Morgunblaðið - 31.10.1996, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Konungleg sýn á tilveruna
Morgunblaðið/Emilía
MARGRET Þórhildur Danadrottning, Henrik prins og synir þeirra tveir vilja lifa í takt við tímann.
Margrét Þórhildur
Danadrottning og Hen-
rik prins eiginmaður
hennar tóku á móti ís-
lenskum blaðamönnum
í tilefni af væntanlegri
heimsókn forseta ís-
lands. Sigrún Davíðs-
dóttir uppgötvaði að
þótt þau lyfti persónu-
legu hulunni, halda þau
sér enn fyrir sig.
ÞAÐ ER óneítanlega jarðarfarar-
bragur á þeim, sem ganga á fund
Margrétar Þórhildar Danadrottn-
ingar, því gestum hennar er uppá-
lagt að klæðast dökkum fötum, eða
með öðrum orðum að klæðast með
viðeigandi virðuleika. í tilefni af
væntanlegri heimsókn forseta til
Danmerkur var íslenskum blaða-
mönnum boðið að eiga orðastað
við drottningu og eiginmann henn-
ar Henrik prins í gær í Fredens-
borgarhöll, sumardvalarstað kon-
ungsfjölskyldunnar úti á Norður-
Sjálandi, en þar munu forseti ís-
lands og eiginkona hans einnig búa
meðan á heimsókninni stendur.
Höllin og allt umhverfi hennar er
fallegt og stílhreint og tijágarður-
inn hefur verið færður til uppruna-
legrar gerðar sinnar í barokkstíl.
Aðdragandi boðaðs viðtals
Soren Haslund-Christensen
hofmarskálkur tekur á móti gest-
um og leiðir þá í allan sannleik
um innsta eðli konungsdæmisins í
litlum sal í einni álmu hallarinnar.
Haslund-Christens rifjar upp að
þó stjórnmálaflokkar eins og Jafn-
aðarmannaflokkurinn og Sósíalíski
þjóðarflokkurinn séu á pappímum
andsnúnir konungdæmi og kysu
lýðveldi dettur engum í hug að
brydda upp á slíku í alvöru. Danir
séu einhuga um að drottningin sé
frábært sameiningartákn og það
geti hún verið á allt annan hátt
en þjóðkjörinn leiðtogi. Um það
geta þeir, sem búa í landi með
þjóðkjörinn forseta, auðvitað haft
sínar efasemdir en þannig horfir
það við í augum Dana.
Drottningin ræðir ekki flokks-
pólitísk málefni og hofmarskálkur-
inn minnir á að það sé í raun pín-
legra fyrir spyrjandann en hana
að brydda upp á óæskilegum um-
ræðuefnum. Óg sá sem hefur séð
hana skrúfa fyrir óæskilegar
spurningar blaðamanna hefur
enga löngun til að fá sjálfur sömu
meðferð. Drottningin er ekki laus
við að bera með sér andblæ
kennslukonu fyrri áratuga, sem
kunnu að setja ofan í við fólk svo
eftir var tekið. Þótt hún segist
hafa tilhneigingu til að forðast
deilur hefur hún aðdáunarverðan
myndugleika og meðvitund um eig-
in stöðu sem viðmælendur hennar
fara ekki varhluta af.
Drottningin hefur oft í áramóta-
ávörpum sínum snert deiluefni eins
og afstöðu til flóttamanna og út-
lendinga og af því þá sprottið
umræður, sem hún tekur aldrei
þátt í. Hofmarskálkurinn minnir í
lokin á að drottningin sé venjulega
ávörpuð sem „yðar hátign" og þér-
uð, en prinsinn er ávarpaður sem
„yðar konunglega tign“ eða bara
prinsinn.
Sýn inn í liðnar aldir
Eftir uppfræðsluna í útálmu
hallarinnar liggur leiðin eftir lá-
greistum gangi með vel bónuðu
trégólfi að hátimbraðri vistarver-
um uppi á lofti og enn eftir gangi,
sem liggur í gegnum mörg lítil
herbergi. Þar standa víða borð með
ljósmyndum í silfurrömmum af
þjóðhöfðingjum er heimsótt hafa
drottningu og þá einnig mynd af
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrver-
andi forseta. Hallarbragurinn leyn-
ir sér ekki. Það er hátt til lofts,
vítt til veggja, gylltir listar, háir
gluggar og útsýnið yfir barokk-
garðinn er eins og sýn inn í liðnar
aldir, þegar fyrri konungar lifðu
þar sælir við sitt og forvitnir blaða-
menn voru enn ekki fundnir upp.
Móttökusalurinn er kannski ekki
stór á hallarmælikvarða en þætti
myndarlegur ballsalur í íslensku
félagsheimili. Gylltir listar, mál-
verk, barokkgarðurinn fyrir utan
og blómailmur í lofti, því hvarvetna
standa fallegir blómvendir í vösum.
Þegar gestirnir hafa komið sér
fyrir gegn sófa og sófaborði, þar
sem gestgjafamir mun sitja er
beðið. Svo opnast hurðin og við-
bragðskippir fara um gestina. Inn
hleypur konunglegur grafhundur,
sem einn hirðmannanna kallar
snarlega á.
Loks opnast vængjahurðin og
inn gengur drottningin með prins-
inn sér við hlið. Árin 56 ber hún
með glæsibrag. Þau taka sér sæti
og hún lýsir ánægju sinni með að
forseti íslands muni koma í heim-
sókn. Þau eru fljót að kveikja sér
í sígarettunum og eru tilbúin að
svara spurningum.
Múrar hafa hrunið undanfarin
ár, landamæri opnast og danska
konungsfjölskyldan hefur einnig
opnað dyr sínar meir en áður hefur
verið. Nýlega kom út viðtalsbók
við Ingiríði ekkjudrottningu,
drottninguna og prinsinn og syni
þeirra tvo og á næstunni er vænt-
anleg minningabók, sem prinsinn
hefur sjálfur skrifað um æsku sína
og uppvöxt, kynnin af prinsessunni
sem þá var og fyrstu kynnum sín-
um af Danmörku.
Meðlimir konungsfjölskyldunnar
hafa gjarnan á orði að þeir vilji
lifa í takt við tímann. Þeirri hugsun
skýtur upp hvort það sé tilraun í
þá átt að konungsfjölskyldan hefur
nú fallist á að setjast í skriftastól
blaðamanns og segja frá því sem
hefur hreyfst innan íjölskyldunnar.
Hefði þetta gengið fyrir tíu árum?
„Nei, kannski ekki fyrir tíu
árum,“ segir Margrét Þórhildur
drottning. „Við höfum verið hik-
andi við að segja frá högum okk-
ar, en ég vona að við séum ekki
að gera neitt rangt,“ segir hún
brosmild og ákveðin.
Bókin bregður upp mynd af fjöl-
skyldulífi, þar sem margt var rætt,
en það var líka margt, sem ekki
var nefnt og Friðrik krónprins seg-
ir að samskipti foreldra hans við
þá bræður hafí aðeins gengið aðra
leiðina. „Það hefur gjörbreyst. Það
er eitt sem víst er,“ segir drottning-
in af glaðlegri alvöru, um leið og
hún segist ekki efast um að synir
hennar hafi upplifað þetta á þenn-
an hátt þegar þeir voru börn. For-
eldrarnir hafi því miður verið mjög
önnum kafnir. „En lítið bara í eig-
in barm,“ bætir prinsinn við bros-
andi.„Ég er viss um að þér hafið
22 ára áfellst foreldra yðar fyrir
að skilja yður ekki. Ég held að
börn áfellist alltaf foreldra sína á
einhvetjum tímans punkti. Það á
við um börn alstaðar." „Og kannski
eru þetta bara eðlileg viðbrögð
barna við að þau gátu ekki alltaf
komið sínu fram,“ bætir drottning-
in við íhugul.
„Kannski sæti ég á íslandi"
Jóakim prins hefur sagt að fað-
ir hans hafi fengið strangara en
strangt uppeldi og prinsinn tekur
undir þau orð að hann hafi fengið
strangt uppeldi. „En ég harma það
ekki. Vissulega var uppeldi mitt
strangara en tíðkaðist í Danmörku.
Reyndar hef ég alltaf undrast
mjúka afstöðu hér til barnauppeld-
is. Það er miklu strangara í Suður-
Evrópu, en á endanum kemur þetta
fyrir eitt, því það er ekki hægt að
segja að danskt barn sé betur upp-
alið en franskt eða ítalskt barn.
Það er niðurstaðan sem skiptir
máli.“ „Já, að bömin verði al-
mennilegt fólk,“ bætir drottningin
við og prinsinn samsinnir henni af
hjarta.
Oft er til þess tekið í Danmörku
að prinsinn hafi haldið mjög sínum
frönsku sérkennum og franskan
er honum enn tamari en danskan.
í sögu sinni um veislu Babette
bregður Karen Blixen upp saman-
burði franskrar lífsgleði og danskr-
ar alvöru. Aðspurður segist prins-
inn hafa fundið fyrir mun fran-
skrar og danskrar lífssýnar, en
allar þjóðir séu ólíkar. „En munur-
inn var auðvitað mun meiri á þeim
tímum, sem Karen Blixen segir
frá. Danir voru púrítanskari þá en
nú.“ Jóakim prins segir föður sinn
hafa aðra sýn en móðir hans hafi.
Henrik prins segist ekki alveg vita
hvað sonur hans eigi við hér. „En
jú. Liklega hef ég aðra sýn á heim-
inn og lífið. Hún er mismunandi
frá manni til manns, en líklega er
mín mótuð af bakgrunni mínurn."
Prinsinn hóf starfsferil sinn í
frönsku utanríkisþjónustunni, þar
sem menn eru valdir úr stórum
hópi með ströngum prófum og
hann áleit sig heppinn að komast
að. í starfí við franska sendiráðið
í London hitti hann heillandi
danska prinsessu, sem vann hug
hans og hjarta. En hefur hann
nokkuð hugleitt hvar hann hefði
lent ef hann hefði ekki hitt þessa
töfrandi stúlku? „Nei, það er ekki
gott að segja,“ segir hann og skell-
ir upp úr. „En það er rétt að ég
var mjög stoltur yfir að komast að
í utanríkisþjónustunni frönsku.
Það er meiri samkeppni þar en
víðast annars staðar. Meiri en í
Danmörku, örugglega meiri en á
íslandi," segir hann sposkur. „En
hvar ég sæti, veit ég ekki.“ „Þú
værir að nálgast eftirlaunaaldur-
inn,“ segir kona hans hlýlega við
hann. „Tja, það er satt... Nei,
það er ómögulegt að vita...
Kannski væri ég á íslandi," segir
hann og hlær aftur.
Að vera svolítið ruglaður
Prinsinn hefur sagt um drottn-
inguna að þegar þau hittust hafi
hún verið óörugg ung kona og
hann hafi meðal annars hrifist af
henni fyrir það. Friðrik krónprins
hefur sagt frá sálarkreppu tán-
ingsáranna, þegar það fór að renna
upp fyrir honum að framtíð hans
var ófrávíkjanleg, en ekki spenn-
andi og óráðin eins og jafnaldra
hans. Jóakim segir að móðir hans
hafi einnig glímt við sams konar
tilfinningar, en hvað segir hún sjálf
um þessa kreppu sína. „Ja, ég veit
ekki, kannski þegar ég var mjög
ung,“ segir hún alvörugefin. „Sam-
semdarkreppa er fínt og mikilúð-
legt nútímaorð. Á þeim tíma hét
þetta bara að vera svolítið ruglað-
ur.“
Tíminn er á enda og hjónin
standa upp. Nútímafólk í samtím-
anum, en eins og marskálkurinn
segir, bera þau einnig söguna með
sér. I návist þeirra verður nútíminn
næstum of nútímalegur og ágeng-
ur.
Jarðskjálftar
í fyrrinótt
Líklega
tengdir
umbrotum
í jöklinum
VEÐURSTOFU íslands bár-
ust tilkynningar um þijá jarð-
skjálfta í fyrrinótt. Sá stærsti
mældist um 3,5 stig á Richter-
kvarða og átti upptök sín á
Hengilssvæðinu nálægt Öl-
kelduhálsi um kl. 7 í gær-
morgun. Að sögn Steinunnar
Jakobsdóttur, jarðeðlisfræð-
ings á Veðurstofunni, fannst
skjálftinn m.a. á Reykjavíkur-
svæðinu og Hveragerði.
Þá fundust einnig tveir
vægari skjálftar rétt sunnan
við Kröflu milli kl. 3.30 og 4
í fyrrinótt. Sá fyrri mældist
2,7 stig en sá seinni 2,9 stig
á Richter-kvarða.
Virkni er ekki mikil í kring-
um jarðskjálftana en þó urðu
að sögn Steinunnar nokkrir
tugir eftirskjálfta á Hengils-
svæðinu.
Að mati Steinunnar geta
skjálftarnir í fyrrinótt tengst
nýlegum eldsumbrotum í
Vatnajökli. „í kjölfar umbrot-
anna getum við átt von á til-
svarandi stærðum að nokkr-
um dögum liðnum en síðast
mældist skjálfti á Hengils-
svæðinu fyrir um hálfum
mánuði sem talinn er hafa
tengst jarðhræringum í
Vatnajökli.“ Steinunn nefndi
einnig að árið 1991 áttu
margar jarðskjálftahrinur sér
stað á Suðurlandi í kjölfar
Heklugoss.
Kuldi og
hálka fram í
næstu viku
VETRARVEÐRIÐ er komið
til að vera, að minnsta kosti
fram í næstu viku, samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofu
íslands. I dag er búist við norð-
austanátt, með 5-7 vindstigum
víðast hvar og snjókomu um
mestallt land. Hitastig verður
á bilinu 0-7, kaldast norðan-
lands.
Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni eru flestar
aðalleiðir færar en víðast hvar
er hálka. Mosfellsheiði var
þungfær í _gær og hálka á
Hellisheiði. I Árnes- og Rang-
árvallasýslum var snjókoma
og hálka í gærkvöldi. Ófært
var um Lágheiði, Axarfjarðar-
heiði og Hellisheiði eystri.
Um sexleytið í gær var kom-
in stórhríð á Siglufjarðarvegi
milli Fljóta og Siglufjarðar og
nánast ekkert ferðaveður að
sögn Vegagerðar. Þá gekk á
með éljum og skafrenningi í
Gilsfirði, á Ströndum hjá
Hólmavík og á Norðaustur-
landi.
Á föstudag og laugardag
verður norðanátt og víða kaldi.
Um landið norðanvert verða
él en léttskýjað syðra. Kalt
verður í veðri. Á sunnudag,
mánudag og þriðjudag verður
norðanstrekkingur og élja-
gangur eða snjókoma fyrir
norðan en skýjað með köflum
sunnan til. Þá fer veður hægt
hlýnandi.