Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
! f H 11 iTikj
íí-i WfTujtYJ
— kraftmikil 90 hestafla létti i lálmsvél
— 1 B ventla og beín innspnautun
— hnaðatengt vökva- og veltistýni
— bjófavönn á nsesingu
— nafdnifnan núðun og speglan
— viðaninnnétting í maelabonði
— 1 A tommu dekkjastsenð
— útvanp og kassettutaeki
— stynktanbitan [ hunðum
— spontleg innnétting
— núðuþunnka fynir aftunnúðu
— fnaml-ijólaclpifinn
— samlitin stuðanan
— höfuöpúðan fnaman og aftan
— haeðanstillanlegun
fnamljósageisli
— stafnæn klukka
-— bnemsuljós í aftunnúðu
— sénstaklega hljóðeinangnaðun
— fáanlegun sjólfskiptun
— samlsesing ó hunðum
— eyðsla 5,6 I á 90 km/klst.
— 4,31 metni á lengd
— nyðvönn og sknáning innifalin
[Qj HONDA Vatnagörðum 24, Reykjavik, simi 568 9900
§ll$1RQPlSf!tW|i&Ífy - kjarni málsins!
Amtsbókasafnið á Akureyri
Bæjarbúar hafi að-
gang að sem best-
um upplýsingum
Amtsbókasafnið
á Akureyri var
stofnað árið 1827
og er með elstu stofnunum
bæjarins. Það hefur verið
til húsa á ýmsum stöðum
en síðustu tæpa þrjá ára-
tugi við Brekkugötu. Þang-
að leggja fjölmargir bæj-
arbúar leið sína, en áætlað
er að 30-40 þúsund manns
sæki safnið árlega til að
fá lánaðar bækur auk
þeirra sem notfæra sér
lestrarsal safnsins. Nýlega
var útlánadeild safnsins
tölvuvædd en fjölmargt
fleira er á döfinni.
Það hafa ýmsar breyt-
ingar orðið á starfseminni
á síðustu vikum?
„Stærsta breytingin er
tölvuvæðing útlána, sem
gerir okkur kleift að fylgjast bet-
ur með útlánum og gerir þau
öruggari. Fyrr í haust var af-
greiðslutíminn rýmkaður, nú opn-
um við safnið kl. 10 á morgnana
en áður var einungis opið eftir
hádegið og til kl. 19. Við höfum
líka boðið upp á kynningu á safn-
inu og sögustundir á miðviku-
dagsmorgnum fyrir börn í leik-
skólum bæjarins og yngri deild-
um grunnskóla. Það er mikilvægt
að börnin kynnist lestri og venjist
því að lesa bækur.“
Fóik getur, auk bóka, fengið
lánuð myndbönd á safninu, en
stendur til að bæta fleiru við?
„Við stefnum að því að kaupa
diska með tónlist og lána út. Á
næstu vikum verður hafist handa
við að breyta útlánasalnum og
þá ætlum við að útbúa dálítið
svæði þar sem hægt verður að
hlusta á tónlist. Einnig verður
sett upp tölva með aðgangi að
alnetinu sem gestum safnsins
gefst kostur á að nýta sér. Þá
munum við einnig koma okkur
upp efni á margmiðlunardiskum
sem hægt verður að nota bæði á
safninu eða fá það lánað heim.
Við erum að opna almenningi
aðgang að alnetinu í þeim til-
gangi að sinna skyldum okkar
við bæjarbúa þannig að þeir hafi
aðgang að sem mestum og best-
um upplýsingum. Þeir sem ekki
hafa efni á að kaupa sér búnað
geta komið á safnið og fengið
upplýsingar sem þeir annars
myndu fara á mis við. Það er
talað um að fólk í
heiminum sé að skipt-
ast í tvo hópa, þá sem
eru upplýsingaríkir
annars vegar og -fá-
tækir hins vegar. Al- —
menningsbókasöfn
hafa mikilvægu hlutverki
gegna í því að jafna þennan að-
stöðumun. Það má einnig nefna
að nú er mikið af efni gefið út á
margmiðlunardiskum sem ekki
er hægt að nálgast annars stað-
ar, þannig að ef við byðum ekki
upp á þetta færu margir á mis
við þetta efni.“
Hólmkell sagði að Amtsbóka-
safnið á Akureyri væri eina stóra
almenningsbókasafnið þar sem
bókasafnsskírteini væru ókeypis.
„Stefnan er sú að veita öllum
ókeypis aðgang að öllu almennu
efni. Ef menn hins vegar þurfa
sérþjónustu greiða ' þeir fyrir
hana. Akureyringar og Eyfirð-
ingar geta þannig komið hingað
inn og fengið aðgang að nánast
öllum heiminum fyrir ekki neitt.“
Þið sinnið líka þeim sem af
Hólmkell Hreinsson
► Hólmkell Hreinsson tók ný-
lega við starfi amtsbókavarðar
á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Hann er fæddur á Akureyri
árið 1961 og ólst upp í Sunnu-
hlíð á Svalbarðsströnd. Hólm-
kell gekk í skóla á Svalbarðs-
strönd og Hrafnagili í Eyja-
firði, en lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
árið 1980. Hann nam bóka-
safnsfræði við Háskóla Islands
árin 1982-1985 og sat einnig
fyrirlestra við Danska bóka-
safnsskólann í Kaupmannahöfn
veturinn 1985. Hann hefur
starfað á Bókasafni Kópavogs,
við lækna- og náttúrufræði-
deild háskólabókasafnsins í
Kaupmannahöfn og á Amts-
bókasafninu á Akureyri þar
sem hann hefur unnið frá árinu
1989. Hólmkell hefur verið
varaformaður Starfsmannafé-
lags Akureyrar frá árinu 1994.
Eiginkona hans er Kristín Sig-
ursveinsdóttir iðjuþjálfi og eiga
þau tvö börn.
einhverjum ástæðum komast ekki
tii ykkar.
„Heimsendingarþjónusta er
vaxandi þáttur hjá okkur. Við
eigum töluvert af hljóðbókum og
vinnum í því að auka titlana, það
er stefnt að því að kaupa fleiri
erlenda titla á næstunni en þegar
er til töluvert af íslensku efni.
Við sendum bækurnar heim til
fólks, m.a. aldraðra og fatlaðra
sem ekki eiga heimangengt.
Soroptimistaklúbbur-
inn á Akureyri sér um
að flytja bækurnar
heim til fólksins, það
er þeirra góðgerðar-
——_ starf.“
Stendur til að opna
útibú frá safninu?
„Eg hef mikinn áhuga fyrir
að opna útibú frá Amtsbókasafn-
inu í Glerárhverfi, það hefur lengi
verið draumur manna hér. í raun-
inni hefur málið alltaf strandað
á umræðum um nýbyggingu við
safnið sem enn hefur ekki verið
reist. Ég geri ráð fyrir að hægt
hefði verið að reka útibú frá safn-
inu í áratug fyrir það fé sem far-
ið hefur í hönnunarkostnað á við-
bótarbyggingu við safnið.
Við verðum að sníða okkur
stakk eftir vexti og okkar mark-
mið er að veita góða þjónustu í
því plássi sem við höfum. Ég lít
á mitt hlutverk sem stjórnanda
safnsins að koma í framkvæmd
þeim góðu hugmyndum sem
starfsfólk og lánþegar koma fram
með.“
Ókeypis að-
gangurað öllu
almennu efni
að