Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Hagnaður og sparifé - Yakning ÞAÐ hefur loðað við Islendinga seinustu áratugi að horfa á fjár- hagslega velmegun sem forréttindi ætluð ein- hverjum öðrum. Fyrir þessu eru ýmsar ástæð- ur. Ein sú helsta er að ~*£blk lítur ekki á spari- fjáreign sem nauðsyn. Flestum fyrirtækjum er það að ná hagnaði alger nauðsyn. Sem eigendur fyrirtækja mætti ætia að við vildum sjá ágóða af fjárfestingum okkar. Það sama gildir hjá öll- um þeim sem náð hafa árangri í meðhöndlun einkafjármála sinna. Það kemur í ljós að munurinn á hagnaði fyrir- tækja og sparifé einstaklinga er sára- lítill en það fyrsta sem hægt er að kalla mun er að annað tilheyrir eig- endum fyrirtækja en hitt tilheyrir ^þeim sem gátu haldið eftir einhverj- ' 'ám hluta af launum sínum og lagt til hliðar. Hins vegar má sjá að fjár- málum fyrirtækja og heimila er á margan hátt svipað háttað í grund- vallarvirkni. Enda þrífast hvor- tveggju á fjármagnsflæði. Fjármagn flæðir um samfélagið samkvæmt settum reglum og lýtur fæstum lög- málum. Því er það að flest sem gild- ir um fjármálahliðina á rekstri fyrir- tækja gildir einnig um flármál heimil- anna. Hvortveggju hafa útgjöld sem mæta þarf með tekjum sem fást fyr- selda þjónustu við markaðinn. A annan hátt er fjármálum heim- ila og fyrirtækja hins vegar mismunað svo um munar. Munurinn sá liggur í ólíkum grundvelli fyrir stefnu- mótun í fjármálum heimila og fyrirtækja. Markmiðin sem hvor um sig hafa með vinnu sinni eru svo ólík að þau ganga í kross. Til að sýna fram á þennan mun má segja að heim- ilin séu stærstur hluti þeirra fyrirtækja sem leitast ekki beint við að safna gróða. Ennfrem- ur má segja að heimilin séu einu fyrirtækin sem leitast við að éta upp gróðann jafnóð- um og vilja helst koma út á sléttu. Að verða sér úti um hagnað, í þessu tilfelli sparifé, er ekki aðalmarkmið- ið í mótun fjármálastefnunnar og er því varla hægt að telja það óeðli- legt í ljósi þessa að svo fáir lands- menn hafa náð að höndla fjárhags- lega velmegun. Það ætti í raun eng- an að undra en vakningar er engu að síður þörf. Það er ekki síst mikilvægt fyrir okkur í viðskiptafræði að velta þessu fyrir okkur. Horfum aðeins fram á veginn til þess tíma er hefðbundnum skóla lýkur og við byrjum að þjón- usta vinnumarkaðinn fyrir alvöru. Fyrir þeim sem ljúka námi liggur að taka við lykilstöðum á markaðn- um innan ýmissa fyrirtækja og stofnana. Ef við höfum ekki tileinkað okkur aga í stjórn okkar eigin fjár- Sparnaður er, að mati Garðars Sigurjóns Garðarssonar, lykill að velferð. mála farsællega er hætta á að okkur vanti vissa lykilögun í hugsunar- hætti varðandi íjármál og getur sú vöntun reynst fyrirtækjum beinlínis hættuleg. Eins er okkur nauðsynlegt að koma á fót hjá okkur sjálfum vissu raunveruleikaskyni í með- höndlun ijármagns. Fyrr á öldum valdi flotaráð ensku krúnunnar skip- herra sína nær eingöngu úr röðum heiðursmanna. Þeir vissu að ef drengskapur átti að vera við lýði mundi sköpun hans og viðhald byija og enda með skipherranum. Mótun ástandsins var á herðum þess sem hélt um stjórntaumana. Það sama er uppi á teningnum í dag en nú sem áður þurfa fyrirtæki á fólki að halda sem kann að fara vel með fjármagn. Því ætti þá ekki hver og einn að byija smátt. Með því að byija smátt minnkum við líkurnar á stóru tapi. Hér leggst áherslan á að við þurfum að taka í taumana á okkar eigin fjár- málum, nokkuð sem öllum er hollt. Gerum okkur í hugarlund að við sjálf tækjum við stjórn fyrirtækis sem forstjórar og gefum okkur enn frekar að við rækjum fyrirtækið með aðferð hins almenna borgara þ.e. reynum að koma út á sléttu. Ég held við getum öll verið sammála Garðar Sigurjón Garðarsson um að valdatíð okkar yrði stutt, nema eðli fyrirtækisins snúist ekki fyrst og fremst um hagnað. Það er gott fyrir okkur öll að hafa ofarlega í huga að sparifé, eins og hagnaður, er nettótekjur að frá- dregnum heildarútgjöldum. Ekki eru allir svo forsjálir að þeir leggi til hliðar ef þeir eiga eitthvað eftir. Því skulum við skilgreina hér sparifé sem þau laun sem við greiðum okk- ur sjálfum fyrir þá vinnu sem við höfum innt af hendi. Þar af leiðir að þeir sem ekkert sparifé hafa að sýna fyrir vinnu sína hafa verið, ef svo má segja, í launalausri vinnu þar sem þeir greiddu sjálfum sér engin laun. Greiddu í raun öllum öðrum en sjálfum sér fyrir sína eig- in vinnu og kvartanirnar halda áfram. Vandinn liggur, eins og áður var getið, í stefnumótuninni og ekki síst þeim hugsunarhætti sem henni býr að baki. Gallinn er að við lítum svo á að hagnaður sé nauðsynlegur fyrirtækjum en teljum aftur á móti að það að eignast sparifé sé annað- hvort mikið böl eða lúxus sem að- eins er á færi fárra útvaldra. Við lítum oft á það að eignast sparifé sem böl, til að byija með, þar sem við þurfum eðlilega að draga úr út- gjöldunum til að ná fram jákvæðu bili milli þeirra og teknanna. Til að byrja með getur það reynst ýmsum mjög erfitt en þeir sem ekki leggja þetta á sig eru dæmdir til að lifa áfram í óvissu um hvort of mikið verði eftir af mánuðinum þegar pen- ingana þrýtur. Einnig eigum við það til að horfa á sparifé sem lúxus að- eins á færi fárra útvaldra. í huga flestra gildir að aðeins með hærri tekjum sé hægt að eignast sparifé. í eðli sínu sigrar þetta sjálft sig þar sem leikurinn snýst um að spara hluta af tekjunum og leggja til hlið- ar. Hann snýst um að byija að vinna úr því sem við höfum milli handanna og vinna út frá þeirri aðstöðu sem við óneitanlega erum í. Leikurinn snýst ekki um meiri tekjur, sem við ekki höfum til að byija með, en að spila með á að vera á valdi hvers og eins, undir eðlilegum kringum- stæðum. Gallinn er bara að flest sjáum við ekki að spariféð er hinn raunverulegi arður vinnunnar sem við seljum vinnumarkaðnum en ekki launin. Þau eru aðeins tekjumar en sýna ekki hversu mikið við fáum raunverulega greitt. Því ráðum við sjálf. í raun má segja að hver sá sem vill hagnast á ævistarfi sínu, hver sem starfmn er, þurfi að umbreyta hugsun sinni um sparifé úr böli eða lúxus aðeins á færi annarra yfir í nauðsyn- legan og síðan eðlilegan hluta af mynstri lífsstílsins. Stóra spurningin er aðeins hvað við viljum sjálf. Við nánari athugun kemur í ljós að við munum ná tilætluðum ár- angri í þessu sem öðru þá og því aðeins að við höfum nógu miklar ástæður og þar með nógu mikia löngun í árangurinn til að leggja á okkur erfiðið. Enn fremur sjáum við að því sterkari sem löngunin er því meira erum við tilbúin að leggja á okkur. Málið snýst aftur á móti ekki aðeins um að beita meira af vöðva- aflsvinnu heldur gildir að beita meira hugarafli. Sum þurfum við að læra að beita huganum á nýjan hátt og læra að beina hugsunum okkar í nýjan farveg sem leiðir til fram- kvæmda sem aftur leiða til þess að við náum tilætluðum árangri. Ilver fyrir sig þarf að leita og finna sér betri stefnu í fjármálum. Stefnu sem hentar hveijum fyrir sig. í þessum línum hef ég lagt fyrir þig Áárejóðskort sem sýnir leiðina til fjárhagslegs sjálfstæðis. Fjársjóður- inn er til staðar fyrir okkur öll og kemur það í hlut áhugasamra að leita, fínna og nota. Það er von mín að þetta litla spjall hafí vakið þig til umhugsunar og muni hjálpa þér þeg- ar fram iíða stundir. Og vel má vera að í þessum texta höfum við hist. Höfundur er nemi í viðskiptafræði. MIKIL umræða hef- —.ur átt sér stað að und- anfömu um_ skipulag orkumála á íslandi og er slíkt af hinu góða. Það sem hins vegar sætir furðu er að ekk- ert framtíðarskipulag, né stefnumótun, hefur verið gert fyrir eina af mikilvægustu auðlind- um þjóðarinnar. Nýt- ing orku hefur verið ofarlega á stefnuskrá yfirvalda í mörg ár, jafnvel áratugi, en í stað skýrrar stefnu- mótunar hefur algert stefnuleysi hamlað p^ðlilegri þróun í orku- og stóriðju- málum. Skipulag orkumála Yfirvöld, þ.m.t. Landsvirkjun, geta ekki svarað því hversu mikia orku er hægt að virkja, hvar þessa orku er að finna, hvað virkjunar- framkvæmdir tækju langan tíma, og heldur ekki hvað þær myndu kosta. Hvers vegna er ekki búið að búa til framtíðarskipulag um hvar, hvað og hvernig á að virkja og hversu mikið magn af orku er hægt að fá á hveijum stað og hvað það — kostar? Slíkt skipulag á að vera til og ætti það að ná til langs tíma, og þá er átt við áratugaskeið, t.d. til 2025. Um væri að ræða mjög víð- tækt skipulag því það verður að taka fyrir mismunandi möguleika sem upp geta komið, það verður að liggja fyrir í hvaða röð virkja skal —og hversu langan tíma það tekur. Þannig væri, án mikillar fyrirhafn- ar, hægt að svara fyrir- spumum, frá t.d. al- þjóðlegum stóriðjufyr- irtækjum um afhend- ingartíma, orkumagn og verð. Þetta er að sjálf- sögðu mjög einfölduð mynd af flóknu samn- ingsferli sem á sér stað milli stóriðjufyrirtækja og yfírvalda, en stefnu- mótun til framtíðar er nauðsyn. Það er ekki síður nauðsyn vegna uppbyggingar annarra atvinnugreina í landinu sem byggja afkomu sína á mörgum af sömu auðlindum og orkuframleiðslugeir- inn gerir. Því háttar nefnilega þann- ig til að fossar og hverir hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda. Það er nauð- Erlendir stóriðjukóngar, segir Jón Björn Skúla- son, eiga ekki að fá að ráða hvar stóriðjufyrir- tæki eru sett niður. synlegt að flétta stefnumótun á þessum tveimur greinum saman því þær skarast að mörgu leyti. Ferðaþjónusta Hingað til hefur aðaláherslan á landkynningu verið tvenns konar. Annars vegar þetta hreina ósnortna land sem býður upp á endalausa möguleika fyrir hinn umhverfís- væna ferðamann og hins vegar sem ákjósanlegur staður fyrir orkufrek- an iðnað. Svo virðist sem lítil sem engin samvinna hafi verið á milli þeirra aðila sem vinna að markaðs- setningu landsins og fjármunum er mjög misskipt til þeirrar markaðs- setningar. Nauðsynlegt er að gera svæða- skipulag sem nær til framtíðar og er mun viðameira en hingað til. Afmarka verður þau svæði sem hugsuð eru fyrir virkjanir, svæði fyrir orkufrekan iðnað og fyrir ferðamenn. Erlendir stóriðjukóngar eiga ekki að fá að ráða hvar stóriðju- fyrirtæki eru sett niður. Slík svæði eiga íslendingar að afmarka sjálfir þar sem þjóðin vill að slíkur iðnaður sé til staðar og þá getur stóriðja ekki verið annars staðar. Slíka af- mörkun þarf að gera í samvinnu við umhverfis- og náttúruverndarsjón- armið og samtímis væri hægt að friða önnur svæði til framtíðar og er þá hægt að beina ferðamönnum inn á þau. Stefnumótun til framtíðar íslensk yfirvöld þurfa og að gera upp sinn hug hvert skal stefna í framtíðinni. Vill þjóðin vera frum- framieiðsluþjóð til framtíðar? Stefnumótun í atvinnulífi þarf að vera mun betur afmörkuð og ná til framtíðar, því erfitt er að auglýsa álver og ósnortna náttúru hlið við hlið. Afmarka þarf betur svæði und- ir stóriðju og þarf slík afmörkun að vera gerð í fullu samráði við um- hverfið og náttúruna. Það þarf einnig að huga að öðrum greinum atvinnulífsins t.d. hugbún- aðargerð, matvælaiðnaði o.s.frv, sem hafa að miklu leyti gleymst í öllum látunum í kringum ferða- manna- og stóriðjugeirann. í þess- um greinum er mikil framtíð, jafn- vel meiri en áðurnefndum greinum því erfitt er að horfa fram hjá göll- um þeirra, s.s. mengun sem oft fylg- ir stóriðju og ferðamannatíma sem er mjög stuttur. Höfundur er atvinnumálaráðgjafi á Reykjanesi. ER EKKI hægt að ætlast til þess að Morg- unblaðið sem fer inn á 40 þúsund heimili vandi málflutning sinn betur? Spurt er í fram- haldi af forystugrein Morgunblaðsins í dag, þriðjudag. Hún fjallar um Reykjavíkurflug- völl og tiígangur henn- ar er augljóslega sá að tyfta undirritaða enda er leiðaravald Morgun- blaðsins á við hvert annað kennivaM í nú- tímaþjóðfélagi. Ég hef leyft mér allranáðar- samlegast, þrátt fyrir andbyr margra að benda á að það sé nauðsynlegt að huga að framtíð- inni áður en lagt er af stað með milljarða fjárfestingu í Vatnsmýr- inni. Ég veit að framtíðin stendur með mér í þessu efni vegna þess að í framtíðinni verður unnt að koma þessum málum öðru vísi fyrir. Eins og er kostar það mikla fjármuni að koma fyrir hraðbraut eða lest á milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Áður en Jangur tími líður verður það breytt. Ég hélt að umfjöllun Morg- unblaðsins um hraðlestina væri af fróðleiksfýsn og til þess að opna málið fyrir lesendum. í leiðaranum kom í ljós að svo var ekki; þar var ætlunin að finna tölu um svo háa upphæð að undirrituð liti út eins og skýjaglópur í besta falli. Af hverju vill leiðarahöfundur Morg- unblaðsins ekki leyfa sér víðsýni í þessu efnum eins og öðrum? Hvað er að? í þágu hvers er skrifaður leiðari eins og forystugrein Morg- unblaðsins í dag? Það verður að gera við Reykja- víkurflugvöll og það verður gert. Það er fagnaðarefni að ráðherra hefur loksins fallist á kröfur okkar í þeim efnum. Borgarstjórn Reykja- víkur telur og hefur lengi talið og um það eru allir sammála að æf- inga- og kennslu- og ferjuflug þyrfti að fara frá Reykjavíkurflug- velli. Af hverju er það? Það stafar af því einu að þessi starfsemi get- ur verið varasöm yfir þéttbýlinu. Af hveiju þá ekki farþegaflugið? Það er vegna þess að það er dýrara og erfið- ara að koma því fyrir annars staðar. En er hægt að útiloka að það gerist einhvern tímann - þegar unnt verður að flytja fólk með ör- skotshraða milli Reykjavíkur og Kefla- víkur. Ekki einu sinni ritstjóri Morgunblaðsins er þess umkominn að neita þvi að slíkt geti gerst. Og það gerist. Reykjavík er og vill vera höfuð- borg landsins. Það er skylda borgar- innar að taka vel á móti öllum þeim Það verður að gera við Reykj avíkurflugvöll, segir Guðrún Ágústsdóttir, og það verður gert. sem hingað koma, ekki síst þeirra sem koma annars staðar að til borg- arinnar. Það má ekki gera þessu fólki erfiðara fyrir að heimsækja höfuðstað sinn. En borgaryfirvöld verða að hafa alla heildina í huga; líka þá sem búa hér við flugvöllinn eða í grennd við hann. Borgaryfir- völd hafa skyldur við landsmenn alla - ekki aðeins Reykvíkinga, heldur líka Reykvíkinga. Höfundur er formaður húsvcrndarnefndar Rcykjavíkur og forseti borgarsljórnar. Stefnuleysi í íslensku atvinnulífi Jón Björn Skúlason Og það gerist Guðrún Ágústsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.