Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 60
 AS/400 er... ...mest selda fjölnotenda viðskiptatölvan í dag cO> NVHERJf W-< K; MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL^)CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Kaupa veit- ingastaði íBanda- ’ ríkjunum Islenskar sjávarafurðir semja á Kamtsjatka-skaga Samningiirinn þýðir fjóra milljarða króna í veltu IS VILJAYFIRLÝSING hefur verið undirrituð um kaup Arthur Treach- er’s Inc.-fiskréttakeðjunnar á öll- um hlutabréfum í M.I.E. Hospital- ity, Inc., stærsta sérleyfishafa Arthur Treacher’s, í Bandaríkjun- um. M.I.E. Hospitality rekur 32 veitingastaði, sem eru stórir við- skiptavinir Coldwater í Bandaríkj- unum og kaupa mikið af þorski frá íslandi. íslenskir og bandarískir fjárfest- ar keyptu Arthur Treacher Inc. í ^úní sl., en með kaupum á M.I.E. Hospitality, Inc. munu umsvif og hagnaður fyrirtækisins þrefaldast. Hluthafar í Arthur Treacher’s Inc. eru m.a. þeir Guðmundur Franklín Jónsson, verðbréfamiðlari í New York, og Skúli Þorvaldsson, eigandi Hótel Holts. ■ 32 veitingastaðir/Dl GENGIÐ var frá samningum milli íslenskra sjávarafurða og fyrirtæk- isins UTRF í Petropavlovsk á Kamt- sjatka-skaga austast í Rússlandi í gær. Samningarnir, sem undirritað- ir voru í Moskvu, þýða um 60 milljónir dollara í veltu ÍS, eða um fjóra milljarða króna. Til saman- burðar má nefna að heildarvelta ÍS verður um 20 milljarðar króna í ár, að sögn Benedikts Sveinssonar, for- stjóra íslenskra sjávarafurða. „Þetta er geysilega stór viðskipta- samningur og ég veit í raun ekki til þess að Islendingar hafi gert aðra stærri í útlöndum," sagði Benedikt í samtali við Morgunblað- ið í gær. íslenskar sjávarafurðir hófu um- svif á Kamtsjatka fyrir þremur árum og aðstoðuðu þá rússneska útgerðarfyrirtækið UTRF við út- gerð á einu frystiskipi og seldu afla þess. Fyrir ári voru umsvifin aukin verulega með samningi við UTRF um aðstoð við veiðar og vinnslu afurða úr 120.000 tonnum af fiski, mest alaskaufsa, og sölu afurð- anna. Sá samningur jók árlega veltu ÍS um 30%, en tekjur þess enn meira. UTRF gerir út 26 skip, bæði fiskiskip og móðurskip, en um 1.600 manns vinna þar. Á vegum ÍS starfa nú um 25 íslendingar á Kamtsjatka og bætast um 10 við í desember, þegar vertíð hefst. Afurðirnar eru seldar til Japans, Kína og hluti til Vestur-Evrópu og Bandaríkjanna. Mest verðmæti er í sölu til Japans. „Nú var eldri samningi í raun skipt í tvo og er annar til tveggja ára en hinn til þriggja," sagði Bene- dikt Sveinsson að loknum samning- um í gær. „Við munum áfram að- stoða við veiðar, vinnslu og sölu afurða. Annar samningurinn fjallar um veiðar fyrir móðurskip, vinnslu um borð í þeim og sölu afurðanna, en hinn um veiðar tveggja frystitog- ara. Samningarnir þýða um 60 milljónir dollara í veltu eða um 4 milljarða króna. Velta íslenskra sjávarafurða í ár verður um 20 milljarðar króna, svo þessi samn- ingur er um 20% af heildarvelt- unni.“ Benedikt sagði að samningarnir væru ekki til langs tíma samkvæmt venjulegum mælikvarða, en í Rúss- landi væru miklar og örar breyting- ar og miðað við það umhverfi væri samningstíminn fremur langur. „Ég á von á að þessir samningar verði framlengdir þegar þar að kemur.“ Áhugi annarra rússneskra útgerða Benedikt sagði að töluverðs áhuga gætti meðal annarra fyrir- tækja á Kamtsjatka á samstarfi af svipuðum toga. „Aðrar útgerðir vilja eiga samvinnu við okkur, þann- ig að það er eins líklegt að við för- um að huga að því þegar við höfum fest okkur betur í sessi. Þetta starf er hins vegar mjög umfangsmikið, svo við höfum ekki hugað að slíku enn en það gæti gerst fljótlega." Auglýsa saltfisk fyr- ir 30 millj. SALTFISKKAUPENDUR í Kata- lóníu á Spáni og útflytjendur á ís- landi hafa tekið sig saman og ætla að verja 30 milljónum kr. til að auglýsa saltfisk í Barcelóna og öðr- um héruðum Katalóníu. Megin- áhersla í auglýsingunum er á að fiskurinn komi frá íslandi. Saltfiskneysla á Spáni hefur ver- ið að minnka á seinustu árum eins og í fleiri Miðjarðarhafslöndum. Kaupendur á Spáni töldu nauðsyn- legt að bregðast við með einhverjum hætti og náðu samstöðu um að fara út í söluátak. Kaupendur íslenska saltfisksins töldu þar að auki að þeim stafaði hætta af samkeppni frá Norðmönnum, en þeir hafa haft hug á að fara út í auglýsingaher- ferð í Katalóníu. ■ íslenskur saltfiskur/26 ------» 4 ■ «--- Stálvík og Sigluvík Samið við áhafnirnar Siglufirði. Morgunblaðið. SAMKOMULAG náðist í gær milli Þormóðs ramma á Siglufirði og áhafna Stálvíkur og Sigluvíkur, en undanfarnar sex vikur hafa skipin verið bundin við bryggju vegna deilu um rækjuverð til sjómanna. Samkvæmt þessum nýja samn- ingi verður skilaverð á rækju í 1. flokk, þ.e. 230 rækjur eða minna í kílói, 73,50 kr. fram að áramót- um, en lækkar þá í 71 kr. á kílóið. Verðið var 77 kr. á kílóið á síðasta fiskveiðiári. í samningum er fjögurra mán- aða uppsagnarákvæði og ef af- urðaverð á rækju hækkar mun skilaverð til sjómannanna hækka hlutfallslega. Stálvík og Sigluvík halda á veið- I ar í næstu viku. Framkvæmdastjórn ESB um endurnýjun togara á Spáni Ríkisstyrkur til skipa- smíðastöðvar óheimill FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins hefur gefið spænskum stjórnvöldum mánaðarfrest til að koma á framfæri athugasemdum _yið það álit hennar að óheimilt hafi verið að veita ríkisstyrk til skipa- smíðastöðvar á Spáni vegna end- urnýjunar á togara Granda, Snorra Sturlusyni, sem lauk si. sumar. Skipasmíðastöðin P. Freire SA hreppti samning um endurbætur á togaranum í fyrra, en norskar og íslenzkar skipasmíðastöðvar buðu einnig í verkið. Samtök iðnaðarins, fyrir hönd Stálsmiðjunnar hf., kærðu málið til fjármálaráðuneytisins, sem vísaði því til Eftirlitsstofnunar ÉFTA (ESA), þaðan sem það var sent fram- kvæmdastjórn ESB. í kærunni var þess krafizt að málið yrði skoðað með tilliti til þess hvaða áhrif ríkisstyrkurinn hefði á innbyrðis samkeppnisstöðu skipa- smíðastöðva í aðildarríkjum EES. Ekki endanleg niðurstaða Niðurstaða framkvæmdastjórnar- innar er sú, að óheimilt hafi verið að veita skipasmíðastöð styrk vegna smíði fiskiskips; slíkur styrkur hefði átt að fara til útgerðarinnar, að því gefnu að starfsemi hennar félli und- ir sjávarútvegsstefnu ESB. Spænsk stjórnvöld eiga þess enn kost að taka til varna í málinu, en verði niðurstað- an óbreytt, getur framkvæmda- stjórnin krafizt þess að stuðningnum verði breytt eða honum hætt. Guðlaugur Stefánsson, hagfræð- ingur hjá ríkisstyrkjadeild ESA, tel- ur slíka niðurstöðu myndu hafa já- kvæð áhrif á samkeppnisstöðu ís- lenzks skipasmíðaiðnaðar. ■ Getur bætt/6 Morgunblaðið/RAX Byrjað er að gefa skepnum úti SNJÓKOMA og skafrenningur hafa verið á Suðurlandi frá því í fyrradag en þetta er fyrsti snjórinn sem þar kemur í haust. Bændur hafa féð heima við til að geta hýst það ef veðrið versn- ar og sumir eru farnir að gefa hrossum úti. Myndin var tekin í gær þegar Sigríður Óskars- dóttir, bóndi á Brú í Biskups- tungum, og Elías Margeirsson, sonur hennar, báru nokkra bagga í fé og hross sem þar eru lieima við hús. Ærin Gudda var frekust enda gamall heimaln- ingur. W
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.