Morgunblaðið - 31.10.1996, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Kjördæmisþing
Alþýðuflokksins
Skilyrði
sameining-
ar eru góð
„RÍKISSTJÓRN sú sem nú situr að
völdum, í skjóli mikils þingmeiri-
hluta, er ríkisstjórn afturhalds og
doða. Það er einna helst að lífsmark
sjáist með henni þegar hún rís upp
til að tryggja þrönga sérhagsmuni
fárra útvalinna á kostnað almenn-
ings, samanber óskammfeilna afbök-
un hennar á fjármagnstekjuskattin-
um, skelegga varðstöðu um ókeypis
einkarétt sægreifa til nýtingar á
sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og
ekki hvað síst hina undirförlu atlögu,
sem gerð var að samningsstöðu
verkafólks með nýgerðum breyting-
um á vinnulöggjöfinni," segir í
stjórnmálaályktun kjördæmisþings
Alþýðuflokksins, Jafnaðarmanna-
flokks íslands í Norðurlandskjör-
dæmi eystra sem haldinn var um
liðna helgi.
Þegar horft sé til núverandi styrk-
leikahlutfalls á Alþingi blasi sá ógn-
vekjandi möguleiki við að Framsókn
og Sjálfstæðisflokkur gætu haldið
völdum langt fram á næstu öld. Þá
sé hætta á að þjóðarauðurinn haldi
áfram að safnast í hendur hinna fáu
ríku, tekjuskiptin verði enn ranglát-
ari, velferðarkerfíð skorið við trog,
lífskjarabilið milli okkar og nágrann-
anna verði hyldýpi og ísiand einangr-
ist stöðugt meir í samfélagi þjóð-
anna.
Sameiningarferlið
á hröðu skriði
„Það sem einkum vekur vonir um
að þessi skuggalega framtíðarsýn
verði ekki að ískaldri staðreynd er
að skilyrði hafi aldrei verið hagstæð-
ari en einmitt nú til þess að gamli
draumurinn um sameiningu jafnað-
armanna, að eiga öfluga hreyfíngu,
geti orðið að veruleika,“ segir í álykt-
uninni. Sameiningarferlið sé þegar á
hröðu skriði, ekki síst meðal ungs
fólks sem krefst þess að jafnaðar-
menn vinni saman og sífellt fleiri
hrífíst með.
„Mikilvægasta verkefnið sem bíð-
ur nýrrar forystu Alþýðuflokksins er
að greiða fyrir sitt leyti fyrir því að
þessi sterka undiralda nái að lokum
að brjótast fram sem sameinað afl.
Þar er þó ekki um neitt áhlaupaverk
að ræða eins og sagan og nokkrar
misheppnaðar tilraunir sanna,“ segir
ennfremur.
Alþýðuflokksfólk þakkar einnig
Jóni Baldvini Hannibalssyni fyrir
ieiðsögn og forystu fyrir flokkinn
undanfarin ár og mikilvæg störf í
þágu þjóðarinnar allrar og honum
óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Hermína
Utvegsmannafélag Norðurlands
Stjórnvöld af-
nemi úreldinga-
reglur fiskiskipa
MAGNÚS Magnússon, útgerðar-
stjóri ÚA, var endurkjörinn formað-
ur Útvegsmannafélags Norður-
lands, en aðalfundur félagsins var
haldinn nýlega. Aðrir í stjórn eru
Gísli Svan Einarsson, Sauðárkróki,
Svavar Magnússon, Ólafsfirði, Odd-
geir ísaksson, Grenivík og Kristján
Asgeirsson, Húsavík.
Stjórn Útvegsmannafélagsins
samþykkti á fyrsta fundi sínum að
leggja tvær ályktanir fyrir aðalfund
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, sem hefst í Reykjavík í
dag. Annars vegar er skorað á
stjórnvöld að taka stefnumótandi
ákvörðun um að afnema úreidinga-
reglur fískiskipa í áföngum á næstu
tveimur árum. „Að þeim tíma liðn-
um verði útgerðarmönnum í sjálfs
vald sett hversu stórum skipum er
beitt við veiðar á aflaheimildum
viðkomandi útgerðar. Kröfur um
betri meðferð hráefnis, aðbúnað sjó-
manna og opinbert eftirlit kalla á
stærri og rúmmeiri skip miðað við
sama afla. Núverandi reglur vinna
á móti þessari þróun,“ segir enn-
fremur í ályktuninni.
Innleiða þarf tvíflöggun
Þá telur stjórn ÚN rétt að stjórn-
völd liðki fyrir þeim útvegsmönnum
sem hyggjast senda skip í tíma-
bundin verkefni erlendis. Það felur
m.a. í sér að áunninn réttur á Is-
landi tapist ekki vegna úthafsveiða
þótt skip séu skráð tímabundið í
öðrum löndum. Einnig þurfi að
huga að því að íslenskir sjómenn
tapi ekki réttindum sínum við tíma-
bundin störf erlendis, svo sem sjó-
mannaafslætti eða réttindum í
tryggingakerfinu. Þá telur stjórn
ÚN að innleiða þurfi svonefnda tví-
flöggun sem heimilar skipum að
halda íslenskri skráningu þó þau
séu skráð undir öðru flaggi samtím-
is vegna tímabundinna verkefna.
Loks ítrekar stjórn ÚN fyrri til-
lögur sínar um að núverandi kvóta-
skerðing vegna útflutnings á heilum
ferskum físki verði afnumin.
Útvegsmannafélag Norðurlands
hefur opnað skrifstofu í húsi
Byggðastofnunar á Strandgötu 29
á Akureyri og þar hefur nýráðinn
framkvæmdastjóri félagsins, Bjarni
Hafþór Helgason, aðstöðu.
Hlutabréfakaup í Útger ðarfélagi Akureyringa hf.
Lítill áhugi á kaupum
meðal starfsmanna
Barnamessa
haldin á
Dalbæ
ANNAN hvern sunnudags-
morgun híttist stór hópur
foreldra og barna í Dalvíkur-
kirkju en barnastarfið við kirkj-
una hefur verið mjög blómlegt.
Mikið er um söng, sagðar sögur
og leikrit leikin auk ýmis konar
föndurvinnu eins og tíðkast í
sunnudagaskólum.
Síðasta sunnudag var
brugðið út af vananum og
barnamessa haldin á Dalbæ,
heimili aldraðra. Þar tóku aldn-
ir þátt í stundinni og
börnin lögðu sig sérstaklega
fram í söng fyrir heimilisfólkið
enda margir sem áttu þar afa
og ömmur. Á eftir var boðið
upp á ávaxtasafa og kex.
ÓSK Óskarsdóttir, formaður starfs-
mannafélags Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf., segist ekki hafa orðið
vör við áhuga á meðal starfsmanna
að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu.
Bæjarbúar og starfsfólk ÚA eiga
forkaupsrétt á bréfum í félaginu til
kl. 18 á morgun föstudag en eftir
það fara bréfin á almennan markað.
„Sjálf hef ég engan áhuga á að
kaupa hlutabréf í fyrirtækinu og
þykir mér gengi þeirra allt of hátt.
Ef einhver áhugi er hins vegar á
meðal starfsmanna að kaupa, hefur
sá áhugi alveg farið fram hjá mér,“
segir Osk.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í september
sl. að selja 131,2 milljónir króna
að nafnverði af hlut sínum í ÚA
og er sölugengið 4,98. Jafnframt
var Kaupþingi Norðurlands falið að
annast söluna.
Stjórn starfsmannafélagsins hefur
ekki fjallað sérstaklega um for-
kaupsrétt starfsmanna, né heldur
kynnt málið fyrir starfsfólki. „Það
var ekkert rætt við okkur um hvern-
ig að þessari sölu yrði staðið og við
heyrðum aðeins af henni í fjölmiðl-
um,“ sagði Ósk. Á milli 400 og 500
manns eru í starfsmannafélaginu,
bæði landverkafólk og sjómenn.
Áhugi bæjarbúa
að glæðast
Jón Hallur Pétwrsson, hjá Kaup-
þingi Norðurlands, segir að áhugi
bæjarbúa á hlutabréfunum hafi ver-
ið að aukast. „Það er mikið hringt
eftir upplýsingum og þegar hafa
þó nokkrir skrifað sig fyrir bréfum.
Við gerum ráð fyrir því að selja
hlutabréf fyrir 50-100 milljónir
króna fyrir helgi en söluandvirði
þeirra hlutabréfa sem er í boði er
um 650 milljónir króna.“
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Tveir dæmdir fyrir
að stela bruggtækj-
um frá lögregiu
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt tvo menn á
Þórshöfn í varðhald í 40 daga,
skilorðsbundið í 2 ár og til greiðslu
alls sakarkostnaðar. Mönnunum,
sem eru 36 og 40 ára gamlir, er
gefið að sök að hafa stolið eiming-
artækjum, suðupotti og kælispíral
á lögreglustöðinni á Þórshöfn.
Játuðu sakargiftir
Mennirnir játuðu sakargriftir
skýlaust fyrir dómi og var fram-
burður þeirra í samræmi við rann-
sóknargögn málsins.
Samkvæmt sakavottorði hefur
yngri maðurinn, á árabilinu 1981-
1996, níu sinnum gengist undir
dómsáttir, þrívegis vegna áfengis-
lagabrota, fjórum sinnum vegna
umferðarlagabrota, einu sinni
vegna nytjastuldar og einu sinni
vegna eignaspjalla.
Eldri maðurinn hefur, sam-
kvæmt sakavottorði, fjórum sinn-
um hlotið dóma vegna umferðar-
og áfengislagabrota á árabilinu
1973-1983.
Dóminn kvað upp Ólafur Ólafs-
son héraðsdómari.
Morgunblaðið/Kristján
Vetrarkyrrð við Sandgerðisbót
BÁTARNIR í Sandgerðisbótinni lágu flestir bundn- eyri, en veðrið var stillt. Það var því ekki fiskur
ir við bryggju í gærdag, en trillukarlarnir bíða heldur snjór sem fyllti hjólbörurnar á bryggjunni,
betra veðurs. Það snjóaði nokkuð duglega á Akur- en eflaust á eftir að verða breyting þar á.