkið kosti
13,5 milljarða króna
BYGGING 125 MW virkjunar við
Sultartanga er langstærsta fram-
kvæmdin sem Landsvirkjun telur
sig þurfa að ráðast í til að anna
orkuþörf fyrirhugaðs álvers Col-
umbia Ventures og vegna hugsan-
legrar stækkunar Járnblendiverk-
smiðjunnar. Samkvæmt endurskoð-
aðri áætlun er talið að verkið kosti
13,5 milljarða og að framkvæmda-
tíminn verði 3'/2 ár.
Meðal annarra raforkufram-
kvæmda Landsvirkjunar vegna
mögulegrar stóriðju á næstu þrem-
ur árum er lagning 400 kílóvolta
háspennulínu frá Sultartanga niður
í Búrfell og þaðan yfír á Sandskeið.
Er kostnaður við línuna áætlaður
tæpir þrír milljarðar.
Gerð útboðsgagna hafin
Áætlaður kostnaður við fyrirhug-
aða Hágöngumiðlun er 1.200 millj.,
stækkun Kröfluvirkjunar er talin
kosta samtals 1.400 millj. kr. og
einnig er ráðgert að hækka stíflu
við Laxárvirkjun um 8-12 metra
en sú íjárfesting er talin nema um
400 milljónum kr.
Gerð útboðsgagna vegna Sultar-
tangavirkjunarinnar er þegar hafin.
Ef samningar nást við Columbia
Ventures á næstu vikum mun
Landsvirkjun væntanlega óska eftir
því að stjórn Járnblendifélagsins
gefi svör um hversu líklegt sé að
ráðist verði í stækkun, skv. upplýs-
ingum Morgunblaðsins. Að því búnu
yrði tekin endanleg ákvörðun um
hvort ráðist verður í útboð fram-
kvæmda við Sultartangavirkjun um
áramótin en ráðgert er að bjóða þá
út allt verkið.
■ Fjárfesting/12