Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ 1 í FRÉTTIR Fyrirhugaðar breytingar á lögnm Landsvirkjun fær heimild til að selja þekkingu erlendis SAMKVÆMT frumvarpsdrögum um breytingar á lögum um Lands- virkjun er gert ráð fyrir að fyrirtæk- ið geti selt tækniþekkingu á virkj- unarsviðinu erlendis. Samkvæmt núgildandi lögum er starfssvið Landsvirkjunar eingöngu takmark- að við framleiðslu og sölu raforku til almennings og orkufreks iðnað- ar, en jafnframt hefur fyrirtækið því hlutverki að gegna að reisa virkjanir til að afla nægilegrar orku fyrir markaðinn á hveijum tíma. Þátttaka í markaðssókn Að sögn Halldórs Jónatanssonar, forstjóra Landsvirkjunar, hefur af og til verið leitað til fyrirtækisins eftir liðsinni eða aðstoð við að mark- aðssetja tækniþekkingu á virkjun- arsviðinu erlendis. „Þetta hafa verkfræðistofur og innlendir ráðgjafar á virkjunarsvið- inu gert og við höfum ekki getað sinnt því sem skyldi. En með heim- ild af þessu tagi, sem nú er verið að leggja drög að, væri Landsvirkj- un innan handar að taka þátt í markaðssókn af þessum toga, bæði með því að selja sjálfstætt tækni- þekkingu erlendis, og ekki hvað síst í samstarfi við innlenda aðila sem stunda starfsemi af þessu tagi I dag,“ sagði Halldór. Aðstoð við innlenda aðila Hann sagði að Landsvirkjun myndi fyrst og fremst aðstoða innlenda aðila í þessu efni en ekki keppa við þá á markaði erlendis eða gera þeim erfitt fyrir. „Það sem skiptir þá sköpum er stærðin og fjármagnið sem til þarf og þá veitir ekki af því að standa saman þegar á þarf að halda. Landsvirkjun ætlar hins vegar alls ekki að nota einhverja yfírburða- stöðu í samkeppni við innlenda að- ila heldur þvert á móti að styðja við bakið á þeim,“ sagði Halldór. Morgunblaðið/Árni Sæberg Landsliðið fær skíðaskó ÍSLENSKA skiðalandsliðið fékk í gær afhenta skíðaskó til notkunar í keppni. Verslunin Útilíf í Glæsibæ gefur skíða- köppunum skóna og í gær mát- uðu þau Theodóra Mathiesen, Sigurður Magnús Sigurðsson og Pálmar Pétursson fótabún- aðinn og voru hin ánægðustu. Einn landsliðsmaður til viðbót- ar, Arnór Gunnarsson, var fjarri góðu gamni. Brotist inn í bústaði í Skorradal Grund, Skorradal. Morgunblaðið. BROTIST var inn í nokkra sumarbústaði í Skorradal seint í síðustu viku og létu þjófar greipar sópa. Sumarbústaðaeigandi einn uppgötvaði innbrot í bústað sinn sl. föstudags- kvöld og þegar betur var að gáð kom í ljós að einnig hafði verið brotist inn í næstu bú- staði. Innbrotsþjófarnir brutu sér leið í gegnum opnanlegan glugga með því að spenna hann upp og bijóta upp gluggajám. Þeir höfðu á brott með sér ýmis tæki, s.s. nýtt sjónvarp og myndbandstæki úr einum bústaðnum. Fyrir skömmu var einnig brotist inn í bústað Skátafé- lags Akraness í Skorradal og m.a. var þá tekinn örbylgju- ofn. Forsætisráðherra í svari við fyrirspurn um fátækt á Islandi Varanlegur hagvöxtur ráðandí um þróun lífskjara RÍKISSTJÓRNIN leggur áherslu á góð skilyrði fyrir hagvöxt á traust- um og varanlegum grunni í því skyni að útrýma fátækt, að því er fram kom í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Guðnýjar Guðbjöms- dóttur, Kvennalista, um fátækt á íslandi og aðgerðir gegn henni á Alþingi í gær. í svari sínu vísaði forsætisráðherra til niðurstaðna at- hugunar Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands á fátækt, sem bentu til að umfang fátæktar fylgi hagsveiflum. Það sýndi að hagvöxt- ur væri ráðandi um þróun lífskjara. Fyrirspum Guðnýjar var í fjórum liðum. Ifyrst var óskað eftir skil- greiningu íslenskra stjórnvalda á fátæktarmörkum. Að mati forsæt- isráðherra er vandasamt að skil- greina þau mörk vegna þess hve hugtakið er afstætt. Fátækt í efn- uðum ríkjum þýði t.a.m. annað en fátækt í vanþróuðum ríkjum. „Rétt- ara er að skoða lífskjör lágtekju- hópa frá ýmsum sjónarhornum og meta í því ljósi hvað er líklegast að skila þeim betri kjörum þegar frarn í sækir,“ sagði ráðherra. í annan stað var spurt hvort rík- isstjóm væri samþykk skilgreiningu Félagsvísindastofnunar á fátæktar- mörkum og greiningu hennar á fá- tækt. Forsætisráðherra sagði að greiningin væri gagnlegt innlegg í málið en hún hefði sína kosti og galla. Sú aðferð stofnunarinnar að mæla fátækt hlutfallslega með hlið- Losun Ýmis HF á olíu í hafið Málið verður líklega sent ríkissaksóknara HOLLUSTUVERND er að safna gögnum um losun togarans Ýmis HF á olíu í hafið norður af Jökul- tungu út af Breiðafirði á mánudag. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar komu þá auga á 30 metra breiðan olíuflekk sem lá aftur úr togaran- um. Að sögn Helga Jenssonar, starfsmanns mengunarvamadeild- ar sjávar hjá Hollustuvemd, er lík- legt að málið verði sent til ríkissak- sóknara sem ákveður framhald málsins, en samkvæmt lögum varð- ar það sektum að losa olíu í hafið. „Við emm að afla okkur gagna og við förum yfir þau, og ég reikna frekar með að þetta fari til saksókn- ara vegna þess að við teljum að þetta sé sannanlega brot á lögum, en ekki vanræksla eða annað,“ sagði Helgi. Hann sagði að þegar olíu hefði verið dælt í hafið úr Stakfellinu 13. október síðastliðinn hefðu skipveij- ar strax viðurkennt mistök sín og leiðrétt þau, en bilun var sögð hafa valdið því að olían fór í hafið. Þar sem viðurkenning hefði legið fyrir hefði ekki verið aðhafst frekar í málinu. Telur óhapp líklega orsök Guðrún Lámsdóttir, fram- kvæmdastjóri Stálskipa, sem gera Ými út, telur að eitthvert óhapp hafi valdið því að olían fór úr skip- inu. Hún sagði að enginn gerði það sjón af meðaltekjum í þjóðfélaginu væri þeim augljósa annmarka háð að hún sýndi eingöngu tekjudreif- ingu en segði ekkert um raunvem- lega hagi fólks. Kostur hennar væri að taka tillit til mismunandi efnahags ríkja auk þess sem hún sýndi breytingar á tekjudreifingu. Lífskjör bætt í skattkerfinu Aðspurður um viðbrögð við upp- lýsingum úr athugun Félagsvís- indastofnunar sagði forsætisráð- herra eðlilegast að tryggja varan- legan hagvöxt. Það væri skamm- góður vermir að víkja frá því markmiði. Stöðugleiki og jafnvægi í þjóðarbúskap síðustu missera hafi án efa dregið úr atvinnuleysi og aukið kaupmátt. Loks var spurt hvort fyrirhugað- ar væm aðgerðir sem næðu sérstak- lega til kvenna, ungs fólks og aldr- aðra. Ráðherra sagði að ýmsum úrræðum mætti beita til að bæta lífskjör einstaklinga og þjóðfélags- hópa ekki síst í gegnum skattakerf- ið. Sérstaklega mætti nefna at- vinnuleysistryggingar og bætur al- mannatrygginga. Almenn kaup- máttaraukning hafi mikla þýðingu fyrir umrædda hópa en fjölgun starfa kæmi sér ekki síst vel fyrir ungt fólk. Forsætisráðherra taldi einnig rétt að huga sérstaklega að frekari ráðstöfunum til að örva sparnað sem ætlað væri að bera uppi lífskjör aldraðra í framtíðinni. að gamni sínu að hella dýrri olíu í hafíð, en hún væri ekki búin að fá nægar upplýsingar frá vélstjóran- um á Ými um hvað hefði gerst. „Mér skilst að þetta hafi verið eitthvað slys hjá þeim, en af hvaða orsökum veit ég ekki,“ sagði hún. „Það gefur augaleið að það hefur eitthvað bilað eða eitthvað gerst; það gerir þetta enginn að gamni sínu.“ Guðrún sagðist ætlað að fá skýrslu frá vélstjóranum um hvað hefði átt sér stað, en tók fram að allri spilliolíu úr togurum Stálskipa væri dælt á bíla Olíufélagsins þegar skipin kæmu til hafnar, og ekkert gjald þyrfti að greiða af spilliol- íunni. Náttfarar flúðu lögreglu LÖGREGLAN í Reykjavík varð vör við tvo unga menn á leið um Skólavörðustíg skammt frá Hegn- ingarhúsinu um klukkan hálffjög- ur í fyrrinótt, klyfjaða svörtum plastpokum af stærri gerðinni. Náttfarar þessir lögðu á flótta þegar þeir veittu athygli að fylgst var með ferðum þeirra og kastaði annar þeirra frá sér poka sínum þegar hann tók til fótanna. í pok- anum reyndust vera óáteknar áfengisflöskur og sígarettulengj- ur. Lögreglumenn héldu skömmu síðar til húss á Laugavegi sem hefur áður komið við sögu hennar vegna áþekkra mála og handtók þar mann sem þar var gestkom- andi, vegna gruns um þjófnað. Hann var færður ásamt pokanum og ætluðu þýfi á lögreglustöð, en ekki er vitað hvar góssinu hafði verið stolið samkvæmt upplýsing- um frá lögreglu. Vildi safna fullum flöskum Lögreglunni var um klukkan þrjú í fyrrinótt gert viðvart um mann að sniglast í kringum gáma sem tilheyra Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni við Gijótháls. Maðurinn gekk á gámana og at- hugaði hvort gleymst hafði að læsa einhveijum þeirra. Þegar lög- reglan athugaði málið kom í ljós að maðurinn er einn þeirra sem safnar tómum dósum og flöskum í frístundum sínum, til endursölu, og virtist hafa hug á að færa út kvíarnar á því sviði og finna drykkjarílát með meira innihaldi. Virtist hann sjá ástæðu til að leita uppsprettunnar í því sambandi. Lögreglumenn ræddu við hann en óku honum síðan heim á leið. I I i i i i í i í l I I i í »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.