Morgunblaðið - 31.10.1996, Page 18

Morgunblaðið - 31.10.1996, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Nýtt Draumakertið DRAUMAKERTI heitir ný tegund kerta sem heildverslunin Gjafaver ehf. flytur inn. Kertin eru hand- gerð og þegar þau loga endur- speglast lit- ir og mynstur þeirra. Þeg- ar kertin eru brunnin upp að innan má setja teljós í staðinn. S vínakj ötsútsala í Bónus í DAG hefst útsala á nýju svínakjöti í Bónus og stendur hún fram að helgi eða meðan birgðir endast. Afslátturinn er á bilinu 25-40%, svínakótilettur kosta 699 krónur, svínasnitzel 699 krónur, svínagúllas 699 krónur, úrbeinaður svína- hnakki er á 699 krónur kílóið og svínabógsneiðar 299 krónur kílóið. Að sögn Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar í Bónus bauðst versluninni fyrsta flokks svína- kjöt á mjög hagstæðu verði og hann segir að þess fái neytend- ur nú að njóta. „Fram að helgi erum við að bjóða svipað verð og er á svínakjöti í Dan- mörku.“ Jón Ásgeir segir að framboð af svínakjöti sé mjög mikið þessa dagana og ástæðan sú að yfirleitt er svínakjöt á of háu verði og selst því ekki sem skyldi. VERSLUNARHUS Quelle DALVEGI 2 • KÓPAVOGI • S: 564 2000 Kjarnafæði á Akureyri Morgunblaðið/Kristján Þjóðleg'ir réttir á íslenskum dögum ÞESSA vikuna taka fyrirtæki á Norðurlandi þátt í íslensku átaki, já takk. Kjarnafæði er meðal fjöl- margra fyrirtækja fyrir norðan sem taka þátt í átakinu. „Við erum afskaplega þjóðlegir að þessu sinni og bjóðum viðskipta- vinum ýmissa verslana hér fyrir norðan að bragða á söltuðu folalda og hrossakjöti og til dæmis grófum hrossabjúgum", segir Eiður Gunn- laugsson framkvæmdastjóri Kjarnafæðis. „Undanfarin ár höfum við lagt áherslu á að vera með nýjungar í kjötvinnslu og nú finnst okkur kominn tími til að minna á gamla siði í matargerð. Þessvegna höfum við ákveðið að kynna í vetur saltað og reykt folaldakjöt og ýmsar út- gáfur af hrossakjöti. Áuk þess verðum við með úral af svína-, og lambakjöti og úrbeinaða hangi- framparta. Rúsínan í pylsuendan- um eru norðlensku sperglarnir sem eru unnir úr lambakjöti. Á íslenskum dögum bjóðum við þessa þjóðlegu rétti með 15-20% afslætti og við höfum fundið að fólk hefur áhuga á að viðhalda gömlum hefðum í matargerð. Góð viðbrögð hafa komið okkur skemmtilega á óvart.“ Senda fagmenn árlega utan „Við sendum fagmenn okkar reglulega erlendis á námskeið en þeir eru um tuttugu talsins en alls starfa milli 80 og 85 manns hjá fyrirtækinu. Þar sem fagmenn okkar hafa oft farið utan til að kynna sér það sem aðrar þjóðir eru að gera höfum við verið iðnir við að kynna ýmsar nýjungar sem við höfum verið að markaðssetja und- anfarin ár. í sumar kynntum við til dæmis mexíkóska salsapylsu sem seldist vel, við erum með la- sagne og ýmsar pylsutegundir eins og ekta þýska „bratwurst". Okkur fannst núna kominn tími til að leggja áherslu á þjóðlega rétti“ Færeyingar eru sólgnir í rúllupylsu Um síðustu áramót hóf Kjarna- fæði að framleiða ýmsar kjötvörur fyrir Færeyinga sem eru seldar í Bónus. „Við vildum sem minnst tjá okkur um þennan útflutning okkar itl að byija með en hann hefur gengið vonum framar. Nú er svo komið að við erum nærri heilan dag í viku hverri að vinna fyrir færeyskan markað.“ Eiður segir að rúllupylsan sé mjög vinsæl í Færeyjum en síðan selja þeir líka þangað pítsur, kjötfars, ömmusalt- kjötfars og margskonar áleggsteg- undir. „Nú er svo komið að við höfum vart undan að framleiða og okkur vantar til dæmis hráefni í rúllupylsur. Ég lýsi hérmeð eftir slögum til rúllupylsugerðar," segir Eiður. „Við notum um tvö tonn af slögum á viku í þessum tilgangi og vantar tilfínnanlega slög.“ J óJ Litasjampó • 20% litur • ph-mildur • litar án ammoníaks Þú færð Poly Color vörurnar í snyrtivöru- búðum og apótekum. Mjög gott verol

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.