Morgunblaðið - 31.10.1996, Qupperneq 31
30 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 31
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SNJÓFLÓÐA-
VARNIR
HÆTTA af snjóflóðum er hvergi talin meiri en hér á
landi. Nokkuð á annað hundrað manns hafa týnt lífi
í snjóflóðum hér það sem af er 20. öldinni. Mannskæð-
ustu flóðin urðu í Hnífsdal árið 1910, í Siglufirði 1919,
í Neskaupstað árið 1974, í Súðavík árið 1995 og á Flat-
eyri sama ár. Athugun, sem Veðurstofa íslands hefur
nýlega unnið, leiðir í ljós, að þörf er fyrir snjóflóðavarnir
á átta stöðum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi.
Kostnaður við uppbyggingu varna á þessum hættusvæðum
er áætlaður sjö til fjórtán milljarðar króna.
Sjávarplássin eru í mestu návígi við náttúruöflin. Þau
hafa mörg hver orðið fyrir þungum áföllum af þeirra völd-
um. Fleiri íslendingar hafa látið lífið í snjóflóðum en nokkr-
um öðrum náttúruhamförum, að sjóslysum einum undan-
skildum. Vitað er um vel yfir 600 manns, sem farizt hafa
í snjóflóðum hér á landi, þar af nokkuð á annað hundraðið
á þessari öld. Eignatjón hefur og verið gífurlegt.
Sjávarplássin hafa gegnt „þungavigtarhlutverki" í þjóð-
arbúskap okkar. Þar hefur stærstum hluta af efnum ís-
lendinga á 20. öldinni verið „landað“. Þau hafa á hinn
bóginn orðið fyrir miklum áföllum í tímans rás, einkum
af völdum sjóslysa og snjóflóða. Meir en tímabært er að
bregðast við þeirri staðreynd með nýju hættumati og til-
tækum snjóflóðavörnum.
Lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum frá
1985 fólu Almannavörnum ríkisins hættumat og gerð
neyðaráætlana. Veðurstofa annast á hinn bóginn öflun
gagna um snjóflóð og hættur. Sveitarfélög koma og til
sögunnar, m.a. með tillögum að varnarvirkjum. Nýlegt
mat Veðurstofu á kostnaði við snjóflóðavarnir er tíma-
bært innlegg í stefnumörkun um varnaraðgerðir. Þeim
verður að sinna með markvissum hætti, til að sporna
gegn mann- og eignatjóni. Staðsetningu nýrra byggða-
svæða verður og að byggja á ströngu hættumati.
V ÖRU G J ALD AMÁLIÐ
VÍTITIL VARNAÐAR
ISLENZK stjórnvöld ættu að láta vörugjaldamálið svo-
kallaða verða sér víti til varnaðar. Stjórnkerfið reynd-
ist ótrúlega svifaseint að bregðast við athugasemdum
Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um álagningu og inn-
heimtu vörugjalds hér á landi, eins og rakið er í fréttaskýr-
ingu í Morgunblaðinu í gær. íslenzka ríkið slapp naum-
lega við málflutning fyrir EFTA-dómstólnum í næstu viku
með því að undirgangast sátt við Eftirlitsstofnunina, þar
sem játað er að íslenzk lög um vörugjald hafi brotið samn-
inginn um Evrópskt efnahagssvæði.
Tregða ríkisins til að breyta reglum um vörugjald er
ekki einasta ókurteisi gagnvart þeim fyrirtækjum, sem í
hlut áttu, heldur einnig óhyggilegt gagnvart öðrum ríkjum
Evrópska efnahagssvæðisins. Eins og Morgunblaðið hefur
áður bent á, eiga íslendingar mikið undir því að ríki EFTA
og Evrópusambandsins virði samninginn, til dæmis hvað
varðar innflutning á fiski frá íslandi. íslendingar mega
því ekki gefa höggstað á sér með því að hunza athugasemd-
ir og rökstutt álit ESA og vera dregnir fyrir EFTA-dóm-
stólinn fyrir vikið.
Innflutningsfyrirtæki hefur nú ákveðið að gera kröfu
á hendur ríkinu um að það endurgreiði ofgreitt vörugjald.
Erfitt er að spá um hvernig sá málarekstur fer, enda
hefur verið bent á að það séu fyrst og fremst neytendur,
sem hafi tapað á því, hafi vörugjald verið of hátt, og
þeir eigi því kannski frekar kröfu á hendur ríkinu en inn-
flytjendur.
ESA setti ekki út á álagningu vörugjaldsins sem slíka,
heldur framkvæmd hennar. Hins vegar hljóta stjórnvöld
að íhuga þau rök samtaka verzlunarinnar, að vörugjaldið
sé ranglátur skattur, sem hækki ekki aðeins vöruverð,
heldur leiði til þess að verzlun með ákveðnar vörur, til
dæmis heimilistæki af ýmsu tagi, færist út úr landinu.
Afleiðingin er sú að ríkissjóður, verzlunin og neytendur
missa spón úr aski sínum. Það hlýtur að vera athugandi
að skoða hversu miklar tekjur ríkissjóður myndi hafa af
aukinni veltu vegna afnáms vörugjalds, miðað við þær
tekjur, sem hann hefur af gjaldinu núna.
50 ÁRA AÐILD ÍSLANDS AÐ SÞ
Saltfiskkaupendur bregðast við minni saltfískneyslu og samkeppni frá Norðmönnum
Stofnhug-
sjónin verði
að veruleika
Hálf öld er liðin frá því ísland gerðist aðili
að Sameinuðu þjóðunum. Hans-Dietrich
Genscher, fv. utanríkisráðherra Þýzkalands,
segir að nú sé tækifæri til að gera stofnhug-
sjón SÞ að veruleika: Frið, jöfnuð og einingu.
Auðunn Arnórsson hitti Genscher.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VEL fór á með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Hans-Dietrich
Genscher, fv. utanríkisráðherra Þýzkalands, er þeir hittust að
máli eftir hádegið í gær.
Morgunblaðið/Golli
STJÓRNMÁL voru umræðue/nið við háborðið á hátíðarfundi Félags Sameinuðu þjóðanna á íslandi.
Frá vinstri: Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, kona hans Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráðherra og heiðursgestur fundarins, Hans-Dietrich Genscher.
HEIÐURSGESTUR og aðal-
ræðumaður á hátíðarfundi
Félags Sameinuðu þjóð-
anna á íslandi, sem hald-
inn var á Hótel Sögu síðdegis í gær
til að fagna 50 ára aðild íslands að
Sameinuðu þjóðunum (SÞ), var Hans-
Dietrich Genscher, sem þekktastur
er fyrir að hafa gegnt embætti utan-
ríkisráðherra Þýzkalands í 18 ár, frá
1974 til 1992. Það erþví vandfundinn
sá maður í heiminum, sem býr því
yfir meiri reynslu og þekkingu á al-
þjóðamálum en hann, sem gerir hann
að eftirsóttum fyrirlesara um allan
heim.
Samskipti íslands og
Þýzkalands
Við upphaf ræðu sinnar á hátíðar-
fundinum minntist Genscher einnig
samskipta íslands og Þýzkalands.
Hann sagði það vera að nokkru leyti
Þýzkalandi að kenna, að ísland hefði
ekki haldið upp á 50 ára aðild að
Sameinuðu þjóðunum í fyrra, er stofn-
un þeirra var fagnað, þar sem ísland
hafi ekki viljað gangast undir það
skilyrði sigurvelda seinni heimsstyij-
aldar, sem stóðu að stofnun SÞ vorið
1945, að öll stofnaðildarríki segðu
Þýzkalandi stríði á hendur. „Það er
af þeirri ástæðu sérstakur heiður fyr-
ir mig sem Þjóðveija að vera heiðurs-
gestur á hátíðarsamkomu af tilefni
50 ára SÞ-aðildar íslands," sagði
Genscher.
Hann hafi þó ekki þekkzt boðið um
að koma hingað eingöngu af þessum
sögulegu ástæðum. Eins og ófáir
Þjóðveijar hafí hann ætíð dáðst af
dugnaði íslendinga við að byggja upp
á undanförnum áratugum auðugt og
blómstrandi samfélag við erfiðar ytri
aðstæður. Þýzkaland og ísland séu,
þrátt fyrir að tiltölulega langt sé á
milli þeirra landfræðilega, bundin
föstum vináttuböndum - pólitískt,
efnahagslega og menningarlega. Sem
þýzkur utanríkisráðherra hafi hann
ávallt metið það mikils, hvernig ís-
lendingar legðu sitt af mörkum til
alþjóðlegs stöðugleika, öryggis og
samvinnu í Evrópu og í heiminum
öllum.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Genscher samskipti þjóðanna
tveggja hafa alla sína tíð verið ein-
staklega vandkvæðalaus, náin og
vinsamleg. Þýzkaland hafi ávallt
beitt sér fyrir því innan Evrópusam-
bandsins að tekið yrði tillit til hags-
muna íslands, einkum á sviði sjávar-
útvegsmála. Sá mikli velvilji, sem
fslendingar hefðu sýnt sameiningu
Þýzkalands hefði ekki síður styrkt
vináttu þjóðanna.
Sameinuðu þjóðirnar: Friður,
jöfnuður og eining
í hátíðarræðu sinni fjallaði Gensch-
er um hlutverk Sameinuðu þjóðanna
fyrr og nú, en lagði einkum áherzlu
á breytt hlutverk SÞ eftir endalok
kalda stríðsins. Þau hafi breytt póli-
tísku umhverfi SÞ í grundvallaratrið-
um og haft víðtækar afleiðingar, m.a.
þær að endurskoðun á starfí SÞ hefur
orðið mjög aðkallandi. Með endalok-
um kalda stríðsins hafi m.a. verið
hægt að yfirstíga lömun öryggisráðs
SÞ, sem skipting heimsins í tvær
andstæðar fylkingar hefði haft í för
með sér. Hann sagði Sameinuðu þjóð-
irnar hafa verið stofnaðar í nafni
hugsjónarinnar um heim, þar sem
friður, jöfnuður og eining réði ríkjum.
Fimm áratugum síðar sé þessi hug-
sjón engu síður mikilvæg og virðing-
arverð. Nú, þegar bundinn hefur ver-
ið endi á kalda stríðið og skiptingu
Þýzkalands og Evrópu, hafi heimur-
inn nýtt tækifæri til að gera þessa
hugsjón að veruleika.
Endurbætur brýnar
Genscher sagði endurbætur á starf-
semi og stofnunum SÞ vera mjög
brýnar. Eins og er væri starfsemi
þeirra deilt niður á um 150 stofnan-
ir. Stofnanaskipan og starfshætti SÞ
yrði að einfalda og gera skilvirkari.
En Genscher hafnar því algerlega,
að sitjandi aðalritari SÞ, Boutros
Boutros-Ghali, sé gerður að blóra-
böggli fyrir þá galla sem háð hefur
starfsemi SÞ á undanförnum árum.
Þeir séu ekki honum að kenna, heldur
öllu frekar skorti á stuðningi aðildar-
þjóðanna við áætlanir hans. Að mati
Genschers er gagnrýniverðara, að
mörg ríki hefðu gerzt sek um að
standa sig illa við að standa skil á
samningsbundnum fjárframlögum
sínum til SÞ og úr því yrðu þau að
bæta.
Aðspurður um breytta stöðu
Þýzkalands eftir sameininguna sagði
Genscher ekki aðeins Þýzkaland,
heldur alla Evrópu hafa breytzt eftir
fall járntjaldsins. Þessar breyttu að-
stæður setji Þýzkaland, raunar alla
Evrópu, í betri stöðu. Þar sem Þýzka-
land liggur í miðri Evrópu segi sig
sjálft, að það verði sérstaklega fyrir
áhrifum af þessum breyttu aðstæð-
um. Það hafi í för með sér, að Þýzka-
land sé öðrum fremur áfram um að
í allri Evrópu ríki stöðugleiki.
Hann segir hins vegar stækkun
NATO til austurs fyrst og fremst
snúast um rétt hinna nýfijálsu ríkja
þar til að velja hvaða öryggissamtök-
um þau ganga til liðs við. Þau hafi
rétt á að eiga aðild að sameiginlegri
öryggisskipan Evrópu. Uppbygging
slíkrar skipanar hafi ætíð verið yfir-
lýst markmið Atlantshafsbandalags-
ins. NATO verði að leggja niður fyrir
sér, hvert hlutverk einstakra ríkja
A-Evrópu eigi að vera í þeirri framtíð-
arskipan, að Rússlandi, Úkraínu, Pól-
landi og Eystrasaltslöndunum með-
töldum. Að því loknu verði mun auð-
veldara að ná samkomulagi um
NATO-aðild A-Evrópuríkjanna. Þetta
þýði þó ekki frestun NÁTO-aðildar.
I nýlegri heimsókn Kohls kanzlara í
Moskvu hafi orðið ljóst, að engin
ákvörðun yrði tekin í málinu fyrr en
á vorfundi NATO-ríkjanna á næsta
ári. Tímann fram að þeim fundi segir
Genscher eiga að nýta til að fullgera
áætlanir um það hvernig framtíðar-
skipan stöðugrar og réttlátrar Evrópu
skuli líta út.
Þátttakan þýðing-
armikil sjálfstæði
og velfamaði
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að þátttaka íslands í starfi
Sameinuðu þjóðanna hafi verið þýð-
ingarmikil fyrir sjálfstæði landsins og
velfarnað þjóðarinnar. Þetta kom
fram í ræðu sem utanríkisráðherra
flutti á hátíðarsamkomu vegna hálfr-
ar aldar aðildar íslands að SÞ sem
minnst var í_ gær.
Halldór Ásgrímsson bauð jafn-
framt heiðursgest hátíðarsamkom-
unnar, Hans Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Þýskalands í tæpa tvo
áratugi, velkominn og sagði hann
hafa leikið stórt hlutverk í stjórnmála-
sögu Evrópu. „Ekki síst í hinum ör-
lagaríku atburðum sem urðu með
falli Berínarmúrsins og hruni komm-
únismans".
Halldór sagði aðild íslands að SÞ
næstum jafn gamla lýðveldinu og að
íslendingar hefðu gengið til leiks
„með það fyrir augum að vera virkir
þátttakendur í alþjóðamálum og móta
heiminn í samstarfi þjóðanna".
Þá vék utanríkisráðherra að þátt-
töku íslands í öryggissamstarfí Vest-
urlanda. „Starf okkar innan samtak-
anna hefur í hálfa öld borið þess
merki að ísland skipaði sér í hóp
þeirra ríkja sem höfðu_ lýðræðið að
leiðarljósi. . . Framlag íslands hefur
ekki verið mikið að vöxtum í saman-
burði við margar aðrar þjóðir en við
höfum talað af heilum hug í þeirri
vissu að enginn megi skerast úr leik
þegar um grundvallaratriði í mann-
legri tilvist á jörðinni er að ræða.“
Halldór sagði enn fremur að Sam-
einuðu þjóðirnar væru á tímamótum
vegna breyttra stjórnmálaaðstæðna í
heiminum og að samtökin þyrftu að
laga sig að breyttum aðstæðum.
„Mikið umbótastarf fer nú fram innan
samtakanna og styðja íslensk stjórn-
völd það af heilum hug.“ Loks lét
utanríkisráðherra í ljós þá von að ís-
lendingar „beri gæfu til þess að vinna
áfram farsællega að hinum veiga-
miklu málefnum Sameinuðu þjóðanna
og stuðla með því að betra mannlífi
á jörðinni."
íslenskur saltfiskur
auglýstur á Spáni
í umfangsmikilli auglýs-
ingaherferð, sem
saltfískheildsalar í Kat-
alóníu á Spáni og nokkr-
ir fískútflytjendur á
íslandi standa fyrir, er
lögð megináhersla á að
auglýsa saltfískinn sem
íslenskan. Vinsæl
gamanleikkona kemur til
með að auglýsa saltfísk-
inn í sjónvarpi í vetur og
næsta sumar. Egill
Ólafsson kynnti sér
viðskipti með saltfísk
í Katalóníu.
ÞRJÚ íslensk og þrjú spænsk
fyrirtæki, sem kaupa og
selja saltfisk, hafa ákveðið
að fara út í umfangsmikla
auglýsingaherferð í Katalóníu á
Spáni. Fiskurinn verður auglýstur
sérstaklega sem íslenskur enda telja
Spánveijarnir það árangusríkustu
aðferðina vegna þess að íslenskur
salfiskur sé þekktur fyrir gæði. Fyr-
irtækin hafa fengið til liðs við sig
vinsælustu gamanleikkonu í Kata-
lóníu og auglýsingar með henni
munu birtast í spænsku sjónvarpi í
vetur og næsta sumar.
Það eru íslensku saltfiskútflytj-
endurnir B. Benediktsson ehf.,
Marex hf. og Jón Ásbjörnsson hf.
og samstarfsaðilar þeirra á Spáni
Armengol, Alfonso Romero og Sagu
sem standa að auglýsingaherferð-
inni.
Hugmyndin að auglýsingaher-
ferðinni kviknaði í ferð frú Vigdísar
Finnbogadóttur til Barcelona á síð-
asta ári. Frumkvæði kom hins vegar
frá Félagi útvatnara, en það er félag
smásala sem hefur innan sinna vé-
banda yfir 800 saltfiskbúðir í Kata-
lóníu. Félagið þrýsti á heildsalana
um að beita sér fyrir söluátaki.
Fimm heildsalar í Katalóníu kaupa
saltfisk frá íslandi og náðist sam-
staða milli þriggja. Samkvæmt
bréfi sem Félag útvatnara sendi til
utanríkisráðuneytisins eru þessi
þijú fyrirtæki með 80% markaðs-
hlutdeild á
Katalóníu.
Morgunblaðið/Egill
ÍSLENSKA merkið blasir við í yfir 800 saMfiskbúðum í Katalóníu. Á veggnum fyrir aftan starfsfólkið
eru veggspjöld með mynd af gamanleikkonunni Lloll Bertran.
búðum um alla Katalóníu, höfðu
miklar áhyggjur af sókn Norðmanna
inn á markaðinn. Við gerðum okkur
grein fyrir því að ef við gerðum
ekkert myndi það hafa afdrifaríkar
afleiðingar fyrir okkur,“ sagði Ar-
mengol.
Sigurður Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Marex hf., sagði að
Norðmenn væru tilbúnir að setja
mikla fjármuni í að auglýsa saltfisk
sinn í Katalóníu. Þeir hefðu hins
vegar ekki öfluga umboðsmenn á
svæðinu og eins þætti heimamönn-
um norski fískurinn ekki eins góður
og sá íslenski. Norðmenn hefðu hins
vegar verið að bæta sig í gæðamál- ^
um og því væri nauðsynlegt fyrir
íslenska saltfiskútflytjendur að vera
vel á verði.
LEIKKONAN Lloll Bertran auglýsir íslenska saltfiskinn í sjón-
varpi í Katalóníu í vetur og næsta sumar. Hannað hefur verið
sérstakt vörumerki í íslensku fánalitunum.
islenskum saltfiski í
Saltfiskneysla að minnka
Saltfiskur hefur átt í vök að veij-
ast í Katalóníu eins og á fleiri svæð-
um við Miðjarðarhafið. Önnur mat-
vara sækir sífellt á. Salt- -----------------
fiskhefðin er hins vegar Auglýst í
afar sterk á Spáni enda 800 búðum
eru Spánveijar með mestu ;
fiskætum í heimi. Að með- 1 *aiaioniu
altali borðar hver Spán- “
veiji um 40 kíló af fiski á ári. Hlut-
fallið er enn hærra á svæðum með
ströndinni eins og í Katalóníu.
Auglýsingaherferðinni er ætlað
að höfða sérstaklega til kvenna á
aldrinum 25-45 ára, en á Spáni er
það langoftast konan sem sér um
matarinnkaup fýrir fjölskylduna.
Kannanir hafa sýnt að saltfisk-
neysla þessa aldurshóps hefur
minnkað umtalsvert, en þær sýna
jafnframt að ungar konur þekkja
saltfisk vel og líkar vel við hann.
Það er því álitið að þær séu móttæki-
legar fyrir áróðrinum. í söluátakinu
verður reynt að kynna saltfiskupp-
skriftir fyrir kaupendum og lögð
áhersla á að saltfiskur sé auðveldur
í matreiðslu.
Gamanleikkona auglýsir
saltfisk
Útbúnar hafa verið þijár auglýs-
ingar með katalónsku gamanleikkon-
unni Lloll Bertran. Hún er með gam-
anþætti á sjónvarpsstöð í Barcelona
og nýtur mikilla vinsælda. Vinsældir
Bertran komu berlega í ljós í mót-
töku sem saltfiskheildsalamir héldu
fyrir smásalana í Katalóníu. Um 700
manns mættu og kættust mikið þeg-
ar Bertran mætti á svæðið og fór
--------- að ræða um ágæti íslenska
saltfisksins á gamansöm-
um nótum. Auglýsingarn-
ar vora sýndar gestunum
og af viðbrögðum smásal-
anna að dæma verður að
teljast líklegt að auglýsingaherferðin
eigi eftir að ganga vel.
Auglýsingaspjöld með myndum
af Bertran verða hengd upp i nær
öllum saltfiskbúðum í Katalóníu.
Auglýsingaherferðin hefst í næstu
viku og stendur út nóvember. Hún
fer aftur í gang í janúar og stendur
fram að páskum. Næsta sumar
verða auglýsingamar síðan áfram
birtar með það að markmiði að
lengja neyslutímabilið, en til
skamms tíma dró verulega úr salt-
fiskneyslu eftir páska. Neyslan hef-
ur þó verið að jafnast á síðustu
árum.
Áhersla á íslenskan uppruna
Auglýsingaherferðin byggist á
því að auglýsa saltfískinn sem ís-
lenskan. Hannað hefur verið sér-
stakt vöramerki í íslensku fánalitun-
um, sem fest verður við allan físk
í búðunum og þær verða einnig
skreyttar með merkinu.
„f þessari auglýsingaherferð
emm við ekki að auglýsa fyrirtæki
okkar heldur er öll áherslan á salt-
fiskinn og uppruna hans. Meginat-
riðið í herferðinni er að fiskurinn
er íslenskur. Ástæðan fyrir þessu
er sú að íslenskur saltfiskur hefur
mjög gott orð á sér. Gæði
hans eru þekkt og al-
mennt viðurkennd. Við
töldum því að besta leiðin
til að ná árangri í herferð-
inni væri að leggja
áherslu á upprunann," sagði Eduard
Armengol, einn saltfiskheildsalanna
sem standa að herferðinni.
„Eftirspurn eftir saltfiski hefur
verið að minnka í Katalóníu og við
töldum nauðsynlegt að bregðast við
á einhvern hátt. Keppinautar okkar
sem selja önnur matvæli hafa verið
að sækja á, m.a. vegna þess að
þeir auglýsa vörur sínar. Smásalam-
ir, en þeir selja saltfisk í yfir 800
G»öi íslenska
saitfisksins
eru vel þekkt
Samdráttur í línuútgerð
alvarlegur
Bjami Benediktsson saltfiskút-
flytjandi sagði að saltfiskmarkaður-
inn í Katalóníu væri afar mikilvæg-
ur fyrir íslendinga. Þessi markaður
hefði verið kallaður verðmætasti
saltfiskmarkaður i heimi og ástæðan
væri sú að þangað færi nær ein-
göngu hágæðafiskur. Þessi markað-
ur borgaði þess vegna að jafnaði
hæsta verðið.
Bjami sagði að kaupendur í Kata-
lóníu legðu mikla áherslu á að salt-**-
fiskurinn væri hvítur. Þeir vildu síð-
ur gulleitan fisk, jafnvel þó að
bragðmunurinn væri nánast enginn.
„Besta hráefnið á þennan saltfisk-
markað kemur frá línu- og króka-
bátum. Vandamál okkar er hvað það
-------- er erfitt að fá nægilega
mikið af línufiski. Mér sýn-
ist flest benda til að þetta
verði enn erfiðara núna
_____ eftir að línutvöföldunin var
afnumin. Þetta er því al-
varlegra í ljósi þess að Færeyingar
og Norðmenn era að auka línuút:
gerð,“ sagði Bjarni.
Armengol sagði að það hefði ekki
verið sjálfsagt mál að ná samstöðu
milli heildsalanna um að fara út í
þessa herferð. Samkeppni milli
þeirra væri afar hörð, en það væri
hins vegar sameiginlegt hagsmuna-
mál þeirra allra að auka neyslu á
íslenskum saltfiski.