Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VSI telur útilokað að semja um meiri launahækkanir en í samkeppnislöndum Kaupmátt mættí auka með samiiinguni í fyrirtækjum Vinnuveitendasamband íslands kynnti í gær samþykkt sambands- stjórnar um markmið og áherslur við endurnýjun kjarasamninga. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSI, sagði á blaðamannafundi að VSÍ vildi breyta samningaferlinu þannig að samið verði um launakjör á tvennan hátt. Lagt er til að annars vegar verði gerðir almennir Iq'arasamningar, a.m.k. til tveggja ára, sem miði að því að verðbólga verði í mesta lagi 2% á samningstímabilinu og launa- breytingar tryggi kaupmáttarauka. Hins vegar kveðst VSI vera reiðu- búið að heimila milliliðalausa samn- NEFND um endurskoðun regiugerð- ar um símatorgsþjónustu Pósts og síma vinnur nú að því að semja tillög- ur um að takmarka aðgang að þjón- ustunni, að því er fram kom í svari Halldórs Blöndals samgönguráð- herra við fyrirspum Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, Þjóðvaka, um síma- torgsþjónustuna. Asta Ragnheiður vakti máls á því á Alþingi í gær að einkafyrirtæki byðu upp á margvíslega vafasama þjónustu, jafnvel harðasta klám, á símatorgi Pósts og síma. Hugðist hún spila hljóðdæmi af einu þjónustu- númera torgsins, en treysti sér ekki til þess sökum þess um hve gróft klám var að ræða. Þingmaðurinn beindi þeim spurn- ingum til ráðherra hvort eðlilegt gæti talist að opinbert fyrirtæki ann- aðist innheimtu fyrir þjónustu einka- BÚNAÐARBANKI íslands opnar verðbréfa- og íjárstýringarsvið inn- an bankans 1. nóvember nk. Með því býður Búnaðarbankinn, fyrstur íslenskra banka, upp á verðbréfa- þjónustu innan sjálfs bankans. Nýja sviðið hefur hlotið nafnið „Búnaðarbankinn verðbréf". Meg- inrekstrareiningar þess verða mark- aðsviðskipti, sem munu veita verð- bréfaþjónustu, eignavarsla sem hef- inga milli starfsfólks og stjómenda fyrirtækja um afmarkaða þætti, s.s. að stytta vinnutíma, auka framleiðni og bæta kaupmátt á unna vinnu- stund, sem aukið geti kaupmátt án kostnaðarauka fyrir fyrirtækin. VSÍ bendir á að á yfirstandandi samningstímabili hafi afkoma starf- andi manna batnað meira en í nokkru öðru aðildarríki OECD. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi vaxið um 8% að jafnaði og mest hjá hinum tekjulægri. Samfara þessu hafi dregið úr atvinnuleysi. Að mati VSÍ byggist sá árangur á sameigin- legri áherslu samningsaðila á litla verðbólgu og að launabreytingar fyrirtækjanna og hvort hann hygðist beita sér fyrir takmörkun á aðgangi að þjónustunni. Benti hún m.a. á að margir, einkum foreldrar forvitinna barna og unglinga, hafi lent í vand- ræðum vegna himinhárra símareikn- inga. Halldór sagði að til að takmarka almennan aðgang að símatorgi mætti annars vegar búa svo um hnúta að þeir símnotendur sem vilji ná sambandi við símatorgsþjónustu verði sjálfir að óska eftir að símar þeirra séu opnaðir fyrir þá þjónustu. Hins vegar kæmi til greina að sím- notendum yrði send viðvörun ef sím- notkun eykst óeðlilega mikið. Halldór sagði að byði símafyrir- tæki á annað borð upp á símatorgs- þjónustu væri óhjákvæmilegt að það annaðist einnig innheimtuna. ur umsjón með verðbréfasjóðum bankans. í því sambandi hefur bank- inn stofnað þtjú hlutafélög, Verð- bréfasjóð Búnaðarbankans hf., Rekstrarfélag verðbréfasjóðs Bún- aðarbankans hf. og Hlutabréfasjóð Búnaðarbankans hf. sem mun hefja hlutafjárútboð um næstu mánaða- mót. ■ Nýtt afl/D4 skerði ekki samkeppnisstöðu ís- lenskra fyrirtækja. Þórarinn sagði að ef tryggja eigi áframhaldandi stöðugleika og kaup- máttaraukningu verði að miða launahækkanir við greiðslugetu þorra fyrirtækja. Útilokað væri af þessum sökum að hækka launaút- gjöld umfram það sem gerist hjá keppinautum í samkeppnislöndum íslands. Því væri brýnt að laun hækkuðu ekki meira en sem nemur meðallaunahækkun í OECD-lönd- unum, eða um 3,5%. Talsmenn VSI sögðu óraunhæft að krefjast meiri launahækkana í almennum samningum. Væri fram- HALLDÓR Bjarni Óskarsson, hjarta- og lungnaþegi, segir að heiisan sé „fln“ og að „allt gangi vel“. Haildór fór í fyrstu göngu- ferð sína eftir aðgerðina utan spít- ala í fyrradag og segist hafa verið þreyttur að henni lokinni. Halldór Bjarni er tvítugur Borgnesingur og þáði hjarta og lungu á Sa- hlgrenska-sjúkrahúsinu í Gauta- borg aðfaranótt 10. október síð- astliðins. „Ég fór út á planið við sjúkra- húsið og gekk hálfan kílómetra og var rosalega þreyttur á eftir,“ segir Halldór um sína fyrstu gönguferð. Aðra gönguferðina utan spítala fór Halldór síðan í gær í fylgd móður sinnar, Sigrúnar Sigurðar- leiðslukostnaður aukinn óhóflega leiddi það til óðaverðbólgu og hjöðn- unar kaupmáttar. Þórarinn sagði aftur á móti svig- rúm vera til launahækkana með því að færa kjaraákvarðanir í vaxandi mæli til einstakra fyrirtækja og heim- ila milliliðalausa samninga. Raun- hæft væri að ætla að framleiðni gæti aukist í fyrirtækjum og kaup- máttur launþega jafnframt. Um starfskjör og endurskoðun úrelts vinnukerfis væri ekki hægt að semja í karphúsum heldur yrði að gefa kost á beinum samningum starfsmanna og stjómenda fyrirtækja sem taka mið af mismunandi aðstæðum þeirra. dóttur. „Þá var ég miklu betri og gekk aðeins lengra, líklega einn og hálfan kílómetra, og er ekkert svo þreyttur núna,“ segir hann. Veðrið var milt að Halldórs sögn og hitastigið rétt yfír frostmarki. Halldór segir „mjög fínt“ að vera á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu. „Þetta er fínt sjúkrahús, hjúkkurn- ar eru frábærar og fínt að hafa prestinn," segir Halldór og á við séra Jón Dalbú sem hefur heim- sótt hann af og til. Hann segir „allt ganga vel“ og að ekkert hafi komið upp á ennþá. „Læknarnir segja að þetta fari alltaf upp á við.“ Halldór segist ekki vita hvað hann verður lengi á spítalanum í viðbót og býst við að koma heim í vor, gangi allt að óskum. Jóhann aðalsamn- ingamaður JÓHANN Siguijónsson, aðstoðar- forstjóri Hafrannsóknastofnunar, verður frá og með morgundeginum aðalsamningamaður íslands í fisk- veiðimálum. Jóhann hlýtur setningu í stöðu sendiherra í utanríkisþjón- ustunni, til eins árs fyrst um sinn. Þetta var samþykkt á ríkisstjórn- arfundi í fyrradag, að tillögu Hall- dórs Ásgrímssonar utanríkisráð- herra. „Ég tel að Jóhann búi yfir nauðsynlegri þekkingu á þessu sviði, sem er mjög mikilvæg. Jafnframt er mikilvægt að sú þekking, sem til er á þessu sviði, komi inn í utanríkis- þjónustuna," segir Halldór. Ráðherra segir að um tímabundið starf sé að ræða og Jóhann muni síðar hverfa til fyrri starfa sinna. Hið nýja starf aðalsamningamanns var áður hluti af starfsskyldum Guð- mundar Eiríkssonar þjóðréttarfræð- ings, sem nú er dómari í Hafréttar- dómi Sameinuðu þjóðanna. Jóhann Siguijónsson hefur m.a. stundað rannsóknir á hvalastofnum við ísland. Aðspurður hvort ráðning hans tengist áformum um að hefja hvalveiðar á ný, segir Halldór: „Nei, það gerir það ekki. Við gerum okkur hins vegar grein fyrir að þau mál verða á dagskrá á næstunni. Jóhann býr þar yfir mikilli þekkingu og ég á von á að til einhverra viðræðna komi við samstarfsríki okkar um þau mál á næstu mánuðum." -----»■♦ »--- Samningnr um rekstur Stöðvar 3 Hlutafé tryggt fyrir næsta áfanga HLUTAFÉ íslenskrar margmiðlunar hf. verður aukið frekar í nokkrum áföngum á næstu vikum og mánuð- um og er þegar búið að tryggja nýtt hiutafé fyrir næsta áfanga, sam- kvæmt frétt frá stjóm Islenskrar margmiðlunar hf. Þegar er búið að auka hlutafé í 160 milljónir. íslensk margmiðlun hf. yfirtók rekstur Stöðvar 3 í gær en íslenska sjónvarpið hf. annast áfram rekstur sjónvarpsrása, sem félagið ræður yfir í dag. Búið er að gera samstarfs- samning milli félaganna um rekstur þeirra rása sem þau hafa yfir að ráða. Aukning hlutafjár verður gerð í samræmi við áform um uppbyggingu og markaðssókn Stöðvar 3. Stefnt er að þvi að gera íslenska margmiðl- un hf. að opnu almenningshlutafélagi með breiðri eignaraðild sem flestra landsmanna þegar fyrstu áföngum í uppbyggingu Stöðvar 3 er lokið. ■ Hlutafjáraukning/33 Andlát Jöfnun atkvæðisréttar Símatorgsþjónusta gagnrýnd á Alþingi Stefnt að því að takmarka aðgang Morgunblaðið/Golli HALLDÓR Bjarni Óskarsson, hjarta- og lungnaþegi. Halldóri Bjarna Óskarssyni heilsast vel Búinn að fara í tvær gönguferðir úti Búnaðarbanki íslands Verðbréfa- og fjár- stýringarsvið opnað MEÐ blaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað frá Nóatúni „Hundrað á hundrað", þar sem versl- unin kynnir eitthundrað vörutegund- ir á eitthundrað krónur. MEÐ blaðinu í dag fylgir átta síðna auglýsingablað frá versl- uninni Magasín, þar sem kynnt- ar eru margskonar jólavörur og vörur til jólagjafa. Samkomu- lag flokka skilyrði DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, sagði í svari við fyrirspurn Ólafs Arnar Haraldssonar um jöfnun at- kvæðisréttar á Alþingi í gær, að endurskoðun kosningalöggjafarinn- ar með jöfnun atkvæðisréttar að markmiði, verði aðeins gerð með góðu samstarfi allra þingflokka. Margir þingmenn sögðu hug sinn í þessu máli, og kom við þær umræð- ur berlega í ljós veigamikill munur á afstöðu þingmanna frá lands- byggðarkjördæmum annars vegar og kjördæmum Suðvesturhornsins hins vegar. Einkum virðast þing- menn Framsóknarflokksins vera klofnir í afstöðu sinni. EINAR Pálsson, rithöf- undur og fyrrverandi skólastjóri Málaskólans Mímis, lést á heimili sínu í gær, sjötugur að aldri. Einar var fæddur í Reykjavík 10. nóvem- ber 1925, sonur hjón- anna Páls ísólfssonar, organista og skóla- stjóra, og Kristínar Norðmann. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1945, cand. phil. prófi frá Háskóla íslands 1946, prófum í leiklistarfræðum við Royal Aca- demy of Dramatic Art 1948 og BA prófum í ensku og dönsku við Há- skóla íslands 1957. Einar var formaður Leikfélags Reykjavíkur er það var endurreist 1950—53, leikstjóri hjá LR, Þjóð- leikhúsinu og útvarpinu til 1963, skólastjóri Málaskólans Mímis 1953-83 og fram- kvæmdastjóri Norræna félagsins á meðan á byggingu Norræna hússins stóð 1966-69. Einar fékkst við rannsóknir og ritstörf með aðaláherslu á fornfræði, mið- aldafræði og táknmál goðsagna, en um þau málefni ritaði hann fjölda bóka bæði á íslensku og ensku. Eftirlifandi eiginkona Einars er Birgitte Laxdal. Þau eignuðust þrjú böm og eru tvö þeirra á lífi. EINAR PÁLSSON l i i i \ : L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.